Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 31

Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 31
30 FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ i MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 31 jlforgmiÞlafetfe STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SERSTAÐA BANKAMANNA BANKAMENN hafa veitt stjórn Sambands íslenzkra bankamanna heimild til boðunar vinnustöðvunar, fyrstir allra starfsstétta. Samband íslenzkra bankamanna hefur þá sérstöðu meðal stéttarfélaga að hvorki lögin um stéttarfélög og vinnudeilur né um kjarasamninga opin- berra starfsmanna ná til þeirra, heldur eru í gildi lög frá 1977 um kjarasamninga starfsmanna banka í eigu ríkis- ins. Samkvæmt þeim lögum þarf ekki að viðhafa almenna atkvæðagreiðslu meðal bankamanna til þess að ákveða boðun verkfalls eins og hjá öðrum launþegum, bæði á almenna vinnumarkaðinum og hinum opinbera. Samkvæmt lögunum er ákvörðun um verkfallsboðun í höndum stjórnar, samninganefndar og formanna og er boðunarfrestur 15 dagar og í framhaldi af því ber sátta- semjara hins vegar að leggja fram sáttatillögu og um hana þarf að fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla áður en til verkfalls kemur. Þegar lögum um stéttarfélög og vinnudeilur var breytt á síðastliðnu ári og verkfallsboðun samræmd hjá stéttarfé- lögunum, var Samband íslenzkra bankamanna skilið eftir. Samræmingin fólst í því, að þegar félag atvinnurekenda eða stéttarfélag, ætli að boða til vinnustöðvunar, sé hún því aðeins heimil, að ákvörðunin hafi verið tekin við al- menna leynilega atkvæðagreiðslu með þátttöku a.m.k. fimmtungs atkvæðisbærra félagsmanna. Töldu ýmsir, að þar sem sérstök lög giltu um starfsmenn ríkisbanka og að þar væri lögákveðinn sérstakur samningaferill, ætti ekki að breyta þeim. Einnig heyrðist, að ríkisbankar væru á útleið. Engu að síður ná þessi lög yfir einkabankana einnig. Eftir stendur nú, að samræming hefur átt sér stað á vinnumarkaði um boðun vinnustöðvunar, að bankarnir og Samband íslenzkra bankamanna búa við mun rýmri lög- gjöf í þessum efnum, sem eru ekkert annað en eftirhreyt- ur fyrra og gamals skipulags. Þess vegna er eðlilegt að samræma þau lagaákvæði, sem ná til bankamanna, öðrum lögum um þessi efni. NÝTT NATO - NÝ VIÐHORF UMMÆLI Anneli Taina, varnarmálaráðherra Finn- lands, um að Finnar kunni að þurfa að endurskoða afstöðu sína til Atlantshafsbandalagsins (NATO) og gera upp við sig hvort þeir eigi jafnvel að sækja um aðild, hefðu verið óhugsandi fyrir fáeinum árum. Það er raunar ekki lengra síðan en hálft annað misseri að Taina sagði í viðtali við Morgunblaðið að Finnar teldu sig ekki þurfa á NATO-aðild að halda. Varnarmálaráðherrann telur jafnframt að þróunin í öryggismálum Evrópu kunni að leiða til þess að „allt hern- aðaröryggi í Evrópu reiði sig á NATO“. Svipaðar raddir hafa heyrzt að undanförnu í nágranna- ríki Finnlands, þar sem NATO-aðild er ekki síður við- kvæmt mál; í Svíþjóð. Stutt er síðan Carl Bildt, fyrrver- andi forsætisráðherra og formaður stærsta stjórnarand- stöðuflokksins, sagðist vona að NATO þróaðist í „þá ör- yggistryggingu fyrir Evrópu í heild, sem einnig Svíþjóð finnst sjálfsagt að eiga aðild að“. Þessi nýju viðhorf í ríkjum, sem lengi lögðu ofur- áherzlu á hlutleysi, eru ekki sízt til komin vegna þeirra breytinga, sem orðið hafa á Atlantshafsbandalaginu