Morgunblaðið - 15.01.1997, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997 19
LISTIR
•EIN þekktustu bókmennta-
verðlaun Breta, Whitbread-verð-
launin, falla i ár í skaut skáldkon-
unnar Beryl Bainbridge, fyrir
skáldsöguna „Every Man For
Himself". Hún fjallar um síðustu
dagana um borð í farþegaskipinu
Titanic, sem fórst árið 1912.
Þetta er í annað sinn sem Bain-
bridge hlýtur verðlaunin en hún
hefur einnig verið tilnefnd í fjór-
gang til Booker-verðlaunanna en
aldrei hlotið.
•BANDARÍSKUR stjörnufræð-
ingur kynnti fyrir skemmstu þá
kenningu sina að leikrit Will-
iams Shakespeares um Hamlet
hafi í raun verið táknsaga um
stjörnufræðinga; kenningar og
deilur þeirra um umheiminn og
himinhvolfið. Shakespeare hafi
notað söguna um Hamlet til að
koma á framfæri ýmsum kenn-
ingum um staðsetningu jarðar-
innar í umheiminum. Stjörnu-
fræðingurinn, Peter Usher við
Pennsylvaníu-háskóla, segir að
á tímum Shakespeares hafi
menn verið farnir að endurmeta
þær kenningar að jörðin væri
miðja alheimsins og kenningin
um sólina sem miðpunkt hafi
verið komnar fram. Usher telur
að persónur leikritsins hafi átt
sér fyrirmyndir á meðal stjörnu-
fræðinga, Kládíus hafi t.d. átt
að verið Kládíus Ptólemaíos,
sem var uppi á 2. öld í Egypta-
landi og taldi jörðina miðju alls.
Rosenkrantz og Guildenstern
hafi verið persónugervingar
danska stjörnufræðingsins Tyc-
ho Brahe sem var á sama máli
og Ptólemaíos, og að Hamlet
sjálfur hafi verið dæmi um kenn-
ingu Digges um óendanlegan
alheim.
•EIN stærsta óperuhátíð, sem
haldin hefur verið í Bretlandi,
er hafin og stendur hún út árið.
Operur verða fluttar og settar
upp í tónleikahúsum og leikhús-
um, undir berum himni, á kapp-
reiðum og í risatjöldum, víðs
vegar um landið. Um 1.200 sýn-
ingar verða á árinu og er verkið
kostað af breska listaráðinu. Það
er hluti af röð eins árs hátíða
nokkurra listgreina, sem standa
fram að aldamótum. A meðal
þess sem sýnt verður má nefna
uppfærslu norsku óperunnar á
Niflungahring Wagners og sex-
tán nýjar óperur.
Svava Jakobsdóttir hlýtur
Henrik Steffens verðlaunin
Skemmtilegast að
velja styrkþegann
Morgunblaðið/Ásdís
HILDUR Karitas Jónsdóttir
styrkþegi og Svava Jakobsdótt-
ir verðlaunahafi.
RITHÖFUNDURINN og leikrita-
skáldið Svava Jakabsdóttir hlýtur
Henrik Steffens verðlaunin 1997
en þau veitir Alfred Toepfer Stift-
ung F.V.S. í Hamborg einstakl-
ingum frá Norðurlöndunum fyrir
afrek í listum og hugvísindum
sem hafa gildi fyrir evrópska
menningu. Verðlaunin eru að
upphæð um 1,7 milljónir íslenskra
króna en einnig er veittur styrkur
til árs háskólanáms í Þýskalandi
að upphæð rúm ein milljón króna.
Það er verðlaunahafinn sem út-
nefnir styrkþegann sem að þessu
sinni er Hildur Karitas Jónsdóttir
þýskunemi við Háskóla Islands.
Svava sagði í samtali við Morg-
unblaðið að sér fyndust verðlaun-
in einkar skemmtileg fyrir þá sök
að hún fékk að velja styrkþeg-
ann. „Ég fékk að velja ungan
námsmann og valdi glæsilegan
fulltrúa með bestu meðmæli sem
hefur mikinn áhuga á þýskum
fræðum. Ég er mjög ánægð með
að finna svo verðugan námsmann
í þessari grein, ekki bara af því
að verðlaunin koma frá
Þýskalandi, heldur finnst
mér mjög mikilvægt fyrir
okkur að styrkja og halda
við menningartengslum
landanna," sagði Svava.
