Morgunblaðið - 08.12.1996, Page 42
- 42 SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Coff
Gifshlutir MáJiðsjáif
Mikið úrval af jólavörum og öðrum skrautmunum
Gifsvörur, Funahöfða 17, síma 587 8555. Póstsendum
Hef flutt læknastofu mína í
Lágmúla 5,
108 Reykjavík.
Tímapöntun í síma: 533 3131
Ólafur M. Hákansson,
fæðinga- og kvensjúkdómalæknir.
/J
tiskuverslun
V/Nesveg, Seitj.. s '561 1680
Peysur, buxur, j
kápur og jakkar
í úrvali
jwmiffi.
Nýbýlavegi 30, Kópavogi,
gengið inn Dalbrekkumegin
0on/ei/uw
tileinkaðir syrgjendum og öðrum þeim, er eiga
um sárt að binda, verða í húsnæði Sjálfeflis,
Nýbýlavegi 30, (Dalbrekkumegin), í dag,
sunnudaginn 8. desember, kl. 17.15.
Þema tónleikanna verður umhyggja og huggun.
Séra Sigurður Haukur Guðjónsson flytur hugleiðingu.
Einsöngvarar verða: Björk Jónsdóttir,
Jón Þorsteinsson og Signý Sæmundsdóttir.
Undirleikari: Gerrit Schuil.
Ef þér líður illa, einhverra hluta vegna, kíktu þá til okkar
á sunnudaginn. Hver veit nema söngur þessara
frábæru söngvara geti mildað líðan þína.
Kristín Þorsteinsdóttir,
Verð kr. 700. Veitingar. Sigrún Olsen.
I DAG
HOGNIHREKKVISI
• ^
CT II
/
AX__________________^
/, það tióur út Jc/rír a£ ah
t/e/ta. tusÍ0.éu/vujm' ?&iritsei/fcicióóf)
um i fa/ó'fct-"
Farsi
UJAIS&LASS/ceöCTUAO.T
01995 Farcus CartoooatDist. by Uníversal Pres« Syndicate
„ éq sé o& þettoL-crefda C fynbx shiptc
scm þúSýritr ■fynr/itrinQU þegarþú ert
á.kxrrfur. * J
Pennavinir
ÁTJÁN ára sænsk stúlka
með áhuga á bókmenntum,
tónlist, kvikmyndum, ferða-
lögum o.fl.:
Jessica Dymen,
Strákvagen 23,
183 40 Táby,
Sweden.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Athugasemdir
við Velvakanda
MIG LANGAR að vekja
athygli lesenda Morgun-
blaðsins á tveimur grein-
um í Velvakanda þriðju-
daginn 3. desember. Ás-
laugu Þorsteinsdóttur
finnst, eins og fleirum,
að strætisvagnasam-
göngur hafi versnað við
síðustu breytingar. En
nú er búið að koma auga
á leið til úrbóta. Það er
einfaldlega að bílstjór-
arnir aki bara farþegun-
um á sínum einkabílum.
Já, mikið hefur verið
kvartað en auðvitað
svarar enginn kvörtun-
um.
Ég vil líka taka undir
með S. Jónasdóttur í
sama blaði, að Reykvík-
ingar geta bara farið upp
á Akranes í skurðaðgerð-
ir. Þá getur heilbrigðis-
ráðherra sparað stór-
kostlega hér í Reykjavík
með að loka deildum.
Þessar breytingar eru
bara breytinganna
vegna.
Margrét Hansen
Þökk fyrir
sandinn
VEGFARANDI vill koma
á framfæri þakklæti til
þeirra sem sjá til þess
að sandur sé borinn á
götur borgarinnar. Þetta
er til mestu fyrirmyndir
og takk fyrir.
Tapað/fundið
Gullarmband
tapaðist
BREITT gullarmband
tapaðist í jólakaffi Kven-
félagsins Hringsins á
Hótel íslandi sunnudag-
inn 1. des s.l. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
5523289.
Fundarlaun.
SKAK
Umsjón Margcir
Pctursson
STAÐAN kom upp í Evr-
ópukeppni skákfélaga •
sem fram fór í Búdapest
fyrir mánaðamótin í við-
ureign tveggja stórmeist- '
ara. Rússinn Andrei ,
Kharlov (2.605) hafði
hvítt og átti leik gegn *
Krunoslav Hulak ,
(2.545), Króatíu.
Svartur lék síðast 32. — s
Rb4xd3! sem var góð til- ,
raun. Nú á hvítur aðeins
einn vinningsleik sem er
mjög glæsilegur:
33. Rxd6!! (Einhverjir
hafa vafalaust giskað á 33.
Hg8+? en þá er staðan að-
eins jafntefli eftir 33. —
Hxg8 34. Hxg8+ — Kxg8
35. Dg2+ - Kf8 36. Dg7+
- Ke8 37. Dxf7+ - Kc6
38. Dxe6 — Df4+. Nú hótar
hvítur hins vegar máti á tvo
vegu, með 34. Rxf7+ og á
HVÍTUR leikur og vinnur
annan sem er lúmskari) 33.
