Morgunblaðið - 31.01.1997, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 9
FRÉTTIR
Norræn menningarmiðstöð í New York
Ríkisstjórnin tilbúin
að leggja fram fé
RÍKISSTJÓRNIN er reiðubúin til
að taka ásamt hinum norrænu ríkj-
unum þátt í kostnaði við að koma
á fót norrænni menningar- og upp-
lýsingamiðstöð í New York, að sögn
Halldórs Ásgrímssonar utanríkis-
ráðherra. Gert er ráð fyrir að fram-
lag íslands til verkefnisins geti orð-
ið u.þ.b. 250.000 dollarar (17,4
milljónir króna), sem dreifist á fjög-
ur til fimm ár.
American Scandinavian Found-
ation í Bandaríkjunum hefur þegar
fest kaup á byggingu á Manhattan,
sem breyta á í norræna menningar-
og upplýsingamiðstöð. Stofnunin
hefur óskað eftir fjárstuðningi ríkis-
stjórna Norðurlandanna en heildar-
kostnaður vegna kaupa á húsinu,
endurbóta og framlags í stofnsjóð
er talinn verða rúmlega 1 miiljarður
króna. Meirihluti fjárins verður
reiddur fram af stofnuninni sjálfri
og söfnunarfé, m.a. frá norrænum
fyrirtækjum.
Einstakt tækifæri
Málaleitan American Scandinav-
ian Foundation var vel tekið á fundi
samstarfsráðherra Norðurlanda í
október. Á ríkisstjórnarfundi á
þriðjudag kom fram vilji ríkisstjórn-
ar íslands til að leggja sitt af mörk-
um, en Halldór segir að áður en
endanleg ákvörðun verði tekin þurfi
Skýrsla
unnin um
vanda sauð-
fjárbænda
BYGGÐASTOFNUN vinnur nú að
gerð viðamikillar skýrslu um
vanda sauðfjárbænda. Stofnunin
hefur fengið leyfi tölvunefndar til
þess að fá vinnslu út úr skattfram-
tölum og fleiri gögnum. Þjóðhags-
stofnun mun vinna upp úr gögnun-
um fyrir Byggðastofnun.
„Ég ætlast til þess að skýrslan
verði mjög ítarleg og ætlunin er
að gera þetta í góðri samvinnu við
samtök bænda,“ segir Guðmundur
Malmquist, forstjóri Byggðastofn-
unar.
Þetta er í fyrsta sinn sem heild-
stæð úttekt er gerð á högum sauð-
ijárbænda.
að hafa samráð við ríkisstjórnir
hinna norrænu ríkjanna, enda sé
nauðsynlegt að öll ríkin taki þátt í
fjármögnuninni.
„Við teljum að þetta verkefni
gefi einstakt tækifæri til að styrkja
kynningu á Norðurlöndunum í New
York,“ segir Halldór. „Hér er ekki
um mikinn kostnað að ræða miðað
við það gagn, sem af rekstri mið-
stöðvarinnar getur orðið, til dæmis
á sviði ferðamála og kynningar á
menningu og starfi norrænu þjóð-
anna.“
SÍÐUSTU DAGAR
ÚTSÖLUNNAR
Enn meiri verðlækkun
LAUGAVEGI 32 • SÍMI 552 3636
ESTEE LAUDER
Finndu þinn rétta farða
Líkar þér náttúrulegt útlit?
Nýi Enlighten farðinn gæti verið
fyrir þig. Kýstu frekar glæsilegan
farða sem virðist láta fínar línur
hverfa? Lucidity er þá sannarlega
fyrir þig.
Komdu og hittu ráðgjafa okkar í
dag og á morgun, sem hjálpa þér
að finna rétta farðann, rétta litinn,
réttu áferðina, og fáðu prufu með
þér heim.
Nýtt
Prufa af COMPLETE FINISH ný|a
púðurmeikinu frá Estée Lauder
fylgir kaupum á farða.
SNVRTIVÖRUVEföUlNIN
GLÆSI6E
Sími 568 5170
\ V j ar vörur frá
mmm.
TISKUVERSLUN
kringluuni Sími: 553 3300
—MaxMara—
Útsala
Hverfisgata 6, 101 Reykjavík, s. 562 2862
skríðí
Fólk er alltaf
að vinna
í Gullnámunni:
64 milljónir
Vikuna 23. - 29. janúar voru samtals 63.845.150 kr.
greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þetta voru
bæði veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öðrum
vinningum. Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staður Upphæð kr.
24. jan.
25. jan.
25. jan.
25. jan.
26. jan.
27. jan.
27. jan.
27. jan.
29. jan.
Staða Gullpottsins 30. janúar, kl. 8.00
var 5.175.000 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr.
og hækka síðan jafnt og þétt þar til þeir detta.
Háspenna, Hafnarstræti 140.662
Catalína, Kópavogi 115.122
Mónakó 133.637
Ölver 61.377
Háspenna, Laugavegi 66.519
Catalína, Kópavogi 51.470
Háspenna, Laugavegi 127.087
Háspenna, Hafnarstræti 101.116
Álfurinn, Hafnarfirði 258.701