Morgunblaðið - 31.01.1997, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 31. JANLIAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Margrét opnaði
ÞETTA er ekkert silikon. Þettakemuralltfrámínueiginbrjósti, Sighvatur minn . . .
Kostnaður vegna tómstundaiðkunar barna
145 þúsund krónur
á ári fyrir tvö börn
Vegur mun þyngra en áður í framfærslu barna
Kostnaður við tómstundaiðkun
tveggja systkina
Anna, 10 ára Krónur
Handbolti (allur veturinn) 16.000
Fótboltanámskeið (1 vika) 2.000
Píanónám (allur veturinn) 45.000
Samtals: 63.000
Jón, 12ára
Fótbolti (allt árið) 18.000
Sumarbúðir (1 vika) 15.770
Gítarnám (allur veturinn) 45.000
Hljóðfæraleiga 3.700
Samtaís: 82.470
Samtals kostnaður: 145.470 kr.
FORSVARSMENN ASÍ hafa látið
í ljósi áhyggjur yfir kostnaði vegna
tómstundaiðkunar bama og ungl-
inga á undanförnum árum og
benda á að sá liður vegi orðið mun
þyngra en áður í framfærslu
bamafjölskyldna. Á vegum ASÍ
er nú unnið að úttekt á þróun
greiðslna fyrir tómstundastarf og
kannað hvort ástæða sé til að
gera þær að sérstökum lið í vísi-
tölu neysluverðs.
Til þess að gefa hugmynd um
þann kostnað sem meðalfjölskylda
ber af tómstundastarfi barna á ári
hvetju, hefur hér verið sett upp
tilbúið dæmi af fjölskyldu með tvö
börn. Upplýsingar um verð eru
fengnar hjá Breiðabliki í Kópa-
vogi, Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar og KFUM. Tekið
skal fram að hér eru aðeins nefnd
dæmi.
Handbolti, fótbolti,
tónlist og sumarbúðir
Dóttirin Anna er tíu ára og
sonurinn Jón er tólf ára. Anna
æfir handbolta þrisvar í viku allan
veturinn. Fyrir það þarf að greiða
16.000 kr. æfingagjald. Innifalinn
í því er allur ferða- og keppnis-
kostnaður, íþróttabuxur og sokk-
ar. í sumar fer hún á vikunám-
skeið í fótbolta, sem kostar um
2.000 kr. Þar að auki er Anna
að læra á píanó og fyrir hveija
önn eru greiddar kr. 22.500, sem
gerir 45.000 kr. fyrir allan vetur-
inn.
Æfingagjald í fótbolta
18 þúsund krónur
Jón sparkar fótbolta þrisvar í
viku á vetuma og fjómm til fimm
sinnum í viku yfír sumartímann.
Æfingagjaldið þar er 18.000 kr.
og innifalinn í því er mótakostnað-
ur að hluta til, auk svokallaðrar
sparktryggingar. Auk þess nemur
hann gítarleik í tónlistarskóla og
greiðir fyrir það 45.000 kr. líkt
og systir hans. Hann er með gítar-
inn í láni hjá skólanum og greiðir
fyrir það 3.700 kr. í hljóðfæraleigu
á ári. Á sumrin er Jón vanur að
fara í sumarbúðir KFUM í Vatna-
skógi. Vikudvöl þar kostar 14.900
kr., auk rútuferðarinnar sem kost-
ar 870 kr. Samtals er kostnaður
vegna sumarbúðavikunnar því kr.
15.770.
Sé dæmið reiknað kemur í ljós
að kostnaður vegna tómstunda-
iðkunar Önnu er alls kr. 63.000
á ári og Jóns kr. 82.470. Samtals
gerir þetta því 145.470 krónur.
Algengt að systkini
fái afslátt
Þess ber að síðustu að geta að
víða er gefínn systkinaafsláttur
þar sem tvö systkini eða fleiri em
á námskeiðum eða við æfíngar á
sama stað. Afslátturinn er þó
nokkuð mismunandi milli staða,
þannig að hann er ekki tekinn inn
í útreikningana hér, aðeins nefnd
dæmi.
Sem dæmi um systkinaafslátt í
tónlistarskóla má nefna þá tilhög-
un að veita 10% afslátt af heildar-
útgjöldum. Dæmi um afslátt hjá
íþróttafélagi er að fyrsta systkinið
greiði fullt gjald, annað fái 20%
afslátt og að gjald fyrir það þriðja
sé fellt niður.
ölvudagar íslenskra námsmanna 1997
Tilboð á tölvum
fyrir námsmenn
Einar Gunnar
Guðmundsson
SAMTÖK stúdenta og
framhaldsskólanema á
íslandi standa að
Tölvudegi íslenskra náms-
manna í Háskólabíói laugar-
daginn 8. febrúar, þar sem
ýmsar nýjungar á sviði tölva
og tækni verða kynntar
bæði á sýningu og á ráð-
stefnu.
Hugmyndin að deginum
kemur frá Stúdentaráði
Háskóla íslands sem síðan
fékk aðrar námsmanna-
hreyfíngar í landinu í lið
með sér. Til þess að und-
irbúa og skipuleggja daginn
var Einar Gunnar Guð-
mundsson ráðinn fram-
kvæmdastjóri Tölvudaga ís-
lenskra námsmanna 1997.
-Hver er tilgangurinn
með Tölvudegi íslenskra
námsmanna?
