Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 38

Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 38
38 FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MAGNÚS ÖRNÓLFUR JÓHANNSSON + Magnús Örnólf- ur Jóhannsson var fæddur í Smiðjugötu 1 á Isafirði 28. septem- ber 1916. Hann and- aðist 27. janúar síð- astliðinn í Sjúkra- húsi ísafjarðar. Magnús var einka- sonur hjónanna Salóme Salómons- dóttur og Jóhanns Magnússonar. Arið 1943 kvænt- ist hann Margréti Sigríði Jónasdóttur, ættaðri úr Fijótum í Skagafirði og varð þeim fjögurra barna auðið. 1) Erna, f. 7.6. 1938, gift Helga Geirmundssyni og eiga þau sex börn. 2) Edda, f. 5.10. 1943, gift Stefáni Jónssyni og eiga þau fjögur börn. 3) Jó- hann, f. 22.4. 1945, kvæntur Halldóru Jóhannsdóttur og eiga þau fjögur börn, en fyrir átti Jóhann eina dóttur. 4) Lilja, f. 28.2. 1947, gift Þórði Sveinbjörns- syni og eiga þau tvö börn. Barnabörnin eru átján og barna- barnabörnin tutt- ugu og sex. A yngri árum starfaði Magnús sem sjómaður hjá föður sínum, en síð- an hóf hann störf hjá Smjörlíkisgerð Isafjarðar þar sem hann starfaði í 18 ár. Um ára- bil vann Magnús við húsamálun, en á seinni árum vann hann hjá Ishúsfélagi ísfirðinga þar til hann lét af störfum í ágúst á síðasta ári. Utför Magnúsar Örnólfs fer fram frá ísafjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Sorgarfregn berst að morgni 27. janúar. Hann Magnús tengdapabbi lést í nótt. í upphafi grípur sorg og söknuður hugann og maður skynjar 4- mikið tómarúm sem mjmdast hefur við fráfali þessa öðlingsmanns. En brátt sefast sorgin og tómarúmið minnkar þegar allar góðu minning- amar riíjast upp. Ég hef átt því láni að fagna að hafa þekkt Magnús í rúmlega 30 ár. Það var í ágúst 1965 þegar ég kom í fyrsta skipti í heim- sókn á heimili Magnúsar og eigin- konu hans Margrétar Jónasdóttur í Smiðjugötu 6 á Isafirði. Sú heimsókn er mér enn í fersku minni, því þar kynntist ég heimili sem einkenndist ^ af hlýhug, umhyggju og gestrisni. Og heimsóknimar í Smiðjugötunni áttu eftir að verða margar og alltaf vom þær tillhlökkunarefni, ekki bara fyrir mig heldur alla íjölskylduna. Magnús var afar léttur í lund og glaðvær svo eftir var tekið. Að vera í návist hans jók manni bjartsýni og kjark. Magnús var kvikur á fæti og naut þess að fara í góða göngutúra. í slíkum ferðum var oft slegið á létta strengi og gérðar athugasemdir við það sem fyrir augu bar. Snyrti- mennskan var Magnúsi í blóð borin og fór það mjög fyrir brjóstið á hon- um þegar hann sá slæma um- gengni, einkum ef í hlut áttu ómáluð og illa hirt hús. Magnús var sérlega iðjusamur maður svo aldrei féll hon- 'o um verk úr hendi. Að loknum vinnu- degi var hver stund notuð til hins ýtrasta við að laga til og fága allt jafnt utanhúss sem innan, jafnvel var matarhléð notað til að slá garð- inn og raka. Að taka á móti gestum var líklega toppurinn á tilverunni og ef þeir sem framhjá gengu mönnuðu sig ekki upp í að banka á dyrnar var þeim bara kippt af götunni og þeir settir við kaffiborðið. Öll mann- leg samskipti voru Magnúsi hugleik- in og átti hann afar auðvelt mað að stofna til viðræðna og kynna við ókunnugt fólk. Að gleðjast í góðra vina hópi kunni hann vel og var hann þá jafnan hrókur alls fagnað- ar. Ballskák spilaði Magnús af mik- illi prýði og náði langt í þeirri íþrótt. Magnús hafði afskaplega gaman af ferðalögum og ferðaðist oft, bæði erlendis og innanlands. Minningamar hrannast upp í hug- ann svo lengi mætti halda áfram, en hér skal staðar numið. Það var fyrir réttum mánuði að leiðir okkar Magnúsar lágu saman í síðasta sinn í þessu lífí. Enn var ég í heimsókn í Smiðjugötunni. 