Morgunblaðið - 31.01.1997, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 31.01.1997, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINIUINGAR FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 39^ Sigursteinn Óskar Jóhanns- son var fæddur á bænum Skálatanga í Innri Akranes- hreppi 6. nóvember 1916. Hann lést á Sjúkrahúsi Akra- ness 14. janúar sið- astliðinn. Foreldrar hans voru þau Jó- hann Gestsson, þá bóndi á Skálatanga og síðar bóndi á Kirkjubóli, en móðir hans var Sigríður Jónsdóttir frá Stóru Drageyri í Borgarfirði. Systkini hans voru Ingveldur, Jóhann, Lára og Jónlna, öll látin. Hinn 8. nóvember 1942 kvænt- ist Sigursteinn eftirlifandi eigin- konu sinni, Þuriði Katarínus- dóttur, f. 6.8. 1919 á Folafæti við ísafjarðardjúp. Börn Sigur- steins og Þuríðar urðu níu: Guð- mundur, f. 1943, kvæntur Ólöfu Elíasdóttur, Jóhann Óskar, f. Elsku pabbi, mig langar að senda þér hinstu kveðju. Ég er mjög stolt af því að vera skírð í höfuðið á þér og ég reyni að bara nafn þitt með reisn. Ég minnist mest hlýleika og fórnfýsi þinnar þegar aðrir áttu bágt, þú máttir aldrei vita af nein- um sem var hjálpar þurfi án þess að rétta þína hjálparhönd. Ég minnist líka að fólk sagði að þú tækir aldrei borgun fyrir þína aukavinnu enda þótt þú hefðir fyr- ir stórri fjölskyldu að sjá og það þykir mér fallegt að heyra. Ég 1944, maki Hulda Snorradóttir, Jón Kristján, f. 1945, fyrrverandi kona hans var Þórunn Engilbertsdóttir, þau eru skilin, Sig- ríður, f. 1946, maki Sigfús Tómasson, Katrín Helga f. 1948, maki Jens Lehmann, þau eru búsett í Danmörku, Jóhanna Helga, f. 1951, maki Agnar Indriðason, Þuríður Ósk, f. 1955, maki Ámi P. Baldursson, Ragnheiður, f. 1959, maki Magnús Örn Magn- ússon, og Hafdís, f. 1963. Barna- böm þeirra Sigursteins og Þur- íðar em orðin 36 og bamabarna- bömin 21. Sigursteinn var bóndi í Ytri Galtarvík í Skilmannahreppi frá 1960. Útför hans fór fram frá Innra Hólmskirkju laugardag- inn 25. janúar. minnist líka mikillar vinnu þinnar til að hafa ofan í okkur og á og hvað þú sleist þér út fyrir aldur fram í þeirri lífsbaráttu. Ég þakka þér fyrir allt, pabbi minn. Ég sakna móttakanna þinna þeg- ar ég kom heim í sveitina þína, þar sem þú varst á sjúkrahúsi síðasta árið sem þú lifðir. Vona ég að þér líði betur. Hvíl þú í friði þar sem þú ert. Ég þakka þér fyrir samveruna síðustu nóttina sem við áttum sam- an á sjúkrahúsinu. Ég vona að þú hafir fengið styrk frá mér, Árna ég gera orð skáldsins Davíðs Stef- ánssonar að mínum: Ef sérð þú gamla konu, þá minnst þú móður þinnar, sem mildast átti hjartað og þyngstu störfin vann, og fómaði þér kröftum og fegurð æsku sinnar og fræddi þig um lífið og gerði úr þér mann. Þú veist að gömui kona var ung og fógur forðum, og fátækasta ekkjan gaf drottni sínum mest, ó, sýndu henni vinsemd í verki og í orðum, sú virðing sæmi henni og móður þinni best. Þvi aðeins færð þú heiðrað og metið þína móður að minning hennar verði þér alltaf hrein og skýr og veki hjá þér löngun til að vera öðrum góður og vaxa inn í himin - þar sem kærleikurinn býr. (Davíð Stefánsson) Guð geymi þig. Herdís Jóhannesdóttir. Elsku amma mín, mig langar að minnast þín með nokkrum orðum. Það er skrítið til þess að hugsa að ég muni ekki skreppa í Njörvasund- ið til þín framar og ræða við þig um daginn og veginn og sporðrenna nokkrum upprúlluðum pönnukök- um. En ég veit líka að þér fannst vera kominn tími til að fara héðan og veit ég að þér mun líða betur þar sem þú ert nú, en þér leið mánuðina áður en þú kvaddir. Þegar ég rifja upp æsku mína í huganum kemst ég að því hversu mikil áhrif þú hafðir á mig sem litla stúlku sem var að læra á lífið. Við bjuggum jú í sama húsi þar til ég flutti með foreldrum og systkinum í Ásendann, þá 12 ára gömul. Þær voru margar stundimar sem við áttum saman, sérstaklega er mér minnisstætt þegar ég var að læra að lesa og sat við eldhúsborð- ið hjá þér á meðan þú varst eitt- hvað að sýsla í eldhúsinu,_ en þér féll aldrei verk úr hendi. Ég man og Steinu, þær