„Tilgangurinn með deg-
inum er að gefa nemendum
tækifæri á að kynnast því hvað
er í boði á tölvumarkaðnum í dag
og að eignast tölvur og fylgibúnað
á sem hagstæðustum kjörum. Við
fáum því fyrirtækin til þess að
koma og kynna fyrir okkur hvað
þau hafa upp á að bjóða á þessu
sviði.“
-Hver hafa verið viðbrögð
tölvu- og hugbúnaðarfyrirtækja
við Tölvudegi íslenskra náms-
manna?
„Viðbrögð fyrirtækjanna hafa
farið fram úr okkar björtustu
vonum og ætla öll helstu tölvu-
og hugbúnaðarfyrirtæki landsins
að taka þátt og bjóða nemendum
upp á tilboð af ýmsu tagi.
Það er mjög jákvæð þróun hvað
fyrirtæki eru farin að sýna náms-
mönnum mikinn áhuga. Því þekk-
ing og notkun á tölvu- og tækni-
búnaði er forsenda fyrir því að
íslendingar verði samkeppnisfær-
ir á erlendum vettvangi. Við lítum
svo á að námsmenn séu með TÍN
að snúa samskiptum námsmanna
og tölvufyrirtækja við. Þennan
dag eru það ekki fyrirtækin sem
leita uppi viðskiptavinina heldur
segja námsmenn; hér erum við,
hvað getið þið gert fyrir okkur?“
-Hvað verður um að vera í
Háskólabíói 8. febrúar?
„Þar kynna eins og áður sagði
stærstu tölvu- og hugbúnaðarfyr-
irtæki landsins starfsemi sína.
Auk þess mun Háskóli íslands
kynna nokkur verkefni þar sem
tölvur eru notaðar við vinnslu og
úrlausnir verkefna. Tölvunar-
fræðinemar og nemendur í tölv-
unar- og rafmagnsverkfræði
verða með námskynningu og ráð-
leggja gestum við val á tölvum
og tengdum búnaði. Kerfísverk-
fræðistofan mun sýna flughermi
sem er hannaður af þeim og er
notaður af Flugmálastjóm og var
m.a. seldur tii Tékklands síðast-
liðið sumar. Magnús
S. Magnússon atferlis-
sálfræðingur ætlar að
kynna hvernig hægt
er að nota myndbands-
upptökuvélar og tölvur
saman til að kortleggja atferli og
hreyfíngar manna. Auk þess
verður ráðstefna í sal 2 frá kl.
13 til 16 og mun forseti íslands,
herra Ólafur Ragnar Grímsson,
flytja ávarp við setningu hennar.
Meðal fyrirlesara verða Hallgrím-
ur Óskarsson, deildarstjóri á
markaðssviði Flugleiða, Snorri
Bergmann, sölustjóri Informix
hjá Streng, Kjartan Pierre Emils-
son, tæknistjóri hjá OZ hf., og
Hallgrímur Thorsteinsson fjölm-
iðlafræðingur.“
►Einar Gunnar Guðmundsson
er fæddur 29. mars
1972 í Reykjavík. Hann lauk
stúdentsprófi frá MH 1991 og
er á síðasta ári í líffræði við
Háskóla íslands. Einar Gunnar
sat í Stúdentaráði HÍ fyrir
Röskvu 1993-95 og hefur unnið
að ýmsum sérverkefnum með
náminu. Einar Gunnar er einn
eigenda fyrirtækisins Hafeyjar
hf. Sambýliskona Einars er
Arna Hauksdóttir, B.A. í sál-
fræði.
-Nú eiga ekki allir námsmenn
heimangengt á sýninguna. Verð-
ur eitthvað í boði fyrir námsmenn
utan af landi?
„Þrátt fyrir að Tölvudagar ís-
lenskra námsmanna séu í umsjón
Stúdentaráðs HÍ, Bandalags ís-
lenskra námsmanna, Félags
framhaldsskólanema og Iðn-
nemasambandssins, er sýningin
opin öllum sem áhuga hafa á að
kynna sér allt það nýjasta á þessu
sviði. Það kostar ekkert að mæta
og við viljum sjá sem flesta í
Háskólabíói þennan dag, hvort
sem þeir eru námsmenn eða ekki.
Við gerum okkur grein fyrir því
að margir tölvuáhugamenn eiga
ekki hægt um vik með að mæta
til Reykjavíkur á þessa sýningu.
Því verður sett upp heimasíða
TÍN svo auðveldara verði fyrir
fólk utan af landi að nálgast þau
tilboð sem verða á sýningunni.
Þau fyrirtæki sem kynna starf-
semi sína verða einnig tengd inn
á heimasíðuna en slóðin er
www.hi.is/pub/tolvudagar.
Eins gefum við út sérstakt
blað í tilefni sýningarinnar og
verður það sent til allra náms-
manna landsins, 16 ára og eldri,
alls um þrjátíu þúsund manns,
auk allra Hollvina Háskóla ís-
lands. í blaðinu verða
meðal annars viðtöl
við Ólaf Jóhann Ólafs-
son, rithöfund og hlut-
hafa í nokkrum
bandarískum marg-
miðlunarfyrirtækjum, Vilhjálm
Þorsteinsson, einn af stofnendum
íslenskrar forritaþróunar, og
Stefán Hrafn Hagalín, ritstjóra
eina íslenska tölvutímaritsins,
Tölvuheims. Blaðinu verður
dreift með Stúdentablaðinu í
næstu viku og eins verður TÍN
1997 kynnt með ýmsum hætti,
bæði í fjölmiðlum og á veggjum
skólanna. Ég hvet því alla til
þess að koma í Háskólabíó þann
8. febrúar og sjá fróðlega og
áhugaverða sýningu."
Góð viðbrögð
hjá tölvufyrir-
tækjum