— Re5 34. Hg8+! og Hulak
gafst upp, því eftir 34. —
Hxg8 35. Hxg8+ - Kxg8
36. Da8+ blasir mátið við.
Víkveiji skrifar...
BJÖRN Dagbjartsson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarsam-
vinnustofnunar, á grein í nýju
Fréttabréfi Hjálparstofnunar kirkj-
unnar: „Hægt vex þróunaraðstoð
íslendinga.“ Þar segir að 35 ár séu
síðan Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna setti iðnvæddum ríkjum
það mark að verja 0,7% af þjóðar-
framleiðslu til aðstoðar við þurfandi
þjóðir. Sum grannlönd okkar hafa
fyrir löngu náð þessu marki. Meðal-
þróunaraðstoð OECD-ríkja er
0,35% af þjóðarframleiðslu. Meðal-
tal Norðurlanda rúm 0,8%. Hjálp-
semi okkar er á hinn bóginn þunn
í roði, nánast á svipuðu róli og raun-
greinaárangur í skólakerfinu!
Björn segir í grein sinni: „Árið
1985 samþykkti Alþingi að ná
0,7%-markinu á næstu 7 árum.
Árið 1992 var framlag til þróunar-
mála enn undir 0,1% ...“ Hann seg-
ir síðar í grein sinni að í fram-
kvæmdaáætlun til að standa við
rammasamning um loftslagsbreyt-
ingu frá sl. ári standi að framlög
til þróunaraðstoðar muni verða auk-
in fram til aldamóta, þannig að þau
verði a.m.k. 0,3% til 0,4% af þjóðar-
framleiðslu árið 2000. „Eftir er að
sjá hvort þetta tekst en vissulega
væri það mikill áfangi. Lítilsháttar
aukning framlaga til þessa mála-
flokks fyrir árið 1997 er góðs viti.“
Það sem þið gerið mínum
minnstu bræðrum, það gerir þið og
mér, sagði meistarinn frá Nasaret,
boðberi náungakærleikans, sem jól-
in eru helguð. íslenzka ríkið hefur
ekki sinnt þessum boðskap sem
skyldi í þróunaraðstoð. Víkveiji
hvetur lesendur sína til að taka upp
merkið með stuðningi við Hjálpar-
stofnun kirkjunnar.
xxx
HEIMSPEKILEG og trúarleg
efni höfða til æ fleiri. Ástæð-
an er máski sú að þrátt fyrir örar
og mikilfenglegar framfarir á líð-
andi öld, efnahagslegar og tækni-
legar, miðar mannkyninu hægar í
andlegum þroska - og að sumra
dómi fremur aftur á bak en áfram.
Og of margir fara og á mis við
hamingju og öryggi, þrátt fyrir
undur tækninnar.
Hundruð milljóna manna búa við
sára neyð í veröldinni. Tugmilljónir
týna lífi langt um aldur fram af
næringarskorti _ og læknanlegum
sjúkdómum. Ástæður: Vopnuð
átök, harðstjórnir, hryðjuverk, úrelt
hagkerfi, fákunnátta, fátækt og til-
litsleysi við náungann.
Jafnvel mitt í velsæld Vestur-
landa býr sumt fólk við einsemd
og óhamingju. Að ekki sé_ nú talað
um ofbeldi og eiturlyf. ísland er
engin udantekning í þeim efnum.
Það þarf engan að undra þótt
fólk leiti til hinna gömiu gilda - á
vit heimspeki, siðfræði og trúar.
Það fer vel á því, nú á aðventunni,
að sækja sálarró og hugarfrið til
helgistunda í kirkjum landsins.
xxx
AÐ ER ekki úr vegi að minna
á fyrrum helgidaga á jóla-
föstu, það er Nikulásarmessu (6.
desember) og Lúsíumessu (13. des-
ember). Þeir voru lagðir af við siða-
skiptin.
Heilagur Nikulás var upphaflega
verndardýrlingur sæfara. Við lok
miðalda voi-u um sex tugir kirkna
hér á landi helgaðar honum. Niku-
lás (Santa Claus) heldur enn velli
um gjörvallan kristinn heim sem
„alþjóðlegur jólasveinn“.
Heilög Lúsía (fædd á Sikiley)
setur og enn í dag svip á aðventu
Norðurlandabúa. Lúsíuhátíðir, sem
sænskir hófu til vegs á 19. öld, eru
haldnar víða um norræna byggð.
Þorlákur Þórhallsson Skálholts-
biskup andaðist 23. desember 1193.
Dánardagur hans var lýstur helgur
á Alþingi 1199. Vitað er um 56
kirkjur sem voru honum helgaðar.
Þorláksmessa setur svo sannarlega
svip á jólahald okkar enn í dag.
Fyrrum suðu menn hangiket til jól-
anna þennan dag. En fiskmeti var
„réttur dagsins". Fyrrum vestfirzk-
ur siður að snæða kæsta skötu
þennan dag er nú nánast þjóðarsið-
ur. Hóflega meðfarið vín þykir og
sumum við hæfi, enda var biskup
sagður „drykksæll".