Morgunblaðið - 26.02.1997, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ný lyfjameðferð við alnæmi hefur borið mjög góðan árangur
Meðferðin gefur von um
endanlega lækningu
Morgunblaðið/Ásdfs
ÓLAFUR Ólafsson landlæknir leggnr áherslu á að forvarna-
starfi gegn alnæmi verði haldið áfram. Honum á hægri hönd
situr Sigurður B. Þorsteinsson smitsjúkdómalæknir, en til vinstri
við landlækni sitja Sigurður Guðmundsson aðstoðarlandlæknir
og Haraldur Briem smitsjúkdómalæknir.
NÝR lyfjahópur sem notaður hefur
verið í meðferð við alnæmi undan-
farin tvö ár ásamt eldri lyfjahópi
hefur gefið mjög góðan árangur og
telja læknar það gefa ákveðna von
um að endanleg lækning hafí feng-
ist gegn alnæmi. Lyfin í þessum
nýja lyfjahópi bera heitið proteasa-
hemlar og verða til þess að alnæm-
isveiran hættir að fjölga sér.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi hjá Landlæknisembættinu í
gær þegar hin nýja lyfjameðferð
var kynnt.
Að sögn Sigurðar Guðmundsson-
ar, smitsjúkdómalæknis og aðstoð-
arlandlæknis, hefur þessi nýja með-
ferð borið mun meiri árangur en
fyrri meðferðir og í þeim tilvikum
sem árangur hennar hefur verið
hvað mestur hefur ekki lengur ver-
ið hægt að mæla ónæmisveiruna í
blóði sjúklingsins. „Þetta þýðir að
ónæmiskerfi sjúklingsins nær sér
að einhveiju leyti og að einkenni
sjúkdómsins hverfa,“ sagði hann.
„Dæmi eru um það hér á landi
að menn sem lágu mjög veikir á
sjúkrahúsi hafi orðið einkennalausir,
hressir og vinnufærir eftir að þeir
fóru að taka inn þessa nýju lyfja-
blöndu,“ sagði hann, en um þijátíu
til íjörutíu alnæmissjúklingar á ís-
landi hafa verið í þessari meðferð
undanfama 13 til 14 mánuði.
Sigurður benti hins vegar á að
hætti sjúklingar að taka inn lyfin
í einhvem tíma komi alnæmisveiran
venjulega í ljós aftur. En það gefi
til kynna að veiran liggi í láginni í
öðrum vefjum líkamans þótt ekki
hafi tekist að finna hana. „Aðeins
eitt dæmi er mögulega til um það
að veiran hafi ekki komið í ljós eft-
ir að meðferðinni var hætt, en það
var í átján mánaða gömlu bami sem
smitaðist af alnæmisveirunni í móð-
urkviði."
Haraldur Briem smitsjúkdóma-
læknir benti þó á að þegar væri
farið að bera á ónæmi gegn þessum
nýja lyfjahópi, „en líkurnar á því
að ónæmi komi fram minnka samt
verulega ef hægt er að halda veir-
unni algerlega í skefjum," sagði
hann.
Þá kom fram að verið væri að
vinna að frekari meðferð við alnæmi
og væri enn einn lyfjahópurinn í
sjónmáli. „Ef hann kemur fram á
sjónarsviðið verða líkumar á því að
hægt verði að drepa alnæmisveiruna
enn meiri en nú,“ sagði Sigurður.
Tímamótatilraun í
Bandaríkjunum
Erlendar tilraunir m.a. í Frakklandi
og Bandaríkjunum hafa einnig gef-
ið sömu niðurstöður til kynna. Má
sem dæmi nefna nýja og víðtæka
rannsókn styrkta af Bandarísku
heilbrigðisstofnuninni, en að sögn
bandarískra vísindamanna var ár-
angurinn svo góður að tilraunum
var hætt fyrr en áætlað var, til að
hægt væri að gefa fleirum kost á
því_ að fá lyfjablönduna.
í niðurstöðum kemur fram að
lyfin hafa ekki áhrif á alla alnæmis-
sjúklinga en margir þeirra sýna þó
ótvíræð batamerki og hjá öðrum
hægir á framgangi sjúkdómsins.
