Morgunblaðið - 16.02.1997, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.02.1997, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ 22 B SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1997 Laus staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina í Efra-Breiðholti Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfor- stjóra við Heilsugæslustöðina í Efra-Breið- holti. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af störfum í heilsugæslu og við stjórnun. Nán- ari upplýsingar um starfið gefa Pálína Sigur- jónsdóttir, hjúkrunarforstjóri Heilsugæslu- stöðvarinnar í Efra-Breiðholti, í síma 567 0200, og starfsmannastjóri Heilsugæslunnar í Reykjavík, sími 552 2400. Staðan veitist frá 1. apríl nk. eða samkvæmt samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 17. mars nk. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist starfsmannastjóra á þar til gerðum eyðublöðum, sem fást hjá starfsmannahaldi Heilsugæslunnar í Reykja- vík, sendist Heilsugæslunni í Reykjavík. 14. febrúar 1997. Heilsugæslan í Reykjavík, stjórnsýsla, Barónsstíg 47, 101 Reykjavík. Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar Námstjóri Laus er til umsóknar ný staða námstjóra í raungreinum og tölvufræðum við Skólaskrif- stofu Hafnarfjarðar. Starfið felst m.a. í upplýsingasöfnun, grein- ingu.faglegri ráðgjöf, námskeiðahaldi, náms- efniskynningu o.fl. Samtals er um að ræða heilt stöðugildi, en til greina kemur að ráða í hlutastörf, greina- bundið. Ráðning er til tveggja ára og miðast við 1. ágúst nk., en æskilegt er að viðkomandi geti komið til starfa að hluta til fyrr. Næsti yfirmaður námstjóra er deildarstjóri þjónustusviðs Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil, berist skólafulltrúanum í Hafn- arfirði, Strandgötu 31, fyrir 7. mars nk. Nánari upplýsingar veita skólafulltrúi og deildarstjóri þjónustusviðs í síma 555 2340. Skólafulltrúinn í Hafnarfirði. Reykjavíkurhöfn er borgarfyrirtœki sem stjórnar, byggir og rekur höfn og hafnarsvœði innan lögsagnarumdœmis Reykjavfkur. Reykjavikurhöfn er helstaflutningahöfn landsins og á hafnarsvœóunum erfjöldifyrirtœkja, sem starfa að vöruflutningum, sjávarútvegi, iðnaði og þjónustu. Starfsmenn Reykjavíkurhafnar eru 60 og starfa ífjórum deildum. Lausar eru til umsóknar tvœr stöður f tœknideild Reykjavíkurhafnar. Megin verkefni tœknideildar eru: Vinna að skipulagi hafnarsvœða f samrœmi við þarfir hafnscekinnar starfsemi. Yfirumsjón með hönnun mannvirkja feigu hafnarsjóðs. Stjórna byggingu, breytingu og viðhaldi mannvirkja feigu hafnarinnar. Áœtlanir um uppbyggingu hafnarsvœða og hafnarmannvirkja. STJÚRN HÖNNUNAR OG VERKÁÆTLANA Starfs- og ábyrgðarsvið Starfið felst í að stýra og hafa umsjón með hönnun mannvirkja hafnarinnar ásamt samskiptum við verkfræðistofur og ráðgjafa. Um er að ræða alhliða verkefni á sviði landmótunar, hafnargerðar og byggingu gatna og holræsa á hafnarsvæðum. Helstu verksvið eru hönnunarforsögn, stjórn hönnunar, gerð útboðsgagna, kostnaðaráætlana og verkáætlana. Menntunar- og hæfniskröfur • Byggingarverkfræði eða byggingatæknifræði. • Haldgóð hönnunarreynsla. • Góð tölvukunnátta ásamt haldgóðri þekkingu á þessu fagsviði. UMSJÓN OG OPPRYGGING TÆKNIGAGNA Starfs- og ábyrgðarsvið Starfið felst I uppbyggingu og umsjón með tæknigögnum Reykjavlkurhafnar svo sem gerð eignaumsýslukerfa fyrir mannvirki og umsjón LUKR kerfis. Ennfremur ýmis verkefni varðandi rannsóknir og hönnunarlegan undirbúning framkvæmda. • Stjórnunarreynsla, t.d. verkefnisstjórnun. • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð. • Vald á erlendum tungumálum. Menntunar- og hæfniskröfur • Byggingarverkfræði eða byggingatæknifræði. • Góð tölvureynsla. Reynsla í notkun Autocad er skilyrði. Þekking og reynsla í meðferð tæknigagna á tölvutæku formi. Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð. Vald á erlendum tungumálum. Nánari upplýsingar um störfin veitirTorfi Markússon hjá Ráðgarði frá kl. 9-12 I síma 533 1800. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs merktar viðkomandi störum fyrir 28. febrúar nk. Athygli er vakin á því að það er stefna borgaryfirvalda að auka hlut kvenna I stjórnunar- og ábyrgðarstörfum á vegum borgarinnar, stofnana hennar og fyrirtækja. RÁÐGARÐURhf SI}ÓRNUNAROGREKSIRARRtoGlCSP Furugertl 5 108 Rayk)a«lk Siml 533 1800 Paxi 833 1808 Natfang: rgmldlunOtraknat.la HalmaalOa: http://www.traknat.la/radgardur \v Fræðslumiðstöð Reykjavíkur auglýsir lausar stöður við grunnskóla Reykjavíkur: Seljaskóli Starfsmann í heilsdagsskóla vantar frá 24. febrúar til 1. apríl. Vinnutími er frá kl. 9.30-17.30. Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar- skólastjóri í síma 557 7411. Æfingaskólinn Stuðningsfulltrúi óskast í hlutastarf með nemanda í 1. bekk tvisvar til þrisvar í viku. Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 563 3950. í Mosfellsbæ búa um 5000 íbúar og eru börn og unglingar fjölmennur aldurshópur. Félagsmálasvið Mosfellsbæjar annast starfsemi á sviði félagsþjónustu, s.s. félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, barnavernd, félagslega heimaþjón- ustu, málefni aldraðra, málefni fatlaðra, félagsleg húsnæðismál, áfengis- varnarmál og vinnumiðlun. Félagsmálasvið sinnir ennfremur sérfræðiþjónustu við grunnskóla á sviði sálfræði- og ráðgjafaþjónustu. Yfirmaður fjölskyldudeildar Auglýst er laus til umsóknar staða yfirmanns fjölskyldudeildar. Yfirmaður fjölskyldudeildar veitir deildinni forstöðu og stjórnar starfseminni í samræmi við samþykktir bæjarstjórnar, fjárhagsáætl- anir, lög og reglugerðir. Hann hefur frum- kvæði um starfsháttu, stjórnar faglegum vinnubrögðum, ber ábyrgð á skráningu mála, annast skýrslugerð og hefur yfirumsjón með þjónustu deildarinnar við grunnskóla bæjar- félagsins. Yfirmaður fjölskyldudeildar er staðgengill félagsmálastjóra í fjarveru hans. Umsækjandi þarf að vera löggildur félagsráð- gjafi með a.m.k. 5 ára starfsreynslu. Hann þarf að hafa þekkingu á gildandi lögum auk staðgóðrar þekkingar á sviði félagsþjónustu, s.s. barnaverndarmálum, framfærslumálum og vinnu með fjölskyldur. Starfið gerir kröfu um frumkvæði, skipulags- hæfileika, hæfni til samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða. Um er að ræða fullt starf. Laun eru skv. kjarasamningi Starfsmannafé- lags Mosfellsbæjar og Launanefndar sveitar- félaga. Félagsráðgjafi við fjölskyldudeild Auglýst er laus til umsóknar staða félagsráð- gjafa við fjölskyldudeild. Starfið er fólgið í þjónustu deildarinnar við grunnskóla bæjarfélagsins. Markmið þjón- ustunnar er að tryggja börnum og ungling- um, er eiga í erfiðleikum, þá þjónustu, sem þörf er á hverju sinni. Umsækjandi þarf að vera löggiltur félagsráð- gjafi með a.m.k. 3 ára starfsreynslu. Hann þarf að hafa reynslu á sviði félagsþjónustu og vinnu með fjölskyldur. Starfið gerir kröfu um frumkvæði, skipulags- hæfileika og hæfni til samvinnu. Um er að ræða hálft starf. Laun eru skv. kjarasamningi Starfsmannafélags Mosfells- bæjar og Launanefndar sveitarfélaga. Umsóknir berist skriflega til Félagsmálasviðs Mosfellsbæjar, Þverholti 3, pósthólf 218, fyrir 4. mars 1997. Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri í síma 566 8666. Félagsmálastjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.