Morgunblaðið - 26.02.1997, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.02.1997, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR EVA Petersen og Ásta Dögg Jónasdóttir við myndirnar sínar. Teiknisamkeppni Ólympíunefndar Islands og menntamálaráðuneytisins V erðlaunamyndirn- ar sendar til Sviss Lögmaður Skífunnar um synjun á kröfu um bann við dreifingu ID4 Eigandi höfund- arréttar ákveð- ur meðferð Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir SONJA Guðnadóttir við mynd sína Sigursæll. VIGNIR Árnason með verð- launin sín; viðurkenningar- skjalið og bókina. Sími 555-1500 Höfum kaupanda að 200-250 fm einbhúsi á Stór- Reykjavíkursvæðinu. Engin skipti. Sumarbústaður Til sölu góður ca 50 fm sumarbústaður í landi Jarðlangsstaða í Borgarfirði. Eignarland hálfur hektari. Verð: Tilboð. KMBH Foldasmári Glæsilegt ca 140 fm nýlegt raðhús á einni hæð. Áhv. ca 5,5 millj. Verð 12,9 millj. Garðabær Stórás Gott ca 200 fm einbhús auk 30 fm bílsk. Mögul. á tveimur íb. Ekkert áhv. Skipti möguleg á 3ja herb. ib. Skipholt Góð ósamþ. einstaklíb. ca 48 fm í fjölb. Verð 2,7 millj. Hafnarfjörður Gunnarssund Til sölu er góð 3ja herb. íb. á jarðh. Breiðvangur Mjög góð 5 herb. ca 112 fm íb. á 2. hæð. Laus fljótl. Verð 8,4 mlllj. Álfaskeið Einbýlishús á tveimur hæðum með hálfum kj., samtals 204 fm. Mikiö endurn. Ath. skipti á Iftilli íb. Reykjavíkurvegur Glæsileg 2ja herb. íb. á 3. hæð. Lítlð áhv. Verð 4,3 millj. Vantar eignir á skrá Fasteignasala, Strandgötu 25, Hfj. Árni Grétar Finnsson, hrl. Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl. ALLS hlutu 27 börn og ungling- ar sérstaka viðurkenningu fyrir myndir sinar í teiknisamkeppni í grunnskólum landsins sem haldin var á vegum Ólympíu- nefndar íslands (Óí) og mennta- málaráðuneytisins síðastliðið haust. Myndirnar sem hlutu við- urkenningu verða sendar áfram í alþjóðakeppni á vegum Al- þjóðaólympíunefndarinnar sem fram fer í Lausanne í Sviss í byijun apríl. Af þessu tilefni var börnun- um og unglingunum boðið í móttöku í menntamálaráðu- neytinu á fimmtudag þar sem þau tóku við viðurkenningar- skjali úr höndum Björns Bjarna- sonar menntamálaráðherra og Ellerts B. Schram formanni ÓI, en auk þess veitti Magnús Hreggviðsson þeim bókagjafir fyrir hönd Fróða hf. Frumkvæðið að þessari teiknisamkeppni kom frá Al- þjóðaólympíunefndinni og er markmið hennar að brúa bilið á milli lista og íþrótta með því að gefa börnum og unglingum tækifæri til þátttöku í skapandi listviðburði. Varð töluvert hissa Um 3.400 börn og unglingar úr flestum grunnskólum lands- ins sendu myndir til keppninnar og munu þau öll fá sent viður- kenningarskjal undirritað af menntamálaráðherra og for- manni Óf fyrir þátttöku sína. Keppt var í þremur aldurs- flokkum, 5 til 8 ára, 9 til 12 ára og 13 til 16 ára og var dómnefnd- in skipuð þeim Þóri Sigurðssyni frá menntamálaráðuneytinu, Þorvaldi Jónssyni fulltrúa mynd- menntakennara og Margréti Bjarnadóttur fulltrúa ÓI. Einn af yngri vinningshöfum teiknisamkeppninnar er Vignir Árnason, sjö ára frá