Morgunblaðið - 31.01.1997, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Vísindaspekikirkj an
veldur milliríkjadeilu
LARRY King, Tina Sinatra, Dustin Hoffman, Goldie Hawn og
Oliver Stone voru meðal þeirra, sem skrifuðu undir bréfið.
AN OPEN LETTER TO HELMUT KOHL
C/iancellor ofthe German Federal Republic
Dcat Chanccllor Kohl:
Wc havc signcd chis lcttcr to indicatc our dccp con-
ccrn at thc invidious discrimination against
Scicntologists practiccd in your country and hy youi
own party. Wc arc not Scicncologisrs, but wc cannot just
look thc othcr way while this appalling situacion con-
tinucs and grows.
In thc Gcrmany of thc 1930$, Hidcr madc rcligious
intofcrance ofTtcial govcrnmenr policy. Jews wcrc at
first marginalized, thcn cxdudcd from many activitics,
thcn vilificd and ultimaidy subjccted to unspcakablc
horrots.
Thc world stood by in silcncc. Pcrhaps if pcople had
spokcn up, Mkcn a strongcr stand, history woulri tcll a
differcnt story. Wc cannot changc history, but wc tan
try not to te-live it.
In thc 1930s. it was thc Jcws. 'lbdav it is the
Sciemtilogisrs. 'I*hc issuc is not whethcr onc approvcs
ot disapproves of thc tcachings of Scicntology.
Organizcd govcrnmental discriminatinn against any
group on the basis of its bcliefs is ahhorrcnt cvcn where
the majority disagrec wirh those belicfs.
And, whcn indíviduals hold pcrsonal bclicfs that
thcy consider tlicit rcligion, it is not rhc placc of a
dcmocratic govcrnmcnt ro prodaim by fiat that thcy are
noc a rciigion in ordcr to evadc laws against religious
discrimination. Bcsidcs, thc Gcrman coutts havc hcld
morc than oncc that Scicntology is, in fact, a rcligion.
Individuals guilcy of no crimc but bclicving in
Sdentologv arc hanncd from Gcrman political partics.
including your own. Scientologists cannoc obtain
cmplovmcm by your govcrnmcnt or contracts with that
Dcccmbcr 19%
govcrnmcnt. Chitdrcn havc bccn excludcd from
schools bccause thcir parcnts aie Scicntologisu. Your
Minister of Lahor proposcd thc adoption of a ban on
Scicncologiscs from all posirions of public scrvice. And
- like thc book burning of thc 1930$ - your party has
organized boycotts and sccks to ban pcrformanccs of
Tom Cruisc, John Travolta, Chick Corca and anv othcr
artisr who bclicvcs in Scicntolpgy.
Thcsc acts aic intolcrablc in any country that con-
ceivcs of itsclf as a modern dcmocracy. This organizcd
oppression is bcginning to sound familiar ... likc thc
Germany of 1936 rathcr than 19%. It should bc stoppcd
— now, bcfore it sprcads and incrcjscs in virulcncc as ir
did hcforc.
You mav fcel that. as non-Gcrmans,. this U not.our.
busincss. But roduy's Woríd is a smallcr, diffcrenr placc.
Wc arc far morc dcpcndcnt upon one anothcr. Whcn a
modcrn nation dcmonstiatcs its unwillingncss «» pro-
tccc rhc basic rights of a group of its citizcns, and.
indccd, cxhibits a vvillingncss to condonc and partici-
patc in thcir pcrsecution, right thinking peoplc in othcr
onintrics must spcak out. Kxtrcmists of your party
should not bc permittcd to bciievc thar thc rcst of chc
Worlci will look tlie orher way. Not this rimc.
'nio.se who scck to gain political power oi to indulgc
pcrson-jl hatrcds by icpcating thc dcplnrabtc tactics of
thc i930s cannot bc pcrmittcd that luxury. This timc
voices wiJI bc raiscd.
Wc implorc you to bringan cnd to this shamcful pat-
tcrn of organizcd pcrsccution. It is a disgrace co thc
Gcrman nation.
