Morgunblaðið - 15.01.1997, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 15.01.1997, Blaðsíða 30
80 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Frænka mín, GUÐRÚN JÓSEPSDÓTTIR, áðurtil heimilis á Hagamel 43, andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 10. janúar sl. Fyrir hönd aðstandenda, Kristrún D. Guðmundsdóttir. t Elskuleg eiginkona mín, AÐALHEIÐUR HJARTARDÓTTIR, Klyfjaseli 20, Reykjavík, lést 10. janúar síðastliðinn. Fyrir hönd barna okkar og annarra vandamanna, Valgeir Astráðsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSGEIR GUÐMUNDSSON, Hafnargötu 115A, Bolungarvík, lést á sjúkrahúsinu á (safirði aðfaranótt 13. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Kristrún Benediktsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra, er sýndu samúð og vinsemd við fráfall móðursystur okkar, GUÐNÝJAR JÓNSDÓTTUR frá Vopnafirði. Guðrún Ingveldur Jónsdóttir, Jón Birgir Jónsson, Jórunn Jónsdóttir. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HARALDUR Þ. JÓHANNESSON fyrrv. lögregluþjónn, Gunnarsbraut 36, Reykjavík, sem lést föstudaginn 10. janúar sl., verð- ur jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykja- vík föstudaginn 17. janúar kl. 13.30. Jóhanna Haraldsdóttir, Málfríður Haraldsdóttir, Margrímur G. Haraldsson og fjölskyldur. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR JÓNSSON húsasmíðameistari, Ljósheimum 22, lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 13. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Magnea G. Sigurðardóttir, Jón G. Sigurðsson, Kolbrún Jónsdóttir, Aðalheiður Sigurðardóttir, Sigfús Jóhannesson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát ÓSKARS ÓSKARSSONAR. Hann var jarðsunginn í Noregi þriðju- daginn 7. janúar. Minningarathöfn verður í sal Hjálpræð- ishersins fimmtudaginn 15. janúar kl. 20.30. Torhild Ajer Óskarsson, Óskar Jónsson, Ingibjörg Jónsdóttir og aðrir aðstandendur. ÞORVALDUR ÁGÚSTSSON + Þorvaldur Ág- ústsson fæddist í Ásum í Gnúpverja- hreppi 8. ágúst 1919. Hann lést í Vífilsstaðaspítala 3. janúar síðastliðinn. Þorvaldur var fyrsta barn foreldra sinna, Kristínar Stefánsdóttur og Ágústs Sveinssonar sem þar bjuggu. Systkini Þorvalds eru Sveinn, bóndi og kennari, sem nú er látinn, Stefanía, húsfreyja í Ásum, og fóstursystir þeirra, Guðbjörg Einarsdóttir, húsfreyja í Reykjavík. Þorvaldur kvæntist Elínu Jónsdóttur Dungal árið 1949. Þau eignuðust tvö börn, Jón, kynningarráðgjafa, og Stein- unni Kristínu, menntaskóla- kennara. Þorvaldur og Elín slitu samvistir árið 1963. Þorvaldur var í sambúð með Elínu Ingvars- dóttur frá 1965 þar til hún lést 1967, og bjó með Hólmfríði Maríasdóttur 1979 til 1980. Þorvaldur nam við Mennta- skólann á Akureyri og braut- skráðist þaðan stúdent 1943. Hann var tvo vetur í læknadeild Háskóla íslands, en hvarf frá því námi og hóf störf hjá Bókaútgáfunni Norðra. Þorvaldur var síðan auglýs- ingasljóri Sambands íslenskra samvinnu- félaga frá miðjum sjötta áratugnum og fram til 1966. Hann var aðalféhirðir rík- isféhirðis frá 1966 þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Tónlistin var snar þáttur í lífi Þorvalds. Hann nam orgelleik og var ára- tugum saman virkur félagi í Karlakór Reykjavíkur. Auk þess söng hann með kvartettum, Kantötukórnum á Akureyri, Stúdentakórnum, Dómkórnum og fleiri kórum. Þorvaldur lét fleiri félagsmál til sín taka, þar ber hæst að hann var lengi virk- ur félagi í Frímúrarareglunni. Þá var Þorvaldur ötull ljósmynd- ari, myndir eftir hann birtust bæði á sýningum sem á forsíðum blaða og tímarita. Útför Þorvalds fer fram frá Hallgrímskirkju í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Það er komið að kveðjustund. Ég kveð tengdaföður minn og vin, Þor- vald Ágústsson, með miklum sökn- uði. Mér er einkar ljúft að fletta í bók minninganna og minnast þessa hjartahlýja og velviljaða manns. Ég minnist fallegra sólskinsdaga austur á Reynivöllum með fjölskyldunni og kyrrlátra haustdaga í Grímsnesinu þar sem hann kom og átti með okk- t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BERGÞÓRA RANNVEIG ÍSAKSDÓTTIR frá Tungu við Fífuhvammsveg, sem andaðist á húkrunarheimilinu Sunnuhlíð þriðjudaginn 7. janúar, verð- ur jarðsungin frá Kópavogskirkju föstu- daginn 17. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vildu minn- ast hennar, er vinsamlega bent á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð. ísak Þórir Þorkelsson, Lára Þórðardóttir, Guðmundur Þorkelsson, Erla Guðmundsdóttir, börn, barnabörn og langömmubörn. Kær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR húsmæðrakennari frá ísafirði, lést á Hrafnistu í Reykjavík 9. janúar. Jarðarförin fer fram frá Áskirkju í Reykjavík 17. janúar kl. 15.00. Jón H. Gíslason, Margrét Sigurðardóttir, Brandur Gisiason, Marta Hauksdóttir, Guðmundur T. Gíslason, Jóhanna Vigfúsdóttir, Atli Gíslason, Ásmundur Gíslason, Helga Eriendsdóttir, Guðrún Gísladóttír, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ERLENDURJÓNSSON fyrrv. bifreiðastjóri, Kleppsvegi 136, verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtu- daginn 16. janúar klukkan 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á styrktarsjóð Skálatúnsheimilisins. Fyrir hönd aðstandenda, Þorgerður Gfsladóttir, Elísabet J. Erlendsdóttir, Jón Antoniusson, Vilborg Erlendsdóttir, Sæmundur Guömundsson, barnabörn og barnabarnabarn. ur dýrmætar stundir. Ég minnist samræðnanna sem við áttum og sner- ust oftar en ekki um barnabömin sem honum var einkar umhugað um. Síðasta ár var heilsan honum íjöt- ur um fót. Ég dáðist oft að æðru- leysi hans og kjarki, það haggaði honum ekkert. Hann hélt ætíð sinni léttu og góðu lund. Nú er hann laus við fjötrana og ég sé hann fyrir mér glæsilegan og hnarreistan ganga mót sólu í sveitinni sinni sem var honum svo kær. Blessuð sé minning Þorvalds Ágústssonar. Þín tengdadóttir, Valiý Helga Ragnarsdóttir. - Þar sem afí minn bjó, þar sem amma mín dó, undir heiðinni há vil ég hvíla í ró. Segir skáldið úr Kötlum. Hugur hans var ávallt þar, þótt hann sé lagður til moldar í Reykjavíkur- kirkjugarði og bjó enda í borginni lungann úr ævi sinni. Þorvaldur frændi minn fæddist á Ásum þar sem áar hans þjuggu og lifðu og liggja í Stóra- Núps kirkjugarði mann fram af manni. Þorvaldur var elstur þriggja barna þeirra Ásahjóna, Sveinn er nú látinn en Stefanía býr í Ásum. En þar koma þó fleiri að sögu. Ásahjónin tóku í fóstur fjöldann allan af frændliði, sumt langan tíma yngri ára, aðra sumarlangt. Þar átti ég góða æsku, Kristín frænka spozk og hlý, Ágúst fastur húsbóndi, leið- beinandi og hafði gaman af gestum. Þeir Iétu sig heldur ekki vanta, oft töldust þeir á annan tug um helgar stríðsáranna, en í þá tíð þótt það reyndar nóg að aka þessa hundrað kílómetra_ frá borginni. Hennar fólk var frá Ásólfsstöðum, en foreldrar Ágústs voru bændur fyrir í Ásum. Amma mín, systir Kristínar, sagði mér með nokkru stolti og að fornu mæji, að þar mætti kenna reiðina er Ásólfsstaðabændur riðu í hlað að henni ungri í Galtafelli. Valdi frændi gerðist snemma söngvinn, skynsamur og skemmtinn alla ævi. Var svo settur til mennta upp úr tekt, hygg ég að foreldrar hans hafi séð þar lítið bóndaefni. Hann sagði mér það reyndar sjálfur, að hann hefði góður fjármaður verið og þegar hann sá á mér efasvipinn hló hann bara og bjóst ekki við öðru. En norður til Sigurðar skólameistara fór hann og var í kosti hjá Steindóri á Hlöðum og hans góðu konu. Ætli Steindór hafi ekki sótt greiðann heim að Ásum á sumrum, hann dvaldist þar oft vikum saman og fór um fjöll og firnindi í grasaferðum sínum. Þessa tvo menn virti Valdi mest allra sitt líf. Þar voru líka blómatímar hans, hann stóð sig vel í menntaskóla og var heiðraður fyrir sinn þátt í tónlistarmálum hans. Þorvaldi er svo lýst að hann var góður meðalmaður á hæð, grahnleit- ur og fríður á yngri árum, sem reyndar flestir eru. Enginn var hann íþróttamaður, utan honum þótti gaman að renna fyrir silung sem barn í Kálfá og þá gjarnan með Stínu, æskufélaga sínum frá Ham- arsheiði, sagði hann mér í síðasta bréfi sínu. Síðar sótti hann Veiðivötn með Óskari, skólabróður sínum og lífsvini. Honum varð gott til vina, því að hann var góðgjarn og tillits- samur maður, vildi öllum vel, sérlega frændfólki sínu, en sjálfum sér nóg- ur þegar á ævina leið. Álltaf var hann heima á sumrum og vann búinu, fór aldrei á sjó eða síld frekar en ég, en margir ungir menn gerðu. Við stóðum því lengst af saman á teig. Nú voru h'ka skemmtilegir umbrotatímar, bændur að rétta úr kúti kreppunnar og pen- ingar sáust, vélvæðing hófst af al- vöru og Ásabændur keyptu píanó í barnaskólann æskunni til yndis. Tónlistin var í hávegum höfð, píanó og orgel stóðu í Ásum og Stefanía átti gítar. Og allt var spilað sem fyrir fannst, Fjárlögin, Bach og Beethoven. Og svo kallar annað líf. Hann flyst til Reykjavíkur og kvænist Elínu Dungal árið 1949 og átti með henni Jón, kynningarráðgjafa, fæddan 1949 og Steinunni Kristínu, ensku- meistara fædda 1953. Því miður áttu þau hjón ekki lengi skap saman, þau

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.