Morgunblaðið - 26.02.1997, Side 1
72 SIÐUR B/C/D
47. TBL. 85. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBIAÐSINS
Forseti S-Kóreu biðst af-
sökunar á spillingarmáli
Seoul. Reuter.
KIM Young-sam, forseti Suður-Kóreu, reyndi í
gær að styrkja stöðu sína með áhrifamiklu sjón-
varpsávarpi þar sem hann baðst afsökunar á spiil-
ingarmáli sem hefur tröllriðið stjórnmálum iands-
ins síðustu vikur. Hann kvaðst skammast sín
fyrir að sonur hans skyldi vera viðriðinn málið
og ætla að banna honum að gegna opinberum
embættum.
Forsetinn flutti 18 mínútna ávarp í tilefni þess
að fjögur ár eru liðin frá því hann tók við forseta-
embættinu. Hann kvaðst hafa liðið „sálarkvalir"
vegna spillingarmálsins sem snýst um vafasamar
lánveitingar til stórfyrirtækisins Hanbo Steel er
safnaði geysimiklum skuldum þar til það varð
gjaldþrota 23. janúar. Þrír af nánustu samstarfs-
mönnum forsetans hafa verið handteknir vegna
málsins og sakaðir um að hafa þegið mútur.
Bannar syni sínum
að gegna embættum
„Sem forseti landsins biðst ég innilega afsökun-
ar vegna þessa máls,“ sagði Kim og virtist iðrun-
in og auðmýktin uppmáluð.
Formaður stjórnarflokksins, Lee Hong-koo, og
fleiri aldnir áhrifamenn í flokknum sögðu af sér
í gær. Búist var við að allir ráðherrarnir myndu
einnig bjóðast til að segja af sér til að forsetinn
fengi frjálsar hendur við uppstokkun á stjórninni.
Kim, sem barðist áður gegn herforingjastjórn-
unum í Suður-Kóreu, lofaði að stemma stigu við
spiliingu í stjórnkerfinu þegar hann komst til
valda en hvert spillingarmálið á fætur öðru hefur
grafið undan stjórn hans. Viðbrögð almennings
við auðmjúkri afsökunarbeiðni hans voru blendin.
Nokkrir sögðust hafa samúð með Kim en aðrir
sögðust ekki geta fyrirgefið honum.
Stjórnarandstaðan var einnig óánægð. Hún
hefur sakað stjórnina um að hafa hylmt yfir með
spilltum stjórnmálamönnum og krafðist þess í gær
að óháðum lögmönnum yrði falið að rannsaka
málið.
Saksóknarar yfirheyrðu næstelsta son forset-
ans, Hyun-chul, sem er 38 ára, um helgina og
hreinsuðu hann af ásökunum um mútuþægni.
Kim kvaðst þó ætla að banna syni sínum að gegna
opinberum embættum þar til kjörtímabilinu lýkur
í febrúar á næsta ári. Hyun-chul sagði síðar að
hann myndi segja af sér öllum embættunum og
fregnir hermdu að hann hygðist dvelja í útlöndum
næstu mánuðina.
Frjálsar
veiðar
Ósló. Morgunblaðið.
NORSKA sjávarútvegsráðuneytið
ákvað í gær að auka hámarks-
þorskkvóta fyrir báta og skip undir
28 metrum að lengd um helming. {
því felst að bátaveiðar við strendur
Noregs verða gefnar fijálsar það
sem eftir er kvótaársins.
Kvóti báta eykst um 50%
Ástæða þess að skipakvótinn er
aukinn um 50% er að mikið er eftir
óveitt af leyfilegum heildarkvóta
veiðiársins.
Nýju kvótarnir hljóða upp á 54,6
tonn fyrir báta undir 7 metrum, upp
í 796,7 tonn fyrir skip sem eru
27-28 metrar. Aukningin þýðir að
kvóti 14 metra báts eykst úr 188
tonnum í 282,3 tonn og kvóti 24
metra skips eykst úr 512,3 tonnum
í 769,4 tonn af þorski.
Vilja einkavæða
neðanjarðar-
lestir Lundúna
Lundúnum. Reuter.
BRESKA stjórnin kvaðst í gær vilja
einkavæða neðanjarðarlestakerfi
Lundúna, sem er hið elsta í heimin-
um.
George Young samgönguráð-
herra sagði í viðtali við BBC-útvarp-
ið að hann myndi kynna áform
stjórnarinnar í ræðu á þinginu en
bætti við að hann teldi að framtíð
lestakerfisins yrði í „einkageiran-
um“.
Tillagan um sölu lestakerfisins
verður mikilvægur liður í stefnuskrá
íhaldsflokksins vegna komandi
þingkosninga, sem eiga að fara
fram ekki síðar en 22. maí. Áður
hefur stjórn flokksins selt ýmis rík-
isfyrirtæki, svo sem síma-, kola- og
stálfyrirtæki og raf-, gas- og vatns-
veitur.
