Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 27

Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 27 LISTIR Fáséð gull LEIKLIST Leikfélag- Akureyrar í Samkomuhúsinu KOSSAR 0G KÚLISSUR Handrit samið í kringum þekkt lög úr sýningum LA: Hallgrímur Helgi Helgason. Leikstjóm: Sunna Borg. Tónlistarstjóm og útsetningar: Roar Kvam. Lýsing: Ingvar Bjöms- son. Búningar: Freygerður Magn- úsdóttir. Leikmunir. Manfred Lemke. Hljóðfæraleikur: Gréta Baldursdóttir og Richard Simm. Leikarar og söngvarar: Aðalsteinn Bergdal, Guðbjörg Thoroddsen, Jónsteinn Aðalsteinsson, Marta Nordal, Sigríður Elliðadóttir og Þórey Aðalsteinsdóttir. Kór Leikfé- Iags Akureyrar: Agústa Olafsdótt- ir, Ásgeir Magnússon, Guðlaug Hermannsdóttir, Heiðrún Helga Snæbjömsdóttir, Hildur María Pet- ersen, Jóhann Möller, Jón Geir Hermannsson, Jðnasina Ambjöms- dóttir, Jónína Sigurðardóttir, Júl- íus Larsen, Margrét Sigurðardótt- ir, Maria Loftsdóttir, Oddný Snor- radóttir, Ragnheiður Ólafsdóttir, Reynir Schiöth, Sigriður Dal- mannsdóttir, Sólveig Guðmunds- dóttir, Stefanía Hauksdóttir, Þórir Börkur Þórisson og Þuríður Schi- öth. Fimmtudagur 30. janúar. SÝNING sú er hér er til um- fjöllunar er upphaflega hugar- fóstur Trausta Ólafssonar leik- hússtjóra. Tilefnið er níutíu ára afmæli Samkomuhússins á Ak- ureyri sem hefur hýst flestar sýningar leikfélagsins á staðn- um. Forsendan fyrir þessari sýn- ingu er stofnun Kórs Leikfélags Akureyrar sem stofnaður var fyrir hartnær tveimur árum. Kórinn einbeitir sér að flutningi leikhústónlistar og tilvist hans eykur möguleika á að setja upp metnaðarfullar sýningar þar sem söngur er í fyrirrúmi. Hallgrímur Helgi Helgason var fenginn til að smíða sýningunni ramma. Honum tekst ótrúlega vel að skapa heildstæða mynd úr þessum minningabrotum. Þráðurinn er spunninn beinn og blátt áfram, molum og stemmn- ingum úr sögu leikfélagsins skot- ið inn í og persónur sem í upp- hafi eru einhliða öðlast dýpt eftir því sem líður á verkið. Mestu skiptir þó að lögin eru vandlega valin úr þeim sýningum sem sett- ar hafa verið upp í húsinu og er þar aldrei dauður punktur. Kórinn fyllir upp í í hópsenum og leiksviðið, salurinn og Sam- komuhúsið sjálft skapa verkinu þá umgjörð sem sífellt er vísað í. Þetta er sýning sem gerir sig vegna þeirrar sögu sem gerst hefur einmitt í þessu húsi, saga sem er nátengd sögu leikfélags sem er samofið bæjarlífinu í því sérstæða bæjarfélagi sem Akur- eyri er. Hún gengi ekki upp ann- ars staðar og mér er efi á að sýning byggð á sömu forsendum myndi takast eins vel í Reykja- vík, jafnvel ekki í gamla Iðnó. Leikfélag Akureyrar hefur ekki lengi verið atvinnuleikhús, ef miðað er við langa sögu. Lengst framan af stóðu áhuga- menn þar fremstir í flokki. Það er því vel til fundið að bjóða tveimur þeirra, Jónsteini Aðal- steinssyni og Þóreyju Aðalsteins- dóttur að taka þátt í sýning- unni. Bæði eru þau sviðsvön og allt annað en viðvaningsbragur á leik þeirra. Þórey er perla í hlutverki Málfríðar og tekst að miðla til áhorfenda töfrum húss og listar. Hún er fulltrúi gamla tímans sem sífellt er vísað til og allt byggt á. Jónsteinn kemst langt á útgeisluninni en getur líka breytt sér í allra kvikinda líki og hefur einstaka hæfileika til gamanleiks. Lærðu leikararnir láta ekki Morgunblaðið/Kristján „ÞRÁÐURINN er spunninn beinn og blátt áfram, molum og stemmningum úr sögu leikfélagsins skotið inn í og persónur sem í upphafi eru einhliða öðlast dýpt eftir því sem líður á verkið,“ segir meðal annars í dómnum. sitt eftir iiggja. Aðalsteinn Bergdal sýnir ótrúlega ijölhæfni í söng og leik og er burðarás atriðanna sem tekin eru úr leik- ritum. Guðbjörg Thoroddsen er sannfærandi hvimleið og kvart- sár í hlutverki fulltrúa nútímans, leikstjórans Þórgunnar, og vekur hroll í hlutverki Gróu á Leiti. Marta Nordal er sterk og blátt áfram í hlutverki sínu sem Harpa og sýnir á sér gerólíkar hliðar í ýmsum smáhlutverkum. Búningar Freygerðar Magnús- dóttur eru einfaldir eins og gefið er tilefni til; svunta, hattur, blæja eru tákn sem hjálpa leikaranum við persónusköpun sína. Leikmun- ir eru líka táknrænir en því meira lagt í ljósin til að skapa þá stemmningu sem við á. Bæði í útliti sýningar og texta er lögð áhersla á ósamræmið milii hins hráa nútíma og ljúfra endurminn- inga. í þessu bragði er galdurinn fólginn, gömlu atriðin verða ekki einungis hugljúf heldur