0g þarna var hann Magnús ennþá síungur og glaður og þannig mun ég ávallt geyma minn- inguna um hann í mínum huga. Hafðu þökk og Guð blessi minningu þína. Ég sendi eftirlifandi eiginkonu hans, Margréti Jónasdóttur, og öðr- um aðstandendum mínar dýpstu samúðarkveðjur. Þórður Sveinbjörnsson. Elsku pabbi minn. Nú þegar kemur að leiðarlokum langar mig til að minnast þín í örfá- um orðum. Þó vitað væri að hveiju stefndi kemur kallið alltaf á óvart, þetta kall sem allir verða einhvern tímann að hlýða. Ég gat ekki kvatt þig og það þykir mér sárt. Við ætluð- um að koma til þín um páskana með böm og barnaböm, sem alltaf hlökk- uðu til að hitta „besta afa í heimi“ sem alltaf var svo kátur og glaður og aldrei í vondu skapi eins og þau sögðu alltaf þegar þau minntust á þig. Ég kveð þig nú, pabbi minn, með sámm söknuði og bið algóðan Guð að gefa móður minni styrk í hennar miklu sorg. Hún sem er klett- ur í hafinu í hveiju sem á gengur. Hafðu þökk fyrir allt og allt, pabbi minn. Blessuð sé minning þín. Lilja. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kringl- unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akur- eyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (5691115) og í tölvupósti (MBL@CENTRUM.IS). Um hvern Iátinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þijú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfrétt- ir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða töivusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá era ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Mig langar með nokkram orðum að minnast kærs fjölskylduvinar, Magnúsar Ömólfs Jóhannssonar, sem er látinn. Kynni min af þessum góða vini hófust er hann fór að mála með föð- ur mínum og vann hann hjá honum í mörg ár. En þá hófst strax dýrmæt vinátta fjölskyldu minnar við þau hjónin Magga og Möggu. Og er ég byijaði að mála unglingurinn þá urð- um við vinnufélagar frá fyrsta degi, og síðan en ekki síst góðir vinir og áttum við yndislega, einlæga vináttu og tryggð fram á síðasta kvöldið hans á sjúkrahúsinu. Maggi var al- veg einstaklega glaðlyndur og skemmtilegur persónuleiki, bros- mildur og sérlega elskulegur og hlýr í viðmóti. Alltaf var stutt í húmor- inn, giaðværðina og hláturinn. Og er við unnum saman voru fleiri hress- ir karakterar, þar á meðal Daddi brasi, og var yfirleitt glatt á hjalla og gáskinn og sögumar flugu og era orðnar hálfgerðar þjóðsögur hér um slóðir. Hann Maggi var kvæntur yndis- legri konu, henni Margréti Jónas- dóttur frá Siglufirði, eða Möggu hans Magga eins og við kölluðum hana. Þau hafa búið sér sérstaklega fallegt heimili í Smiðjugötunni og hafa verið frábærlega samhent við að gera upp gamla hús foreldra hans og ber það þeim fagurt vitni hvort sem er utandyra í garðinum eða inn- anhúss. En foreldrar Magga, Salome og Jóhann, eyddu síðan ævikvöldinu í skjóli þeirra hjóna og við yndislega aðhlynningu þeirra. Margar ánægjustundir höfum við fjölskyldan átt á heimili þeirra hjóna, og alltaf verið svo innilega velkomin, og var alltaf eins og við væram að sækja höfðingja heim. Svoleiðis hef- ur vináttan og gestrisnin alltaf verið ræktuð á þeim bæ. Þau hjón hafa verið alveg sérlega trygg vinum sín- um, svo ég tali nú ekki um fjölskyldu- böndin þeirra, en þar hefur sam- heldnin ráðið ríkjum. Samband þeirra við börn, tengdaböm og þeirra niðja hafa þau rækt með miklum og góð- um samskiptum, og mikilli nálægð við þau öll, hvort sem var elsta bamabarnið eða síðasta langafa- bamið. Ef einhver í flölskyldunni var í framkvæmdum með húsið sitt, að byggja, smíða eða mála, var Maggi mættur með sína starfskrafta og bros á vör, og var með eindæmum greiðvikinn við alla, og hafði mikla ánægju af. Ahugamálin hans Magga voru mörg. Hann hafði ómælda ánægju af því að spila billjard