Morgunblaðið - 02.02.1997, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 B 17
ikjálftann mikla 1906, eru nú aðeins 37 vagnar eftir. Þeir eiga sinn þátt í að setja sérstakan svip á borgina..
FRÁ Twin Peaks-hæðum er frábært útsýni yfir borgina. Við höfnina
ber skýjakljúfa fjármálahveríisins hæst.
hesta afturbak niður bratta brekku.
Þetta var árið 1869 og fjórum árum
síðar var fyrsti kapalvagninn kom-
inn á göturnar. Fljótlega voru
komnar átta áætlunarleiðir með 6(1Q,
vögnum. Við jarðskjálftann mikla
1906 eyðilagðist nánast allt kerfið
og ákveðið var endurbyggja það
ekki. Enn ganga þó 37 vagnar á
þremur leiðum og setja mikinn svip
á samgöngur borgarinnar. Kapal-
vagnarnir renna á sporum, en neð-
anjarðar snýst sterkur kapallinn
hring eftir hring og vagnamir fær-
ast úr stað þegar stjórnendur þeir-
ra krækja í kapalinn líkt og þegar
menn fara í skíðalyftu. Mótorinn
sem knýr kaplana áfram lætur ekki
mikið yfir sér, en hann geta menn
skoðað þar sem stjórnstöð vagn-
anna er efst á hæð í Nob Hill-hverf-
inu.
I San Francisco blómstar tónlist-
in, hverju nafni sem hún nefnist og
gömul söfn og ný veita innsýn í sí-
breytilegan heim myndlistar. Borg-
in hefur einnig haslað sér völl í
amgöngum við flóann.
ÞÓ GÖMUL hverfi viktoríanskra húsa séu
áberandi í San Francisco eru háhýsin þar líka.
BRENDA Jordan og Margrét Ásgeirsdóttir lyfta
glösum í vínhéraðinu þekkta Napa Valley.
Spáni og Kalifornía varð mexíkósk.
Stríð braust út árið 1846 þegar
bandaríski sjóherinn réðst til at-
lögu við Mexíkó-búa og bærinn
Yerba Buena varð að San Francisco
undir yfirráðum Bandaríkjamanna.
Tveimur árum síðar, þegar stríð-
inu var að ljúka og Kalifornía öll til-
heyrði orðið Bandaríkjunum, fann
maður að nafni James Marshall
gull. Þarmeð hófst nýr kafli í sögu
San Francisco. Á árunum fram til
1850 jókst íbúafjöldinn úr nokkrum
hundruðum í um 25 þúsund. Bær-
inn fékk miður gott orð á sig og
gekk undir nafninu Villimanna-
ströndin þar sem menn lifðu hratt
og mannslífið var lítils metið, en
þegar gullið hvarf komst á stöðug-
leiki meðal þeirra íbúa sem héldu
tryggð við staðinn. Smám saman
varð San Francisco auðug hafnar-
borg og auðurinn jókst enn þegar
silfur fannst í Nevada og járnþraut-
arsamgöngur komust á.
Golden Gate-bniin er án efa ein
frægasta brú í heimi og mikil bylt-
ing varð í samgöngum við flóann
þegar hún var tekin í notkun. Brúin
var í byggingu á kreppuárunum í
Bandaríkjunum og til framkvæmd-
anna var aflað fjár með einstæðum
hætti, íbúar við flóann lögðu það
fram í formi hlutafjárkaupa. Golden
Gate er þó ekki eina þrúin sem
tryggir góðar samgöngur við flóann
eða setur svip á San Francisco. Þar
trónir einnig San Francisco-
Oakland Bay Bridge eða Bay-brúin.
Kapalvagnar í brekkum
San Francisco-búar fullyrða að í
borginni séu hvorki fleiri né færri
en 43 hæðir, sú hæsta 270 metrar.
Brattinn reyndist mönnum erfiður
á tímum þegar hestar og kerrur
voru algeng farartæki. Skoskur
verkfræðingur fékk hugljómun er
hann varð vitni að slysi þegar
hestasveinn missti vagn sinn og
ÞAÐ gildir einu hvort gripinn
er skyndimatur við höfnina eða
setið á fínum veitingastöðum,
maturinu er góður.
kvikmyndaheiminum. Veitingahús-
in þykja með þeim bestu sem finn-
ast, flóra þeirra er fjölbreytileg og í
nágrenninu vaxa vínþrúgurnar í
Napa- og Sonoma-vinhéruðunum
])ekktu.
Mannlífið
Fjöldi lystigarða er í borginni, til
dæmis Golden Gate-garðurinn, sem
á fáa sína líka, þótt ekki sé nema
vegna stærðarinnar. Stutt er út í
sveit frá borginni, vatnið er alls
staðar í kring, ströndin, eyjarnar.
Allt þetta setur svip heilbrigði og
ferskleika á borgina, ólíkt svo
mörgum öðrum stórborgum. Þetta
endurspeglast í íbúunum sem láta
sér ekki vaxa í augum að skokka
upp og niður hæðirnar fjörutíu og
níu og gera lítið úr því orði sem oft
fer af Bandaríkjamönnum með því
að hafna hamborgurum og kleinu-
hringjum og kjósa frekar að narta í
salat.
Mannlífið er enda það sem hvað
sterkastan svip setur á San
Francisco þrátt fyrir mannvirki
sem hafa borið hróður borgarinnar
víða. Fjölbreytilegt og iðandi þar
sem frjósemi hugans ræður ríkjum.
Þarna hafa um áraraðir mæst ólíkir
straumar og stefnur, menn hafa
lært að lifa í sátt og samlyndi og
njóta þess hve vel hefur tekist við
að fleyta rjómann ofan af, skilja his-
mið frá kjarnanum. Utkoman er
einstök.
AF 600 kapalvögnum sem runnu
um götur borgarinnar fyrir jarð-
skjálftann mikla 1906 eru nú aðeins
37 vagnar eftir. Þeir eiga sinn þátt í
að setja sérstakan svip á borgina