Morgunblaðið - 31.01.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.01.1997, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ráni á einni flugvéla Atlanta naumlega afstýrt í Casablanca Öryggisvörður vopnaður hnífi yfirbugaður Eftir nokkur átök tókst að yfir- buga manninn og var hann færður til yfirheyrslu, þar sem hann játaði að hafa ætlað að fara með vélinni, j fara upp í stjórnklefa gegnum far- . þegarýmið og neyða flugmennina að snúa vélinni til Alsírs. Þar mun 1 hann eiga fjölskyldu þótt maðurinn sé sjálfur frá Marokkó. Hafþór segir að fyrir kunnugan mann sé tiltölulega auðvelt að kom- ast upp í stjórnklefann frá lestinni, og hefði því verið torvelt að afstýra þessari flugránstilraun, hefði mað- urinn ekki fundist nægjanlega snemma. I í áhöfninni voru íslenskar flug- | freyjur, annar flugmaðurinn sömu- leiðis og flugvélstjórinn, og voru flestir flugliðarnir staddir um borð í stjórnklefanum þegar átökin áttu sér stað, og urðu þeirra lítt varir, að sögn Hafþórs. Hann segir að engir farþegar hafi verið komnir um borð í vélina, en brottför tafðist töluverða stund vegna þessa atviks. Ekki heill á geðsmunum „Það þykir orðið ljóst að maður- inn sé ekki heill á geðsmunum, og við teljum ástæðu til að hrósa happi yfír að ekki fór verr. Við sjáum hins vegar ekki sérstaka ástæðu til að óska eftir hertu öryggiseftir- liti vegna þessa atviks, enda erfitt j að ráða við það þegar einn öryggis- varða á hlut að máli,“ segir Hafþór. , Harður ' árekstur rútuog j fólksbíls ! KALLA þurfti á tækjabíl slökkvi- i liðsins í Reykjavík til að losa öku- mann bifreiðar, sem lenti í mjög hörðum árekstri við fólksflutninga- bíl á horni Miklubrautar og Skeiðarvogs skömmu eftir hádegi í gær. Maðurinn er ekki talinn í lífshættu. | Tildrög árekstursins voru með j þeim hætti að fólksflutningabifreið P með 20 skólabörn innanborðs á I leið í tíma í Langholtsskóla ók á móti grænu ljósi eftir Réttarholts- vegi á leið inn í Skeiðarvog, þegar bifreið, sem ekið var Skeiðarvog til suðurs, beygði í veg fyrir rútuna. Börnin sluppu vel Bifreiðarnar lentu mjög harka- , lega saman og sendi slökkviliðið * þijá sjúkrabíla á slysstað auk I tækjabíls, sökum þess hversu al- k varlega tilkynningin um slysið hljómaði. Börnin meiddust hins vegar ekki, en samkvæmt upplýs- ingum frá slökkviliðinu fór áhöfn eins sjúkrabílsins með þeim í bif- reiðinni sem sótti þau, enda börn- unum talsvert brugðið. Nokkrir foreldrar munu og hafa leitað til slysadeildar í gær með t böm sín, til að grennslast fýrir um j hugsanlega áverka. Ökumaður f fólksbifreiðarinnar mun ekki hafa » slasast alvarlega. Hæstiréttur ávítar dómsmálaráðuneytið fyrir málsmeðferð í forsjárdeilu SAMKVÆMT úrskurði Hæstarétt- ar svipti dómsmálaráðuneytið Han- es-hjónin bandarísku í reynd rétti þeirra til að leggja réttarágreining sinn og Rannsóknarlögreglu ríkis- ins undir dóm Hæstaréttar, með því að afhenda bandaríska sendiráðinu Zenith Elaine Helton og móður hennar sem fór með barnið úr landi í kjölfarið. Hæstiréttur ákvað á miðvikudag að vísa frá kæm Hanes-hjónanna á úrskurð Héraðsdóms Reylq'aness, þar sem RLR var heimilað að gera leit á heimili þeirra að baminu, í því skyni að taka það úr umsjá