Morgunblaðið - 26.02.1997, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjar upplýsingar um kalda stríðið
Danmörk
var kjarnorku-
skotmark
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
INNRÁS í Danmörk með kjama-
vopnum var liður í undirbúningi
Varsjárbandalagsins ef til þriðju
heimstyijaldarinnar hefði komið, að
sögn Berlingske Tidende. Þetta
hefur komið í ljós við rannsóknir
Cari-Axell Genzells prófessors við
Kaupmannahafnarháskóla og hefur
hleypt nýju fjöri í umræður um
umsvif Bandaríkjamanna á Græn-
landi og starfsemi friðarhreyfinga.
Genzell hefur farið í gegnum
skjalasöfn í fyrrum Austur-Þýska-
landi og rekist þar á nákvæmar
áætlanir um kjamorkuárás á Dan-
mörku, sem lið í þriðju heimstyrjöld-
inni. Hann segir slíka árás óhugn-
anlega fyrirferðarmikla í áætlunum
Varsjárbandalagsins.
Bent er á að Austur-Þjóðveij ar
muni hafa viljað leggja sig sérstak-
lega fram í slíkri áætlun til að
treysta stöðu sína í augum Sovét-
ríkjanna. Áætlanir um kjarnorku-
innrás í Danmörku vom fastur liður
í heræfingum Varsjárbandalagsins
allt þar til að Sovétríkin leystust
upp.
Fundur Genzells hefur vakið upp
umræður um friðarhreyfingar, sem
kusu einhliða afvopnun Vesturveld-
anna og stefnu Jafnaðarmanna og
Róttæka vinstriflokksins gagnvart
NATO og Bandaríkjunum á síðasta
áratug. Einnig varpar fundurinn
nýju ljósi á umsvif Bandaríkja-
manna á Grænlandi og stöðu þeirra
í varnaijafnvæginu.
Níu landa ferð nýs utanríkisráðherra
Bandaríkjanna lokið
Ekki von stórra
tíðinda í sam-
skiptum við Kína
Peking, Tókýó. Reuter.
FYRSTU utanlandsferð Madeleine
Albright, nýskipaðs utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, lauk í gær
en þá hélt hún frá Kína til Banda-
ríkjanna. í Kína átti hún viðræður
við ráðamenn og kvaðst ánægð með
þær, þótt ekki væri von stórra tíð-
inda í kjölfarið. Norður-Kóreumenn
gagnrýndu í gær ferð Albright til
Suður-Kóreu og Japans, sögðu ráð-
herrann með þessu reyna enn frek-
ar að einangra Norður-Kóreumenn.
Albright átti fundi með Jiang
Zemin, forseta Kína, Li Peng for-
sætisráðherra og Qian Qichen utan-
ríkisráðherra. Á mánudagskvöld
hélt Albright blaðamannafund, þar
sem hún sagðist snortin af hlýlegum
móttökum Kínveija, en hún kom til
landsins skömmu áður en útför
Dengs Xiaopings, leiðtoga þess, fór
fram. Hins vegar sagði Albright að
hvað mannréttinda- og afvopnunar-
mál varðaði, væru lítil merki um
breytingar.
Tekist á um mannréttindamál
Alls heimsótti Albright níu lönd
i Evrópu og Asíu en með því að
ljúka ferðinni í Kína kvaðst ráðherr-
ann vilja undirstrika mikilvægi
landsins á alþjóðavettvangi. Sagði
Albright Kína vera lykilinn að stöð-
ugleika á næstu öld og spáði aukn-
um viðskiptum og samskiptum ríkj-
anna. A1 Gore, varaforseti Banda-
ríkjanna, heimsækir Kína í næsta
mánuði en þá verða afvopnunarmál
til umræðu.
Albright bar lof á Jiang, forseta
Kína, sem kvaðst vilja styrkja sam-
skipti þjóðanna. Hins vegar var
haft eftir mönnum úr fylgdarliði
Albright að hún og Li Peng forsæt-
isráðherra hefðu tekist hressilega á
um mannréttindamál.
Reutcr
Eldur í Mír
GEIMFARAR í rússnesku geim-
stöðinni Mír með grímur fyrir
vitum. Eldur kviknaði í loft-
hreinsitækjum í fyrrakvöld og
logaði í sjö mínútur áður en tókst
að slökkva hann. Vistarverur Mír
fylltust af gufum sem ollu sárind-
um í öndunarfærum. í gær var
hins vegar allt með eðlilegum
hætti um borð í geimstöðinni.
ERLENT
Reuter
ÖLDRUÐ hjón gráta og reyna að leggja blóm til minningar um Deng Xiaoping, leiðtoga Kína,
á Torgi hins himneska friðar í Peking. Lögreglumenn vísuðu þeim kurteislega í burtu þegar
þeir rýmdu torgið í öryggisskyni vegna minningarathafnar um Deng í Alþýðuhöllinni.
Deng Xiaoping skil-
ar af sér góðu búi
Á aðeins hálfum öðrum áratug hef-
ur orðið efnahagsleg bylting í Kína
Peking. Reuter.
MEÐ Deng Xiaoping sjá Kínveijar
á bak höfundi umbótastefnunnar
en eftirmaður hans, hver sem
hann verður, tekur við góðu búi
að mati hagfræðinga. Hagvöxtur
er geysimikill, verðbólga fer
minnkandi, gjaldeyrisforðinn
eykst dag frá degi og gjaldmiðill-
inn er stöðugur.
