Morgunblaðið - 22.12.1996, Síða 8

Morgunblaðið - 22.12.1996, Síða 8
8 B SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Maður margra andlita Gísli Rúnar Jónsson er þjóðkunnur leikari og leikstjórí. Hann hefur allt frá því hann lauk leiklistamámi og hóf feril sinn ungur leikari fyrir um það bil aldarfjórðungi skap- að margar eftirminnilegar persónur á leik- sviði í sjónvarpi og útvarpi. Ólafur Ormsson hitti Gísla Rúnar í Perlunni og þar var rætt um leikhúsið og nýjan þátt hans á Stöð 2. GÍSLI Rúnar Jónsson AÐ VAR jólastemmning í Perlunni í byijun des- embermánaðar þegar Gísli Rúnar Jónsson kom þangað í viðtal. Ég beið hans í veitingasal á fjórðu hæð. Lyftan kom upp á hæðina, dymar opnuðust og gosbrunnurinn á jarðhæðinni sendi frá sér háa vatnssúlu þegar fremur hávaxinn og stæðilegur maður steig út úr lyftunni. Leitt að hafa ekki verið með ljósmyndara á staðnum sem hefði þá getað fest á filmu er hann gekk í salinn í dökkum, síðum ullar- frakka, með þykkan trefil um háls- inn, nokkuð síhærður, og þar sem ég var staddur í töluverðri fjarðlægð frá lyftunni hélt ég að þar væri á ferð virðulegur erlendur diplomat að kanna aðstæður fyrir komu er- lends þjóðhöfðingja í Perluna. En þegar maðurinn nálgaðist borð mitt sá ég að þar var kominn Gísli Rún- ar Jónsson. Hann er önnum kafinn í jólamánuðinum, er með þátt á Stöð 2, Gott kvöld með Gísla Rún- ari sem tekur tíma hans allan. Það verður sjálfsagt seint að fram kemur skemmtiþáttur í ís- lensku sjónvarpi sem landsmenn eru að fullu sáttir við. Hver er annars líklegri til að koma kómedíunni á framfæri en einmitt spéfuglinn Gísli Rúnar Jónsson? Frumraunin í sjón- varpi fyrir aldarfjórðungi var eftir- minnileg og ógleymanleg. Gísli Rúnar gerði kaffibrúsakarlinn úr skemmtiþætti ríkissjónvarpsins ódauðlegan. Júlíus Bijánsson félagi hans var einnig minnisstæður fyrir einstæða túlkun sína. Síðan liðu árin og Gísli Rúnar skóp hveija fígr- úna af annarri í áramótaskaupum sjónvarpsins, og það var hlegið í þéttbýli og ekki síður í sveitum landsins og afskekktum byggðar- lögum. Þeir eru ófáir í hópi íslenskra gamanleikara sem náð hafa að kitla svo hláturstaugar landsmanna að þeir gleymi um stund hverdagsleg- um áhyggjum af skuldabasli og brauðstriti. Auk Gísla Rúnars eru það til dæmis Laddi, Siggi Sigur- jóns, Bessi, Árni Tryggvason og Ómar Ragnarsson og fleiri hér fyrr á árum. Gísli Rúnar á fleiri strengi í hörpu sinni. Hann hefur leikið alvarleg hlutverk á sviði og hlotið fyrir ein- róma lof, nú síðast í Kennslustund- inni eftir Ionecso, sem sýnd var í Kaffileikhúsinu fyrr á árinu við frá- bærar undirtektir leikhúsgesta. Þá hefur hann leikstýrt fjölmörgum leikritum á liðnum árum, þýtt leik- rit og skrifað frumsamda leikþætti fyrir útvarp og sjónvarp og við ýmis tækifæri. Hann kom frakkanum fyrir í fatahengi, gekk yfir að kaffiter- íunni og kom að vörmu spori yfír að borðinu til mín með stóra skál af kartöfluflögum og box með ídýfu. Hann hafði trefilinn um hálsinn og var í dökkbláum terilínbuxum, dökkri peysu og svörtu leðurvesti utan yfir peysuna, kíminn á svip og' glotti. Ur hátölurum voru leikin jólalög, og stórt upplýst jólatré var í anddyri. Hann settist við borðið, strauk yfir hárlubbann og lét hug- ann líða til þeirra ára þegar hann ólst upp í Laugarásnum í Reykjavík. Bernska, áhrifavaldar og lelklistarnám Gísli Rúnar teygði sig í skálina, dýfði kartöfluflögu í ídýfuna, borð- aði af góðri lyst og drakk vatn. „Ég er fæddur í Reykjavík árið 1953 og ólst upp við Snorrabraut- ina, síðar inni í Kleppsholti og í Laugaráshverfi, eða hvorum megin hryggjar maður vill nú hafa það. Laugaráshverfið er auðvitað miklu fínna en Kleppsholtið. Foreldrar mínir eru Guðrún Valgerður Gísla- dóttir húsmóðir og Jón Konráð Björnsson, fyrrverandi verslunar- maður. Ég tel að foreldrar mínir hafi tæplega tilheyrt því fólki sem þarna bjó vegna þess að í næsta nágrenni við okkur bjuggu einhveijir