þeirra. Ekki stoð í lögum í forsendum dómsins segir m.a. að þar sem það ástand sem leiddi af hinum kærða úrskurði var um garð gengið, verði ekki „hjá því komist að vísa málinu frá“. Hanes-hjón svipt kærurétti I dóminum segir ennfremur að ákvörðun ráðuneytisins um að ráð- stafa barninu, sem hald var lagt á samkvæmt úrskurðinum sem kærð- ur var, hafí hvergi átt sér stoð í lögum. Með ákvorðuninni hafí verið „höfð afskipti af máli, sem að öðr- um kosti hefði verið skorið úr með dómi innan fárra daga.“ Til þessa var litið við ákvörðun greiðslu kærumálskostnaðar Han- es-hjónanna, og úrskurðaði Hæsti- réttur að ríkissjóður greiddi hann alfarið, samtals 250 þúsund krónur. Þorsteinn Geirsson ráðuneytis- stjóri í dómsmálaráðuneytinu segir að ekki sé hægt að mótmæla dómi Hæstaréttar, en hins vegar hafi ákvörðun ráðuneytisins byggst á því mati að það væri hagsmunum barnsins fyrir bestu að ekki yrði dráttur á afhendingu þess til banda- rískra stjómvalda. Ráðuneytið hafí auk þess átt von á að málsmeðferð gæti tekið margar vikur. Hann minnir sömuleiðis á að eingöngu bandarískir þegnar hafi átt hlut að málinu og ráðuneytið hafi litið svo á að málið væri fyrst og fremst bandarískt og eðlilegt megi teljast að réttarágreiningur á milli hlutaðeigandi, sem varði barnið, sé útkljáður í Bandaríkjun- um. Hanes-hjónin hafi ennfremur verið eftirlýst fyrir að ræna barn- inu af móðurinni, sem hafði for- ræði þess samkvæmt úrskurði dómstóla í Bandaríkjunum, auk þess að hafa komið hingað á fölsk- um forsendum. Kæra til Hæstaréttar frestar oft ekki framkvæmdum „Þetta lítur auðvitað ekki vel út, en þær aðgerðir sem við gripum til áttu sér stað áður en dómur Hæsta- réttar féll. Það er nú oft á tíðum svo, að þótt úrskurðir lægra dóm- stigs séu kærðir til Hæstaréttar, frestar það ekki framkvæmdum," segir Þorsteinn. Niðurstöður Ragnars rangar ÞORKELL Sigurlaugsson, fram- kvæmdastjón þróunarsviðs Eim- skipafélags íslands, segir staðhæf- ingar Ragnars Aðalsteinssonar hæstaréttarlögmanns, í greinargerð sem hann vann fyrir umbjóðanda sinn á landflutningasviði í október sl. og greint var frá í Morgunblaðinu í gær, byggja á röngum forsendum. Þar af leiðandi telur Þorkell niður- stöður greinargerðarinnar rangar. Þorkell segir að í greininni séu ýmsar rangfærslur og þama hljóti að vera um að ræða fyrsta uppkast en ekki skjal sem Ragnar hafí sent frá sér til opinberrar birtingar. Ragnar sé almennt þekktur af vandaðri vinnubrögðum en þeim sem birst hafi í blaðinu í gær. „Það er eins og það hafi farið fram hjá Ragnari að Eimskip er Kvótamál Krafa um sam- þykki veðhafa BANN við sölu veiðiheimilda frá skipum nema með leyfí veðhafa mun draga úr viðskiptum með veiðiheim- ildir og gera byggðarlögum kleift að koma í veg fyrir brotthvarf þeirra. Á Alþingi í gær kom fram að þennan skilning leggja Sighvatur Björgvinsson formaður Alþýðu- flokks, Þorsteinn Pálsson sjávarút- vegsráðherra og Guðni Ágústsson alþingismaður Framsóknarflokks, í frumvarpi til laga um samningsveð. ■ Gæti dregið úr/33 ekki lengur bara skipafélag, heldur fyrirtæki sem veitir alhliða flutn- ingaþjónustu bæði á sjó og landi. Landflutningar hafa auðvitað vaxið verulega í kjölfar bættra