eftir að kalda stríðinu lauk. Megintilgangur bandalagsins er ekki lengur að verjast árás úr austri, heldur að tryggja frið, frelsi og stöðugleika í Evrópu allri. Því hlutverki sinnir NATO ekki sízt með aukinni þátttöku í friðargæzlu og víðtækri samvinnu og samráði við flestöll ríki Evrópu, einnig þau sem standa utan bandalagsins, í Friðarsam- starfinu svonefnda. Svíþjóð og Finnland gera það auðvitað sjálf upp við sig hvort þau eiga samleið með bandalaginu — bæði ríkin eiga nú þegar við það náið samstarf á mörgum sviðum. Eflaust þurfa ýtarlegar umræður að eiga sér stað í báðum ríkjum áður en slík ákvörðun yrði tekin. En fari svo, verða þessi grónu vestrænu lýðræðisríki boðin sérstaklega vel- komin í félagsskap, sem staðið hefur vörð um frið og lýð- ræði í Evrópu í bráðum hálfa öld og hyggst enn efla það hlutverk sitt í framtíðinni. Nærri tíundi hver sjómaður á íslandsmiðum á það á hættu að slasast við störf sín á hveiju ári N 'ÆRRI lætur að_ tíundi hver sjómaður á íslands- miðum eigi það á hættu að slasast við störf sín árlega í ljósi þess að milli 500 og 600 sjómenn verða fyrir slysum um borð í íslenskum skipum á ári hveiju. Þrátt fyrir þarft forvarnar- starf í landi sem leitt hefur af sér fækkun slysa þar, virðast sjó- mannaslys skera sig úr enda hefur alvarlegum slysum til sjós ekki fækkað. Dánartíðni hefur lækkað undanfarin ár, aðallega vegna skjótra björgunaraðgerða. Að mati þeirra, sem best þekkja, má í lang- flestum tilfellum rekja sjóslys til mannlegra mistaka og því gætu forvarnir m.a. falist í bættri stjórn- endakennslu til yfirmanna skipa svo og bættri nýliðafræðslu um borð. Alþjóða kannanir sýna að 85% slysa til sjós eru vegna mannlegra mistaka. Helstu ástæður sjóslysa má m.a. rekja til þreytu og svefn- leysis vegna of mikils vinnuálags, en til marks um það má nefna að 12% skipsstranda sem urðu hér við land á árunum 1986-1991, urðu vegna þess að skipstjórnendur sofn- uðu á verðinum. Aðrar algengar ástæður má rekja til þess að skip- stjórnendur sinna fleiri störfum í brúnni en skipstjórn sem bannað er með lögum, rangrar notkunar staðsetningartækja, skorts á nauð- synlegum sjókortum, ófullnægjandi skipulags vakta og starfa í brú, kæruleysis, vanrækslu, vanþekk- ingar og ónógra réttinda þeirra, sem standa í brúnni. Talað fyrir daufum eyrum Ólafur Ólafsson landlæknir nefnir fyrirhyggjuleysi og skort á fræðslu til nýliða sem frumorsakir slysa á sjó. Einnig væri það opin- bert leyndarmál að vinnuharka hafi aukist mjög um borð. Vökulög- in væru víða brotin, sérstaklega á minni skipum flotans, en sóknin í þann gula mætti ekki verða á kostnað öryggis starfsmanna. „Ég hygg að þessi óheillaþróun hafi komið í kjölfar minnkandi fisk- gengdar, menn sækja sjóinn fastar en áður, róa í öllum veðrum og toga í lengstu lög. Alvarleg slys eru ekkert einkamái sjómanna og útgerðarmanna. Það kemur til kasta allra skattborgara að greiða kostnað vegna slysa.