Það hefur mest áhrif á þá sem em
nýlega orðnir veikir. í hópi sem var
á venjubundinni lyfjameðferð létust
átján sjúklingar á tilraunatímanum,
hálfu öðm ári, en í samanburðar-
hópnum, sem fékk nýju lyfjablönd-
una, létust átta sjúklingar.
Forstjóri ofnæmis- og smitsjúk-
dómadeildar Bandarísku heilbrigð-
isstofnunarinnar segir að um tíma-
mótatilraun sé að ræða, vegna þess
hversu umfangsmikil hún sé og
hversu ótvíræður árangur hennar
hafi verið.
Leiðtoga
minnst
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra vottaði kínversku þjóðinni
samúð í gær vegna fráfalls
Dengs Xiaoping leiðtoga Kin-
verja með því að rita nafn sitt í
sérstaka bók sem legið hefur
frammi í kínverska sendiráðinu
undanfarna daga. Samkvæmt
upplýsingum sendiráðsins höfðu
fjölmargir komið í sendiráðið síð-
ustu daga til að votta samúð sína,
stjórnmálamenn, embættismenn
og almennir borgarar en í gær
var síðasti dagurinn sem bókin
lá frammi.
Morgunblaðið/Kristinn
Lögregla
vaktaði
fíkniefnahús
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
haft sólarhringsvakt um hús á Vest-
urgötu þar sem talið er víst að fíkni-
efni séu höfð um hönd og grunur
leikur á að fíkniefnaviðskipti fari
fram.
Lögreglan réðst til inngöngu í
húsið á mánudagskvöld að fengnum
húsleitarúrskurði, lagði hald á lítil-
ræði af fíkniefnum og handtók hús-
ráðanda. Frá þeim tíma og þar til
í gærkvöldi var hafður vörður um
húsið en í gær var þeirri vakt af-
létt, að sögn aðalvarðstjóra.
Tilboð í gerð Hágöngumiðlunar opnuð hjá Landsvirkjun í gær
Héraðsverk átti
lægsta tilboð
HÉRAÐSVERK hf. á Egilsstöðum
átti lægsta tilboð í vinnu við gerð
Hágöngumiðlunar þegar þau voru
opnuð í stjómstöð Landsvirkjunar
í gær. Tilboð Héraðsverks hljóðaði
upp á tæpar 490,3 milljónir, sem
er 62,5% af kostnaðaráætlun Verk-
fræðistofu Sigurðar Thoroddsen
upp á 784,1 milljón.
Fjögur tilboð bárust í verkið og
áttu Völur hf. í Reykjavík og Lava
sf. á Keflavíkurflugvelli næstlægsta
tilboð, eða 540 milljónir króna sem
eru 68,9% af kostnaðaráætlun.
Þriðja lægsta tilboð átti Suðurverk
hf. í Reykjavík, 674,3 milljónir, eða
86% af kostnaðaráætlun og hið
fjórða kom frá ístaki hf. í Reykja-
vík, 794,8 milljónir, eða 1,4 pró-
sentustigum yfir kostnaðaráætlun.
Tilboð verða metin og yfírfarin
áður en stjórn Landsvirkjunar tekur
ákvörðun um að hveiju þeirra skuli
gengið. Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdir hefjist í vor og ljúki að
hausti 1998.
Lónið eykur orkugetu um 200
gígavattstundir á ári
Gerð Hágöngumiðlunar fer þann-
ig fram að Kaldakvísl verður stífluð
við Syðri-Hágöngu austanverða og
verður stíflan 400 metra löng og
25 metra há þar sem hún er hæst.
í lægð norðvestan Syðri-Hágöngu
þarf að hlaða aðra en talsvert minni
stíflu. Grafa verður burtu ríflega
160.000 rúmmetra af jarðefnum,
hlaða um 400 þúsund rúmmetra
jarðvegsstíflu og steypa um 2.000
Morgunblaðið/RAX
TILBOÐ í gerð Hágöngumiðlunar voru opnuð í stjórnstöð Lands-
virkjunar í gær. Halldór Jónatansson forstjóri Landsvirkjunar
og Jóhann Már Maríusson aðstoðarforstjóri bera saman bækur
sínar. Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar
er lengst til hægri á myndinni.
rúmmetra samkvæmt upplýsingum
frá Landsvirkjun.
