Morgunblaðið - 22.12.1996, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1996 B 25
Vín til há-
tíðarbrigða
Það getur veríð flókið að velja úr öllum þeim léttvín-
um sem eru í boði. Steingrímur Signrgeirsson fjall-
ar hér umþauvíner hann telur vera bestu kaupin.
EIR eru margir þessa
dagana, sem ganga
um og velta því fyrir
sér hvaða rauðvín
henti nú best með
jólasteikinni. Hvað
fyrir valinu verður
ræðst af ýmsu, til
dæmis hvað á að
borða með víninu, hversu mikið það má
kosta og smekk þeirra er vínsins eiga
að neyta. Ýmsar nýjungar hafa bæst í
úrval ÁTVR frá síðustu jólum og því
getur valið reynst mörgum flókið. Vilji
menn hágæðavín er best að panta þau
með nokkurra daga fyrirvara úr sérpönt-
unarlistanum en flestir láta sér nægja
að hlaupa inn í næsta einkasöluútibú í
miðri jólaösinni og velja sér eitthvað úr
hillunum þar.
Langmesta salan í jafnt rauðvínum sem
hvítvínum er í vínum er kosta helst ekki
meira en þúsund til ellefu hundruð krón-
ur. Enda kannski ekki nema von. Vín er
dýrt á íslandi vegna hárra opinberra
gjalda og því kannski ekki nema von að
neytendur haldi sig í ódýrari verðflokk-
um. Það er raunar staðreynd í öllum
okkar nágrannaríkjum að mesta salan er
í ódýrari borðvínum, eini munurinn er sá
að í t.d. Bretlandi eru neytendur að borga
í kringum 300 krónur fyrir ódýra rauð-
vínsflösku en tæpar níu hundruð krónur
á íslandi, gjarnan fyrir sama vínið.
Það skiptir raunar litlu máli hvort
vínið hefur kostað eina krónu eða hundr-
að frá framleiðanda, það verður aldrei
ódýrara en 700-800 krónur hér á landi
vegna opinberra gjalda. Eftir því sem
vínið verður dýrara vega hins vegar opin-
beru gjöldin minna og vínið meira. Snilld-
arlega hannað kerfi sem tryggir að hlut-
fallslega mest sé tekið í skatta af þeim
sem minnst hafa á milli handanna.
Þrátt fyrir þetta brenglaða kerfí er
mesta furða hvað hægt er að finna góð
vín undir þúsund krónum. Ég vil leyfa
mér að nefna nokkur sem engan ættu að
svíkja, þegar lögð eru saman verð og
gæði og henta ágætlega með flestum ís-
lenskum jólamat.
Chile stendur mjög framarlega þegar
ódýrari vínin eru annars vegar og á aðal-
lista eru tvö virkilega vönduð rauðvín
þaðan, bæði úr Cabernet Sauvignon-þrúg-
unni, er ekki kosta ýkja mikið. Torres
Santa Digna (870 krónur) og Villa Mont-
es (850 krónur). Bæði ódýr á íslenskan
mælikvarða en jafnframt mjög vönduð.
Hvort þeirra hefur sinn stíl, Torres-vínið
er ögn þyngra og eikaðra en í Montes-vín-
inu er meiri áhersla á
hreinan ávöxtinn.
Það vín sem hvað
mest hefur aukið sölu sína
á liðnu ári er spænska
rauðvínið Montecillo Vina
Cumbrero (950 krónur)
frá Rioja-héraðinu. Rioja-
vínin hafa notið mikilla
vinsælda á íslandi og
virðast falla vel að smekk
íslendinga og buddu. Við
því er ekki hægt að amast þar sem í flest-
um tilvikum er um mjög frambærileg vín
að ræða og Vina Cumbrero því mjög góð
kaup í sínum verðflokki.
Annað Evrópuríki er hefur fært okkur
hin frambærilegustu vín í viðráðanlegum
verðflokki á síðustu árum er Portúgal.