og var alltaf með þeim bestu hér um slóðir og víðar. Þá höfðu þau hjónin mikla ánægju af því að ferðast og fóru þau vítt og breytt um landið og seinni árin fóra þau oft til útlanda með bömum sínum í sumarfrí og nutu þau þess út í ystu æsar. Svo fannst honum alltaf gaman að ræða um lífsins gagn og nauðsynjar og var ekki komið að tómum kofanum þar. SIGRÍÐUR ÞÓRARINSDÓTTIR + Sigríður Þór- arinsdóttir fæddist í Krossdal í Kelduhverfi 3. júní 1929. Hún lést 19. janúar síðast- liðinn. Foreldrar Sigríðar: Þórarinn Jóhannesson, Krossdal, og Ing- veldur Guðný Þór- arinsdóttir frá Kílakoti. Systkini Sigríðar: Jóhann- es, Ingveldur Vil- borg og Þórarinn, látin, og Sveinn. Hinn 29. ágúst 1959 giftist Sigríður eftirlifandi eig- inmanni sínum Gunnari Valdi- marssyni. Þau eiga þijú börn, sem eru: 1) Aðalsteinn Rúnar, f. 1960, maki Rannveig Jóns- dóttir, búsett á Húsavík. 2) Þór- hildur, f. 1961, maki Jón Ingi Björnsson, búsett í Reykjadal. 3) Guðrún, f. 1968, maki Haukur Þór- hallsson, búsett á Kambsstöðum í Hálshreppi. Áður átti Sigríður tvær dætur, sem eru: Gunnþórunn Guðný Sigurðar- dóttir, f. 1951, maki Viðar Ei- kríksson, búsett á Húsavík, og Kolbrún Kúld Pétursdóttir, f. 1954, maki Guðmundur Valdi- marsson, búsett í Hafnarfirði. Barnabörn Sigríðar eru fimmt- án og barnabarnabörnin tvö. Útför Sigríðar fór fram frá Húsavíkurkirkju 25. janúar. Fyrir hönd okkar skólasystra úr Ljósmæðraskóla íslands, langar mig til að minnast Sigríðar Þórarinsdótt- ur með nokkram orðum. Við voram tólf sem hófum nám í skólanum. Ein varð að fresta námi um eitt ár vegna veikinda, svo við vorum ellefu sem þreyttum prófin og útskrifuðumst 30. september 1953. Þetta var samstilltur hópur, sem tók námið alvarlega, og allar höfum við síðan unnið við Ijós- mæðra- og hjúkranarstörf um lengri eða skemmri tíma. Við erum þó búnar að missa aðra úr hópnum, hana Ingibjörgu sem lést fyrir mörgum áram, langt um aldur fram. Sigríður, eða Sissa eins og við kölluðum hana alltaf, hóf sín ljós- móðurstörf í sinni heimasveit strax að loknu námi. Hún starfaði sem umdæmisljósmóðir í Keldunes- hreppsumdæmi á sjötta ár. Frá hausti 1959 hefur hún starfað sem ljósmóðir á sjúkrahúsinu á Húsavík, allt til 1. apríl 1986, en þá sagði hún upp störfum af heilsufarsástæðum. Fyrstu árin á Húsavík þjónaði hún einnig umdæmum í nágrenni Húsa- víkur. Ég get ekki sagt um hvernig vinnuskipting ljósmæðra á sjúkra- húsinu á Húsavík er núna, en oft skiptu þijár ljósmæður með sér tveim heilum stöðum. Þar var ekki um venjuleg vaktaskipti að ræða heldur sólarhringsskipti. Oft var Sissa boðin og búin að skipta við sér yngri ljós- mæður ef hún vissi til að þær lang- aði til að fara á ball, eða þá að vera heima hjá sér um jólin, svo eitthvað sé nefnt. Um vorið 1986 fékk Sissa hjarta- áfall og má segja að árin þar á eftir hafi verið nær samfelldur sjúkdóms- ferill. Sykursýki, skjaldkirtilssjúk- dómur, hryggbrot og síðan lærbrot ásamt fleira. Þetta urðu því margar sjúkrahúsferðir og oft löng lega. Oftast var hún á sjúkrahúsinu á Húsavík og var þar samfellt frá 15. maí 1995. Oft þurfti hún þó að fara á önnur sjúkrahús, t.d. Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri, en þar lést hún á gjörgæsludeild um kl. hálf fimm, seinni hluta sunnudagsins 19. janúar eftir tveggja sólarhringa legu þar. Efalaust hefur hún fundið að hveiju stefndi, því hún bað manninn sinn endilega að koma með sér og vera hjá sér, en í önnur þau skipti sem hún þurfti á sjúkrahúsvist að halda, taldi hún enga þörf á fylgd. Ég er bara að fara á sjúkrahús, sagði hún. Það vildi svo einkennilega til að eitt bamabamið hennar Sissu, Her- mann Þór Hauksson á Kambsstöð- um, var að halda upp á 9 ára afmæl- ið sitt á sama tíma og