Morgunblaðið - 22.12.1996, Síða 3

Morgunblaðið - 22.12.1996, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1996 B 3 því að þótt ég væri með harðsperr- ur var eins og það hefði losnað um eitthvað. Nokkrum dögum seinna prófaði ég að gera þetta aftur og svo aftur. Þá fór ég alla leið á sama hraða og þá kom þetta, þetta fór að verða auðvelt og ég hætti að verða þreyttur. Þarna var maður búinn að fá að vita úr hverju maður væri búinn til; var búinn að læra að borða kjöt uppfrá hjá sömunum og svo að hreyfa mig í Jötunheimum. Þetta tvennt var lífsnauðsynlegt til þess að geta unnið úti í náttúrunni. Á forsendum hreindýranna Sólarhringurinn skiptist upp í STEFÁN Hrafn Magnússon í hreindýrasmölun. fjögur tímabil hjá hreindýrunum; þau eru að borða, leggjast ogjórtra, og svo standa þau upp og rápa og svo borða þau. Á sumrin þarf eigin- lega að vakta dýrin allan sólar- hringinn. Þá lifir maður algjörlega á forsendum hreindýranna, það eina sem maður gerir er að halda hjörð- inni saman og vera hjá henni. Þá þurfti ég að læra að sofa á stein- völu. Hreindýrin lögðust til að jórtra rétt áður en nótt varð dimmust. Þá tók maður af sér bakpokann, breiddi plast á jörðina, lagðist flatur ofan á það og setti litla steinvölu undir bakið. Það var ekkert óþægi- legt að liggja á henni fyrst en eftir 1 'h - 2 tíma fór hún að ónáða mann og þá vaknaði maður alveg passlega þegar það var að birta aftur og hreindýrin voru að standa upp og farin að hrista sig. Var búinn aö vera þerna Jötunheimar eru sérstakur stað- ur í Noregi. Þar eru ævafornir bjálkakofar frá þeim tíma þegar það var til villtur skógur og stórt timb- ur í Noregi. Við bjuggum í bjálka- kofa sem var svefnskáli Ólafs helga og eini staðurinn sem hann ekki brenndi þegar hann var að kristna Guðbrandsdal. Mér leið alltaf vel í Jötunheimum og í Lom en ég hafði alltaf á tilfinn- ingunni að ég ætti ekki að vera þarna; þetta væri liðið, ég væri búinn að vera þarna og til þess að komast áfram þyrfti ég að vera annars staðar. Húsfreyjan á bæ þarna klippti mig stundum. Hún átti þrjá syni á mínu reki og hún sagði að sér þætti eins að fara um höfuðið á mér og á sonum sínum. Við hefðum sama höfuðlag. Ég á ættartöflu sem byij- ar á manni sem hét Hrólfur af Bergi í Dovre. Hann var Svaðason. Ég leitaði að þessum bæ í Noregi og fann hann. Þetta var bær sem hafði verið í eigu sömu ættarinnar frá ómunatíð. Ég hringdi heim á bæinn og talaði við mann sem heit- ir Sive Berg. Hann var 189 sm á hæð, eins og ég. Hann var í sama blóðflokki og ég, sjaldgæfum blóð- flokki á þessum slóðum. Mig langar til að heimsækja þetta fólk næst þegar ég fer til Noregs." Á hreindýrabraut Eftir þriggja ára dvöl í Noregi fór Stefán svo til samahéraðanna í Norður-Svíþjóð og settist í mennta- skóla - á hreindýrabraut. Þetta var haustið 1978. „Þá kynntist ég sænskum löppum og suður-löppum. Það er talsverður munur á. Þeir eru siðfágaðri þarna suðurfrá. Sænskir samar eru annálaðir um öll Norður- lönd fyrir listsmíðar, smíða hnífa, bolla og alls kyns dýrgripi bæði úr birki og hreindýrahornum. Þennan vetur lærði ég listsmíðar og ég og félagi minn og skólabróð- ir sáum eiginlega fyrir okkur með því að smíða hnífa. Við keyptum eldsmíðað hnífastál, fórum út í skóg og tíndum birki og fengum svo hreindýrahom í hreindýraréttunum þar sem við vorum í starfsþjálfun. Þetta notuðum við í sköftin. Við héldum okkur uppi með heimavistargjöld, vasapeninga og grillmat - skafið hreindýrakjöt með kartöflumús og títubeija- sultu. Það er herramanns- matur sem við keyptum á hveijum kvöldi fyrir hnífa- peningana, það voru bara þijár máltíðir á dag í heimavistinni. „Rednecks"í menningarlífi Svíþjóðar Þessi félagi minn var óður í að skemmta sér við það að beija sænska rokk- ara. Það var hluti af tilver- unni þennan vetur. Einu sinni fómm við niður í Jam- taland og sátum í bílnum við grill eða pylsusjoppu þegar rokkarar komu keyr- andi í svörtum leðurfötum og háhæluðum skóm, með sítt hár og létu dólgslega. Einn þeirra var langur sláni og félagi minn bendir á hann í gegnum gluggann og segir: „Við þurfum að stijúka honum, þessum." Láttu ekki svona, segi ég. Af hverju? Hvað hefur hann gert þér? „Jú, sérðu ekki hárið og skóna,“ segir hann og stekkur svo út og réðst á rokkar- ann áður en ég gat áttað mig. Náttúrulega snerist öll hjörðin til varnar svo ég varð að fara út úr bílnum og hjálpa honum. Við börð- um rokkarana saman og flýttum okkur svo inn í bíl og keyrðum í burtu.“ Þessari upprifjun lýkur Stefán með hvellum hlátri sem hann er SJÁ NÆSTU SÍÐU Frábær sjónvörp á fínu veröi RflDIOBÆR ÁRMÚLA 38 SÍMI5531133 Blab allra landsmanna! -kjarni málsim! Þittframlag skiptir öllu máli HJÁlPÁRSTOfHUN -----KiRKJUNNAti ^mðþmmtmtp SKÖTCIVEISUI á , Pot^láÁsmessu Amtmannsstíg 1, sími 561-3303. Verðum einnig með úrvals sallfisk d boðstólum. Allir fá hdkarl í boði hússins. Pantið tímanlega — takmarkað sœtaframboð. ífyrra komust fœrri að en vildu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.