Morgunblaðið - 22.12.1996, Síða 24

Morgunblaðið - 22.12.1996, Síða 24
24 B SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ AUGLYSINGAR TIL S 0 L U C« Flugvél til sölu, TF-TUN landgræðsluflugvél Kauptilboð óskast í: 10695 Landgræðsluflugvélina TF-TUN, sem er af Air Tractor gerð, árgerð 1984. Vélin er sérhönnuð til dreifingar áburðar og/eða skordýraeiturs. Vélin verður til sýnis í samráði við Stefán H. Sigfússon, sími 552 9711 (fyrir hádegi). Tilboðseyðublöð og nánari upplýsingar hjá ofangreindum aðila og á skrifstofu Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík. Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 14.00 þann 15. janúar 1997 þar sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda er þess óska. ySSf RÍKISKAUP Ú t b o a s k i I a árangri! BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 552-6844, Bréfotími 5 6 2 - 6 7 3 9 - N et f a n g : rikitkaup@rikiskaup.it Tilboð Bifreiðaútboð á tjónabifreiðum er alla mánu- daga frá kl. 9-18. Ljósmyndir af bifreiðunum liggja frammi hjá umboðsmönnum SJÓVÁR- ALMENNRA víða um land. Upplýsingar í símsvara 567 1285. Tjónashoðunaisföðin * • Draghálsi 14-16 -110 RBykjavlk ■ Slmi 5671120 • Fax 567 2620 Tlt SOLU Líkamsræktartæki til sölu Notuð líkamsræktartæki í góðu ástandi til sölu. Um er að ræða 15 vélar ásamt 1-10 kg lóðum og stangasett. Upplýsingar í síma 897 7470. KE-NNSLA Flugskóli íslands Atvinnuflugnám Flugkennaranám Flugskóli íslands mun hefja bóklega kennslu fyrir væntanlega atvinnuflugmenn 1. flokks og flugkennara í janúar 1997, ef næg þátt- taka fæst. Inntökuskilyrði eru atvinnuflugmanns- skírteini með blindflugsáritun. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans, Reykjavíkurflugvelli. Umsóknir skulu hafa borist eigi síðar en 10. janúar 1997. Umsókn- um fylgi staðfest afrit atvinnuflugmanns- skírteinis ásamt blindflugsáritun. Skólastjóri. K I P U L A G R f K I S I N S Jarðvarmavirkjun í Bjarnarflagi Afturköllun tilkynningar um frumathugun Með bréfi, dagsettu 16. desember 1996, hefur Landsvirkjun afturkallað tilkynningu sína til Skipulags ríkisins um frummat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar jarðvarma- virkjunar í Bjarnarflagi, sem auglýst var, skv. lögum nr. 63/1993, í Lögbirtingablaðinu 27. nóvember 1996. Frumathugun máls þessa er því hætt. Skipulagsstjóri ríkisins. Styrkir Atvinnuleysistryggingasjóðs til námskeiðahalds fyrir atvinnulausa Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki til námskeiðahalds fyrir atvinnulausa til skerðingar á biðtíma að afloknu bótatíma- bili, sbr. reglur nr. 705/1995 um úthlutun styrkja úr Atvinnuleysistryggingasjóði til end- urmenntunar- og starfsþjálfunarnámskeiða fyrir atvinnulausa. Þau námskeið eru styrkhæf, sem skipulögð eru með þarfir atvinnulausra í huga, annað hvort atvinnulausra almennt eða ákveðinna hópa þeirra, og hafa að markmiði að auð- velda atvinnulausum að fá vinnu. Miðað er við að styrkir séu veittir vegna námskeiða á tímabilinu 1. janúar - 30. júní 1997. Umsóknir berist Vinnumálaskrifstofu félags- málaráðuneytisins, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 150 Reykjavík, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Skilafrestur um- sókna er 20. janúar 1997. Féiagsmáiaráðuneytið, 20. desember 1996. Styrkirtil háskólanáms í Hollandi og á Spáni námsárið 1997-98 1. Hollensk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til háskólanáms í Hollandi. Styrkurinn mun einkum ætlaður námsmanni sem er kominn nokkuð áleiðis í háskólanámi eða er kandídat til framhaldsnáms. Nám við listaháskóla eða tónlistarháskóla er styrk- hæft til jafns við almennt háskólanám. Styrkfjárhæðin er 1.275 gyllini á mánuði í tíu mánuði. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar nk. 2. Spænsk stjórnvöld bjóða fram styrk til háskólanáms á Spáni eða rannsókna, einkum á sviði hugvísinda. Ætlast er til að styrkþegi sé kominn nokkuð áleiðis í háskólanámi og hafi mjög gott vald á spænskri tungu. Umsækjendur þurfa að hafa tryggt sér skóla- vist áður en sótt er um styrkinn. Styrkfjárhæðin er 97.500 pesetar á mánuði í níu mánuði. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar nk. Umsækjendur um báða styrkina skulu vera yngri en 35 ára. Umsóknir, ásamt staðfest- um afritum prófskírteina og meðmælum, þurfa að berast menntamálaráðuneyti, Sölv- hólsgötu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást. Menntamálaráðuneytið, 20. desember 1996. HUSNÆÐIIBOÐI Til leigu 4ra herb. íbúð íbúðin er ca 95 fm á miðhæð í þríbýlishúsi á besta stað við Bergstaðastræti, þrjár stof- ur og svefnherbergi ásamt geymslu í kjallara. Fagurt útsýni. Gluggatjöld og stengur geta fylgt. Fyrirvari er um reykingar og gæludýr. Stefnt er að langtímaleigu frá 1. febrúar ef um semst. Lysthafendur sendi upplýsingartil afgreiðslu Mbl. fyrir 31. des., merktar: „B - 15262“. HUSNÆÐIOSKAST íbúð óskast til leigu Óska eftir 2ja-3ja herbergja íbúð til leigu í Fossvogi eða austurhluta Kópavogs frá nk. áramótum. Er einhleyp, barn- og gæludýra- laus kona á miðjum aldri í góðu starfi. Býð góða umgengni og skilvísar mánaðar- greiðslur fyrir snyrtilega íbúð. Tilboð sendist til afgreiðslu Mbl., merkt: „í - 18191“. Veiði íLangadalsá Veiðifélag Langadalsár í ísafjarðardjúpi óskar eftir tilboðum í veiði í ánni sumarið 1997. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð sendist til formanns félagsins, Jóns Arngrímssonar, Hafnarbraut 21,510 Hólma- vík, (símar451 3133/451 3408) í síðasta lagi þriðjudaginn 14. janúar 1997. Allar nánari upplýsingar fást hjá Jóni eða hjá Kristjáni Steindórssyni á Kirkjubóli í síma 456 4850. Stjórn Veiðiféiags Langadaisár. FUNDIR - MANNFAGNAÐUR Verkamannfélagið Dagsbrún og Verkakvennafélagið Framsókn halda jólatrésskemmtun í Borgartúni 6, 4. hæð (Rúgbrauðsgerðin), sunnudaginn 29. desember nk. kl. 15.00 Gengið kringum jólatré og sungið, jólasvein- ar koma í heimsókn og boðið verður upp á góðar veitingar fyrir börn og fullorðna. Miðaverði er stillt í hóf, kostar 300 kr. fyrir börn, frítt fyrir fullorðna. Miðasala er á skrifstofum félaganna. Skrifstofa Dagsbrúnar er í Skipholti 50D, 2. hæð, og skrifstofa Framsóknar er í Skip- holti 50C, 1. hæð. Opið er frá kl. 9.00 til 17.00 alla virka daga. JlteretniMafciB - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.