Robert Boobnan Dustin Hoffman Michael Marcus Casey Siher
John Caltey Alati Hom Doug Aíorris Ttna Sinatra
Sanford R. Cltman Kevitr Huvane Rich Nicira Aaron Spel/ing
Comtantm Costa-Gavnu Larry King Monis Ostin She/don Stv/off
Bertram Fietds LavmceM. Kopákin Mario Puzo Oliver Stone
Andme M. Foge/son Antold Kopelson Jack Rapke Rohetr Towne
Larry Gordoti Raymond Kurtznan Terry Semel Gore Vida/
Goldie Hok’h Barry Hirsch Sherry Lansing Sid Sheinherg Pau/a Wagner Frrd Westheimer
OPNA bréfið til Helmuts Kohls, kanslara Þýskalands, sem birt-
ist í International Herald Tribune 9. janúar.
DEILAN um hina svo-
kölluðu Vísindaspeki-
kirkju er farin að hafa
áhrif á samskipti
Bandarikjamanna og
Þjóðveija. Bandaríska
utanríkisráðuneytið
gagnrýndi á þriðjudag
þýsk stjómvöld fyrir
það hvernig farið er
með áhangendur Vís-
indaspekikirkjunnar í
Þýskalandi, en sagði
einnig að þeir, sem
líktu meðferðinni við
ofsóknir nasista á
hendur gyðingum,
væru á villigötum.
„Það er hneykslan-
leg söguskýring," sagði Nicholas
Bums, talsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins. „Og satt að
segja finnst okkur í utanríkisráðu-
neytinu að okkur beri að veija
þýsku stjórnina fyrir þessum ásök-
unum og við munum halda áfram
að gera það.“
Hollywood-bréf
til Helmuts Kohls
Hópur frægra Bandaríkjamanna
undirritaði fyrir skömmu yfirlýs-
ingu, þar sem farið var hörðum
orðum um þýsk stjómvöld og sagt
að framferði þeirra gegn Vísinda-
spekikirkjunni minnti á aðför nas-
ista á hendur gyðingum á fjórða
áratugnum, áður en helförin hófst.
Auglýsingin var birt á heilli síðu í
dagblaðinu International Herald
Tribune 10. janúar.
„Það er ekki hægt að sjá að
stundaðar séu reglubundnar of-
sóknir á hendur Vísindaspekikirkj-
unni, sem hægt sé með nokkram
hætti að líkja við það, sem kom
fyrir gyðinga og fleiri á tímum
nasista," sagði Bums.
Hann kvað Bandaríkjamenn hins
vegar hafa ástæðu til að lýsa yfír
áhyggjum líkt og gert hefði verið
undanfarin fjögur ár vegna þess
að áhangendum Vísindaspekikirkj-
unnar hafi verið mismunað í Þýska-
landi vegna tengslanna við söfnuð-
inn.
„Málið varðar okkur vegna þess
að Bandaríkjamönnum, sem em í
Vísindaspekikirkjunni, hefur verið
mismunað í Þýskalandi. Þar ber
einkum að nefna Chick Corea,
frægan tónlistarmann, og við höf-
um áhyggjur af því,“ sagði Burns.
Gagnrýni í
mannréttindaskýrslu
Árleg skýrsla utanríkisráðuneyt-
isins um stöðu mannréttindamála
víða um heim kemur út í þessari
viku og sagt er að þar verði fjallað
um meðferð tjóðvetja á Vísinda-
spekikirkjunni sem brot.
Þjóðveijar ákváðu í desember að
stofna sérstakt embætti til að leggja
línumar í baráttunni gegn Vísinda-
spekikirkjunni og meina félögum í
henni að gegna mikilvægum, opin-
berum störfum. Þýsk stjórnvöld
halda því fram að Vísindaspeki-
kirkjan sé fjáröflunarstofnun, sem
sækist eftir heimsyfirráðum og ógni
lýðræði.