“ í nokkur ár hefur Slysavarnaráð íslands ásamt landlæknisembættinu gefið vinnuslysum á sjó aukið vægi og m.a. hefur verið fjallað um þau á sérstökum landsfundum, síðast í nóvember sl. í einni af tilskipunum Evrópusambandsins frá 1992 eru fyrirmæli um að ráðstafanir skuli gerðar til að tryggja sjómönnum viðunandi læknisþjónustu og tóku reglur þessar víðast hvar gildi á árinu 1995. Nefnd, sem samgöngu- ráðherra skipaði í apríl 1995, sam- þykkti einróma að leggja til að hér á landi yrði komið á fót Heilbrigðis- stofnun sjómanna og fjarskipta- lækningum með svipuðu sniði og gert hefur verið í ná- __________ grannalöndunum. Að mati landlæknis yrði það stórt skref í átt að bættum slysaforvörnum á hafi úti, en fyrstu tillögur komu fram á landsfundi fyrir árum. Slík stofnun yrði rekin í beinum tengslum við slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, en að sögn landlækn- is, hafa áhugamenn um þetta þjóð- þrifamál talað fyrir næstum daufum eyrum ráðamanna jafnt sem sjó- manna hingað til. Það sé því mjög seigt í taumi þó ótrúlegt sé. Land- læknir segist ekki gera sér almenni- lega grein fyrir orsökum áhugaleys- isins, eins og hann orðar það, „en ætli ástæðan geti ekki legið í því að við erum öll ókrýndar hetjur og erum ekkert að væla út af einu eða neinu, heldur viljum við bara deyja í stígvélunum.“ Mannleg mistök ástæða 85% allra slysa til sjós Eins og allur ríkiskassinn frjósi þremur sem Hrein og klár sölumennska Að sögn Ólafs er gert ráð fyrir að stofnkostnaður við Heilbrigðis- stofnun sjómanna sé á bilinu 10-15 milljónir kr. og að reksturinn verði í höndum slysadeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur, en þeir Brynjólfur Mogensen og Sigurður Kristinsson, læknar á slysadeildinni, hafa sýnt þessu máli mikinn áhuga. Farið hefur verið þess á leit við helstu hagsmunasamtök sjómanna og út- gerðarmanna að þau standi að ein- hveiju leyti undir kostnaðinum. „Ef þau hafa virt okkur viðlits, hafa þau lítið viljað gera nema forstöðumaður Sjávarútvegsstofnunar Háskóla Is- lands, dr. Guðrún Pétursdóttir. Við þurfum hinsvegar á öllum stuðningi að halda til að koma málinu heilu í höfn og í gegnum þingið. Persónu- lega finnst mér ekkert óeðlilegt við það að svona stór samtök styrki þetta eitthvað því hér á landi er rannsóknum á öryggisbúnaði og slysatilvikum sjómanna verulega ábótavant auk þess sem koma þarf upp möguleikum á slysaskráningu," segir Ólafur og bætir við að ákvarð- anir um öryggisútbúnað sjómanna hafi um of verið háðar hreinni og klárri sölumennsku. Dæmi væru um að gleypt hafi verið við búnaði, sem síðar hafi beinlínis reynst hættuleg- ur eða gagnslaus. Að sögn landlæknis er ljóst að kostnaður þjóðfélagsins vegna slysa hefur stórlega verið vanmetinn til þessa. í því sambandi nefnir hann að talið hefur verið að kostnaður vegna umferðarslysa væri 5-7 millj- arðar króna á ári, en skv. nýlegum athugunum Hagfræðistofnunar HI, nemur kostnaður við umferðarslys að minnsta kosti 12-14 milljörðum kr. á ári, sé allt tekið með í reikning- inn. Að sama skapi hefur Slysavarnaráð uppi áætlanir um að fá Hagfræðistofnun til að reikna út heildarkostnað ríkisins vegna sjó- slysa. Að sögn Ólafs má ætla að sá kostnaður hlaupi á milljörðum. Ekki þurfti alltaf að kalla til þyrlu Að mati Guðjóns Ármanns Ey- jólfssonar, skólameistara Stýri- mannaskólans í Reykjavík, myndi sparast mikið, bæði mannslíf og peningar, með sérstakri Heilbrigðis- stofnun sjómanna þar sem hvert útkall björgunarþyrlu kostaði mikið og fróðlegar upplýsingar frá Þyrlu- vakt lækna leiddu í ljós að ekki hafi ætíð verið nauðsynlegt að senda þyrlu af stað þegar hún var send, oft í tvísýnu veðri. _________ Guðjón Ármann telur nauðsynlegt að stórefla nýliðafræðslu um borð í hveiju skipi og segist hann hampa mjög 8. grein