Þegar „bestu kaup“ eru annars vegar
myndi ég vilja nefna tvö vín þaðan. Foral
frá Caves Alianca (840 krónur) og Periqu-
ita frá José Maria de Fonseca (960 krón-
ur). Heit og krydduð vín er ná mjög ás-
ættanlegri þyngd og dýpt miðað við verð.
Það blása líka vindar ferskleika um port-
úgalska víngerð. Vín þaðan verða stöðugt
betri og það er mikill kostur að þau byggj-
ast nánast alfarið á portúgölskum vín-
þrúgum. Þeir sem orðnir eru þreyttir á
Cabernet Sauvignon, Chardonnay og fé-
lögum ættu því að líta til Portúgal.
Leiti menn að víni á bilinu þúsund til
fimmtán hundruð krónur
er úrval góðra vína orðið
ágætt og yfirleitt geta
neytendur verið öruggari
með að fá gott vín miðað
við verð í þessum flokki.
Sé villibráð á borðum
myndi ég mæla með ástr-
ölsku víni og góð kaup eru
í jafnt Iindemans Shiraz
Bin 50 (1.040 krónur) og
Penfold’s Koonunga Hill
Cabemet-Shiraz (1.190 krónur).
Séu menn að leita að víni nær
Bordeaux-stílnum, t.d. með hreindýri, önd
eða gæs, gæti verið vel þess virði að líta
á Chateau Cocheroy (1.160 krónur) frá
Péssac-Léognan í Graves-héraðinu rétt
suður af borginni Bordeaux. Mjög gott
vín miðað við gæði frá víngerðarmannin-
um André Lurton. Annar ekki síður þekkt-
ur og framsækinn víngerðarmaður er hinn
spænski Miguel Torres er ræktar flest vín
sín í Pénedes-héraðinu suður af Barcel-
ona. Gran Coronas (1.130 krónur) er
Cabernet-vín í heitum Bordeaux-stíl, sem
ég hef verið hrifínn af í mörg ár. Vilji
menn snert af Nýja heims-stílnum er
Montes Alpha Cabernet Sauvignon (1.280
krónur) frá Chile góð kaup.
Þá er í þessum verðflokki að finna hóp
Reserva og Gran Reserva-vína frá Rioja,
öll góð og hvert með sín sérkenni. Menn
geta yfirleitt gengið að gæðunum vísum
hjá þekktari framleiðendum Rioja.
Þegar vínin eru orðin dýrari en fímmt-
án hundruð krónur fer framboðið því mið-
ur að grisjast og skorturinn á vönduðum
Bordeaux-vínum er æpandi. Eini kostur-
inn (og sem betur fer góður) er Chateau
Batailley, Grand Cru vín frá Pauillac. Því
miður kláraðist hinn ljúfi 1989-árgangur
snemma á árinu og í staðinn er kominn
miðlungsárgangur, eða 1993. Á móti kem-
ur hins vegar einnig að verðið hefur lækk-
að um mörg hundruð krónur frá síðasta
ári og kostar Batailley nú 1.840 krónur,
sem getur ekki talist dýrt fyrir þetta vín.
Annar góður kostur í þessum verð-
flokki er Lindemans St. George Cabernet
Sauvignon (1.690 krónur). Þrumugóður
Ástrali sem ræður við hvaða villibráð sem
er.
Veturinn er tími rauðvínanna en mörg-
um þykir einnig gott að hafa hvítvín
með, t.d. ef forrétturinn býður upp á slíkt.
í verðflokknum í kringum þúsund krónur
bættist mjög góð nýjung við á árinu eða
Chardonnay-vínið „L“ frá Domaine Laroc-
he (990 krónur). Suður-franskt vín er
gefur Nýjaheimsvínunum ekkert eftir í
verði og gæðum. Nýi heimurinn á hins
vegar marga sterka leiki og einn sá sterk-
asti í þessum verðflokki eru nýsjálensku
Stoneleigh-hvítvínin, ekki síst úr þrúgun-
um Chardonnay (1.090 krónur) og Sau-
vignon Blanc (930 krónur). Önnur góð
Chardonnay-vín eru Montes Chardonnay
(1.010 krónur) og Lindemans Bin 65
(1.040 krónur).
