Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 40

Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 40
40 FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÓSKAR GUIDO BERNHÖFT + Óskar Guido Bernhöft var fæddur í Kirkju- hvoli við Kirkjutorg 16. júlí 1901. Hann lést í Reykjavík 23. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík 30. janúar. Ljúfar minningar fóru um hugann, er mér barst fregnin um, að minn kæri vinur og Reglu-bróðir, Guido Bernhöft, væri látinn, minningar þrungnar þakklæti fyrir samfylgd- ina hér á jörð. Það er eins og að líta bjarta heiðskíru á annars skýj- uðum himni að rifja upp öll þau kynni frá fyrsta degi til hins síð- asta. Þar bar aldrei skugga á. Guido Bernhöft var í mínum huga einn þeirra örfáu manna, sem voru „sannir aðalsmenn“ í öllu fari sínu og umgengni við aðra menn. Hann var rúmlega meðalmaður á hæð, ^ höfðinglegur í öllu fasi og ljúf- ' mennskan skein úr andliti hans og öllu viðmóti. Hann var einstakt snyrtimenni, ætíð vel klæddur svo af bar, svo hvorki sá hrukku né blett nokkru sinni, enda var fram- koma hans og fas ávallt í sama mótið steypt. Mín fyrstu kynni af Guido Bem- höft vom frá bemskuárum mínum, er faðir minn átti við hann nokkur viðskipti eins og fleiri kaupmenn á þeim ámm, en hann skar sig alveg úr þeim hópi fyrir einstaka lipurð, ^orðheldni og sanngimi í hvívetna. Faðir minn þreyttist aldrei á að end- urtaka: „Hann Bernhöft er alveg einstakur. Sögð orð í síma em meira virði frá hans vömm en stimplaðir pappírar frá mörgum öðmm. Hjá honum bregst aldrei neitt, hvorki vömsending eða tími, hvorki stafur né komma, honum má alveg treysta, honum skeikar aldrei, enda em skiptin við hann alltaf jafn ljúf.“ Þessi orð föður míns vildi ég gera að mínum, því reynsla mín af hon- um er sú sama og ekki síðri, því að mannkostir hans nutu sín aldrei betur en í félagi, þar sem dyggðir og dreng- skapur, kærleikur og góðvild skipa öndvegi. Hann gekk í frímúrara- stúkuna Eddu 27 ára og batt órofa tryggð við frímúrarastarfið og hugsjónir frá því, enda voru honum fljótlega falin vandasöm og tímafrek trúnaðarstörf fyrir stúku sína og síðan fyrir Frímúrararegl- una á íslandi, er hún var stofnuð 1951. Störfin og ábyrgðin jukust ár frá ári og var honum loks falið eitt umsvifamesta embættið innan Reglunnar um fjölda ára og meðan starfskraftar entust. Ekki veit ég hvort mannkostir hans vom mótaðir af uppeldi hans eða eðli eða þá af áhrifunum frá Frímúrarareglunni og hugsjónum hennar, sennilega af öllu saman- lögðu. Kristin trú var grundvöllur allrar iðju hans, allra áforma hans og verka og birtist bæði í orðum hans og athöfnum. Hann vann öll sín störf, bæði utan Reglunnar og innan, af árvekni, kostgæfni og samviskusemi og leysti þau af hendi fljótt og vel. Drenglyndi, réttsýni og orðheldni einkenndi skipti hans við aðra menn. Seint verða fulltaldir mannkostir hans. Þó langar mig til að minnast þess, hversu hann bar mótlæti með þolinmæði og auðmýkt. Það kom best fram, þegar hann missti hjart- kæra eiginkonu sína fyrir níu árum. Hann bar aldrei djúpa sorg sína utan á sér, því enginn sá það á honum utan heimilisins, þótt allir fyndu hvað honum leið. Á sama hátt sýndi hann ávallt hógværð í meðlæti. Af ofanskráðu er augljóst, að Guido Bernhöft var einstaklega já- t Systir mín, HERBORG EINARSDÓTTIR, Meðalholti 2, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 21. janúar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð. Jófrfður Einarsdóttir. *■ t Föðurbróðir okkar, JÓHANNES EGILSSON frá Laxamýri, lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 27. janúar. Fyrir hönd ættingja og vina. Gunnar Sigurðsson, Jóhann Sigurðsson. t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, HERMANN BJÖRNSSON, Bakkahlfð 15, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 30. janúar. Lfsa Björk Sigurðardóttir, Hulda Sif og Berglind Hermannsdætur. kvæður og glaðvær í hvívetna, en þó var gaman hans ávallt græsku- laust. Eg man ekki eftir neinum jafn umtalsgóðum manni og hann var, því aldrei minnist ég þess nokkru sinni, að hann