Morgunblaðið - 16.02.1997, Qupperneq 22
MORGUNBLAÐIÐ
22 B SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1997
Laus staða
hjúkrunarforstjóra
við Heilsugæslustöðina
í Efra-Breiðholti
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfor-
stjóra við Heilsugæslustöðina í Efra-Breið-
holti.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af
störfum í heilsugæslu og við stjórnun. Nán-
ari upplýsingar um starfið gefa Pálína Sigur-
jónsdóttir, hjúkrunarforstjóri Heilsugæslu-
stöðvarinnar í Efra-Breiðholti, í síma 567
0200, og starfsmannastjóri Heilsugæslunnar
í Reykjavík, sími 552 2400.
Staðan veitist frá 1. apríl nk. eða samkvæmt
samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 17. mars nk.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist starfsmannastjóra á
þar til gerðum eyðublöðum, sem fást hjá
starfsmannahaldi Heilsugæslunnar í Reykja-
vík, sendist Heilsugæslunni í Reykjavík.
14. febrúar 1997.
Heilsugæslan í Reykjavík,
stjórnsýsla,
Barónsstíg 47, 101 Reykjavík.
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Námstjóri
Laus er til umsóknar ný staða námstjóra í
raungreinum og tölvufræðum við Skólaskrif-
stofu Hafnarfjarðar.
Starfið felst m.a. í upplýsingasöfnun, grein-
ingu.faglegri ráðgjöf, námskeiðahaldi, náms-
efniskynningu o.fl.
Samtals er um að ræða heilt stöðugildi, en
til greina kemur að ráða í hlutastörf, greina-
bundið.
Ráðning er til tveggja ára og miðast við
1. ágúst nk., en æskilegt er að viðkomandi
geti komið til starfa að hluta til fyrr.
Næsti yfirmaður námstjóra er deildarstjóri
þjónustusviðs Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og starfsferil, berist skólafulltrúanum í Hafn-
arfirði, Strandgötu 31, fyrir 7. mars nk.
Nánari upplýsingar veita skólafulltrúi og
deildarstjóri þjónustusviðs í síma 555 2340.
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði.
Reykjavíkurhöfn er borgarfyrirtœki sem stjórnar, byggir og rekur höfn og hafnarsvœði innan
lögsagnarumdœmis Reykjavfkur. Reykjavikurhöfn er helstaflutningahöfn landsins og á hafnarsvœóunum
erfjöldifyrirtœkja, sem starfa að vöruflutningum, sjávarútvegi, iðnaði og þjónustu. Starfsmenn
Reykjavíkurhafnar eru 60 og starfa ífjórum deildum.
Lausar eru til umsóknar tvœr stöður f tœknideild Reykjavíkurhafnar. Megin verkefni tœknideildar eru:
Vinna að skipulagi hafnarsvœða f samrœmi við þarfir hafnscekinnar starfsemi. Yfirumsjón með hönnun
mannvirkja feigu hafnarsjóðs. Stjórna byggingu, breytingu og viðhaldi mannvirkja feigu hafnarinnar.
Áœtlanir um uppbyggingu hafnarsvœða og hafnarmannvirkja.
STJÚRN HÖNNUNAR OG VERKÁÆTLANA
Starfs- og ábyrgðarsvið
Starfið felst í að stýra og hafa umsjón með hönnun mannvirkja hafnarinnar ásamt samskiptum við
verkfræðistofur og ráðgjafa. Um er að ræða alhliða verkefni á sviði landmótunar, hafnargerðar og
byggingu gatna og holræsa á hafnarsvæðum.
Helstu verksvið eru hönnunarforsögn, stjórn hönnunar, gerð útboðsgagna, kostnaðaráætlana og
verkáætlana.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Byggingarverkfræði eða
byggingatæknifræði.
• Haldgóð hönnunarreynsla.
• Góð tölvukunnátta ásamt haldgóðri
þekkingu á þessu fagsviði.
UMSJÓN OG OPPRYGGING TÆKNIGAGNA
Starfs- og ábyrgðarsvið
Starfið felst I uppbyggingu og umsjón með tæknigögnum Reykjavlkurhafnar svo sem gerð
eignaumsýslukerfa fyrir mannvirki og umsjón LUKR kerfis. Ennfremur ýmis verkefni varðandi
rannsóknir og hönnunarlegan undirbúning framkvæmda.
• Stjórnunarreynsla, t.d. verkefnisstjórnun.
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð
vinnubrögð.
• Vald á erlendum tungumálum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Byggingarverkfræði eða
byggingatæknifræði.