Lónið sem myndast verður um
37 ferkílómetrar að flatarmáli eða
álíka stórt og Mývatn. Miðlunar-
rými er 385 gígalítrar og með til-
komu lónsins eykst geta orkukerfis-
ins um 200 gígavattstundir á ári.
Vatni verður miðlað úr Hágöngu-
lóni um Köldukvísl í Þórisvatn og
þaðan um stöðvar Landsvirkjunar
í Tungnaá og Þjórsá, það er Sig-
öldu, Hrauneyjarfoss, Sultartanga
og Búrfell.
Stephans-
stofa á
Hofsósi
PÁLL Pétursson félagsmála-
ráðherra segir að Stephans-
stofu, sem ætlað er að sinna
samskiptum við Vestur-íslend-
inga og aðra brottflutta lands-
menn og afkomendur þeirra,
væri best að staðsetja á Hofs-
ósi í tengslum við Vesturfara-
safnið sem þar er. Ráðherrann
lýsti stuðningi við hugmyndina
um stofnun Stephansstofu og
sama gerðu aðrir þingmenn
sem til máls tóku við fyrstu
umræðu um málið á Alþingi í
gær.
Þingsályktunartillagan um
Stephansstofu er komin frá
Merði Árnasyni, varaþing-
manni þingflokks jafnaðar-
manna. Nafnið vísar til skálds-
ins og Vestur-íslendingsins
Stephans G. Stephanssonar.
Hugmynd Marðar er sú að
stofan sinni meðal annars
skráningu Vestur-íslendinga
og ýmsum samskiptum við
fyrirtæki og stofnanir í tengsl-
um við málefni brottfluttra
íslendinga.
Stjórn Fiskveiðasjóðs
Samþykkti að
lána Vest-
firskum skel-
fiski
STJÓRN Fiskveiðasjóðs sam-
þykkti í gær lán til Vestfírsks
skelfisks hf. á Flateyri til
kaupa á nýju skipi til kúfisk-
veiða. Áður hafði stjórn
Byggðastofnu n ar samþykkt
fyrirgreiðslu til fyrirtækisins.
Einar Oddur Kristjánsson,
stjórnarmaður Vestfirsks skel-
fisks, sagði að fjármögnun
skipakaupanna væri þar með
tryggð.
Vestfirskur skelfiskur hefur
fest kaup á 450 tonna skipi í
Bandaríkjunum. Gerðar verða
breytingar á skipinu ytra, sem
áætlað er að kosti u.þ.b. 15
milljónir. Skipið sjálft kostar
rúmar 90 milljónir. Það kemur
til landsins með vorinu. Skipið
kemur í stað Æsu sem fórst
á síðasta ári.
Einar Oddur sagði að undir-
búningur skelfiskvinnslu á
Flateyri gengi vel. Hlutafjár-
aukning stæði yfír og gengi
samkvæmt áætlun.
Flugleiðir
krafðar um
hundruð
milljóna
RÉTTARHÖLD hófust á
mánudag í New York í skaða-
bótamáli Freds Pittmans, ann-
ars bamsföður Ernu Eyjólfs-
dóttur, gegn Flugleiðum. Fyr-
irtækið er sakað um að hafa
aðstoðað Ernu við að rjúfa
farbann tveggja dætra hennar
þegar hún fór með þær frá
Flórída til íslands fyrir fímm
árum en þá Iá fyrir að hún
myndi missa forræðið yfir
stúlkunum.
Skaðabótakrafa Pittmans á
hendur Flugleiðum er marg-
þætt og hljóða þijár þeirra upp
á fimm milljónir dollara hver,
eða um 350 milljónir íslenskra
króna. Samkvæmt fréttum
Ríkisútvarpsins í gærkvöldi er
búist við að réttarhöldum ljúki
öðrum hvorum megin við
næstu helgi.