Sjómannalaga við kennslu segir: „Við ráðningu nýliða Þrátt fyrir þá staðreynd að slysatíðni meðal íslenskra sjómanna sé með því hæsta sem þekkist á Norðurlöndum, hefur vinnuslys- um til sjós lítill gaumur verið gefínn í almennri þjóðfélagsumræðu og engin alhliða stefnumörkun af hálfu hins opinbera hefur átt sér stað um öryggismál sjómanna. Jóhanna Ingvarsdóttir kynnti sér málið frá ýmsum hliðum. Slys á sjómönnum sem tilkynnt voru til Tryggingastofnunar ríkisins árin 1984-1993 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 Skipting slysa eftir veiðiskap Togveiðar Netaveiðar ■ 6% Línuveiðar ■ 8% Nótaveiðar 16% Skelfiskveiðar ■ 6% Aðrar veiðar 14% Skipting eftir stöðu slasaðra Skipstj./stýrim. 1 Vélstjórar | Undirmenn | Skipting slysa eftir störfum sem unnið var við Viðhald veiðarfæra Viðhald og þrif á skipi Aðgerð og fiskvinnsla Taka og slökun veiðarf. Hífingar, lestun, löndun ■ 6% Vinna í eldhúsi 13% Á leið að og frá skipi ■ 6% Frysting afla 13% Annað ■■ 10% 114% 112% Samanburður á slysatíðni og aldri sjómanna Arið 1992 15 KUL yngri en 15 15-19 20-24 ára ára 25-29 ára ■ Tíðni slysa □ Aldursdreifing UnBd 40-44 45-49 ára ára 50-54 55-59 ára ára 60-64 Bm 65 og eldri skal skipstjóri sjá til þess að nýliðan- um sé leiðbeint um störf þau sem hann á að sinna. Ennfremur skal honum sýndur björgunarbúnaður sá og viðvörunarbúnaður, sem á skip- inu er, og leiðbeint um grundvallar- atriði við notkun þeirra.“ Hann er sannfærður um að heil- brigðisstofnun sjómanna muni stór- auka öryggi allra sæfarenda og efla rannsóknir og þekkingu íslenskra lækna á sjúkdómum og slysum sjó- manna. Sömuleiðis ætti slík stofnun einnig að geta náð til sálgæslu og félagslegrar þjónustu við sjómenn með tilliti til lengri og erfiðari veiði- ferða. Ekkert getur leyst menn undan ábyrgð Guðjón Ármann segir að hver bekkjardeild sé send í eina viku á Slysavarnaskóla sjómanna sem þýð- ir að nemandi, sem lýkur fyllstu réttindum ti! fiskimanna, hefur sótt þann skóla í tvær vikur og farmað- urinn í þijárvikur. „En við getum ekki fullyrt um hvað menn gera svo þegar skóla sleppir enda landlægt að verið sé að kenna öðrum um en þeim, sem ábyrgðina bera. Sjálfur kenni ég siglingareglur, en önnur grein þeirra reglna fjallar um ábyrgð og mælist ég til þess að nemendur mínir læri þá grein utan- bókar. Þar segir að ekkert geti leyst skip, eiganda þess, skipstjóra eða áhöfn undan ábyrgð, ef reglunum er ekki fylgt eða vanrækt er að gæta þeirrar varúðar, sem almenn sjómennska krefst eða sérstakar aðstæður kunna að útheimta,“ seg- ir Guðjón Ármann og bætir við að þrátt fyrir góð og fullkomin sigl- ingatæki, þá hafi reynslan sýnt að góð og örugg vakt í brú og stýris- húsi sé mesta og besta öryggistæki skipsins.“ Slysahættan eykst samfara vinnuálagi Guðjón A. Kristjánsson, formað- ur Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands, segir erfitt að gera sér grein fyrir því hvers vegna slysatíðni meðal íslenskra sjómanna sé miklu hærri en annars staðar. „Það er hinsvegar ljóst að slysa- hættan eykst samfara miklu vinnuálagi og mikilli þreytu. Það er þekkt staðreynd í öllu vinnuum- hverfi manna og ijóst er að íslensk- ir sjómenn vinna geysilega mikið. Það er ekkert óalgengt að vinnutími á íslenskum skipum sé 14 til 16 klukkustundir á sólarhring eða það- an af meira og sjálfsagt aldrei minni en 12 tímar.