helstu auðmenn landsins og ég var dagleg- ur gestur á heimilum þeirra. Þetta var allt saman mikið ágætisfólk og synir þeirra voru æskufélagar mín- ir. í næsta nágrenni við okkur bjó Eiríkur Ásgeirsson, forstjóri Stræt- isvagna Reykjavíkur. Eiríkur var skemmtilegur maður og spilaði á harmonikku. Hann átti mjög fallega hvíta nikku sem á stóð „Eiríkur" og var dýrgripur. Hann lánaði mér nikkuna til þess að ég gæti lært á slíkt hljóðfæri. Þeir reyndust mér vel, auðmennimir í nágrenninu, sem áttu þessi stóru, flottu hús. Við bjuggum bara í kjallara og svo átti ég alltaf athvarf hjá fólkinu sem fóstraði leikhneigðina hjá mér, leik- listarbakteríuna, og hlúði að henni, Erlendi Einarssyni forstjóra SÍS og konu hans Margréti Helgadóttur. Þau voru kúltúrfólk og sóttu leik- sýningar, málverkasýningar og konserta og auðvitað síaðist þetta inn í mann. Stelpurnar þeirra voru að læra á píanó og þar kynntist maður ýmsum framandi hlutum og nýstárlegum og ekki sáust heima. Þar fékk ég útrás fyrir leiklistarbakteríuna. Þegar þau voru með veislur fékk ég að troða upp og var þá á aldrin- um sex til tíu ára. Foreldrum mínum þótti þetta ekki sniðugt. Pabbi hafði áhyggjur af því að þetta væri óarð- bært starf, sem það er, og svo óör- uggt sem það er, og hann hafði alveg rétt fyrir sér hvað það snert- ir. Hann vildi að ég lærði eitthvað hagnýtt og þau áttuðu sig varla á því hvað ég var að gera. Ég var sífellt að leika. Ég er þeim Erlendi og Margréti ávallt þakklátur, því þarna fékk ég útrás. Þau voru með samkvæmi fyrir fullt af fólki og þar fékk ég að troða upp, lítið veislu- fífl, átta ára, og hermdi eftir séra Bjama, Bjarna Ben og séra Jóni Auðuns.“ Enn fór gosbrunnurinn af stað og vatnssúlan teygði sig til lofts. Gísli Rúnar gerði örlítið hlé á frásögn sinni af æskuárunum í Kleppsholtinu og bauð mér kart- öfluflögur. Úr hátölurum hljómaði hið gullfallega jólalag Hátíð í bæ. Ég spurði Gísla Rúnar um skóla- göngu hans. „Eg fór í Laugamesskólann og svo Laugalækjaskóla og þar fékk ég líka útrás fyrir leiklistarbakter- íuna, það komst ekkert annað að, og ég hugsaði ekki um annað en leikhús. Fyrsta leikritið í leikhúsi sá ég þegar ég var fimm ára, var Undraglerið með Bessa í aðalhut- verki og svoleiðis gerist það venju- lega með þá sem ætla að gerast leikarar. Ég hugsaði sem svo: Þarna langar mig að vera.“ Síðan fórstu í unglingaskóla, gagnfræðaskóla og varst fermdur í Laugarnessókn? „Nei. Ég gerði ráð fýrir að ferm- ast í Laugarnessókn en tískuprest- urinn var hins vegar í Langholts- sókn, séra Sigurður Haukur, og þar var ég fermdur. Ég var að skoða fermingarmyndina fyrir nokkmm ámm og ég man ekkert eftir þess- um krökkum sem ég fermdist með af því að ég kynntist þeim ekkert. Það em liðin þijátíu ár síðan, og þegar ég fór að skoða myndina þekkti ég þar tvö andlit, annars vegar Olgu Guðrúnu Árnadóttur rithöfund, sem var sætasta stelpan í þessum fermingarárgangi, og hins vegar pínulítinn strák úti í horni, Vilhjálm Guðjónsson músíkant og séní. Ég fór síðan í Gagnfræðaskólann við Lindargötu til Jóns Gissurarson- ar, sem er stórmerkilegur maður. Þar byrjaði ég að skrifa, aðallega paródíur um kennara, og bjó til gervin fyrir persónurnar. Ég hafði alltaf áhuga á hinu ytra gervi per- sónanna og það eru alltaf skiptar skoðanir í leikhúsinu, bæði hér og annars staðar, hvernig leikarinn á að vinna hlutverk sitt, hvernig á að vinna persónusköpunina. Það skipast í tvo horn, annars vegar þeir sem hallir eru undir að vinna innan frá út frá „psykológískri" hlið persónunnar,, og svo hins veg- ar hinir sem vilja byija utan frá. Ég lauk síðan gagnfræðaskóla- prófi frá Lindargötuskóla. Pabbi vildi að ég færi í menntaskólanám eða í langskólanám, yrði helst lög- fræðingur eða læknir. Hann sagði að ég hefði svo góðar námsgáfur og ég hafði ekki heyrt það fyrr. Ég var fremur latur í skóla, átti gott með að læra íslensku, en það var leiklistin og ekkert annað