Morgunblaðið - 16.02.1997, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1997 B 17
Heilsugæslulæknir
Staða heilsugæsluiæknis til afleysinga í eitt
ár við Heilsugæslustöð Suðurnesja, Keflavík,
er laus til umsóknar og veitist frá 1. júní nk.
Umsækjendur skulu hafa viðurkenningu sem
sérfræðingar í heimilislækningum.
Umsóknum skal skilað til undirritaðs fyrir
10. mars nk. á sérstökum eyðublöðum sem
látin eru í té á skrifstofu Heilsugæsiustöðvar-
innar, Mánagötu 9, Keflavík og á skrifstofu
landlæknis.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður í
síma 422-0580 og yfirlæknir stöðvarinnar í
síma 422-0500.
Keflavík, 11. febrúar 1997,
Framkvæmdastjóri.
Atvinna - atvinna
Óskum að ráða í eftirfarandi störf hjá okkur:
Rafvirkjun
Rafiðnfræðingur, rafvirkjameistari, rafvélavirki
eða sveinn í rafvirkjun með þekkingu á almenn-
um lögnum, stýrikerfum og rafbúnaði skipa.
Rafeindasvið
Tæknifræðingur eða rafeindavirkjameistari
með alhliða þekkingu.
Starfið fellst m.a. í að veita deild forstöðu.
Skapandi starf fyrir duglegan mann.
Viðkomandi þurfa að hafa þjónustulund og
eiga gott með að starfa með öðrum. í um-
sókn skal gefa upp menntun og fyrri störf.
Allar upplýsingar gefur Sævar Óskarsson.
PÓLUNN HF., Aðalstræti 9, 400 ísafjörður,
s. 456 3092, fax456 4592, pollinn@mmedia.is
Félagsmálastofnun
Rey kj avíkurborgar
Fjölskylduheimili
Fjölskyldudeild Félagsmálastofnunar Reykja-
víkurborgar óskar eftir hjónum/einstakling-
um til að reka og sjá um fjölskylduheimili.
Fjölskyldudeildin sinnir margvíslegu stuðn-
ingsstarfi við börn og unglinga og fjölskyldur
þeirra. Rekstur fjölskylduheimilis er eitt slíkra
stuðningsúrræða. Heimilið er fyrir börn sem
búið hafa við erfiðar heimilisaðstæður
og/eða eiga við hegðunar- og tilfinningalega
erfiðleika að stríða. Lögð er áhersla á að búa
börnunum góðar og öruggar uppeldisað-
stæður. Á heimilinu geta búið allt að fimm
börn til lengri eða skemmri tíma.
Gerður verður verktakasamningur um
rekstur heimilisins.
Leitað er að fólki með:
- menntun á sviði félags-, sálar- eða
uppeldisfræði,
- reynslu af vinnu með börnum í vanda
- áhuga á að skapa börnum jákvætt og
öruggt fjölskylduumhverfi.
Áætlað er að starfsemin hefjist 1. maí 1997
og er umsóknarfrestur til 2. mars nk. Skal
umsóknum skilað til starfsmannastjóra,
Síðumúla 39.
Nánari upplýsingar veitir Erla Þórðardóttir,
yfirmaður stoðþjónustusviðs, í síma
588-8500 og eru þeir sem áhuga hafa beðn-
ir að snúa sér til hennar.
Staða dómritara
við Héraðsdóm Norðurlands vestra á Sauð-
árkróki er laus til umsóknar.
Viðkomandi þarf að hafa góða tölvu- og ís-
lenskukunnáttu og heist einhverja bókhalds-
þekkingu.
Umsóknum, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, ber að skila til skrifstofu dóms-
ins á Skagfirðingabraut 21, Sauðárkróki, fyr-
ir 22. febrúar nk.
Sauðárkróki, 12. febrúar 1997.
Halldór Halldórsson,
héraðsdómari.
