Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 47

Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 47 BREF TIL BLAÐSINS Með hvaða hugarfari um- göngumst við þroskahefta? Frá Guðvarði Jónssyni: ÁÐUR FYRR var það talið sjálfsagt að þeir þroskaheftu tækju við því sem að þeim væri rétt, möglunar- laust, og þeir sem mest voru fatlað- ir, jafnvel vistaðir með húsdýrunum. Meðan Magnús Magnússon var skólastjóri Öskjuhlíðarskólans var margt gert til að bæta hag þeirra þroskaheftu og vekja athygli á sér og þörfum þeirra. En síðari árin er eins og málefni þeirra hafi drukkn- aði í umræðunni um málefni fólks með sjálfskapaða fötlun. Rétt er þó að hafa það í huga að þeir sem eru fæddir fatlaðir hafa aldrei átt annan valkost, en þeir sem eru með sjálf- skapaða fötlun áttu annan valkost, en fórnuðu honum af fijálsum vilja. Stofnaðar hafa verið svæðisskrif- stofur málefna fatlaðra. Hlutverk þessara skrifstofa er að aðstoða fatl- aða við útvegun húsnæðis. Þegar fatlaður aðili hefur fengið húsnæði í gegnum svæðisskrifstofu er honum útvegaður stuðningsaðili, sem kall- ast svæðisstjóri. Honum er ætlað að veita þeim fatlaða aðstoð í fjármál- um, atvinnumálum, heimilishaldi, ásamt ýmsu öðru sem sá fatlaði þarf að fá aðstoð við. Undir þessar skrifstofur falla málefni fatlaðra. Samskiptum ábótavant Mér hefur fundist sumt í sam- skiptum stuðningsaðilanna við þá þroskaheftu vera öðruvísi en það ætti að vera. Svæðisstjóri fer yfir- leitt með fjármál þess þroskahefta og tekur beint út af bankareikningi fyrir þeirri þjónustu, sem svæðis- skrifstofan veitir. Ekki gefur svæð- isskrifstofan út reikning fyrir því sem út er tekið, heldur er bent á að þeir þroskaheftu eða foreldrar þeirra geti komið á svæðisskrifstof- una og fengið að sjá bókhald skrif- stofunnar. Eða fengið bankayfirlit yfir úttekt af reikningi. Það yfirlit sýnir þó bara úttekt, en ekki fyrir hveiju var tekið út. Þetta getur tæp- lega talist viðunandi aðstaða, því fyrst og fremst er hæpið að sá þroskahefti skilji það sem í bókhald- inu stendur. Svo er það varla eðli- legt að sá þroskahefti eða aðstand- andi hans þurfi að fá frí frá vinnu, til þess að skoða bókhald á svæðis- skrifstofu. Mér finnst eðlilegra að svæðisskrifstofan gæfi út yfirlit mánaðarlega yfir það sem út var tekið af reikningi viðkomandi. Komist sá þroskahefti í skuld við svæðisskrifstofu, er áríðandi að gerð- ur sé samningur um skuldina sem heldur. Það er t.d. óeðlilegt að gerður sé samningur til fimm mánaða, en strax eftir undirritun samningsins sé skuldin öll tekin út af bankareikningi viðkomandi, með yfirdráttarheimild og reikningseigandi settur í þá að- stöðu að hafa ekki fyrir mat eða fari til og frá vinnu og verði að fara gang- andi fleiri kílómetra til og frá vinnu í hvaða veðri sem er. Þegar tveir aðilar eru um sömu íbúð er óeðlilegt að annar aðilinn sé reglumaður, en hinn algjör óreglu- maður. Það er hreinlega óheiðarlegt gagnvart þeim reglusama, það getur valdið því að sá reglusami verði að flýja heimilið í frístundum sínum. Svæðisstjórar hlusta lítt á kvartanir undan slíku. Það þarf líka að bera virðingu fyrir vinnu þess þroska- hefta, það getur verið hættulegt starfsöryggi hans að vera sífellt að Iáta hann biðja um frí frá vinnu til þess að tala við svæðisstjóra. Komandi aldamót Frá Jóni Egilssyni: NOKKUÐ hefur verið um það rætt á síðum Morgunblaðsins hvenær