sem ég hafði áhuga á. Ég heyrði það á tali Erlendar Einarssonar og Mar- grétar, þar sem þau voru að tala um mig, og það hafði ekki lítil sál- ræn áhrif á mig, drenginn, þegar þau sögðu: - Hann hefur mikla hæfileika þessi drengur. Annað- hvort verður geysilega mikið úr honum eða ekki neitt! Ég varð svo hissa þegar ég heyrði þetta að ég skildi það ekki og hafði aldrei heyrt annað eins. Að ég hefði einhveija hæfileika! Ég hélt frekar að ég væri dálítið vitlaus! Ég uppgötvaði það ekki fyrr en síðar að þau voru að meina það sem þau sögðu. Hvort sem þau svo hafa haft rétt fyrir sér eða ekki. Leiklistarskóli Þjóðleikhússins var búinn að taka inn síðustu nem- endur sína og einnig leiklistarskóli Leikfélags Reykjavíkur, sem var hættur. Ég hafði verið einn vetur hjá Ævari Kvaran og byijaði þar og hann var minn fyrsti og eigin- lega besti lærifaðir og mikill áhrifa- valdur. Hann kenndi mér undir- stöðuatriðin. Þá má ég til með að minnast á Jónas Jónasson sem var einnig áhrifavaldur. Ég átti við hann ánægjulegt samstarf við gerð Úllen dúllen doff-þáttanna. Þegar ég kom síðar til starfa hjá leikhúsunum hafði Bessi Bjarnason aftur mikil áhrif á mig. Það er ekki til nema einn Bessi í allri Evrópu. Hann hefði orðið heimsfrægur hefði hann búið annars staðar en á ís- landi. Hann hafði kannski ekki bein- línis áhrif á leikstíl minn, þar sem við erum svo ólíkir leikarar, en hann kenndi mér meira í sambandi við „tæmingu" en aðrir leikarar. Einnig voru áhrifavaldar menn eins og Árni Tryggvason, Gísli Halldórsson, Rúrik Haraldsson, Helgi Skúlason, sem var sennilega einn albesti leik- ari í heimi og dó fyrir aldur fram. Bríet Héðinsdóttir var einnig í þess- um hópi og átti stóran þátt í að móta mig. Hún dó 61 árs gömul í haust, harmdauði öllum sem hana þekktu, yfirburðagreind kona, geysilega vel heima í öllu, mikil vinkona mín og skilur mikið verk eftir sig. Ég var sautján ára þegar ég frétti að Amar Jónsson og Þórhildur Þor- leifsdóttir væru með leiklistarná- mskeið á Akureyri á árunum uppúr 1970. Ég hringdi norður og talaði við Arnar. Ég spurði hvort ég mætti koma norður og hann hvatti mig til þess. Ég fór og fékk vinnu hjá Leikfélaginu, lék þar smáhlut- verk og var á leiklistarnámskeiði með ýmsum efnum sem síðar urðu leikarar, m.a. Eggert Þorleifssyni, Viðari Eggertssyni, Guðlaugu Mar- íu Bjamadóttur, Sólveigu Halldórs- dóttur, Gesti Einari Jónassyni og Aðalsteini Bergdal. Arnar var með róttækar hugmyndir um leikhús og vildi hjá hvorugu atvinnuleikhús- anna vinna, fór því norður til að gera eitthvað eftir sínu höfði. Það tókst reyndar ekki fyrr en um 1975 er þau stofnuðu Álþýðuleikhúsið, Arnar, Böðvar, Þórhildur og fleira gott fólk. Hjá Þórhildi og Arnari hlaut ég besta uppeldi sem ég hef fengið í leikhúsi. Það mótaði mig fyrir lífstíð, sautján ára gamlan. Ef eitthvað er í mig spunnið væri það ekki fyrir hendi í dag ef ég hefði ekki fengið þá skólun sem ég fékk hjá þeim. Þar var Þórhildur að stíga sín fyrstu spor sem leik- stjóri. Hún setti upp Línu Lang- sokk, og þau hjónin settu saman upp eftirminnilega sýningu á Rómeó og Júlíu.“ Leikarinn, lelkstjórinn og spéfugllnn Gísli Rúnar tjáði sig á leikrænan máta í andliti. Ég er ekki frá því að allt í einu hafi brugðið fyrir svipmynd af kunnum samtíma- manni, og röddin tók á sig sér- kennilegan blæ. Fyrr um morgun- inn hafði hann einmitt verið á æf- ingu fyrir áramótaskaupið. Hann tók að rifja upp tildrög þess að hann gerðist atvinnuleikari, skemmtikraftur og enn síðar leik- stjóri. „Síðan kom ég aftur til Reykja- víkur 1971 og þá stofnuðum við leikhóp sem hét Leikfruman, nokkrir krakkar sem vorum stað- ráðnir í að læra leiklist. Við sýnd- um Sandkassann, sænskt verk, í Lindarbæ. Þar voru með Viðar Eggertsson, Árni Blandon, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Jóna Rúna Kvaran og fleiri. Upp úr þessu stofnuðum við

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.