Kvartað yfir fjárskorti
Hluti neðanjarðarlestakerfisins í
Lundúnum er frá árinu 1865. I því
eru 248 stöðvar og lestarnar flytja
um 2,7 milljónir manna á dag.
Young sagði að með einkavæð-
ingunni fengist meira fé í lestakerf-
ið og því yrði hægt að skipuleggja
uppbyggingu þess til lengri tíma.
Lestakerfið þyrfti þá ekki að keppa
um fé við aðrar greinar eins og
heilbrigðisþjónustuna og skólana.
Stjórnendur lestakerfisins kvört-
uðu yfir því í vikunni sem leið að
það hefði ekki fengið nægilegt fé
frá ríkinu og nefndu hundruð við-
gerða- og uppbyggingarverkefna
sem þurft hefði að fresta af þeim
sökum. Þeir sögðu framlag ríkisins
á næstu þremur árum verða 700
milljónum punda, jafnvirði 30 millj-
arða króna, minna en þeir hefðu
búist við.
Young neitaði því hins vegar að
framlögin til lestakerfisins hefðu
verið pinnkuð í fjárlögum næsta
árs. „Ég tel að það sem við höfum
í huga verði mjög vinsælt meðal
kjósenda og farþeganna þar sem
það bætir almenningssamgöngurn-
ar hér í Lundúnum," sagði hann.
Mótmæli í
Frakklandi
ÓLÖGLEGIR franskir innflylj-
endur héldu áfram mótmæla-
svelti í borginni Lille í norður-
hluta landsins í gær. Krefjast
þeir áframhaldandi landvistar-
leyfis og notuðu jafnframt tæki-
færið og mótmæltu umdeildu
lagafrumvarpi um útlendingaeft-
irlit, sem kom til lokaumræðu á
franska þinginu í gær. Um 30.000
manns mótmæltu daglangt við
þinghúsið og þingmönnum voru
afhentar undirskriftir 55.000
manna sem vilja frumvarpið
dregið til baka.
■ Hvetur til baráttu/18
Reutcr
JIANG Zemin þerrar tárin við lestur lofgjarðar um Deng Xiaoping í Peking í gær.
Reuter
Jiang heitir áfram-
haldandi umbótum
Pcking. Reutcr.
JIANG Zemin, forseti Kína, sagði
að áframhaldandi efnahagsumbætur
í anda Dengs Xiaopings, drottnara
Kína, myndu móta framtíð landsins.
Komst hann svo að orði í ræðu, sem
hann flutti við minningarathöfn um
Deng í Höll alþýðunnar í Peking í
gær. Grét hann oft með leikrænum
tilþrifum við lestur lofgjarðar um
leiðtogann látna.
„Kínverska þjóðin ann félaga
Deng Xiaoping, hún er honum þakk-
lát, syrgir hann og varðveitir minn-
ingu hans,“ sagði Jiang. Hann ítrek-
aði að stjórnvöld myndu starfa áfram
í anda Dengs og koma á sósíalískri
endurnýjun með áframhaldandi
efnahagsumbótum.
Utan hallarveggja reyndi almúga-
fólk að leggja blóm að minnisvarða
um alþýðuhetjur Kína á Torgi hins
himneska friðar en gífurlega öflugur
lögregluvörður við torgið hindraði
það. Var Torgið rýmt í dögun í gær
og hafður við það strangur vörður
en staðurinn er táknrænn fyrir sorg
og gremju vegna harðræðis komm-
únistastjórnarinnar, ekki síst í fram-
haldi af atburðunum í júní 1989 er
yfirvöld, með Deng í fararbroddi,
siguðu alþýðuhernum á friðsöm
mótmæli lýðræðissinna svo að mikið
blóðbað hlaust af.
Jiang notaði minningarathöfnina
til að minna þjóð sína á hver væri
forseti, formaður kommúnista-
flokksins og yfirmaður heraflans. Á
stórum borða sem hékk framan á
svölum alþýðuhallarinnar stóð: „Lát-
ið óuppfyiltar óskir Dengs rætast
undir leiðsögn flokksins með Jiang
Zemin við stýrið."
Sprengj utilræði
Einn maður beið bana og að
minnsta kosti 60 særðust í sprengju-
tilræðum í kínversku borginni Ur-
umqi í gær. Urumqi er höfuðstaður
héraðsins Xinjiang, þar sem múslim-
ar eru í meirihluta. Embættismenn
sögðu að klofningshópur úr röðum
aðskilnaðarsinna í héraðinu hefðu
verið að verki til að varpa skugga á
minningarathöfnina um Deng Xiao-
ping í Peking í gær.
■ Deng Xiaoping/16