væntanleg aldamót verði í raun. Hafa sumir haldið því fram að alda- mótin verði þegar árið 1999 líður undir lok, en aðrir halda því fram að árið 2000 þurfi að renna sitt skeið á enda áður en hægt sé að tala um að tuttugustu öldinni sé lok- ið. Röksemdir þeirra sem aðhyllast fyrri kostinn hafa einkum byggst á því að fyrsta árið eftir Krists burð hafi verið árið „núll“, síðan hafi árið „eitt“ tekið við og svo koll af kolli. Miðað við þá forsendu að fyrsta árið hafi verið árið „núll“ þá er augljóst að árið 1999 er síðasta ár þeirrar aldar sem nú er að líða. Röksemdir þeirra sem aðhyllast síðari kostinn byggjast á því að fyrsta árið eftir Krists burð hafi verið árið „eitt“, síðan hafi árið „tvö“ tekið við og svo koll af kolli. Miðað við þá forsendu að fyrsta árið hafi verið árið „eitt“ þá er augljóst að árið 2000 er síðasta ár þeirrar aldar sem nú er að líða. Greinilegt er að umræður um það hvenær aldamótin verða geta ekki leitt til neinnar niðurstöðu á meðan málflutningur er byggður á þessum ólíku grundvallarforsendum. Ljóst er einnig að ef eitthvert vit á að vera í tímatali okkar þá er ótækt að aldamót séu á eins árs fresti, eins og allt stefnir í! Því er þessi grein rituð til þess að gera nokkra grein fyrir því hvenær aldamótin muni eiga sér stað. Nú er það svo að tímatal okkar er miðað við fæðingu predikara nokkurs að nafni Jesús sem gekk um rómverska sanda Palestínu og flutti trúarboðskap þann sem síðan hefur sett svip sinn á menningu ver- aldarinnar. Óljóst er og hefur alltaf verið, hvenær Jesús Kristur fæddist. Á það bæði við um hvaða ár hann kom í heiminn og einnig er óljóst hvenær ársins sá merki atburður Stuðningsaðilar með rétt hugarfar Einstaka þroskaheftir aðilar geta verið mjög erfiðir í samskiptum og þá er mikilvægt að stuðningsaðilinn hafi góða stjórn á eigin skapi, því við lausn slíkra mála verður skyn- semin ein að ráða án geðhrifa, þó erfitt geti verið stundum. Það er t.d. alveg óafsakanlegt að fleygja þeim þroskahefta út að næturlagi og Iáta hann fara gangandi langa leið í gaddfrosti heim til foreldra sinna. Ekki síst er þetta alvarlegt ef um flogaveikan aðila er að ræða, því mikil geðshræring eykur að mun lík- ur á flogaveikikasti eftir mestu geðs- hræringuna. Stuðningsaðilinn þarf líka að þekkja áhrif flogaveikilyfja, því sumar lyfjategundir geta vaidið mjög sterkum geðsveiflum sem nauðsynlegt er að bregðast rétt við. Til þess að breyta því sem ég hef nefnt hér á undan þarf ekki aukna peninga heldur rétt hugarfar gagn- vart þeim þroskaheftu. Rétt er að hafa það í huga að þroskaheftir hafa full mannréttindi, en eiga erfitt með að verja rétt sinn, en það er líka hlutverk svæðisstjórans að gæta réttar þess þroskahefta í hvívetna. í Morgunblaðinu laugardaginn 25. janúar er umfjöllun um spurn- ingalista um persónulega hegðan þroskaheftra. Er slíkur listi lagður fram af fólki með heilbrigða skyn- semi? GUÐVARÐURJÓNSSON, Hamrabergi 5, Reykjávík. Sólin ekki sýnileg Frá Svanbjörgu Sigurðardóttur: ÞAR sem nær dregur kyndilmessu finnst mér ég mega til með að koma með smá athugasemd vegna greinar sem birtist í Morgunblaðinu 14. febr- úar 1996 og er eftir Kristínu Gests- dóttur. Tilefnið er að Borgþór veður- fræðingur tók upp úr bók Áma Björnssonar „Saga daganna" hve- nær við á Hánefsstöðum drekkum sólarkaffi þ.e. á kyndilmessu. Um þetta segir Kristín: „Að morgni kyndilmessu 2. febrúar heyrði ég í útvarpinu að sólarkaffi væri drukkið á Seyðisfirði þann dag, ég sem Seyð- firðingur kom alveg af fjöllum, þetta er bara alls ekki rétt. Síðan í veður- fregnum sjónvarps kl._ 8.30 áréttaði veðurfræðingurinn: „I dag kyndil- messu er sólarkaffi drukkið á Seyðis- firði og þar hefur verið bjart veður í dag og áreiðanlega sést til sólar.