“ „Það liggur líka ljóst fyrir að ís- lenskir sjómenn eru að afkasta að meðaltali meira en sjómenn víðast hvar í löndunum í kringum okkur auk þess sem við erum að vinna við verri veðuraðstæður. Afköst ís- lenskra sjómanna, þ.e. það afla- magn sem þessi starfsgrein kemst yfír að veiða og koma með að Iandi, eru t.d. talin mun meiri en afköst norskra sjómanna. Ég á aftur á móti ekki von á því að við séum að öllu jöfnu með slakari vinnuað- stæður um borð. Þvert á móti.“ Tekjusamdrætti mætt með fækkun í áhöfn Guðjón segir það auðvitað vera mjög æskilegt ef hægt væri að draga úr vinnuálagi á sjó, aðspurður hvaða leiðir hann sæi til að sporna við tíðum vinnuslysum á sjó. „Ég vil ekki meina að það viðgangist þrældómur um borð í íslenskum fiskiskipum. Þar hefur bara ailtaf verið mikið vinnuálag og svo er enn. Því er heldur ekki að neita að menn hafa verið að reyna að mæta tekjusamdrætti á undanförnum árum með því að vera færri um borð í hveiju skipi sem getur svo sem átt einhvern þátt í tíðum vinnu- slysum á sjó. Samfara samdrætti í aflaheimildum með tilkomu kvóta- kerfisins hefur verið tilhneiging til þess að fækka áhafnarmeðlimum. Okkar samtök hafa ekkert verið hlynnt því að menn hafi verið að fækka sér niður úr öllu valdi og að mínu viti eru önnur sjómannasam- tök sama sinnis. Þessi þróun hefur samt sem áður gengið yfir. Sjó- mennirnir sjá sér hag í auknum tekjumöguleikum með færri mönn- um um borð og útgerðir losna við ákveðnar greiðslur, sem fylgja hveijum manni.“ Fræðsla á vettvangi Formaður FFSÍ segist ekki telja að ríkjandi sé almennt áhugaleysi meðal sjómannastéttarinnar gagn- vart þessum vinnuslysa- þætti þrátt fyrir að vera sannfærður um að gera megi enn betur í því að fræða menn um skips- störfin. „Auðvitað er hér stórkostlegt vandamál á ég held, því miður, nýliðum til hliðar við hættulegustu störfin til að byija með. Ég held reyndar að það sé almennt gert enda tel ég að það séu ekkert frek- ar nýliðarnir, sem verða fyrir slys- um, umfram þá meira reyndu. Ég held að þessu sé einmitt þveröfugt farið, að vönustu mennirnir séu kannski oft og tíðum að taka mestu áhættuna við erfiðar aðstæður,“ segir Guðjón. Skipstjórar eru þeir aðilar um borð sem bera ábyrgð á öllu því sem gerist um borð í skipum. Guðjón segist vera mjög hlynntur þeim hugmyndum er fram hafa komið um stofnun Heilbrigðisstofn- unar sjómanna. „Slík stofnun yrði fyrst og fremst til að bregðast við því, sem upp á kemur að stórum hluta, en auðvitað ættu þar að geta safnast saman upplýsingar og þekk- ing, sem hægt væri svo síðar að miðla og nýta í forvarnarskyni. Það liggur í hlutarins eðli.“ Slys á sjó eru ekkert sérfyrirbæri Að mati Guðjóns eru slys á sjó- mönnum ekkert sérfyrirbæri sem sjómenn einir eiga að kosta. Sjó- menn væru bara eins og aðrir landsmenn að því leytinu til að þeir ættu rétt á eins miklum for- vörnum og hægt væri að veita þeim. „Sjómenn eru sennilega að greiða upp undir 20% af öllum tekjuskatti einstaklinga sem greiddur er í þessu landi þrátt fyr- ir að njóta sjómannaafsláttar, sem er þyrnir í augum margra. Við telj- um að það sé ekki hlutverk sjó- mannastéttarinnar að fjármagna forvarnarstarf hennar af sínum tekjum, heldur eigi að gilda það sama um sjómenn og aðra þjóðfé- lagsþegna, það er að þjóðfélagið sjálft sjái um að greiða fyrir það. Við teljum hinsvegar að sjómenn eigi að hafa rétt á