hafi sagt neitt annað en gott um aðra, hvort sem þeir voru nær eða fjær. Kannski er það einmitt þetta lífsvið- horf, sem hjálpar mönnum til að vera ungum til 95 ára aldurs. Um leið og ég, fyrir hönd Frímúr- arareglunnar á íslandi, votta börn- um hans og fjölskyldum þeirra ein- læga samúð mína, er ég þess full- viss, að það er ómetanleg huggun í harmi að eiga eftir minninguna um einstæðan föður. Á sama hátt og hann var stoltur af forfeðrum sínum og ætt, þótt aldrei bæri hann það á torg, þá getið þið svo sannar- lega verið stolt af að eiga þau Maju og Guido Bernhöft að foreldr- um. Guð veri með ykkur öllum. Karl Guðmundsson. Það var á sólrikum sunnudegi í maí 1957 að við Guido urðum sam- ferða vestur á Hagamel 12 til að heimsækja Karl Þorsteins, ræðis- mann, en hann hafði boðið okkur í eftirmiðdagskaffi þann dag. Allir vorum við frímerkjasafnarar og var því ekki að sökum að spyija um hvað okkar umræða myndi snú- ast. Guido minntist þess að faðir sinn hefði safnað frímerkjum sem við reyndar vissum, en þeir gömlu mennirnir í hans tíð hefðu oft kom- ið saman til að rabba um þetta áhugaefni sitt. Vorum við sammála um að leitt væri að enginn félags- skapur frímerkjasafnara væri til hér. Við Guido urðum samferða eftir að hafa kvatt Karl og héldum þá umræðunni áfram og að því kom að við ákváðum að aðhafast eitt- hvað í málinu. Höfðum við hvor um sig sam- band við nokkra menn sem við viss- um að hefðu áhuga á frímerkjum og boðuðum þá til fundar í Þjóð- leikhúskjallaranum þann 28. maí 1957. Niðurstaða þessa fundar var já- kvæð á þá leið að ákveðið var að boða til stofnfundar um félag frí- merkjasafnara í Oddfellowhúsinu nokkrum dögum seinna. Sá fundur var fjölsóttur og var Guido kosinn fyrsti formaður fé- lagsins, sem fékk nafnið Félag frí- merkjasafnara. Vinátta okkar hélst allar götur síðan. Skapmildi hans var einstök og háttvís var hann svo af bar. Far vel, kæri vinur. Við Halla sendum ástvinum inni- legar samúðarkveðjur._ Guðmundur Árnason. Kær vinur minn og samstarfsfé- lagi, Guido Bemhöft, er látinn eftir nær heillar aldar gifturíka ævi. Ég kynntist honum fyrir alvöru þegar ég kom til starfa hjá H. Ólafsson & Bernhöft. Í fyrstu kom mér ekki til hugar að með okkur tækist sá vinskapur sem raun varð á. Fyrir það fyrsta var aldursmunurinn tals- verður - meira en hálf öld skildi okkur að. Auk þess höfðum við lif- að á misjöfnum tímum og í ólíku umhverfi. Guido var borgarbarn af gamla skólanum, fæddur í miðbænum og átti þar heima alla sína ævi. Hann þekkti þar hvern einasta blett og tók beint og óbeint þátt í þeirri byltingu sem átt hefur sér stað í höfuðborginni á liðnum áratugum. Hann hafði skoðun á þeim hlutum og það var hlustað á hann. Margar samræður áttum við í gegnum árin og þá fékk ég að njóta visku hans og reynslu í slíkum mæli að ég get talað um að hafa eignast andlegan fjársjóð. Þekking Guido á mannlífinu frá aldamótum var ótrúlega mikil og varð ljóslif- andi fyrir mér í hans frásögn, þeg- ar hann lýsti vafningalaust manna- nöfnum, stöðum og atburðum lið- inna stunda. Fyrst í stað kom fróð- leikur hans og innsæi mér sífellt á óvart, en smám saman lærðist mér að taka það gott og gilt að svona fólk væri raunverulega til; fólk sem hefur lifað svo margt og hefur frá svo mörgu að segja - og gerir það á einlægan og falslausan hátt. Við- horf hans til manngildis og siðferð- is voru á háu plani og stóð hann þar á sama stalli og annar mikill andans maður sem ég ber mikla virðingu fyrir, Sigurbjörn Einarsson biskup. Guido var trúaður maður og tók virkan þátt í starfi sinnar sóknar. Án efa hefur trúin kennt honum gildi þess að iðka hófsemd og öfga- leysi í starfi og leik. Snemma komst hann til góðra efna, en sóttist aldr- ei eftir óþarfa hlutum og viðhafði aldrei bruðl. Hann var ávallt stadd- ur á hinum gullna meðalvegi og gætti þess að koma fram af heiðar- leik og sanngirni. í ofanálag átti hann mörg áhugamál og Iét sitt ekki eftir liggja í ýmsum félags- störfum. Á öllum sviðum nutu menn orku hans, jákvæðni og ríkulegrar kímnigáfu. Það leituðu ótal margir einstakl- ingar ráða