Kársnes- skóla. Hann var að vonum ánægður með viðurkenninguna en sagðist hafa orðið töluvert hissa þegar hann fékk að vita að hann hefði komist í úrslit. „Myndin sem ég teiknaði ber heitið Sigurinn og er af þremur mönnum á verðlaunapalli, ein- um að kasta spjóti og svo áhorf- endum,“ sagði hann yfirvegað- ur þrátt fyrir allt umstangið. Sonja Guðnadóttir, 11 ára nemi í grunnskóla Stokkseyrar, hlaut viðurkenningu fyrir mynd sína Sigursæll, sem er af kraftmiklum fimleikamanni að gera æfingar í hringjum. „Ég byrjaði myndina á því að teikna vöðva og svo þróaðist myndin í framhaldi af því,“ sagði Sonja og fannst frábært að hafa feng- ið verðlaun fyrir. Hún sagðist reyndar ekki fylgjast mikið með fimleikum en æfir fótbolta ein- stöku sinnum. Eva Peterson og Ásta Dögg Jónasdóttir, báðar 15 ára nem- endur úr Langholtsskóla, eru saman í teikningu sem er valn- ámskeið í skólanum. Eva teikn- aði mynd af ólympíueldinum og sagði að það hefði verið það fyrsta sem henni hefði dottið í hug þegar hún fór að hugsa um Ólympíuleikana. Ástu Iangaði hins vegar til að gera eitthvað öðruvísi og fletti myndum í íþróttabókum þar til hún ákvað að teikna mynd af manni keppa í skautahlaupi. Þær áttu hvor- ugar von á því að komast í úr- slit en voru að vonum mjög ánægðar með það. LÖGMAÐUR Skífunnar hf., Sigurð- ur G. Guðjónsson, segir það ákveðin vonbrigði að myndböndum og geisla- diskum með kvikmyndinni Inde- pendence Day var skilað til eigenda verslunarinnar 2001 á Hverfísgötu á föstudag, en nokkrum dögum áður hafði að kröfu Skífunnar verið lagt hald á þessar vörur vegna meintrar ólöglegrar sölu og dreifíngar. Auk þess að myndirnar eru ekki skoðaðar af Kvikmyndaeftirlitinu eins og lög gera ráð fyrir, segir Sigurður að eigendur verslunarinn- ar 2001 hafi brotið gegn samning- um Skífunnar við framleiðanda myndarinnar, Twentieth Century Fox Film Corp., og höfundarrétt- arlögunum. „Twentieth Century Fox á þessa kvikmynd og hefur heimilað fyrirtækjum víða um heim að ákveða að sýna hana í kvik- myndahúsum og gefa hana út. Það er Skífan ein sem getur tekið ákvörðun um hvenær þessi mynd kemur út á íslandi og hún getur ekki komið út á íslandi fyrr en liðn- ir eru sex mánuðir frá því að hún var frumsýnd í kvikmyndahúsi," segir lögmaðurinn og bætir við: „Þetta er ekki það sama og að selja rúsínur eða þvottaefni, hér erum við að fást við verk sem er háð höfundarrétti, þar sem sá sem á höfundarréttinn ákveður hvenær það verður sýnt í kvikmyndahúsi." „Samkvæmt lögum um skoðun kvikmynda og bann við ofbeldis- kvikmyndum er öllum þeim sem framleiða kvikmyndir á íslandi, flytja þær inn, selja eða dreifa kvik- myndum eða myndböndum á ís- landi, skylt að láta skoða myndirnar hjá Kvikmyndaeftirlitinu. Þær myndir sem 2001 hefur til sölu eru ekki skoðaðar, og þess vegna bar samkvæmt lögunum að stöðva dreifíngu þeirra.