• Góð tölvureynsla. Reynsla í notkun
Autocad er skilyrði.
Þekking og reynsla í meðferð tæknigagna á
tölvutæku formi.
Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð
vinnubrögð.
Vald á erlendum tungumálum.
Nánari upplýsingar um störfin veitirTorfi Markússon hjá Ráðgarði frá kl. 9-12 I síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs merktar viðkomandi störum fyrir 28. febrúar nk.
Athygli er vakin á því að það er stefna borgaryfirvalda að auka hlut kvenna I stjórnunar- og
ábyrgðarstörfum á vegum borgarinnar, stofnana hennar og fyrirtækja.
RÁÐGARÐURhf
SI}ÓRNUNAROGREKSIRARRtoGlCSP
Furugertl 5 108 Rayk)a«lk Siml 533 1800
Paxi 833 1808 Natfang: rgmldlunOtraknat.la
HalmaalOa: http://www.traknat.la/radgardur
\v
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur
auglýsir lausar stöður
við grunnskóla Reykjavíkur:
Seljaskóli
Starfsmann í heilsdagsskóla vantar frá
24. febrúar til 1. apríl.
Vinnutími er frá kl. 9.30-17.30.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar-
skólastjóri í síma 557 7411.
Æfingaskólinn
Stuðningsfulltrúi óskast í hlutastarf með
nemanda í 1. bekk tvisvar til þrisvar í viku.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 563 3950.
í Mosfellsbæ búa um 5000 íbúar og eru börn og unglingar fjölmennur
aldurshópur.
Félagsmálasvið Mosfellsbæjar annast starfsemi á sviði félagsþjónustu,
s.s. félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, barnavernd, félagslega heimaþjón-
ustu, málefni aldraðra, málefni fatlaðra, félagsleg húsnæðismál, áfengis-
varnarmál og vinnumiðlun.
Félagsmálasvið sinnir ennfremur sérfræðiþjónustu við grunnskóla á sviði
sálfræði- og ráðgjafaþjónustu.
Yfirmaður
fjölskyldudeildar
Auglýst er laus til umsóknar staða yfirmanns
fjölskyldudeildar.
Yfirmaður fjölskyldudeildar veitir deildinni
forstöðu og stjórnar starfseminni í samræmi
við samþykktir bæjarstjórnar, fjárhagsáætl-
anir, lög og reglugerðir. Hann hefur frum-
kvæði um starfsháttu, stjórnar faglegum
vinnubrögðum, ber ábyrgð á skráningu mála,
annast skýrslugerð og hefur yfirumsjón með
þjónustu deildarinnar við grunnskóla bæjar-
félagsins.
Yfirmaður fjölskyldudeildar er staðgengill
félagsmálastjóra í fjarveru hans.
Umsækjandi þarf að vera löggildur félagsráð-
gjafi með a.m.k. 5 ára starfsreynslu. Hann
þarf að hafa þekkingu á gildandi lögum auk
staðgóðrar þekkingar á sviði félagsþjónustu,
s.s. barnaverndarmálum, framfærslumálum
og vinnu með fjölskyldur.
Starfið gerir kröfu um frumkvæði, skipulags-
hæfileika, hæfni til samvinnu og sjálfstæðra
vinnubragða.
Um er að ræða fullt starf.
Laun eru skv. kjarasamningi Starfsmannafé-
lags Mosfellsbæjar og Launanefndar sveitar-
félaga.
Félagsráðgjafi
við fjölskyldudeild
Auglýst er laus til umsóknar staða félagsráð-
gjafa við fjölskyldudeild.
Starfið er fólgið í þjónustu deildarinnar við
grunnskóla bæjarfélagsins. Markmið þjón-
ustunnar er að tryggja börnum og ungling-
um, er eiga í erfiðleikum, þá þjónustu, sem
þörf er á hverju sinni.
Umsækjandi þarf að vera löggiltur félagsráð-
gjafi með a.m.k. 3 ára starfsreynslu. Hann
þarf að hafa reynslu á sviði félagsþjónustu
og vinnu með fjölskyldur.
Starfið gerir kröfu um frumkvæði, skipulags-
hæfileika og hæfni til samvinnu.
Um er að ræða hálft starf. Laun eru skv.
kjarasamningi Starfsmannafélags Mosfells-
bæjar og Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknir berist skriflega til Félagsmálasviðs
Mosfellsbæjar, Þverholti 3, pósthólf 218,
fyrir 4. mars 1997.
Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri
í síma 566 8666.
Félagsmálastjóri.