hans og komu ekki að tómum kofunum - en um leið vildi hann halda sér baksviðs, forðaðist sviðsljósið og sóttist ekki eftir viður- kenningum eða frama á opinberum vettvangi, svo sem í stjórnmálum. Miklu fremur vildi hann eiga sínar stundir við laxveiðar eða golf, eiga sínar stundir í ró og friði með góð- um vinum, í guðs grænni náttúr- unni að anda að sér hreinu íslensku lofti. Nú þegar efsta þrepi er náð og hin dularfulla ferð er hafin hjá Guido sit ég og velti fyrir mér hvað bíði „fyrir handan". Hann var sann- trúaður maður og ég hugga mig við það, að sál hans kemst í örugg- ar hendur, því á hinn æðsta áfanga- stað hljóta allir að ná sem hafa til að bera svona mikla manngæsku sem Guido óneitanlega hafði til að bera. Nú þegar ég rita þetta um Guido er mér efst í huga þakklæti til hans fyrir allt sem hann var mér. Ég kveð þig, Guido minn, með vinsemd og virðingu. Lárus Valbergsson. Við kveðjum nú frænda minn, félaga og vin Guido Bernhöft á hans 96. aldursári, en hann lést 23. þessa mánaðar. Það er ef til vill dálítið skrítið svona eftirá að hyggja, en þegar ég horfi til baka get ég varla sagt að ég hafi þekkt hann svo nokkru næmi, fyrr en hann var að verða sjötugur. Hann var bara Guido frændi, sem átti og rak H. Ólafsson & Bernhöft með afa. Frændurnir Guido og afi höfðu meira og minna alist upp saman allt frá unga aldri, þeir gengu sömu menntabrautina og luku verslunar- skólaprófi, unnu saman hjá Ó. John- son og Kaaber um 10 ára skeið og stofnuðu síðan fyrirtækið H. Ólafs- son & Bernhöft 2. janúar 1929. Þar unnu þeir síðan saman í nær 40 ár eða þar til afi minn veiktist. Guido sagði mér seinna, að í öll þessi ár hefði aldrei fallið styggðar- yrði á milli þeirra og segir það meira um þá frændur en margt annað. Eins og áður sagði, kynntist ég Guido að einhverju ráði fyrst um það leyti, sem hann var að verða sjötugur, en þá var ég farinn að vinna hjá H. Ó & B., fyrst í afleys- ingum á sumrin, en síðar í fullu starfi að námi loknu 1974. Það eru þessi góðu kynni og 20 ára sam- starf, sem ég í dag vil fá að þakka með þessum fátæklegu línum. Það er ekki öllum nýútskrifuðum skóla- piltum gefið, að fá að hefja sam- starf með jafn ljúfum manni, með 50 ára reynslu í viðskiptum að baki sér, eins og Guido. Hvað þá heldur að fá að ganga fram veginn með honum næstu 20 árin og bergja af hans reynslu og viskubikar. Það voru sannkölluð fríðindi að fá að kynnast hjá honum viðskiptahátt- um og siðferði fyrri tíma og manni er stundum spurn, hvort viðskipta- heimurinn væri ekki mun betri, ef sjentilmenn eins og Guido legðu þar enn línurnar. Guido var einn kurt- eisasti og háttprúðasti maður, sem ég hef þekkt. Einn viðskiptavinur okkar tjáði mér einu sinni, að það væri eiginlega til vandræða hversu prúður og kurteis hann Guido væri, því það væri alveg ómögulegt að draga hann á greiðslu á vöruúttekt- inni þegar hann innti eftir henni. Þó að Guido hafi sinnt margvísleg- um störfum í fyrirtækinu, eins og forstjórum lítilla fyrirtækja er uppá- lagt, þá var sölumennskan hans fag. Eg leyfi mér að fullyrða að t Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móð- ur okkar, tengdamóður og ömmu, MARGRÉTAR HARALDSDÓTTUR, Eyjavöllum 13, Keflavík. Magnús Kolbeinsson, Kristin Sigurðardóttir Rose, Brian D. Rose, Kolbrún Sigurðardóttir, Rúnar Sigurbjartarson, Magnea Brynja Magnúsdóttir, Konráð Ingvi Sigurðarson, Robert Thomas Rose, Patrick Brent Rose. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi, langalangafi og langalangalangafi, RAGNAR ÁGÚST BJÖRNSSON, fyrrv. hafnarstjóri, Skólavegi 2, Keflavík, sem andaðist á Sjúkrahúsi Suðurnesja aðfaranótt föstudagsins 24. janúar, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 1. febrúar kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Minningarsjóð Krist- jáns ingibergssonar. Aðstandendur vilja þakka starfsfólki Sjúkrahúss Suðurnesja fyrir sérstaka alúð og umhyggju við hinn látna. Stefanía Ragnarsdóttir, Gunnar Albertsson, Kolbrún Ragnarsdóttir, Jón Sigurðsson, Ragnar Marinósson, Ólöf Leifsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.