Átta milljónir í söfnuði
Vísindaspekikirkjan hefur höfuð-
stöðvar í Los Angeles. Bandaríski
rithöfundurinn L. Ron Hubbard
stofnaði hana árið 1954. Átta millj-
ónir manna um allan heim eru safn-
aðarbörn í Vísindaspekikirkjunni,
þar af 30 þúsund í Þýskalandi.
Samtökin hafa víða þurft að há
langa baráttu fyrir því að fá viður-
kenningu sem trúarbrögð. Það hef-
ur tekist í mörgum löndum, þar á
meðal Bandarikjunum. Bandaríska
skattheimtan neitaði um árabil að
veita Vísindaspekikirkjunni undan-
þágu frá skatti eins og gert er við
hefðbundna söfnuði. Frá árinu 1993
hefur kirkjan og stofnanir hennar
notið sömu skattfríðinda og önnur
trúarbrögð þar í landi.
Vísindaspekikirkjan lagði inn
kvörtun hjá mannréttindanefnd
Evrópuráðsins og sakaði þýsk
stjórnvöld um að mismuna áhang-
endum safnaðarins. Kirkjan kvaðst
geta sýnt fram á 600 mannréttinda-
brot, sem hefðu verið framin gegn
áhangendum Vísindaspekikirkjunn-
ar.
Sameinaðar aðgerðir
í Þýskalandi?
Um helgina skoraði Gúnther
Beckstein, innanríkisráðherra í
Bæjaralandi, á starfssystkini sín í
öðrum sambandslöndum Þýska-
lands að standa saman gegn Vís-
indaspekikirkjunni. í Bæjaralandi
hafa verið sett lög um að þar megi
áhangendur Vísindaspekikirkjunn-
ar ekki gegna opinberu embætti.
Beckstein hélt því fram að samtök-
in rækju „fanganýlendur". í „Gull-
stöðinni", sem væri um 100 km
vestur af Los Angeles í Kalifomíu,
væru til dæmis búðir þar sem
byggju 700 manns umkringdir
gaddavír, hindrunum og fljóðljós-
um. Fylgst væri með fólkinu með
hjálp myndavéla og falinna hljóð-
nema. Einnig væru búðir af þessu
tagi í Clearwater í Flórída, Sydney
í Ástralíu, Saint Hill í Bretlandi og
í Kaupmannahöfn.
Yfirlýsing um
„fanganýlendur"
Beckstein kvaðst styðjast við frá-
sagnir „flölda" fólks, sem hefði
gengið úr samtökunum. Þeirra á
meðal væri kona ein, sem hefði
verið látin hlaupa umhverfis staur
í 12 klukkustundir á sólarhring á
meðan hún iðraðist „rangrar hegð-
unar“.
„Þetta er allt svart á hvítu og
við getum nefnt vitni hvenær sem
er,“ sagði í tilkynningu frá bæ-
verska innanríkisráðuneytinu.
Beckstein vísaði til ásakana
frammámannanna 34 í Hollywood
og sagði að í stað þess að skrifa
opin bréf ættu þessir gagnrýnendur
að æsa sig yfir „mannfyrirlitning-
unni í starfsemi" Vísindaspekikirkj-
unnar.
Hollywood-bréfið var skrifað eft-
ir að Þjóðverjar höfðu verið hvattir
til að hundsa kvikmyndina „Mission
Impossible" vegna þess að aðalleik-
arinn, Tom Craise, er félagi í Vís-
indaspekikirkjunni. Bertram Fields,
lögfræðingur Cruise, skrifaði bréf-
ið, sem birtist í International Her-
ald Tribune, og fékk meðal annars
sjónvarpsmanninn Larry King, rit-
höfundinn Gore Vidal, leikstjórann
Oliver Stone og leikarana Goldie
Hawn og Dustin Hoffman til að
leggja nafn sitt við bréfið. Ekkert
þeirra er í Vísindaspekikirkjunni.
Hann kvaðst hafa ákveðið sjálfur
að skrifa bréfíð vegna þess að
Cruise væri skjólstæðingur sinn.