“ Þetta er áreiðanlega bara ekki rétt. Sólin er hvergi sýnileg fyrr en um 2 vikum síðar.“ Ég hef alltaf talið mig vera Seyð- firðing þótt ég eigi heima utan við Borgartanga og ef Kristín vildi fletta upp í áðurnefndri bók þá getur hún verið viss um að það sem er á bls. 431 er allt alveg hárrétt, að minnsta kosti hvað þetta varðar. Raunar sést sólin enn fyrr eða 24. janúar á Sels- stöðum svo ég verð að láta mér nægja að horfa á hana norðan fjarð- ar í rúma viku áður en hún skín á mig. Hitt er svo jafn rétt að inni í kaupstaðnum sést hún ekki fyrr en 14. febrúar þar sem hún sést fyrst. Mér finnst nauðsynlegt að Seyðfirð- ingar viti, bæði heimamenn og brott- fluttir að Seyðisfjörður endar ekki við Borgartanga heldur við Orminn í Skálanesbjargi. SVANBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR, Hánefsstöðum, Seyðisfirði. JEvintýri í VíkíMýrdal Ævintýraferð til Vífeur í Mýrdal. Gisting í tvær nætur á Hótel Vífe, morgunverður, þrírétta bvöldverður, varðeldur, gönguferð og ógleymanleg ferð á Sfeeiðarársand. Grunnverð: gisting og matur aðeins 5900.- Upplýsingar í síma 487 1230, fax 487 1418. gerðist. Meintur fæðingardagur Krists á jóladag var til dæmis ákveð- inn af kirkjunnar mönnum nokkur hundruð árum eftir daga hans og er úr lausu lofti gripinn. Við skulum leiða hjá okkur þá staðreynd að óljóst er hvenær Kristur fæddist. Tímatal okkar er í föstum skorðum og miðað við meinta fæðingu Krists, við það situr. Það að tímatalið sé miðað við fæðingu Krists felur í sér að tíminn sé talinn frá fæðingunni. Augljóst? Já, en það felur í sér að þegar Krist- ur varð eins árs þá var eitt ár liðið frá fæðingu hans. Augljóst? Já, en það felur aftur í sér, að ef honum hefði enst aldur og heilsa til og lifað fram á okkar daga, þá myndi hann hafa orðið 2000 ára þegar 2000 ár væru liðin frá fæðingu hans. En það er einmitt á því augnabliki þegar árið 2000 gengur í garð. Fæðing Krists er núllpunkturinn. Það var aldrei neitt ár sem hét árið „núll“ og fyrsta árið eftir fæðingu hans var ekki árið „eitt“. Árin heita í rauninni ekkert. Um hver áramót fagnar fólk því að svo og svo mörg ár séu liðin frá fæðingu Krists. Það er aftur annað mál að í daglegu tali hefur þótt heppilegt að kenna árin við þann fjölda heilla ára sem liðinn er frá fæðingu Krists. Af því er misskilningurinn sprottinn og öll sú ringulreiðarumfjöllun sem átt hefur sér stað á síðum Morgunblaðs- ins. Af framansögðu er augljóst að næstu aldamót munu eiga sér stað í hinu tímalausa andartaki eftir að árið 1999 hefur liðið og áður en árið 2000 gengur í garð. Þá verða 2000 ár liðin frá meintri fæðingu Krists, tvöhundruð tugir ára og tutt- ugu hundruð ára sem er það sama og tuttugu aldir. Vonandi er öllum nú ljóst hvenær næstu aldamót verða. JÓN EGILSSON, stúdent, Njálsgötu 69, Reykjavík. 25. jan.-10. feb. Allt að ' Álít 35% afskrr ^tAllt að Allt að iSHn Fisléttir raðgreiðslusamningar ■|ÍJS Suðurlandsbraut 16 • 108 Ruk • Simi 588 0500 • fax 588 0504

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.