Morgunblaðið - 21.02.1997, Page 60
z/í/.
qnœrmL
qrein
MBmHHAW
0BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
JieWiiM
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVtK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Kjaraviðræður á
afar viðkvæmu stigi
Hvítu inn-
siglingar-
ljósin dóu
Grindavík. Morgunblaðið.
í GÆR slógu út hvítu innsiglingar-
ljósin í Grindavíkurhöfn og þegar
Morgunblaðið fór í prentun í nótt
var enn ekki búið að koma þeim í
lag, en talið var að rafmagnskapall
hefði farið í sundur. Hvítu innsigl-
ingarljósin eru þau ljós sem skipin
koma fyrst inn í. Það að hvítu inn-
siglingarljósin detta út þýðir að
stærri skip eins og loðnuskipin, sem
núna eru að fara inn og út úr höfn-
inni, komast ekki leiðar sinnar.
Minni bátar, sérstaklega heimabát-
arnir, gátu farið innsiglinguna í
gærkvöldi vegna þekkingar skip-
stjóranna. Reiknað var með að ljós-
in yrðu komin á með morgninum.
VIÐRÆÐUR milli samninganefnda
einstakra landssambanda ASÍ og
vinnuveitenda héldu áfram í allan
gærdag hjá ríkissáttasemjara. Enginn
áþreifanlegur árangur varð af viðræð-
unum, en skv. heimildum Morgun-
blaðsins vörpuðu vinnuveitendur þó
fram nýjum hugmyndum í gær, sem
farið verður nánar yfir á fundum
deiluaðila í dag. Staðan í kjaramál-
unum er sögð mjög viðkvæm nú.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, segist eiga von á
að í ljós komi í dag hvort grunnur
sé að skapast að viðræðum sem geti
miðað í samkomulagsátt. Grétar Þor-
steinsson, forseti ASÍ, vildi ekki ann-
að segja um stöðu mála í gærkvöldi
en að viðræður héldu áfram í dag.
Aðgerðir undirbúnar
Næstkomandi þriðjudag rennur út
sá frestur sem landssambandsfor-
mennirnir settu þegar kröfugerðin
var kynnt en þá munu þeir taka sam-
eiginlega ákvörðun um undirbúning
aðgerða til að fylgja kjarastefnunni
eftir ef ekkert hefur miðað í sam-
komulagsátt. Undirbúningur fyrir
ákvarðanir um hugsanlegar verk-
fallsaðgerðir er þegar hafinn, m.a.
með útgáfu fréttabréfs til aðiidarfé-
laga ASÍ, þar sem íjallað er um frá-
gang kjörskráa og tilhögun atkvæða-
greiðslna um vinnustöðvanir. Þá ætla
formenn landssambandanna að fara
yfir stöðu kjaraviðræðnanna og ræða
undirbúning hugsanlegra aðgerða á
formannafundi sem haldinn verður
fyrir hádegi í dag.
Guðmundur Gunnarsson, formað-
ur Rafiðnaðarsambandsins, segir að
annað hljóð hafí verið í fulltrúum
vinnuveitenda á fundunum í gær og
nokkur hreyfing komist á viðræðurn-
ar og því hafi verið ákveðið að hitt-
ast á ný í dag.
Öm Friðriksson, formaður Sam-
iðnar, sagði að búast mætti við að
svör bærust frá ríkisstjórninni öðru
hvorum megin við helgina.
Borgin
íliugar að
kæra ESA
ALFREÐ Þorsteinsson, for-
maður stjórnar veitustofnana,
sagði á fundi borgarstjórnar í
gærkvöldi að borgaryfirvöld
íhuguðu að kæra vinnubrögð
Eftirlitsstofnunar EFTA og
áskilja sér rétt til skaðabóta
vegna athugasemda frá stofn-
uninni um að ákvæði um
ígildisviðskipti í útboðsgögnum
Hitaveitu Reykjavíkur í útboði
á hverfilssamstæðu fyrir
Nesjavallavirkjun stæðist ekki
ákvæði EES-samningsins.
Alfreð sagði að allt frá því
að eftirlitsnefndin gerði fyrst
athugasemd við fyrirhugað
útboð hefðu ekki fengist skýr
svör um það á hvern hátt
ákvæði um ígildisviðskipti
gengju gegn EES-samningn-
um. Sagði hann að horfið hefði
verið frá því að hafa ígildis-
þáttinn í útboðinu, að ráði
fjármálaráðuneytisins, en tal-
ið hefði verið of áhættusamt
að fella þann þátt inn í útboð-
ið vegna tilmæla ESA.
Hagsmunir skertir
Að mati Alfreðs hafa hags-
munir Reykjavíkurborgar ver-
ið skertir vegna atbeina ESA
í málinu og sökum tímaskorts
hafi borgin neyðst til að taka
ígildisþátt útboðsins út.