í umsögn úthlutunar-
nefndarinnar er sagt eftir-
farandi meðal annars: Rit-
höfundurinn og leikrita-
skáldið Svava Jakobsdóttir
er frumkvöðull á sviði ís-
lenskra nútímabókmennta
og hefur frá árinu 1965 birt
smásögur, leikrit, útvarps-
leikrit og skáldsögur. Skáld-
saga hennar, Leigjandinn,
frá árinu 1969, er eitt af
öndvegisverkum íslenskra
nútímabókmennta. Verk
Svövu, sem meðal annars
búa yfir beittu háði og gró-
tesku raunsæi um stöðu kon-
unnar í þjóðfélaginu, eru
þekkt á Norðurlöndunum.“
Áður hafa rithöfundarnir
Gunnar Gunnarsson og Hannes
Pétursson, Magnús Már Lárusson
prófessor, Hallgrímur Helgason
tónskáld og Sigurður Guðmunds-
son myndlistarmaður hlotið styrk-
inn. „Ég tel að öll verðlaun hafí
gildi fyrir þann sem þau hlýtur
og það er gaman að hljóta þau,“
sagði Svava en hún og Hildur
fara utan hinn 23. maí næstkom-
andi til Hamborgar og veita verð-
laununum viðtöku í ráðhúsinu í
Lúbeck.
Hildur sagði að styrkveitingin
hefði komið sér í opna skjöldu.
„Það var hringt í mig á aðfanga-
dag og ég boðin heim til Svövu
án þess að útskýrt væri nánar
hvað væri um að vera. Þar sem
ég á afmæli á aðfangadag hélt
ég kannski að þetta væri eitthvað
tengt því,“ sagði Hildur en hún
mun ljúka BA prófi í þýsku við
Háskóla íslands í haust og mun
síðan halda í nám í málvísindum
við háskólann í Heidelberg í
Þýskalandi að því loknu.
Sinfónían frumflytur verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson
FLAVIO Emiiio Scogna hljómsveitarstjóri, Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona, Rafael Gintoli
fiðluleikari og Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld.
„ÉG HELD að þetta sé ósköp blátt
áfram og aðgengilegt verk sem eigi
ekki að veijast fyrir neinum," segir
Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld um
verk sitt Gyifaginningu sem Ingi-
björg Guðjónsdóttir sópransöngkona
og Sinfóníuhljómsveit íslands frum-
flytja á tónleikum í Háskólabíói ann-
að kvöld, fimmtudag, kl. 20. Hljóm-
sveitarstjóri verður Emilio Flavio
Scogna frá Ítalíu.
Tilurð verksins er sú að þegar
ekkja argentínska rithöfundarins
Jorge Luis Borges var væntanleg til
íslands fyrir fáeinum misserum
langaði Þorkel að semja tónverk til
að „gieðja hana“. Urðu tveir kaflar
úr Gylfaginningu Snorra Sturluson-
ar fyrir valinu, „sem var eiginlega
sjálfgefið", þar sem Borges hafði
þýtt hana á spænsku, og flutti Ingi-
björg Guðjónsdóttir „þessar tón-
hendingar", svo sem Þorkell kallar
Snorri á
spænsku
verkið, fyrir ekkjuna við píanóund-
irleik Steinunnar Birnu Ragnars-
dóttur í Norræna húsinu. Þorkell var
hins vegar fjarri góðu gamni.
„Skömmu síðar fæddist síðan sú
hugmynd að gera meira úr þessu
„sönglesi", færa það í hljómsveitar-
búning og útfæra ef til vill nánar,“
segir Þorkell, „og það er sú gerð sem
mun nú heyrast í fyrsta sinn.“
Ingibjörg stendur á nýjan leik í
eldlínunni annað kvöld en Þorkell
segir að verkið hafi upphaflega ver-
ið samið með þær Steinunni Birnu
í huga. Ber tónskáldið henni vel sög-
una. „Ég fór á æfingu í morgun
[þriðjudag] og þótti Ingibjörg standa
sig frábærlega."
