Morgunblaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 24
24 B SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIMNUAUGIVS/NGAR
FJÖLBRAUTASKÓLI SUÐURLAND5
Ferðamálagreinar
Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi leitar
eftir kennara í ferðamálagreinum á vorönn
1997. Um er að ræða u.þ.b. ^Ahluta starfs.
Góð vinnuaðstaða.
Laun skv. kjarasamningum HÍK/KÍ.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf berist skólameistara eigi síðar
en 13. desember.
Skólameistari og aðstoðarskólameistari
veita nánari upplýsingar í síma 482 2111.
SJÚKRAHÚS
REYKJ AVÍ KU R
Staða sérfræðings í heila- og taugaskurð-
lækningum við Sjúkrahús Reykjavíkur er laus
til umsóknar.
Um er að ræða fullt starf. í starfinu felst vinna
við heila- og taugaskurðlækningadeild spítal-
ans. Að auki leggi viðkomandi stund á rann-
sóknir og taki þátt í kennslu í samráði við
yfirlækna deildarinnar.
Umsókn, með nákvæmri greinargerð um
nám og fyrri störf, sendist til Bjarna Hannes-
sonar eða Kristins Guðmundssonar, yfir-
lækna deildarinnar, sem veita nánari upplýs-
ingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 1997.
Sjúkraliðar -
geðsvið, Arnarholti
Sjúkraliðar óskast til starfa nú þegar og eft-
ir samkomulagi.
Upplýsingar um störfin gefa Guðrún Erla
Aðalsteinsdóttir og Anna Jóna Víðisdóttir,
deildarstjórar, \ síma 566 6680 og Guðný
A. Arnþórsdóttir, hjúkrunarframkvæmda-
stjóri
í síma 525 1405.
Fjármálastjóri
Við erum áræðinn 60 manna hópur kvenna
og karla á öllum aldri. Markmið okkar er að
byggja upp öflugt, íslenskt matvælafyrir-
tæki, sem hefur sterka stöðu á heimamark-
aði og stundar útflutning. Við framleiðum,
seljum og dreifum ýmiskonar feitivörum og
drykkjarvörum.
Vegna aukinna umsvifa vantar okkur dugmik-
inn og ákveðinn fjármálastjóra.
Umsækjendur þurfa að hafa brennandi
áhuga á öllu, er viðkemur fjármálastjórn, og
búa yfir reynslu og þekkingu, sem gerir þeim
kleift að bera ábyrgð á og stjórna fjármálum
ört vaxandi fyrirtækis.
Um er að ræða krefjandi starf, þar sem
áhersla er lögð á skipuleg vinnubrögð og
árangur í starfi.
Nauðsynlegt er að umsækjendur geti hafið
störf eigi síðar en eftir tvo til þrjá mánuði.
í umsóknum þurfa að koma fram nákvæmar
upplýsingar um menntun og fyrri störf.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og verður öllum umsóknum svarað.
Umsóknum, merktum: „Sól hf. - Gagn og
gaman“, ber að skila til afgreiðslu Mbl.
fyrir 5. desember nk.
Sérfræðingur
Starf sérfræðings við fjármálastofnun, mið-
svæðis í Reykjavík, er laust til umsóknar.
Starfið er á sviði þar sem m.a. er fjallað um
nýjungar í fjármálaþjónustu, gerð reiknings-
skilareglna og endurskoðun.
Hæfniskröfur: Viðskipta-, hagfræði- eða
sambærileg menntun áskilin. Starfsreynsla
og þekking á reikningsskilum og endurskoð-
un æskileg. Tungumálakunnátta (enska og
Norðurlandamál) nauðsynleg.
Leitað er að aðila sem hefur til að bera frum-
kvæði í starfi og getur unnið sjálfstætt.
Um er að ræða áhugavert starf í góðu starfs-
umhverfi.
Vakin skal athygli á því að í stofnuninni er
f gildi áætlun í jafnréttismálum.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu Liðs-
auka fyrir 6. desember nk.
Skrifstofan er opin kl. 9-14 virka daga.
Fólk og þekking
Lidsauki ehf. ^
Skipholt 50c. 105 Reykjavlk sími 562 1355. fax 562 1311
ÖRVI
Starfsleiðbeinandi
(verkstjóri/stuðningsfulltrúi)
óskast til starfa.
