Morgunblaðið - 22.12.1996, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1996 B 13
FRETTIR
Reuter
Umferð lömuð í Belgrad
ÖLDRUÐ kona í Belgrad ræðir
við óeirðalögreglumann en ekkert
lát er á mótmælum gegn stjórn
Slobodans Milosevic forseta. Löm-
uðu stúdentar umferð í miðborg-
inni á föstudag með því að loka
brú og helstu götum.
Momir Bulatovic, forseti Svart-
fjailalands sem er í ríkjasam-
bandi með Serbíu, sagði í viðtali
við franska blaðið Le Figaro að
Milosevic hefði skömmu eftir
sveitastjórnarkosningarnar í
nóvember sagt sér að stjórnar-
andstaðan hefði sigrað í Belgrad
og Nis.
Sænskir skólastrákar
slasast af sprengju
Fundu uppskriftina á alnetinu
Kaupmannahðfn. Morgunblaðið.
TVEIR unglingsstrákar slösuðust illa
og tveir aðrir fengu alvarlegt áfall,
þegar sprengja, sem þeir voru að
dunda sér við að búa til sprakk í
Blöðru-
blástur
óhollur
London. Reuter.
JÓLAFAGNAÐIR eru ekki
af hinu góða ef þar er blásið
í blöðrur, að sögn breskra
lækna.
Læknarnir sögðu að það
gæti valdið lungnaskemmd-
um að blása upp of margar
blöðrur.
Nefndu þeir dæmi um 24
ára karl í Belfast sem blásið
hefði upp 20 blöðrur á
klukkutíma. Tveimur dögum
síðar var hann orðinn fársjúk-
ur. Blöðrur voru undir húð á
baki og þjóhnöppum og brak-
hljóð heyrðist er hann dró
andann. Maðurinn fékk
fúkkalyf og verkjalyf og náði
sér eftir 10 daga spítalavist.
höndunum á þeim. Uppskriftina
höfðu þeir fundið á alnetinu, en efn-
ið í sprengjuna eru efni, sem alls
staðar er hægt að ná í og sem ekki
eru hættuleg í sjálfu sér.
Aðkoman í herbergi strákanna,
sem eru á heimavistarskóla, var
skelfileg. Blóðslettur voru upp um
alla veggi, allt var á tjá á tundri og
sprengjan kveikti líka í rúmi í her-
berginu. Strákarnir höfðu fengið þá
óheppilegu hugmynd að hleypa fjöri
í skólaandann með sprengjugerð.
Uppskriftina fundu þeir á alnetinu
og efnið var auðfengið. Það sem
þeir athuguðu hins vegar ekki var
að sprengjan þurfti ekki nema að
hristast aðeins til, svo hún spryngi.
Einn drengjanna hélt henni á
hnjánum, þegar hún sprakk. Hann
slasaðist illa á fæti og hendur hans
og félaga hans fóru mjög illa. í her-
berginu voru einnig tveir aðrir félag-
ar þeirra, sem slösuðust lítillega, en
fengu taugaáfal! við slysið. Enn er
óljóst hvaða mein drengirnir munu
bera eftir slysið, en ljóst er að þeir
tveir, sem slösuðust verst munu bera
merki slyssins til æviloka.
Slysið hefur vakið upp umræður í
Svíþjóð um aðgang að alnetinu. Sér-
fræðingar eru þó sammála um að
ekki sé annað að gera en að vara
börn og unglinga við tilraunum af
þessu tagi. Mest af því, sem fínna
má á netinu er líka til í bókum, en á
netinu er þessi fróðleikur innan seil-
ingar þeirra, sem hafa aðgang að því.
Hjartans þakkir til ykkar allra, er glöddu mig
meÖ heimsóknum, gjöfum og kveðjum á 90 ára
afmœli mínu 14. nóvember síðastliðinn.
Eg óska ykkur gleðilegrar jólahátíðar og
blessunar á komandi ári.
Ingiríður Vilhjálmsdóttir,
Selbrekku 21,
Kópavogi.
Alúðarþakkir og kveðjur fœri ég öllum þeim
Jjölmörgu, er glöddu mig með heimsóknum,
gjöfum, skeytum og hlýjum orðum á sjötugsaf
mœli mínu 17. þ.m.
Sér í lagi þakka ég innilega fyrir rausnarleg
framlög til líknarmála.