Kaflarnir sem urðu fyrir valinu
Qalla um hinar goðsögulegu kven-
persónur - ásynjur, valkyrjur og
nornir. Styðst Þorkell, svo sem í
fyrra skiptið, við þýðingu Borges.
„Þetta er prósi, þótt bregði fyrir ein-
staka lýrískum augnablikum, sem
Ingibjörg syngur á sinni ágætu
spænsku en mér þótti ástæðulaust
að grípa til frumtextans, þar sem
við Islendingar getum auðvitað lesið
hann í rólegheitum heima hjá okk-
ur.“
Ennfremur verður fluttur á tón-
leikunum fiðlukonsert eftir argent-
ínska tónskáldið Aliciu Terzian, þar
sem ítalski fiðluleikarinn Rafael Gin-
toli verður í forgrunni, auk verka
eftir Italann Ottorino Respighi og
Albérto Ginastera, hinn argentínska.
Um 4.500 hljóðfæri eru á nýju tónlistarsafni í París
ÝMSUM spurningum manna um
tónlist er án efa svarað í sölum
nýs tónlistarsafns í París. Það
verður opnað um næstu helgi og
verður hið stærsta sinnar tegund-
ar, alls verða um 4.500 hljóðfæri
þar en um 900 þeirra að jafnaði
til sýnis á um 3.000 m2. Safnið
stendur við Jean-Jaurés-breiðgöt-
una í 19. hverfi Parísar.
Safngripirnir eru af ýmsum
toga, allt frá 4.500 ára gamalli
flautu úr beini að nýjustu raf-
magnshljóðfærunum. Tónlistar-
unnendur geta virt fyrir sér píanó
Chopins, gítar sem hinn þekkti
hljóðfærasmiður Vuillaume bauð
Berlioz, eina af fiðlum Stéphane
Graphelli og hljóðgervil Frank
Zappa.
Til stóð að opna safnið árið
1995 en alls kyns tafir hafa orðið,
m.a. vegna galla í gólfefni og af-
leitrar lýsingar. Anddyrið þykir
Októbassi
og píanó
Chopins
óaðlaðandi, steypt og svartmálað,
en þegar inn er komið blasa hljóð-
færin við á bak við gler. Að mati
blaðamanns The European hefur
tekist vel til við uppsetninguna,
en safnverðirnir byggja fyrstu
sýninguna á tólf þekktum verkum
tónbókmenntanna til að sýna þær
breytingar sem orðið hafa á hljóð-
færum og hljóðfæraskipan. í
tengslum við hvert verkanna tólf
hefur verið smíðuð eftirmynd af
salnum sem þau voru frumflutt í.
Þá getur að líta ýmis gömul og
sjaldgæf hljóðfæri, svo sem veiði-
horn frá 16. öld, örsmáar fiðlur,
blúndumynstraða gítara, korinett
með bjöllu í líki djöfulsins og tvær
fiðlur eftir Stradivarius. Þá má
nefna einkennileg blásturshljóð-
færi á borð við svokallaðan sarr-
usfón og sudrufón. Stærsta hljóð-
færið á sýningunni er annar
tvegga októbassa sem til eru en
áðurnefndur Vuillaume smíðaði
þá og Hektor Berlioz notaði þá í
nokkrum verka sinna.
Víðs vegar um safnið hefur
verið komið upp upplýsingabönk-
um, þar sem menn geta lesið sér
til um tónskáld, tónverk og hljóð-
færi og þeir sem vilja geta fengið
lánuð heyrnartól með leiðsögn um
safnið og hlýtt á tóndæmi með
öllum þeim aragrúa hljóðfæra
sem til sýnis eru, svo og hluta úr
fjölmörgum verkum.
HAFNFIRÐINGAR Otsalan hefst í dag:
OG NÁGRANNAR! Nvtt kortatímabil QCllCÍQS