Sissa kvaddi. Þar vora því saman komnir margir af afkomendum hennar þegar þeim barst þessi sorgarfregn. Þó svo að Sissa ætti við mörg heilsuvandamál að stríða, æðraðist hún ekki og oft komu góðir dagar inn á milli. Gunnar, eiginmaður hennar, er líka alveg einstakur. Hann Maggi varð áttræður síðastliðið haust en það bar hann nú ekki með sér, þessi vinur. Hann hélt sér alveg einstaklega vel og leit út fyrir að vera mun yngri en árin sögðu, og allt að því strákslegur, enda dugleg- ur að ganga og hreyfa sig alla tíð. Hann Maggi var einn af sonum ísafjarðar og setti svo sannarlega svip á bæinn sinn. Hann hafði unnið í Smjörlíkisgerð ísafjarðar í fjölda ára áður en hann fór að vinna hjá föður mínum, og er hann hætti í málningunni fór hann að vinna hjá íshúsfélagi ísfírðinga hf. og vann þar þangað til í vetur. Heilsan hafði alla tíð verið góð, svo það átti ekki við hann að hætta að vinna, enda átti hann góða og hressa vinnufélaga í íshúsinu og naut þess í ríkum mæli að vera inn- an um fólk. Fyrir tveimur áram veiktist hann en náði sér mjög vel, og var heilsan þokkaleg þar til fyrir tíu dögum að hann veiktist og var lagður inn á Sjúkrahús ísafjarðar þar sem hann lést. Það var yndislegt að eiga hann Magga fyrir vin, og vil ég að leiðar- lokum þakka honum vináttu og tryggð, og alla umhyggjuna fyrir föður mínum og okkur ljölskyldunni alla tíð. Megi guð geyma hann í nýjum heimkynnum. Elsku Magga, við sendum þér og fjölskyldu þinni okkar innilegustu samúðarkveðjur. Bjarndís og fjölskylda. var óþreytandi að styðja við Sissu í veikindum hennar á allan hátt, sem hægt var. Hann aðstoðaði hana ef hún var heima, heimsótti hana á sjúkrahúsið þegar hún var þar og tók hana heim hvenær sem færi gafst á þeim tíma. Eftir að þau seldu húsið á Uppsalaveginum og fluttu að Skálabrekku 19 gat Gunnar ekið henni þangað heim í hjólastól flesta daga og um helgar. Þau urðu æ samrýndari eftir því sem árin liðu og fundu sér ýmislegt til að vinna saman að þessar stundir. Síðasti dagurinn hennar heima var þriðju- dagurinn 14. janúar. Eftir það fór að halla undan fæti. Það er þakkar- vert að Sissa virtist oft ekki finna mikið til og oftar en ekki var stutt í brosið. Ég minnist Sissu sem brosandi konu og mikillar handavinnukonu. Á meðan við voram í skólanum var hún alltaf að sauma út eða með aðrar hannyrðir þegar færi gafst frá námi og vinnu. Ég sé enn fyrir mér falleg- an kjól sem hún saumaði á dóttur sína. Mér er einnig minnisstætt þeg- ar ég, mörgum árum seinna, kom í heimsókn á Uppsalaveg 12 til þeirra hjóna að sjá alla þá hluti sem Sissa hafði unnið af mikilli vandvirkni og piýddu veggi og aðra staði í húsinu. Og blómin, hvílík natni. Ennþá sé ég fyrir mér klifuijurtina sem fékk að teygja sig út um allt í stofunni og fékk meir að segja sérsmíðaðan grindarvegg til að feta sig áfram í. Eins og áður sagði var hópurinn okkar í Ljósmæðraskólanum mjög samstilltur og höfum við reynt að halda sambandi áfram með þvi að koma saman á ýmsum tímamótum eða réttara sagt skólaafmælum. Aldrei hefur þó tekist að ná öllum saman í einu. Sissa og Gunnar náðu því að vera með í glöðum hópi bæði á Akureyri og í Reykjavík. Haustið 1993, þegar 40 ár voru liðin frá út- skriftinni, fórum við nokkrar til út- landa. Sissa var þá ekki ferðafær eftir lærbrotið og sagðist ekki geta lagt á okkur að hafa meðferðis stirða konu á hækjum, en bætti hlæjandi við, hver veit nema ég geti komið með næst. Nú er hún lögð af stað í lengra ferðalag og viljum við gera orð Valdi- mars Briem að okkar: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Innilegar samúðarkveðjur send- um við Gunnari, öllum börnunum og fjölskyldurn þeirra. Ása.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.