„Ég er mjög bjartsýnn á horf-
urnar í efnahagsmálum," segir
Lin Qingsong, hagfræðingur við
félagsfræðiakademíuna. „Ástand-
ið er almennt mjög gott.“ Erlend-
ir hagfræðingar eru sammála
þessu mati. „Það hljómar kannski
undarlega en Deng gat ekki kvatt
á betri tíma. Kínverskir leiðtogar
eru á margan hátt öfundsverðir,"
sagði vestrænn hagfræðingur.
Hröð þróun
Það var Deng, sem beindi Kína
út á braut vestræns markaðskerf-
is, en marxisminn var á góðri leið
með að valda efnahagslegu hruni
og viðvarandi hungursneyð í sum-
um hlutum ríkisins. Með hinni
nýju stefnu, sem samþykkt var
1978, var einkaframtakið leyst
úr læðingi og efnahagsþróunin
miðuð við markaðsöflin, framboð
og eftirspurn, í stað stalínískrar
áætlunargerðar.
Enginn sá fyrir hve þróunin
yrði hröð en fyrr en varði var ris-
inn upp fjármálamarkaður með
líflegum verðbréfaviðskiptum og
fram á sjónarsviðið steig ný kyn-
slóð, „rauðu kapitalistarnir", sem
lifa í vellystingum praktuglega.
Hagvöxtur í Kína var 9,7% á síð-
asta ári og verðbólgan, sem hefur
verið erfiðasta viðfangsefnið í öll-
um uppganginum, fór niður í rúm
6% á síðasta ári. Var það betri
árangur en að var stefnt en hún
var 14% 1995.
Ríkisfyrirtækin
þungurbaggi
Kína hefur mikið aðdráttarafl
fyrir erlenda fjárfesta og vestræn
stórfyrirtæki bíða í langri röð eft-
ir að komast að á þessum mark-
aði, sem þenst út með hveiju ári
sem líður. Á þessum sama tíma
hefur gjaldeyrisforðinn vaxið ár
frá ári og er nú um 7.400 milljarð-
ar ísl. kr.
Ekki er þó allt í sómanum í
kínversku efnahagslífi og það eru
ríkisfyrirtækin, sem eru Akkilles-
arhællinn. Þrátt fyrir mikinn hag-
vöxt og hagnað í einkageiranum
eru um 75% 100.000 ríkisfyrir-
tækja rekin með tapi. Á fyrstu
10 mánuðum síðasta árs jókst
hallinn um 45%. Flest eru þessi
fyrirtæki ofmönnuð og ljóst er,
að margra bíður það eitt að vera
lokað.
Þrátt fyrir það munu kínversk
stjórnvöld áreiðanlega fara sér
hægt í óhjákvæmilegri uppstokk-
un í ríkisrekstrinum því að þau
óttast, að gjaldþrot og miklar
uppsagnir geti kynt undir ólgu í
landinu. í Kína er stöðugleikinn
allt að því trúarlegt takmark og
má vafalaust rekja það til um-
brotasamrar sögu þjóðarinnar.
Talið er líklegt, að með dauða
Dengs verði nokkurt hlé á efna-
hagsumbótunum fram til flokks-
þings kommúnistaflokksins í
haust en hagfræðingar benda líka
á það, að Kínveijar séu búnir að
koma sér svo vel fyrir, að þeir
hafi efni á því að fara sér hægt.
Tiit Váhi segir form-
lega af sér embætti
Tallinn. Reuter.
TIIT Váhi, forsætisráðherra Eist-
lands, afhenti Lennart Meri forseta
lausnarbeiðni sína í gær, tveimur
vikum eftir að hann tilkynnti að
hann hygðist segja af sér.
Váhi ákvað að láta af embætti
eftir auðmýkjandi atkvæða-
greiðslu á þinginu fyrr í mánuðin-
um þar sem tillaga um vantraust
á hann var felld naumlega. Hann
sagði ljóst að hann nyti ekki nægi-
legs stuðnings á þinginu til að
geta stjórnað landinu.
Váhi hefur verið við völd í
Eystrasaltsríkinu frá því í byijun
ársins 1995 en stjórn hans missti
meirihluta á þinginu í fyrra. Þrátt
fyrir mikla ólgu og óvissu í stjórn-
málum Eistlands fyrir og eftir
valdatöku Váhis hafa þarlend
stjórnvöld notið virðingar erlendis
vegna viðamikilla efnahagsum-
bóta frá því landið sagði skilið við
Sovétríkin árið 1991.
Tekur Siiman við?
Meri forseti fær nú hálfan mán-
uð til að tilnefna eftirmann Váhis.
Líklegast þykir að Mart Siiman,
leiðtogi einnar af fylkingunum í
flokki Váhis, Samsteypuflokknum,
verði fyrir valinu.
Siiman hefur stjórnað sjón-
varpsstöð í Tallinn og er talinn
njóta mikils stuðnings meðal
stjórnarsinna og stjórnarandstæð-
inga. Hann hefur þegar hafið við-
ræður við leiðtoga flokkanna og
telur sig hafa tryggt sér stuðning
tveggja af hveijum þremur þing-
mönnum.
101 þingmaður á sæti á þinginu
og stjórn Váhis hefur notið stuðn-
ings 41 þingmanns Samsteypu-
flokksins og bandalags lands-
byggðarflokka og fímm eða sex
óflokksbundinna þingmanna. Ekki
er ljóst hvort Siiman hyggst bæta
við flokkum í stjórnina eða láta
nægja að tryggja sér stuðning
þeirra á þinginu.
t
i
I
I
I
►
>
)
I
>
>
I
>
!
t
\
>