Alfreð skýrði frá því að
stofnunin hygðist senda for-
sendur sínar skriflega að
nokkrum vikum liðnum. Sagði
hann að ef svörin sem fengj-
ust þá yrðu jafnloðin og þau
sem þegar hefðu verið send
væri einsýnt að Reykjavíkur-
borg myndi kæra vinnubrögð
ESA og áskilja sér rétt til
skaðabóta.
Tveir borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins gagnrýndu
meirihluta R-lista fyrir að hafa
við undirbúning útboðs fullyrt
að kannað hafi verið til hlítar
að ekkert stæði í vegi fyrir
ígildisviðskiptum. Sögðu þeir
að fljótt hafi vaknað sterkar
efasemdir um ígildisþáttinn
sem meirihlutinn hafi látið sem
vind um eyru þjóta.
Morgunblaðið/Golli
ÆTTINGJAR og vinir Halldórs brostu breitt í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gær og Halldór var einnig kátur.
*
Halldór B. Oskarsson hjarta- og
lungnaþegi kominn til Islands
Gott að vera loks
kominn heim
HALLDÓR B. Óskarsson, iijarta-
og lungnaþegi, kom heim frá
Gautaborg í gær eftir 15 mánaða
og 10 daga útiveru. Hann fékk
höfðinglegar móttökur frá ætt-
ingjum og vinum. Halldór var
ánægður með móttökurnar og
sagði að það væri gott að vera
kominn heim.
Halldór fór í aðgerð í október
eftir að hafa beðið ytra í 11 mán-
uði. Hann sagði að þessi biðtími
hefði verið erfiður. Aðgerðin
hefði gengið vel og batinn hefði
verið jafn og góður.
„Eg hef farið reglulega í próf
þar sem m.a. er athugað hvort
eitthvað beri á höfnun í lungum
eða hjarta. Höfnunin er mæld á
kvarða sem er frá 0-4. Ég hef allt-
af mælst með núll höfnun, þannig
að það gæti ekki verið betra.“
Halldór sagði að nú tæki við
að byggja upp þrek svo hann
gæti tekist á við þau verkefni sem
biðu hans. Hann sagðist staðráð-
inn í að fara í skóla í haust, en
nám hefur orðið að sitja á hakan-
um.
Halldór, sem er frá Krossi í
Lundarreykjadal, fæddist með
hjartagalla og var sendur á fyrsta
ári í hjartaaðgerð til London.
Aðgerðin tókst vel, en hún var
hins vegar gerð fullseint, því
hjartagallinn náði að vinna
skemmdir á lungunum, sem ágerð-
ust eftir því sem árin liðu.
Hæstiréttur dæmir stúlku bætur vegna slyss í leikfimitíma
Mismunun eftir kyn-
ferði brot á stjórnarskrá
HÆSTIRÉTTUR dæmdi ríkið í
gær bótaskylt gagnvart stúlku,
sem hlaut 10% örorku eftir að hún
fótbrotnaði í leikfimitíma í grunn-
skóla Njarðvíkur árið 1985, þegar
hún var 13 ára. Samkvæmt dómin-
um á að meta bætur til hennar á
sama grunni og ef hún hefði verið
piltur og er það breyting frá þeirri
venju sem tíðkast hefur í dóms-
málum hér á landi.
í dóminum kemur fram að yfir-
völd skólans hafi ekki uppfyllt
skyldur sínar um upplýsingaöflun
vegna slyssins og að leikfimikenn-
ari hefði átt að vera nærstaddur
og koma í veg fyrir að slys yrði.
„Mismunun um áætlun fram-
tíðartekna, þegar engar skýrar
vísbendingar liggja fyrir um tjón-
þola sjálfan, verður ekki réttlætt
með skírskotun til meðaltals-
reikninga.“
Konur og karlar njóti jafns
réttar í hvívetna
„í 65. grein stjórnarskrárinnar
er boðið, að allir skuli vera jafnir
fyrir lögum og konur og karlar
njóta jafns réttar í hvívetna,“ seg-
ir í dóminum. Síðar segir að þótt
útreikningar sýni að meðaltekjur
kvenna hafi almennt verið lægri
en karla, geti það ekki ráðið úr-
slitum, þegar til framtíðar er litið.
Hæstiréttur telur að yfirvöld
skólans hafi ekki hlutast til um
að halda til haga glöggum upplýs-
ingum um aðstæður þegar slysið
varð og vitneskju um það, sem
gerst hafði og lætur Hæstiréttur
ríkið bera halla af skorti á upplýs-
ingum. „Leiðir það af þeirri ríku
ábyrgð, sem hvílir á stjórnendum
grunnskóla, en þeim ber að
hyggja sérstaklega að velferð
nemenda í einu og öllu,“ segir í
dóminum,
Stúlkunni, sem nú er 24 ára,
voru dæmdar 1.539 þúsund krónur
í bætur með vöxtum frá árinu
1990.
■ Nærvera kennara/4