Af dýrari hvítvínum myndi ég vilja
nefna annað vín frá Laroche, Premier Cru
Chablis, er kostar 1.600 krónur, Mercurey
(1.460 krónur), Pouilly-Fuissé (1.500
krónur) og Lindemans Pathway Char-
donnay (1.430 krónur) sem sýnir að Ástr-
alir geta einnig keppt í hvlta þungaviktar-
flokknum.
I
(
K
!
*
i
I
I
E
I
I
i
í
I
I
§Hjálpræðis-
herinn
) Kirkjustræti 2
Kl. 16.30: Fyrstu tónar jólanna.
Umsjón Miriam Óskarsdóttir.
Kveikt á jólatrénu. Helgileikur.
Aðfangadagur kl. 18.00: Jóla-
matur og jólafagnaður. Tilkynn-
ið þátttöku í síma 561 3203.
RauAarárstíg 26, Reykjavík,
símar 561 6400,897 4608.
Guðsþjónusta sunnudag kl. 20
og aðfangadag kl. 14. Altaris-
ganga öll sunnudagskvöld.
Prestur: Sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Samkoma og sunnudagaskóli
í dag kl. 11.00.
Ásmundur Magnússon prédikar.
„Fyrstu skrefin“ í kvöld
kl. 20.00.
Allir hjartanlega velkomnir!
e* j {/>
Hallvnigarstíg 1 • simi 561 4330
Dagsferð 29. desember
kl. 10.30. Síðasta Útivistar-
ganga ársins. Endað verður
með léttum veitingum í boði
Kaffinefndar Útivistar.
Allir velkomnir.
Helgarferð 4.-5. janúar
kl. 10.00. Þrettándaferð Jeppa-
deildar i Bása. Jólin kvödd í
Básum. Lagt verður af stað frá
Hvolsvelli á laugardagsmorgun.
Áramótaferð Útivistar i Bása:
Uppselt.
Netslóð:
http://www.centrum.is/utivist
S5?
SomhjQlp
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00.
Fjölbreyttur söngur.
Samhjálparkórinn tekur lagið.
Barnagæsla.
Samhjálparvinir vitna um
reynslu sfna.
Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir.
Dagskrá Samhjálpar um
hátiðarnar verður sem hér
segir:
Aðfangadagur: Hátíðarsam-
koma í Þríbúðum kl. 16.00.
Sunnudagur 29. desember:
Almenn samkoma í Þríbúðum
kl. 16.00.
Gamlaársdagur: Hátfðarsam-
koma 1 Þrfbúðum kl. 16.00.
Samhjálp.
Hverfisgötu 105,1. hæð,
sími 562 8866
Sunnudaginn 22. des. kl. 11:
Fjölskyldusamkoma.
Litlu jólin hjá Frelsishetjunum.
Aðfangadagur:
Hátíðarsamkoma fyrir alla
fjölskylduna kl. 11.00.
Við í Frelsinu óskum ykkur
gleöilegra jóla.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Vegna nándar við jól fellur sam-
koman niður í dag.
Dagskrá jólahátíðarinnar:
Aðfangadagur:
Aftansöngur kl. 18.00
Jóladagur:
Hátíðarsamkoma kl. 16.30.
Sunnudagur 29. desember:
Sjónvarpssamkoma með Billy
Graham á RÚV kl. 10.30.
Brauðsbrotning kl. 14.00.
Kristið samftlag
Kl. 16.30: Samkoma i Bæjar-
hrauni 2, Hafnarfirði.
Predikun: Jón Þór Eyjólfsson.
Mikil lofgjörð og tilbeiðsla.
Bamastarf meðan á samkomu
stendur.
Allir velkomnir.
KROSSINN
Sunnudagur:
Almenn samkoma í dag
kl. 16.30.
Barnagæsla er meðan á
samkomunni stendur.
Jóladagur:
Hátíðarsamkoma kl. 15.00.
Laugardagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Sunnudagur 29.12.:
Almenn samkoma kl. 16.30.
Gamlársdagur:
Brauösbrotning kl. 14.00.
Nýársnótt:
Áramótafagnaður kl. 01.
Nýársdagur:
Hátíöarsamkoma kl. 20.
Við óskum landsmönnum gleði-
legrar fæðingarhátíðar frelsar-
ans og fagnaðar á nýju ári í
Jesús nafni. Þökkum samfylgd-
ina á árinu sem er að líða.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund f dag kl. 14.00.
Aðalstöðvar
KFUM og KFUK,
Holtavegi 28
Fjölskyldusamkoma i dag
kl. 17.00 þar sem barnakór
KFUM og KFUK og kvennakór
KFUK syngja. Jólasaga verður
lesin og jólasöngvar sungnir.
Síðan hefst jólatrésskemmtun
fjölskyldunnar.
ATH. Fyrir samkomuna verður
hægt að fá heitt kakó og pipar-
kökur.
Allir velkomnir.
Nýbýlavegi 30, Kópavogi,
gengið inn Dalbrekkumegin
Hugleiðslukvöld
Fjórði sunnudagur
í aðventu.
Kristín Þorsteinsdóttir.
Nú er jólaorkan að komast í
hámark. Komið og upplifið
Krists-orkuna í sinni sterkustu
mynd. Kristín Þorsteinsdóttir
leiðir. Lára Stefánsdóttir, list-
dansari kemur og dansar fyrir
okkur f lok kvöldsins.
Allir velkomnir.
á VEGURINN
Krístið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
í kvöld kl. 20.00:
Lofgjörðar-
og tilbeiðslusamkoma.
Aðfangadagur jóla:
Hátíðarsamkoma kl. 17.00.
Annar dagur jóla:
Hátíðarsamkoma kl. 14.00.
Fjölskyldusamkoma i
Aðalstræti 4B kl. 11.00 f.h.
Fræðsla fyrir börn og fullorðna.
Almenn samkoma í Breiðholts-
kirkju kl. 20.00.
Vitnisburðir, einsöngur, lofgjörð
og fyrirbænir.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERDAFÉLAG
4 ÍSLANDS
MÖRKINNI6- SlMI 568-2533
Frá Ferðafélagi íslands
Sunnud. 22. des. kl. 10.30
ESJA - Kerhólakambur (856 m).
Verð kr. 1.000.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin, og Mörkinni 6.
31. des. - 2. jan. (3 dagar)
Þórsmörk - áramótaferð F.í.
Vegleg áramótabrenna, kvöld-
vökur og gönguferðir. Áramót i
óbyggðum eru spennandi ævin-
týri. Ósóttir miðar seldir eftir jól.
Ferðafélag fslands óskar félags-
mönnum og þátttakendum í ferð-
um ársins gleðilegra jóla og
þakkar ánægjuleg samskipti.
Ferðafélag fslands.
Frá Sálarrannsóknarfélagi
íslands
Lokað verður frá 20. desember
til 6. janúar. Þá hefst starfsemi
á ný og bjóöa þá uppá einkatíma
miðlarnir og huglæknarnir Bjarni
Kristjánsson, Guðrún Hjörleifs-
dóttir, Hafsteinn Guðbjörnsson,
Margrét Hafsteinsdóttir, María
Sigurðardóttir, Kristín Þor-
steinsdóttir, Kristín Karlsdóttir
og Þórunn Maggý Guömunds-
dóttir. Auk þess býður Bjami
Kristjánsson upp á umbreyting-
arfundi fyrir hópa. Allar upplýs-
ingar og bókanir eru í síma
551 8130 milli kl. 10 og 12 og
14 og 16 og á skrifstofunni,
Garðastræti 8, alla virka daga.
Á meöan lokað er má hringja í
Bjarna Kristjánsson í síma
421 1873tilaðkomaáframfæri
fyrirbænum.
Gleðileg jól! Farsælt nýtt árl
SRFf.
i
f
Í
(