Starfsþjálfunarstaðurinn Örvi, sem sinnir
starfsþjálfun fatlaðra, óskar að ráða starfs-
leiðbeinanda (verkstjóra/stuðningsfulltrúa)
til starfa.
Til boða er 50% starf og er daglegur vinnu-
tími frá kl. 12-16.
Starf starfsleiðbeinanda í Örva felst í
kennslu- og leiðbeiningarstarfi við fatlaða
starfsmenn og verkstjórn í vinnslusal.
Starfsleiðbeinendur annast og daglega um-
sjón með framleiðslu og afgreiðslu viðskipta-
vina.
Umsóknum skal skilað til Örva, Kársnesbraut
110, Kópavogi, fyrir 15. desember nk.
Upplýsingar veitir forstöðumaður
í síma 554 3277.
Markaðsfræðingur
Nýútskrifaður markaðsfræðingur óskast til
að markaðssetja nýja vörutegund hér á landi.
Þeir, sem hafa áhuga og ferskar hugmyndir,
sendi inn tilheyrandi upplýsingar í pósthólf
4158, 124 Reykjavík, fyrir 1. des. 1996.
Starfsmaður
í hugbúnaðargerð
Verkfræðistofan Hnit hf. óskar eftir að ráða
starfsmann til starfa við hugbúnaðargerð.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi þekk-
ingu á Visual C++, Visual Basic eða Delphi
forritunarmálum. Einnig er nauðsynlegt að
umsækjendur hafi þekkingu á Oracle 7 eða
sambærilegu gagnagrunnskerfi.
Leitað er að starfsmanni, sem á auðvelt með
að starfa með öðrum að lausn áhugaverðra
og krefjandi verkefna.
Umsækjendur skulu skila upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf til verkfræði-
stofunnar Hnitar hf., Háaleitisbraut 58-60,
108 Reykjavík, merktum: „Starfsmaður í hug-
búnaðargerð".
Upplýsingar um starfið eru ekki veittar í síma.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á
Sjúkrahúsið Vog. Á Vogi eru rúm fyrir 60
sjúklinga og er unnið við sérhæfða hjúkrun
í afeitrun áfengis- og vímuefnasjúklinga. Kjör-
ið tækifæri til að kynnast vímuefnahjúkrun.
Upplýsingar gefur Þóra Björnsdóttir, hjúkrun-
arforstjóri, í síma 567 6633.
Sölufólk
Listaverkaalmanak Landssamtakanna
Þroskahjálpar er komið út.
Góð sölulaun - þekkt og falleg vara.
Söluaðilar! Hafið samband við skrifstofu sam-
takanna á Suðurlandsbraut 22, Reykjavík,
sími 588 9390.
Aioskahjálp
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkraliðar - starfsmaður
Hjúkrunarfræðingur óskast á hjúkrunarvakt
vistheimilis á næturvakt 52% vinna (grunn-
röðun ílfl. 213). Þessi staða er laus nú þegar.
Sjúkraliði óskast í 100% vaktavinnu
frá áramótum.
Upplýsingar veita ída Atladóttir, hjúkrunar-
forstjóri og Þórunn A. Sveinbjarnar, hjúkrun-
arframkvæmdarstjóri, í símum 553 5262 og
568 9500.
Starfsmaður óskast til ýmissa aðstoðar-
starfa. Upplýsingar veitir Rafn Sigurðsson,
forstjóri, í síma 568 9500.
Qf
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur
auglýsir lausar stöður
við grunnskóla í Reykjavík:
Handmenntakennari
Handmenntakennara vantar í Breiðholts-
skóla frá 1. janúar til skólaloka.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar-
skólastjóri í síma 557 3000.
Talkennari
Talkennara vantar frá áramótum til starfa við
grunnskóla Reykjavíkur.
Hlutastarf kemur til greina.
Upplýsingar veitir Eyrún Gísladóttir á Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur í síma 562 1550.
Táknmálstúlkur
Táknmálstúlkur óskast til starfa við Vestur-
hlíðarskóla frá og með 6. janúar.
Um er að ræða fullt starf.
Starfið felst aðallega í að túlka fyrir skóla-
stjórann ásamt annarri túlkun innan skólans
og í tengslum við hann.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar-
skólastjóri í síma 551 6750.
29. nóvember 1996.
Fræðslustjórinn íReykjavík.