Gleðileg jól. Guðs blessun fylgi ykkur um
ókomna framtíð.
Ingimar Einarsson,
Bugðulæk 13.
Mikil umræða um kynferðisafbrot í Bretlandi
Tilkynnt um
dvalarstað
barnaníðinga?
London. The Daily Telegraph.
MÁLEFNI kynferðisafbrota-
manna og sérstaklega barnaníð-
inga hafa verið mikið til umræðu
í Bretlandi að undanförnu og með-
al hugmynda, sem nú er verið að
ræða í ríkisstjórn, er, að almenn-
ingur og skólayfirvöld verði látin
vita búi einhver slíkur maður í
nágrenninu.
David Maclean aðstoðarinnan-
ríkisráðherra hefur nú til at-
hugunar að auka aðgang að vitn-
eskju lögreglunnar um dvalarstað
barnaníðinga og á þingi hefur
verið lagt fram frumvarp, sem
skyldar kynferðisafbrotamenn til
að tilkynna lögreglunni í hvert
sinn sem þeir skipta um heimilis-
fang.
Grunlausir nágrannar
Eftir að barnaníðingurinn
Howard Hughes var dæmdur fyr-
ir að myrða Sophie Hook, sjö ára
gamla stúlku, sem hann rændi
úr tjaldi í garði frænda hennar í
Wales, hefur verið lagt mjög hart
að stjórnvöldum að skylda kyn-
ferðisafbrotamenn til að tilkynna
sig eins og sums staðar er í
Bandaríkjunum. Hefur Chris
Hook, faðir Sophie, meðal annars
beitt sér fyrir því og hefur hann
kynnt sér fyrirkomulag slíkra
mála í Seattle í Bandaríkjunum.
Hughes, sem dæmdur var í þre-
falt lífstíðarfangelsi, var á skrá
hjá lögreglunni í Llandudno í
Wales fyrir þjófnað, innbrot, lík-
amsárásir og áreitni við böm en
nágrannar hans höfðu aftur á
móti enga hugmynd um þennan
feril hans.
Annmarkarnir
Mclean segist raunar sjá ýmsa
annmarka á því að upplýsa al-
menning um dvalarstað manna,
sem dæmdir hafa verið fyrir kyn-
ferðisafbrot. Þá sé alltaf hætta
á, að upp rísi sjálfskipaðar varð-
sveitir og það geti endað með
ósköpum.
Samkvæmt frumvarpinu, sem
nú liggur fyrir þingi, skal lögregl-
an um allt Bretland fá upplýsingar
um nöfn og heimilisföng kynferð-
isafbrotamanna en hún hefur oft
kvartað yfír því að hafa ekki haft
hugmynd um það fyrr en of seint,
að barnaníðingur byggi í nágrenn-
inu.
MEÐ HAllANDI SNUNINGSKORFU:
* Olíunotkun aðeins 1,2 Itr. í
stað 2,5 Itr. í venjul. pottum.
* Styttri steikingartími, jafnari
steiking og 50% orkusparnaður.
* Einangrað ytrabyrði og
sjálfhreinsihúðað innrabyrði.
* Gluggi á loki og 20 mín.
tímarofi með hringingu.
FALLEGUR FYRIRFERÐARLÍTILL FLJÓTUR.
Verð aðeins ífá kr. 7.690,-
til kr. 16.990,- (sjá mynd).
jFOmx
HATÚNI6A REYKJAVlK SlMI 552 4420
/ VAXTAR
SJÓÐURINN
Vaxtarsjóðurinn hf.
kt. 551196-3219
Kirkjussandi, 155 Reykjavík
Hlutafj árútboð
Hlutabréf Vaxtarsjóðsins hf. verða
á Opna tilboðsmarkaðnum.
Stefnt er að skráningu bréfanna á Verðbréfaþingi íslands
þegar hluthafar eru orðnir 200.
Útboðsfjárhæð:
allt að 150.000.000 kr.
Sölutímabil: 9. desember 1996 - 2. júní 1997.
Sölugengi er nú 1,02.
Umsjón og sölu annast Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf.
Útboðslýsing og öll gögn er varða útboðið liggja frammi hjá
Verðbréfamarkaði íslandsbanka hf., Kirkjusandi.
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR lSI.ANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi Islands •
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími: 560-8900. Myndsendir: 560-8910.