Morgunblaðið - 31.01.1997, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 17
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
KYNNINGARAÐILAR CT á Akureyri ræða málin. F.v. Erlendur Pálsson, Agnes
Skúladóttir, Ragnheiður Valdimarsdóttir, María Jónsdóttir, Guðrún Harpa Bjarna-
dóttir, Ruth Jakobsdóttir og Huld Aðalbjarnardóttir.
Clean Trend á tslandi til Akureyrar
Býður umhverfisvænar
hreingerningarvörur
CLEAN Trend á íslandi ehf. opnaði nýlega
skrifstofu í Kaupangi á Akureyri sem þjóna
mun Norður- og Austurlandi. Kynningaraðilar
CT á Akureyri eru 9 talsins og bjóða umhverf-
isvænar hreingerningarvörur frá ENJO í Aust-
urríki, fyrir heimilið, bílinn, stofnanir og iðnað.
Við notkun örtrefjanna frá ENJO sparast
sápunotkun um 90% og þar með minnkar
magn mismengandi efna sem dælt er frá heim-
ilum og fyrirtækjum. Þar sem vörurnar krefj-
ast breyttrar hugsunar og aðferðar við þrif,
er mikilvægt að kynna þær á réttan hátt.
Þess vegna eru þær seldar með persónulegri
ráðgjöf með kynningum á heimilum og í fyrir-
tækjum.
Með því að nýta sér þessa aðferð er mögu-
leiki á að verða virkur þátttakandi í öflugu
umhverfisátaki Akureyrarbæjar. Frekari upp-
lýsingar eru veittar á skrifstofunni í Kaup-
angi, sími 461-3787, faxnúmer 461-3742.
Þorsteinn Jónsson tamningamaður áttræður
Sæmdur heið-
ursfélagan-
afnbót Léttis
ÞORSTEINN Jónsson tamningamaður á
Akureyri var sæmdur heiðursfélaganafn-
bót Hestamannafélagsins Léttis á 80 ára
afmæli sínu sl. sunnudag. Þorsteinn hefur
verið félagsmaður í Létti frá endurreisn
félagsins árið 1944. Tveimur árum áður
hafði hann sjálfur unnið að endurreisn
Léttis, en starfsemi félagsins hafði þá legið
niðri um nokkurra ára skeið.
Þorsteinn hefur verið einn fremsti tamn-
ingamaður landsins um áratuga skeið og
leitt fjölda kynbótahrossa fyrir dóm í gegn-
um tíðina og m.a. sýnt á 8 landsmótum,
síðast á Þingvöllum 1978. Þorsteinn hefur
tekið við fjölda verðlauna vegna kynbóta-
hrossa, á landsmótum, fjórðungsmótum og
héraðssýningum.
Mörg af frægustu hrossum landsins hef-
ur Þorsteinn tamið og sýnt og má þar nefna
hross Sveins Guðmundssonar á Sauðár-
króki, Sörla 653 og Hrafnhettu 3791. Einn-
ig Náttfara 776 frá Ytra Dalsgerði, Báru
3114 frá Akureyri, Perlu 3251 frá Svert-
ingsstöðum, Fjöður 3107 frá Sandhólum
auk fjölda af öðrum frægum hrossum. Þor-
steinn er enn að, hann er búinn að taka
ÞORSTEINN Jónsson tamningamaður
var sæmdur heiðursfélaganafnbót
Hestamannafélagsins Léttis á áttræð-
isafmæli sínu. Sigfús Helgason formað-
ur afhenti, skjöld því til staðfestingar.
nokkur hross á hús og lætur ekki deigan
síga þrátt fyrir árin 80.
Þorsteinn hefur verið virkur í félags-
starfi Léttis auk þess sem hann starfaði í
nokkur ár sem hirðir við félagshesthúsið
sem stóð á Eyrarlandsholti og veitti tamn-
ingastöð félagsins forstöðu. Þá starfaði
hann lengi við reiðskóla Léttis og íþrótta-
og tómstundaráðs Akureyrar.
Þorsteinn rak tamningastöð fyrir Hesta-
mannafélagið Funa og var í 8 ár við tamn-
ingar þjá Sigurði Snæbjörnssyni bónda á
Höskuldsstöðum. Hann hefur verið aukafé-
lagi í Funa um langt skeið og var gerður
að heiðursfélaga þess félags fyrir nokkrum
árum.
vMmŒW' r 1 W 4* * p WLé:. % IÍR.4: fj* ■ ■
með bragðið í huga