vegasam- gangna og á sama tíma hefur dreg- ið úr áherslu á sjóflutninga hér inn- anlands. í landflutningum höfum við tekið upp samstarf við aðra eða keypt önnur fyrirtæki í stað þess að byggja eigin fyrirtæki upp frá grunni,“ segir Þorkell. Hann segir það í engum takt við raunveruleik- ann að ætla að Eimskip hafi yfír að ráða 50% hlutdeild af landflutn- ingamarkaðnum. Þorkell Sigurlaugsson vísar því á bug að Eimskip hafi verið að kaupa sér viðskipti með því að kaupa hlut í öðrum félögum. „Þessi fyrirtæki hafa öll verið í viðskiptum við okk- ur áður og eru það áfram. Það er ekkert tengt því að við séum að kaupa okkur viðskipti." Stefna félagsins að vikka starfssviðið í greinargerð Ragnars Aðalsteins- sonar er fjallað um fjárfestingar Eimskips í fýrirtækjum í öðrum at- vinnugreinum en flutningum. Þor- kell segir að Eimskip hafí verið virkt á hlutabréfamarkaði á íslandi und- anfarin ár og hafi stofnað árið 1989 fjárfestingafélagið Burðarás hf. Þetta sé liður í þeirri stefnu félags- ins að víkka starfssvið sitt og taka virkan þátt í íslensku atvinnulífi. „Með fjárfestingum í fýrirtælq'um, s.s. í sjávarútvegi, leggur Eimskip sitt af mörkum til þróunar og arð- samrar uppbyggingar í þeirri áhuga- verðu atvinnugrein," segir Þorkell. Morgunblaðið/Kristinn ÁREKSTURINN var mjög harkalegur og í fyrstu var óttast að skólabörnin í fólksflutningabifreiðinni hefðu slasast. Morgunblaðið/Golli Pjölmennt afmæli heiðurs- borgara MIKIÐ fjölmenni sótti 75 ára afmælisfagnað Aðalsteins Jóns- sonar forsljóra Hraðfrystihúss Eskifjarðar í félagsheimilinu Valhöll á Eskifirði í gærkvöldi. Talið er að um 500 manns hafi sótt afmælishóf Aðalsteins, sem er heiðursborgari Eskifjarðar. Að loknu borðhaldi og dagskrá var stiginn dans fram eftir nóttu. „Þetta er mikill gleðidag- ur og gaman að sjá allt þetta fallega fólk í húsinu hér í kvöld,“ sagði afmælisbarnið. Hér má sjá Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra óska Aðal- steini til hamingju með daginn. VEGNA árvekni hleðslumanns á flugvellinum í Casablanca í Mar- okkó tókst naumlega að koma í veg fyrir tilraun til flugráns á einni vél Átlanta-flugfélagsins sem þar er í rekstri, en lungi áhafnar hennar er íslenskur. Atburðurinn gerðist um hádegi að íslenskum tíma, seinasta sunnu- dag, þegar verið var að hlaða Boeing 747-vél Atlanta-flugfélags- ins á flugvellinum, um klukkustund áður en hún átti að halda til Med- ína í Saudí-Arabíu. Stakk lögreglumann með hnífi Einn hleðslumanna veitti því at- hygli að öryggisvörður á flugvellin- um, sem hafði verið að sniglast í kringum farangursgáma í lestinni, hvarf skyndilega og ákvað að til- kynna starfsfélögum sínum um atburðinn. Búið var að loka lestinni en hún var opnuð aftur og þá kom í ljós að öryggisvörðurinn hafði falið sig í einum gáminum. „Öryggisvörðurinn ógnaði hleðslumönnum með hnífi þegar hann fannst og þeir kölluðu því til lögreglu á flugvellinum. Maður- inn lét sér ekki segjast við af- skipti hennar, heldur réðst á lög- reglumanninn sem fór fremstur í flokki og stakk hann með hnífnum í handlegginn þannig að hann hlaut áverka af,“ segir Hafþór Hafsteinsson flugrekstrarstjóri Atlanta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.