heilbrigðisþjón- ustu, rétt eins og aðrir þegnar þessa lands, og ekki sé hægt að mismuna þeim með þessum hætti þó þeim sé mismunað með öllum öðrum hætti í samfélagslegri þjónustu, allavega þegar þeir eru á sjó, sem er að jafn- aði átta mánuði á ári. Sjómenn eru örugglega ekki stórir þátttakendur í þeirri afþreyingu, sem þjóðfélagið borgar fyrir í gegnum leikhús, sinf- óníur og fleira, og við sitjum ekki við sama borð og aðrir landsmenn í sjónvarps- og útvarpssendingum, svo dæmi séu tekin. Hér á landi er verið að halda uppi alls kyns þjón- ustu, sem við fáum sáralítið notið, en tökum þátt í að greiða, ábyggi- lega til jafns við aðra og fyllilega það.“ Sjómenn eiga sinn rétt eins og aðrir „Að okkar mati kemur ekki til greina að fara að greiða fyrir heil- brigðisþjónustu sjómanna með ein- hveijum sérstökum framlögum frá stéttinni. Ef málið ætlar að fijósa inni vegna þess, þurfum við auðvit að að taka það upp á kjarasamn- ingasviði. Hingað til höfum við nú talið að öryggismál sjómanna og slysavarnir þeirra þyrftu ekki endi ---------- lega að tengjast því að sjómenn settu eitthvað hnút í verkfallsmálum til þess að fá lagfæringar, heldur ættu þeir rétt á slíkri þjónustu eins og Kostnaðurinn hleypur á milljörðum ferðinni, en ég tield, pvi miöur, að engin „patent“-lausn sé til í þessu efni. Við höfum verið að reyna að stuðla að endurmenntun, þjálfun manna og börðumst m.a. annars fyrir því á sínum tíma að Slysavarnaskóli sjómanna var settur á laggirnar. Öll nýliðafræðsla ætti að vera í höndum þeirra skóla, sem eru að mennta fólk í sjómannsstörf, og gæti sú fræðsla t.d. farið fram með lifandi kennslu á vettvangi. Síðan eiga náttúrulega allir sjómenn að fara í gegnum Slysavarnaskóla sjó- manna auk þess sem það er skylda skipstjórnarmanna að fræða nýliða, sem koma um borð, og eins að halda aðrir landsmenn, á kostnað samfé- lagsins alls, eins og heilbrigðisþjón- usta annarra. Hitt er alveg rétt að það þarf að ná einhverri hreyfingu á þessi ör- yggismál, en þegar um þau er farið að ræða, er eins og allur rikiskass- inn fijósi,“ segir formaður FFSÍ og bætir við að lokum: „Auðvitað myndum við reyna að leggja þessu þjóðþrifaverkefni lið á einhvern hátt með einhveijum smápeningafram- lögum ef það væri það sem riði al- gjörlega baggamuninn, en við ætl um ekki að fara að ganga á undan með því að fara að fjármagna þetta fyrir ríkið. Það eru alveg hreinar línur.“ Bankalán Námslán Greiðslukort Bílalán Lífeyrissjóðslán Börn Systkini Vini/kunningja Foreldra Aðra ættingja Maka Fyrirtæki Starfsfélaga Vini/kunningja Börn Aðra ættingja Fyrirtæki Systkini Maka Foreldra Starfsfélaga Litlar sem engar Lántaka Sala eigna Gjaldþrot Aðrar 179,1% Hver eða hverjar eru tegundir þeirra fjárskuldbindinga sem ábyrgðin stendur fyrir? 38,7% 37,1% Fyrir hvern eða hverja ertu í ábyrgð? Fyrir hvern hefur þú greitt skuld vegna ábyrgðar? I 2,7% I 2,7% 32,5% Hvejar eru fjárhags- legar afleiðingar þess að þú varst krafinn um greiðslu? (þ.e. fyrir utan það að hafa þurft að greiða skuldina) Stjórnvöld o g bankakerfið boða aðgerðir til að fækka ábyrgðarmönnum Um 90 þúsund í ábyrgð fyrir lánum AÆTLAÐ er að um 90 þús- und einstaklingar yfir 18 ára að aldri séu í ábyrgð fyrir fjárskuldbindingum annarra. Þetta er tæplega helmingur íslendinga á þessum aldri og bendir flest til að ábyrgðir séu mun algeng- ari hér á landi en á