raunastundir. Guð geymi þig, elsku pabbi minn. Þuríður Ósk Sigursteinsdóttir. í dag er kvaddur Sigursteinn í Galtarvík, nágranni minn til margra ára. Með þakklæti minnist ég hans sem granna er gott var til að leita ef lítils þurfti með, en varð með úrlausn hans meiriháttar, fá lánuð verkfæri eða hjálp við smá- viðgerðir, því hann var laghentur, fá dráttarvél smástund eða skreppa með honum á jeppanum í kaupstað eða bara að hitta nágrannana því eins og hann sagði svo oft: „Hvað er betra en góðir nágrannar?" Við höfðum gaman af á glaðri stund að syngja saman gömlu ættjarðar- kvæðin, það var okkar ættjarðar- ást. Börnin okkar léku sér saman, enda á svipuðu reki. Hann var mik- ill vinnumaður og féll helst aldrei verk úr hendi. Har.n átti fallegar skepnur, fór vel með þær og þótti vænt um þær. Þegar heilsan var farin nú síðustu árin var einasta óskin þín að fá að vera í Galtarvík og það tókst með hjálp Þuríðar þinnar, enda staðið meðan stætt var. Ég vissi að þú fannst það þótt þú segðir fátt, því þér var ekki tamt að flíka tilfinningum þínum. Nú munt þú hvíla á kunnugum slóð- um meðal vina. Þegar lífsins dagur dvín, dýra kæra fóstra mín, búðu um mig við bijóstin þín, bý ég þar um eilífð glaður, fagra dýra móðir mín, minnar vögp griðastaður. (Sig. Jónsson.) Með þökk frá okkur hjónum fyr- ir allt og allt. Guðbjörg og Sæmundur, Galtarlæk. líka hvað þú naust þess að sitja flöt- um beinum í sólinni og láta hana ylja þér, enda varstu alltaf brún á hörund. Þú gast reyndar ekki setið mjög lengi iðjulaus heldur sastu með pijónana eða fórst að bogra yfir matjurtagarðinum, en úr hon- um fengum við meðal annars nýjar kartöflur, gulrætur, grænkál og radísur síðsumars ár hvert. Á hveij- um jólum gat maður svo reiknað með að fá nýsaumuð náttföt eða nýja vettlinga og sokka sem þú hafðir pijónað. Það var svo margt sem við systkinin vorum svo heppin að alast upp við með ykkur afa i húsinu sem við hefðum kannski farið á mis við annars, það var svo margt sem mörg borgarbörnin hafa misst af sem við kynntumst svo vel. T.d. hefði ég tæpast náð að kynnast Súganda og þvi ágæta fólki sem þar býr ef þú hefðir ekki farið þangað á hveiju sumri og viljað hafa mig með. Þetta var mín sveit, þar var margt svo mikið öðruvísi en í borginni. Ég drakk t.d. ekki mjólk úr brúsa, bara úr flösku, en á Súganda fór maður með brúsann í kaupfélagið og iét fylla á. Þetta voru spennandi ferð- ir með Esjunni og jafnvel með sjó- flugvél einu sinni, og svo þegarr haldið var heim voru brúsar með í för, ekki fullir af mjólk, heldur krækibeijum og blábeijum. Elsku amma mín, það er svo ótal margt sem rifjast upp fyrir mér þessa stundina sem ég bý áfram að og ég geymi í huga mér myndina af þér eins og mér fannst þú alltaf fallegust, en það var þeg- ar þú varst búin að klæða þig í upphlutinn og setja á þig skotthúf- una og flétturnar héngu niðurund- an húfunni. Ekki veit ég hvort það var satt en ég dáðist að hugrekku þínu þegar þú stakkst húfupijónin- um alla leið inn í skinn svo húfan sæti föst. Ég vil að lokum bera þér kveðju frá fjölskyldu minni, en börnin mín og barnabarn voru svo heppin að eiga yndislega langömmu og langalangömmu. Helga Þórðardóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, JÓN JÓHANNES JÓSEPSSON frá Sámsstöðum veröur jarðsunginn frá Hjarðarholts- kirkju laugardaginn 1. febrúar kl. 14.00. Guðbjörg M. Jónsdóttir, Kristján G. Bergjónsson, Sigurður Jónsson, Karen Guðlaugsdóttir, Eyjólfur J. Jónsson, Sveinbjörg Ólöf Sigurðardóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andlóts og útfarar ADÓLFS ÞÓRS GUÐMANNSSONAR, Sandprýði, Vestmannaeyjum. Guðmann A. Guðmundsson, Fjóla Guðmannsdóttir, Guðfinnur Guðmannsson. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför föður míns, tengdaföður, afa og langafa, ÁRNA SIGURÐSSONAR, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum. Guð blessi ykkur öll. Lilja Árnadóttir, Sigurður Sigurbergsson, Guðný Sigurbergsdóttir, og barnabarnabörn. Sigurbergur Guðnason, Hrefna Guðjónsdóttir, Arnlaugur Bergsson 1 + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug í veikindum, við andlát og útför konu minnar, móður okkar, tengdamóður, systur og ömmu, MARÍU F. KRISTJÁNSDÓTTUR fóstru, Dunhaga 23. Með sérstöku þakklæti til lækna og hjúkrunarliðs Heimahlynningar. Lárus Þ. Valdimarsson, Birgir Hrafnsson, Oddný I. Jónsdóttir, Finnur Lárusson, Helga K. Hallgrímsdóttir, Hafliði K. Lárusson, Marie Catherine Alaguiry, Ingibjörg Kristjánsdóttir og barnabörn. HELGA ÞÓRÐARDÓTTIR + Helga Guðrún Þórðardóttir var fædd á Suðureyri við Súgandafjörð 21. september 1903. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Eir 18. janúar síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Langholtskirkju 27. janúar. Þú áttir auð, sem aldrei brást, þú áttir eld í hjarta. Sá auður þinn er heilög ást, til alls hins góða og bjarta. Til meiri starfa guðs um geim þú gengur ljðssins vegi, þitt hlutverk er að hjálpa þeim er heilsa nýjum degi. (H.T.) Helga var fædd á Suðureyri við Súgandafjörð. Hún átti fimm systk- ini sem öll eru látin og var hún þriðja í röðinni. Hún giftist Krist- jáni B. Eiríkssyni 19 ára gömul og eignuðust þau sex börn en eitt þeirra dó í æsku. Hjónaband þeirra var hamingjuríkt og farsælt. Krist- ján byggði sitt hús á Suðureyri. Bjuggu þau þar til ársins 1951 en þá voru börnin komin til fullorðins- ára og fóru þau hvert af öðru í skóla að sækja sér frekari mennt- un. Það leiddi til þess að þau fiytja til Reykjavíkur til að geta hjálpað börnunum og stutt við námið. Krist- ján og Þórður, sonur þeirra, byggðu sitt hús í Njörvasundi, þar sem þau bjuggu svo öll sín ár, nema tvö síð- ustu árin sem Helga dvaldi á hjúkr- unarheimilinu Eir. Ég minnist líka æskuára minna á Suðureyri, þar var gott samfélag. Helga og mamma voru mjög samrýndar syst- ur og alltaf gott á milli þeirra. Sam- gangur milli húsa var mikill og þar lékum við okkur frænkurnar, dætur Helgu. Þar byijaði vináttan, sem hefur haldist fram á þennan dag. Heimilið og bömin hennar báru vitni um ást hennar á því fagra og bjarta. Hinu ljóta sneiddi hún hjá og gleymdi. Mín elskulega móður- systir hefur nú kvatt þennan heim á 94. aldursári. Mér er ljúft að minnast hennar sem góðrar og elskulegrar móður sem hugsaði fyrst og fremst um velferð fjöl- skyldu sinnar, barnabarna, langömmubama og vina. Ég fór ekki varhluta af þeirri umhyggju, alltaf var ég velkomin í Njörvasund- ið hvenær sem var. Fyrstu árin mín hér í Reykjavik var þetta mitt ann- að heimili, sem alltaf stóð mér op- ið. Minnist ég allra jólaboðanna þar sem hún vildi alltaf hafa sína nán- ustu í kringum sig og þar var veitt með rausnarbrag. Sömuleiðis á af- mælum hennar, þá komu allir ætt- ingjar og vinir til hennar og alltaf hlaðið borð af allskyns kræsingum. Það var hennar líf og yndi að hugsa vel um heimilið og ávallt var hún til staðar ef einhver þurfti hennar með. Helga var ekki mikið fyrir að flíka sínum tilfinningum og tók því sem að höndum bar með yfirvegun og ró. Gott fólk er eins og ljós á vegi og hamingja er því hveiju ungmenni að hafa fengið að kynn- ast því. Guð gaf henni gott vega- nesti í vöggugjöf, sem hún hefur óspart miðlað af gleði og góðvild. Hún var góðum gáfum gædd og stuðlaði að því að öll börn hennar fengju góða menntun. Hún hafði ánægju af lestri góðra bóka. Hún var hannyrðakona mikil og hafði yndi af að sauma og pijóna og voru mörg börnin sem fengu frá henni hosur og vettlinga. Helga var fé- lagslynd og starfaði í kvenfélögum hér í Reykjavík og fýrir vestan. Hún var valin til margra trúnaðarstarfa. Hún var fýrirmynd trúar og skyldu- rækni og mátti ekki vamm sitt vita í neinu. Við trúum því samt sem áður að við séum á leið til meiri þroska og fullkomnunar og jarðlíf okkar sé aðeins áfangi á þeirri leið. Mínar innilegustu samúðarkveðjur til barna og fjölskyldna þeirra. Elsku Helga mín. Um leið og ég þakka þér af alhug þá hjartahlýju og góðvild sem þú veittir mér vil SIGURSTEINN OSK- AR JÓHANNSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.