Heilbrigðieftirlit
Reykjavíkur
Heilbrigðiseftirlit Reykjavlkur annast heilbrigðis-, matvœla-,
mengunar- og umhverfiseftirlit í lögsagnarumdœmi
Reykjavlkurborgar. Heilbrigðiseftirlitið býður upp á krefjandi
starf og áhugaverð viðfangsefni Starfsmenn eru 20 talsins með
fjölbreytta menntun og reynslu að baki Skipulagsbreytingar
innan Heilbrigðiseftirlitsins hafa átt sér stað og var markmiðið
með þeim m.a. að auka enn frekar fjölbreytni menntunar,
reynslu og fœrni starfsmanna i þeim tilgangi að gera
Heilbrigðiseftirlit Reykjavikur hcefara til að starfa í brcyttu
eftirlitsumhverfí nútimans.
HEILBRIGDISFUIITRUI
á heilbrigðissvið
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur óskar eftir að ráða í
starf heilbrigðisfulltrúa á heilbrigðissviði.
Heilbrigðissvið hefur m.a. eftirlit með aðbúnaði og
hollustuháttum í fyrirtækjum og stofnunum sem
veita almenningi þjónustu.
Starfið felst í almennu heilbrigðiseftirliti á
heilbrigðissviði.
Menntunar - og hæfniskröfur
• Háskólapröf I heilbrigðis- og
umhverfiseftirliti, skyldum greinum s.s.
háskólapróf f hjúkrunarfræði, öðrum
heilbrigðisfræðum, náttúrufræðum
eða önnur sambærileg menntun.
• Vera sjálfstæður, hugmyndaríkur og
skipulagður í starfi, hafa góða framkomu og
eiga auðvelt með að tjá sig í töluðu og rituðu
máli.
Nánari upplýsingar veitir Auður Bjarnadóttir
hjá Ráðgarði frá kl. 9-12 I síma 533 1800
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar: “Heilbrigðisfulltrúi”
fyrir 1. mars n.k.
Við ráðningar i störf viija borgaryfirvöld stuðla að því að þau
flokkist ekki í sérstök kvenna- eða karlastörf og hvetja þvi það
kynið sem er i minnihluta í viðkomandi starfsgrein til að sœkja
um.
RÁÐGARÐURhf
SljÚRNUNARCDGREKSIRARRÁÐGJÖF
FurugerSI 5 108 R*yk|«vik Siml 833 1800
Fu: 833 1808 Netfangi rgmldlun8traknat.lt
Halmaalðar http://www.traknat.la/radgardur
VífilfeH ehf. óskar eftir aó ráóa starfsmann
til aó stýra markaósrannsóknum og
vöruþróun mnan fyrirtækisms.
Vífilfell ehf. er framleiöandi Coca-Cola a
íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa um 150
starfsmenn auk öflugs umboösmannanets
sem nær um land allt. Star’fsemin er fjölþætt
og framtíöarmöguleikar miklir.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf.
Meginviðfangsefni eru umsjón með reglu-
bundnum markaðs- og neytendarann-
sóknum, sérstökum rannsóknarverkefnum
og stýringu vöruþróunarverkefna. Einnig
felst í starfinu þátttaka í stefnumótun og
áætlanagerð fyrirtækisins auk samskipta
við höfuðstöðvar Coca-Cola.
Við leitum að einstaklingi með háskóla-
menntun á sviði markaðsrannsókna og
vöruþróunar eða með sambærilega
menntun. Nauðsynlegt er að viðkomandi
hafi mikla reynslu á sviði upplýsinga-
miðlunar og tölvuvinnslu. Góð ensku-
kunnátta er skilyrði. Viðkomandi þarf að
geta hafið störf sem fyrst.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Vífilfells ehf., Stuðlahálsl 1,
110 Reykjavík, merktar „Forstöðumaður markaðsrannsókna og
vöruþróunar" fyrir 28. febrúar n.k. Farið verður með allar umsóknir
sem trúnaöarmál. Öllum umsóknum verður svarað.