öðrum Norður- löndum. Þá er talið að um 18 þúsund manns hafi greitt skuld vegna ábyrgðar á síðustu fimm árum. Þeir Finnur Ingólfsson viðskipta- ráðherra og Páll Pétursson félags- málaráðherra kynntu í gær aðgerðir sem ætlað er að draga úr notkun sjálf- skuldaraðila og bankar og sparisjóðir hafa einnig kynnt áform um ýmsar breytingar sem miða að því sama. Komið verður á samstarfshóp stjórnvalda, fjármálastofnana og Neytendasamtakanna sem hafi eft- irlit með breyttum vinnubrögðum un notkun ábyrgða með það að markm- iði að lánastofnanir láni fyrst og fremst út á greiðslugetu lántakans en ekki ábyrgðarmenn. Er þetta gert að að norrænni fyrirmynd en í Dan- mörku og Svíþjóð hafa neytendasam- tök og fjármálastofnanir gert sam- komulag um notkun ábyrgða, þar sem kveðið er á um ýmis atriði sem tryggja vernd ábyrgðarmanna. Jafnframt verður skipuð nefnd sem kanni hvernig lánveitendum verður gert auðveldara að afla upplýsinga um skulda- og vanskilastöðu lántaka. Loks verður í samráði við mennta- málaráðuneytið kannað hvort ekki sé unnt að koma fræðslu um fjármál heimila inn í námsskrá grunn- og framhaldsskóla. Ábyrgðarmannakröfur hertar Þetta er í samræmi við markmið sem Samband íslenskra viðskipta- banka, Samband íslenskra sparisjóða og greiðslukortafyrirtækin hafa kynnt viðskiptaráðherra um að draga úr sjálfskuldarábyrgðum. Meðal annars er fyrirhugað að lánveitingar verði í auknum mæli eingöngu miðaðar við greiðslugetu lántakenda og eigin tryggingar hans. Að úttektarheimildir greiðslukorta taki í auknum mæli mið af greiðslugetu korthafa og erlendar úttektarheimildir lækki, sérstaklega hjá ungu fólki. Þá verða endurskoðað- ar vinnureglur og venjur sem gilda um samskipti við ábyrgðarmenn þegar kemur til vanskila og hver stofnun mun setja sér reglur um val á ábyrgð- armönnum, þar sem m.a. verður kveð- ið á um að einstaklingar yngri en 20 ára eða eldri en 75 ára verði almennt ekki samþykktir sem ábyrgðarmenn. Þeir Finnur og Páll sögðu að verði aðgerðir til að fækka ábyrgðarmönn- um ekki farnar að skila sýnilegum árangri þegar líður á vorið sé ekki útilokað að sett verði löggjöf sem banni lánastofnunum að nota ábyrgð- armenn. Slíkt sé þó annmörkum háð, og geti m.a. útilokað ákveðna hópa sem ekki hefðu langa bankaviðskipta- sögu að baki. Og bankakerfíð og greiðslukortafyrirtækin leggjast al- farið gegn hugmyndum um að banna eða takmarka verulega notkun sjálf- skuldarábyrgða. Algengara hér en á Norðurlöndum Þessar aðgerðir stjórnvalda koma í kjölfar skýrslu, sem nefnd á vegum viðskiptaráðherra hefur skilað um framkvæmd ábyrgðarveitinga. Til að afla upplýsinga um umfang ábyrgða var gerð skoðanakönnun. Niðurstöður hennar sýndu að um 90 þúsund ein- staklingar eru í ábyrgð fyrir fjár- skuldbindingum þriðja aðila. Flest bendir til þess að ábyrgðarskuldbind- ingar hér á landi séu mun algengari en annars staðar á Norðurlöndum, og hafa norrænar skýrslur áætlað að ábyrgðarmenn sé að fínna á um 10% heimila á Norðurlöndum. Tvö bankalán af hveijum þremur eru með sjálfskuldarábyrgð og eru ábyrgðarmenn í bankakerfínu að meðaltali í ábyrgð fyrir tæplega 1 milljón króna. Þá hefur tíundi hver íslendingur 18 ára og eldri, eða um 18 þúsund manns, greitt skuld vegna ábyrgðar á síðustu fimm árum og má áætla að um 4% hafi orðið gjaid- þrota í kjölfarið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.