Bréfið hefur verið harðlega gagn-
rýnt í Þýskalandi. Helmut Kohl
kanslari taldi það ekki svara vert.
Rithöfundurinn Jurek Becker, sem
var í fangabúðum nasista í Rav-
ensbrúck og Sachsenhausen, sagði
að samlíkingin við ofsóknir nasista
væri hlægileg í viðtali við vikuritið
Der Spiegel: „Hvernig myndu bréf-
ritararnir bregðast við ef því væri
haldið fram að innrás Bandaríkja-
manna í Grenada minnti á innrás
Hitlers í Pólland? Það væri jafnfrá-
leitt.“
Móðgun við minningu
sex milljóna gyðinga
Abraham Foxman, stjórnandi
samtaka B’nai Brith gegn haturs-
áróðri, sagði í bréfi til International
Herald Tribune, að allar tilraunir
til að bera hlutskipti Vísindaspeki-
kirkjunnar á okkar dögum saman
við það, sem kom fyrir gyðinga í
Þýskalandi, væri „sögulega rangt
[og] móðgun við minningu sex millj-
óna gyðinga, sem vora myrtir í
helförinni".
í upphafi þessarar viku fengu
Þjóðverjar stuðning frá Frökkum í
þessu máli. „Ég deili ótta Þjóðveija
við þessa söfnuði," sagði Herve de
Charette, utanríkisráðherra Frakk-
lands, eftir fund með Klaus Kinkel,
utanríkisráðherra Þýskalands, í
Brussel.
Kinkel fordæmdi samtökin einn-
ig: „Þetta era ekki trúarbrögð,"
sagði ráðherrann. „Þetta er sértrú-
arsöfnuður, sem er að reyna að
hafa fé af fólki.“
Hcimildir: Der Spiegel, The Internationnl
Herald Tribune, The Washington Post, Die
Welt, DPA og Reuter.
Brosmild-
ur Jeltsín
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, átti fund í gær í Kreml
með Vladímír Túmanov, for-
seta stjórnarskrárdómstólsins.
Ræddu þeir ýmis sljórnar-
skrármál en sumir telja þó, að
fundurinn hafi fyrst og fremst
verið til að sýna, að allt sé með
felldu og Jeltsín á góðum bata-
vegi. Lá vel á honum að fundin-
um loknum en þetta var í þriðja
sinn sem Jeltsín kemur til
Kremlar frá því að hann var
útskrifaður af sjúkrahúsi, 20.
janúar. Á sunnudag mun hann
síðan fá Jacques Chirac, for-
seta Frakklands, í heimsókn.
Reuter
Bandarísk mannréttindaskýrsla
Hörð gagnrýni
á Tyrkland
Washington. Reuter.
HORÐ gagnrýni á ástand mann-
réttindamála í Tyrklandi kemur
fram í ársskýrslu bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins um mannréttindi
víða um heim. Segja skýrsluhöfund-
ar, að þeim hafi hrakað að ýmsu
leyti á síðasta ári.
Í skýrslunni segir, að sérstakar
áhyggjur veki ástandið í Suðaustur-
Tyrklandi þar sem stjórnvöld komi
í veg fyrir, að Kúrdar, sem þar eru
fjölmennir, fái að njóta grundvallar-
réttinda hvað varðar menningu og
tungumál.
Stjórnin í Ankara er sökuð um
að hafa flutt 560.000 manns,
óbreytta borgara, nauðungarflutn-
ingi vegna átakanna við skæruliða
Kúrdíska verkamannaflokksins án
þess að hafa komið fólkinu fyrir
sómasamlega annars staðar. Þá
segir, að mikið sé um, að fólk sé
tekið af lífi án dóms og laga og
er þá meðal annars átt við þá, sem
deyja í gæsluvarðhaldi eða fang-
elsi.
Um Kúbu segir í skýrslunni, að
þar hafi ástandið versnað á síðasta
ári og lítið miðað í Rússlandi, eink-
um vegna ástandsins í Tsjetsjníju.