Morgunblaðið - 31.01.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 31.01.1997, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRi Skólanefnd leggnr til breytingar á skólaskipan sunnan Glerár Skólarnir verði hverfisskólar Morgunblaðið/Kristján SKÓLANEFND leggur til að Gagnfræðaskólinn og Barnaskólinn sameinist í eina stofnun, Brekku- skóla, en lóðir skólanna eru samliggjandi. Nær á myndinni sést Gagnfræðaskólinn en Barnaskólinn fjær. Barna- og Gagn- fræðaskólar verði að Brekkuskóla SKÓLANEFND Akureyrar leggur til við bæjarráð að skólaskipan grunnskólanna sunnan Glerár taki breytingum i þá veru að þar verði þrír hverfisskólar með 1. til 10. bekk en mörk skólahverfa verði þau sömu og gilda nú fyrir 1. til 7. bekk. Þessi breyting felur í sér að fyrir næsta skólaár verði Bamaskóli Ak- ureyrar og Gagnfræðaskóli Akur- eyrar sameinaðir í eina stofnun, Brekkuskóla. Starf skólanna mun fara fram í tveimur skólahúsum og leggur nefndin því til að aðstoðar- skólastjórar verði tveir. Nemendur úr Barnaskólanum, Oddeyrarskóla og Lundarskóla hafa fram til þessa farið í Gagnfræðaskólann þegar upp í 8. bekk er komið. Tillagan gagnrýnd Miklar umræður urðu um þessar breytingar á fundi skólanefndar og var m.a. lagt fram bréf stjórnar Foreldrarfélags Gagnfræðaskólans þar sem mótmælt er að skólanefnd taki ákvarðanir um málið án frek- ari kynningar og umfjöllunar. Þá var gagnrýni starfshóps þess sem fjallaði um málið í GA lögð fram sem og ályktun frá kennarafundi GA sem mótmælti harðlega óvönd- uðum vinnubrögðum skólanefndar vegna málsins. Tillaga Magnúsar Aðalbjörnsson- ar, aðstoðarskólastjóra GA, um að gerð verði viðhorfskönnun á vilja foreldra sunnan Glerár til breyttrar skólaskipunar. í viðbótartillögu hans var lagt til að skólanum yrði gefinn þriggja ára aðlögunartími Vélsmiðjan Vík í nýtt húsnæði Grýtubakkahreppur VÉLSMIÐJAN VÍK á Grenivík flutti um síðustu áramót hluta starfsemi sinnar í nýtt hús, við- byggingu við eldra húsnæði smiðjunnar. Vélsmiðjan Vík hefur verið starfrækt á Grenivík síðustu tíu ár og búið við þröngan húsa- kost, verið í 200 fermetra hús- næði þar sem áður var verkaður saltfiskur. Ný húsakynni eru helmingi stærri, um 400 fermetr- ar. Seinni hluta síðasta árs var hlutafé í fyrirtækinu aukið um 5,5 milljónir króna og komu þá m.a. hlutafélagið Sænes og Grenivík og Búnaðarfélag Grýtu- bakkahrepps inn í félagið og eru tveir stærstu hluthafamir. Áður var félagið að mestu í eigu út- gerða á Grenivík ásamt smærri aðilum. Nauðsyn þótti að bæta hús- næði fyrirtækisins, en þrengslin voru farin að standa starfseminni fyrir þrifum, en Jakob Þórðarson meðan verið væri að gera Oddeyr- ar- og Lundarskóla hæfa til að gegna nýju hlutverki. Flaustursleg- ar ákvarðanir geti gert skaða sem ekki verði bættur. Tillaga Magnúsar var felld á fundi skólanefndar. Tillaga skóla- nefndar um áðumefndar breytingar var samþykkti með fjórum atkvæð- um, en einn fulltrúanna, Valgerður Hrólfsdóttir, vildi virða ósk foreldra um að málinu yrði frestað. Ingólfur Ármannsson skólafull- trúi sagði að frá því í haust hefðu verið starfandi vinnuhópar innan framkvæmdastjóri sagði fyrir- hugað að auka umsvif þess í járn- iðnaði. Snjóblásarinn Barði hefur ver- ið framleiddur hjá Vélsmiðjuni Vík á Grenivík og er framleiðsla hvers skóla sunnan Glerár sem í áttu sæti fulltrúi foreldra, skóla- stjóri, starfsmaður frá skólanum og skólanefndarmaður sem fjölluðu um málið. Niðurstaða allra hópa utan vinnuhóps við Gagnfræðaskólann hefðu verið einróma, koma ætti á hverfisskólum. Samkvæmt við- horfskönnun sem gerð var fyrir rúmum tveimur árum er það einnig vilji meirihluta foreldra að börn stundi nám í hverfísskólum og þá vitnaði skólafulltrúi til þess að meirihluti þess fagfólks sem leitað hefði verið til eða hefði tjáð sig um hans stór liður í starfsemi henn- ar. Alls hafa verið smíðaðir ellefu blásarar á undanförnum árum, en vélsmiðjan hefur einnig þjón- að útgerðum á staðnum og sinnt margs konar járnsmíði. málið teldu hverfísskóla betri kost. Um 500 nemendur Af og til frá árinu 1987 hafa umræddar breytingar verið til um- ræðu innan bæjarkerfísins. Við Gagnfræðaskólann stunda nú 397 nemendur nám og 338 við Barnaskólann. Gert er ráð fyrir að eftir breytingar á skólaskipan verði nemendur, Brekkuskóla á bilinu 450 til 500 talsins. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins og óskaði frekari upplýs- inga fyrir næsta bæjarstjómarfund. 38 skemmtiferðaskip koma næsta sumar Von á risa- skipií september SKEMMTIFERÐASKIP verða jafn fyrirferðarmikil á Pollinum á Akur- eyri í sumar og síðustu sumur. Alls hafa verið boðaðar komur 38 slíkra skipa í sumar, sem er sami fjöldi og síðustu ár. í september er von á risa- skemmtiferðaskipi til Akureyrar, alls um 280 m að lengd og 74.000 tonn. Umrætt skip er í smíðum í Finn- landi fyrir bandaríska aðila en stefnt er að því að það komi við á Akureyri á leið sinni frá Finnlandi vestur um haf. Þetta verður stærsta skip sem til Akureyrar hefur komið. Gunnar Arason, yfírhafnarvörður Akureyrarhafnar, segir að fyrsta skip sumarsins hafi boðað komu sína hinn 11. júní en flest koma skipin í júlí eða um 20. Hann segir einnig að skipakomum sé farið að fjölga í ágúst en aftur fækka í júní. „Við getum átt von á að 1-2 skip bætist í hópinn fyrir sumarið en hins vegar erum við mjög sáttir við að halda sama komufjölda og síðustu ár,“ seg- ir Gunnar. Morgunblaðið/Jónas Baldursson GUNNAR Guðmundsson, Jakob Þórðarson, Sveinn Rúnar Vatns- dal og Hermann Stefánsson starfsmenn Vélsmiðjunnar Víkur, en á myndina vantar tvo þeirra, þá Guðjón Þorsteinsson og Jón Ásgeir Pétursson. Hádegis- tónleikar BJÖRN Steinar Sólbergsson, organisti Akureyrarkirkju, heldur tónleika í kirkjunni á morgun, laugardaginn 1. febrúar kl. 12. Á efnisskránni verða verk eftir Bach, Buxtehude og Petr Eben. Einnig mun Arna Ýrr Sigurðardóttir guðfræð- ingur lesa úr ritningunni. Að tónleikunum loknum er léttur hádegisverður í boði í Safn- arðarheimilinu. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir velkomnir. Undir berum himni Fjórar sýn- ingar eftir UPPSELT hefur verið á tvær síðustu sýningar Leikfélags Akureyrar á verkinu Undir berum himni eftir Steve Tesich á Renniverkstæðinu við Strandgötu. Nú eru fjórar sýningar eftir á leikritinu. Uppselt er á sýninguna 21. febrúar næstkomandi en mið- ar til á aðrar sýningar. Meðal gesta á sýningunni í kvöld, föstudagskvöldið 31. janúar, verða forsetahjónin herra Ólafur Ragnar Gríms- son og frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir. Kjartan kynntur KYNNING á myndlistarverk- um eftir Kjartan Guðjónsson verður opnuð í Galleríi Allra- Handa í Grófargili á morgun, laugardaginn 1. febrúar kl. 15. Nokkur verk eftir Kjartan hafa verið til sýnis og sölu í Galleríinu undanfarin tvö ár, bæði málverk og giafík. Hann hefur verið kennari við Myndlista- og handíðaskóla íslands og er mikilsmetinn myndlistarmaður. Messur LAUFÁSPRESTAKALL: Guðsþjónusta í Svalbarðs- kirkju næstkomandi sunnu- dag kl. 14. Fjölskyldur ferm- ingarbarna sérstaklega hvatt- artil þátttöku. Fermingarbörn mæti í kirkjuna kl. 11. Kyrrð- ar- og bænastund í Grenivík- urkirkju 2. febrúar kl. 21. í Háskólanum á Akureyri laugardaginn 1. febrúar 1997 Deildir háskólans kynna starfsemi sína í Glerárgötu 36, Þingvallastræti 23 og Oddfellowhúsinu við Sjafnarstíg. Opið hús stendur frá kl. 11.00 til 17.00. Allir eru velkomnir. £__ Opið hús lÁRKhi tisjrvi A HÁBKÓLINN A AKUPEVRI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.