“ „Lagaskyldan er klár“ Sigurður segir ennfremur að þó að Skífan hafí látið skoða myndina gildi sú skoðun ekki fyrir aðra sem flytja hana inn, Skífan borgi sín skoðunargjöld og aðrir borgi sín. Auk þess sé það ekki einu sinni víst að sú mynd sem eigendur 2001 hafí keypt af umboðsaðilum í Bret- landi sé sama útgáfan og Skífan sendi til skoðunar í Kvikmyndaeftir- litið. „Og lagaskyldan er alveg klár; allir sem flytja inn myndir eiga að senda þær í skoðun.“ Aðspurður um næsta skref Skíf- unnar í málinu segist Sigurður vera að hugsa málið, hann verði að reyna að gæta hagsmuna bæði Skífunnar og Twentieth Century Fox. Krókahraun - Hafnarfirði Nýkomin til sölu 3ja herb. 93,6 fm íbúð á efri hæð. Bílskúr. Suðursvalir. Góður staður. Verð 6,8 millj. Árni Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10, sími 555 0764. Miðvangur 41 - Hafnarfirði Nýkomin til sölu góð 57 fm 2ja herb. íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi. Suðursvalir. Laus strax. Verð 5 millj. Árni Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10, sími 555 0764. Norræn blaðamannaverðlaun Hvatning til að sinna norrænum bókmenntum NORRÆNA bóka- og bókasafnanefnd- in (NORDBOK) hef- ur veitt Jóni Karli Helgasyni blaða- mannaverðlaun sín fyrir árið 1997. Verðlaunin eru í formi ferðastyrks sem nemur 25.000 dönskum krónum og eru veitt fyrir fram- lag í því skyni að auka áhuga á og þekkingu á norræn- um bókmenntum. Verðlaunin eru veitt fyrir blaðagrein, umijöllun, umsögn, ritgerð eða svipað efni, eða greinaflokk um efnið. í greinargerð nefndarinnar segir: „Jón Karl Helgason hefur um árabil sýnt norrænum bók- menntum áhuga og í dagskrám sínum í Ríkisútvarpinu hefur hann á sérfróðan hátt kynnt nor- ræna rithöfunda og verk þeirra frá öllum málsvæðum Norður- landa.“ Jón Karl Helgason sem er dokt- or í samanburðarbókmenntum hefur verið ritstjóri bókmennta- efnis á rás 1 hjá Ríkisútvarpinu en er nú settur dagskrárstjóri. Hann kvaðst ánægður með verð- launin. „Ég hef orðið var við að Norðurlönd eru áhugasöm um ís- lenskar bókmenntir, áhugasamari um okkur en við um þau,“ sagði Jón Karl. Um norrænar bókmenntir sagði hann að helst væri fjallað um þær hérlendis í kringum Norðurlandaráðs- verðlaunin. „Það höfum við gert, einkum í þættinum Aldarlok 1994-96 sem var helgaður nýjum erlendum bókmenntum. Við fylgdumst líka m. a. með Norrænu bók- menntahátíðinni í Norræna húsinu og fylgdum henni vel eftir með viðtölum og öðru efnisagði Jón Karl. „Svona verðlaun eiga að hvetja alla fjöl- miðla til að horfa til Norður- landa.“ Hann sagði að það kæmi af sjálfu sér að horft væri til ensku- mælandi þjóða þar sem sá mark- aður væri svo sterkur. Efla þyrfti norræn samskipti á bókmennta- sviðinu með því að fylgjast með því sem væri að gerast. Hann vildi taka fram að það sem hann hlyti nú viðurkenningu fyrir væri unnið í hópvinnu. Með honum störfuðu Jón Hallur Stefánsson og Jórunn Sigurðardóttir. Einnig vildi hann láta þess getið að þátt- ur Norræna hússins væri mikill við kynningu norrænna bók- mennta og það hefði auðveldað kynningu einstakra höfunda. Jón Karl Helgason tekur við blaðamannverðlaununum í Kaup- mannahöfn í lok maímánaðar. Jón Karl Helgason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.