Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
Sparifjáreigandi
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 7
OAllar tölur um ávöxtun verðbréfasjóöa eru byggðar á fortíðinni.
Ávöxtun í fortíð gefur engin fyrirheit um ávöxtun í framtíð.
Því geta þessir aðilar ekki boðið ákveðna framtíðar ávöxtun.
Sú ávöxtun, sem verðbréfasjóðir bjóða nú, er reiknuð þannig að
miðað er við það tímabil þegar ávöxtunin var sem hæst, hvort sem
það eru síðustu 3 mánuðir, 6 mánuðir eða ár.
Bankabækur bera breytilega vexti. Bestu kjörin, sem bankarnir
bjóða nú, eru á þeim innlánsreikningum sem hafa lengsta
binditímann. Auk þess geta bankarnir breytt vöxtunum
einhliða hvenær sem er. Samt sem áður er innstæðan áfram bundin
út lánstímann.
OÞær vaxtatölur, sem nú eru mest kynntar, miða án efa við
það að innlausn spariskírteina ríkissjóðs stendur nú yfir. En
hvað gerist svo?
Gerðu skýran greinarmun á verðtryggðum og óverðtryggðum
vöxtum, eða raunvöxtum annars vegar og nafnvöxtum hins ml ■■
vegar. í tölum um ávöxtun innlánsstofnana og verðbréfasjóða
eru tveir breytilegir þættir, annars vegar vextirnir sjálfir og svo
verðtryggingin. Þetta gerir fyrirheitin um ávöxtun í framtíðinni enn
óvissari.
OÞað teljast ekki góð vísindi að fjárfesta í verðbréfum þegar
verð þeirra er í hámarki, eins og nú virðist vera, sé tekið mið
af auglýsingum ýmissa aðila á markaðnum. Meginreglan er
sú að menn kaupa þegar gengið er lágt og selja þegar það er hátt!
Þegar tekin er ákvörðun um ávöxtun sparifjár er einnig
nauðsynlegt að hafa atriði 0 í huga.
OSpariskírteini ríkissjóbs bera fasta vexti uinfram
verbtryggingu, allt til lokagjalddaga. Þau eru auk þess
aubseljanleg hvenær sem er á lánstímanum. Tryggbu þér
öryggi og góba ávöxtun. Fjárfestu í verbtryggbum
spariskírteinum ríkissjóbs.
LÁNASÝSLA
RÍKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð
Sími: 562 6040, fax: 562 6068
Grænt númer: 800 6699