bráðfynd- in þegar áhorfandinn fylgist með leikurum að leika leikara fasta í gráma hversdagsins sem leika leikara í þeim verkum sem voru hvað vinsælust aftur í móðu for- tíðarinnar. Útkoman verður fár- ánleg og uppspretta endalausrar kímni. Tónlist og söngur eru svo yfir og allt um kring. Tónlistin er fagmannlega flutt af Grétu Bald- ursdóttur og Richard Simms og kórinn sér um megnið af söngn- um, bæði sem heild, kórfélagar færri saman eða sem einstakling- ar og stóð sig yfirleitt vel. í ein- staka fámennum söngatriðum kom fyrir að raddstyrkur var ónógur en má vera að þar megi um kenna frumsýningarskjálfta. í hópatriðum og sérstaklega þar sem Sigríður Elliðadóttir söng einsöng glæsilega skorti hins vegar ekkert. í heild er sýningin ákaflega vel heppnuð enda lagt upp í tilgerðarleysi með það vega- nesti að skemmta fólki. Leikfé- lagið sýndi með síðustu upp- færslu sinni að það skortir ekki listrænan metnað; núna sýnir það að líka er hægt að taka lífinu létt og hafa gaman af. Sveinn Haraldsson ÞÉTT TÖNLIST Háskólabíó SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Flutt voru verk eftir Sibelius, Snorra Sigfús Birgisson og Brahms. Einleik- ari: Snorri Sigfús Birgisson. Stjóra- andi: Petri Sakari. Fimmtudagurinn 30. janúar, 1997. TÓNLEIKAR Sinfóníuhljóm- sveitar íslands eru, sem endra- nær, mikil tíðindi, en þó ávallt með mismunandi hætti og nú vegna þess, að fluttur er nýr píanó- konsert eftir Snorra Sigfús Birgis- son. Segja má að um frumflutning sunnan heiða sé að ræða, þótt verkið væri fyrir nokkru frumflutt á Akureyri, undir stjórn Guðmund- ar Óla Gunnarssonar og þá eins og nú, lék höfundurinn á píanóið. Það er undirritaður man best, hafa nokkrir píanókonsertar verið samdir af íslenskum tónskáldum og þar nefndir til sögu Jón Nor- dal, Jórunn Viðar, Þorkell Sigur- björnsson, Áskell Másson, Atli Heimir Sveinsson, Leifur Þórarins- son og nú Snorri Sigfús Birgisson, enda er þar ekki smátt í ráðist, að semja konsert fyrir píanó og hljómsveit og leika hann sjálfur, eins og Jón og Þorkell og Jórunn gerðu einnig. Konsertinn hefst á einstrikuðu c og er ofið um það, sem um væri að ræða eins konar orgelpunkt er Morgunblaðið/Arni Sæberg „ÞETTA er mjög gott verk og var leikur höfundar sérlega sannfærandi,“ segir meðal annars um píanókonsert Snorra Sigfúsar Birgissonar. heldur sínu allan innganginn. Þetta c gægist þó einstaka sinnum í gegnum aðalþáttinn, sem í heild er mjög þétt unninn. Það er svo með hin stærri tónformin, eins og stór myndverk, að fletirnir verða meiri um sig en í smáum mynd- verkum og það er eins með tónverk fyrir hljómsveit, að kammermúsísk vinnubrögð geta orðið of smágerð þegar samið er fyrir stóra hljóm- sveit, Það er einmitt veikl.eiki kon- sertsins hjá Snorra, að tónmálið í heild er bæði þétt og smágert, svo að ýmsir „núansar" heyrðust varla. Á móti kemur að konsertinn er mjög vel unninn og hægi kaflinn t.d. sérlega fallegur. Þar mátti OFINN KONSERT heyra fallegar línur og naut sín oft fínleg tónskipan, þar sem píanóið og fýrsta og önnur fíðla fléttuðu saman línur sínar. Eftir ein- leikskadensu hefst lokakaflinn og þar nær Snorri Sigfús að magna upp mikla spennu. Konsertinn endar með svipuðum hætti og hjá klassísku tónskáldun- um, þar sem hápunkturinn endar skyndilega og við tekur veikt og hægferðugt tónferli, er síðan, eins og með tilhlaupi, vex upp í kraft- mikla lokahljóma. Þetta er mjög gott verk og var leikur höfundar sérlega sannfærandi. Vel mætti athuga, við endurflutning verks- ins, hvort á köflum megi ekki stilla styrk hljómsveitarinnar aðeins nið- ur, þar sem tónvefurinn er þéttast- ur, þótt hljómsveitin undir stjórn Sakari léki mjög vel. Fyrsta tónverk tónleikanna var svíta eftir Sibelius, er var meðal síðustu verka hans og eins og vit- að er, hætti hann að semja um svipað leyti. Þrátt fyrir að á stund- um mætti heyra fallega hljóðfæra- samsetningu er þetta verk ótta- lega þunnt og tæplega þess virði að bjóða fólki upp á slíkt, þótt verkið væri á köflum ágætlega flutt. Lokaverk tónleikanna var sú fjórða eftir Brahms og í þetta margslungna verk þarf að leggja ýmislegt sem stendur utan við nóturnar. Fyrri hlutinn af hæga þættinum var fallega fluttur af hljóðfæraleikurunum en annað var leikið beint af augum og viðamik- ill hljómur blásaranna yfirgnæfði strengina á stundum. Jón Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.