Morgunblaðið - 26.02.1997, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 17
Skotárásin í Empire State-byggingunni
Sýndi mótelkvitt-
un til að fá byssu
Melbourne. Reuter.
PALESTÍNUMAÐURINN sem
skaut á ferðamenn í Empire State-
byggingunni á sunnudagskvöld
notaði kvittun frá móteli á Flórída
til að fá nafnskírteini, sem hann
framvísaði þegar hann keypti
byssuna sem hann skaut á fólkið
með, og svo sjálfan sig á eftir.
Einn maður lést og sex særðust í
árásinni.
Ali Abu Kamal bjó á móteli í
Melboume á Flórída í rúman mán-
uð áður en hann lét til skarar
skríða í New York. Framvísaði
hann kvittunum um að hann hefði
herbergi þar á leigu til að fá nafn-
skírteini, sem hann framvísaði er
hann keypti Beretta skambyssu.
Samkvæmt bandarískum lögum
verða menn að hafa dvalið í 90
daga í landinu til að kaupa byss-
ur. Þar sem Kamal hafði aðeins
verið í landinu í þijár vikur, þykir
ljóst að hann hafi logið að yfirvöld-
um eða að eftirlitinu hafi verið
ábótavant. Við byssukaupin var
athugað hvort að hann hefði gerst
brotlegur við lög í Bandaríkjunum
en þar sem svo reyndist ekki vera,
fékk hann byssuna.
Örvinglaður
í fyrstu var talið að stjórnmála-
ástæður hefðu legið að baki skot-
árásinni en eiginkona Kamals seg-
ir hann hafa verið örvinglaðan
mann, þar sem hann hafi verið
svikinn um nær allt fé sitt. Hann
hafi farið til Bandaríkjanna til að
leita fjárfesta fyrir nýtt fyrirtæki
en lent í klóm svikahrappa. Hafi
Kamal ekki séð neina útleið. Þver-
tekur hún fyrir að hann hafi haft
áhuga á stjórnmálum. Starfsmenn
og dvalargestir mótelsins sem
hann dvaldi á, sögðu að svo virtist
sem Kamal hefði ekki verið heill
á geði.
Keuter
ÖRYGGISVÖRÐUR beitir málmleitartæki í leit að vopnum á
86. hæð Empire State-byggingarinnar í New York þar sem ferða-
menn geta notið útsýnisins utandyra. Öryggisgæslan hefur ver-
ið hert til muna i byggingunni eftir skotárásina á sunnudag.
Sinyavsky látinn
París. Reuter.
RÚSSNESKI rithöfundurinn
Andre Sinyavsky, sem afplánaði
sjö ára fangelsisdóm fyrir andóf
í Sovétríkjunum, lést af
völdum krabbameins í
París í gær, 71 árs að
aldri.
„Hann andaðist
heima hjá sér eftir lang-
varandi veikindi," sagði
sonur rithöfundarins,
Iegor Sinyavsky. „Hann
var að ljúka við skáld-
sögu.“
Sinyavsky var hand-
tekinn og sóttur til saka
árið 1965 fyrir „and-
sovésk“ rit og var dæmdur í sjö
ára erfiðisvinnu í Potma-fanga-
búðunum ásamt rithöfundinum
Yuli Daniel. Margir telja að rétt-
arhöldin hafi markað upphaf and-
ófsins í Sovétríkjunum.
Eftir að Sinyavsky var látinn
laus árið 1973 flutti hann til
Frakklands með konu sinni, Marie
Rozanova, og syni
þeirra. Hann varð pró-
fessor í rússneskum
bókmenntum við Sor-
bonne-háskóla og hjón-
in stofnuðu tímaritið
Sintaksis árið 1978.
Sinyavsky fæddist í
Moskvu 8. október
1925 og barðist í síðari
heimsstyrjöldinni.
Hann var aðstoðarpró-
fessor við Heimsbók-
menntastofnun Vís-
indaakademíunnar og skrifaði
fyrstu skáldsöguna, „Fjölleika-
húsið“, árið 1955. Þekktasta rit
hans, skáldsagan „Góða nótt“,
sem var byggð á ævi hans, var
gefin út árið 1984.
Andre Sinyavsky
ERLEIMT
ESB semur við Palestínumenn
YASSER Arafat, leiðtogi Palest-
ínumanna, skrifaði í Brussel á
mánudag undir víðtækan við-
skipta- og samstarfssamning
sjálfstjórnaryfirvalda Palestínu-
manna við Evrópusambandið,
ESB, sem meðal annars felur í
sér niðurfellingu tolla á mörgum
útflutningsafurðum Palestinu-
manna til ESB-landa. Samhliða
undirritun samningsins átti Ara-
fat viðræður við Hans van Mierlo,
utanríkisráðherra Hollands, sem
er nú í forsvari fyrir ráðherra-
ráði ESB, en í gær hitti hann
m.a. Eric Derycke, utanríkisráð-
herra Belgíu, að máli.
„Eg bið um meiri vináttuvott
frá allri Evrópu. Ekki peninga.
Vináttu og s1jórnmálatengsl,“
sagði Arafat að loknum fundinum
í gær.
Undirritun samningsins í
fyrradag fagnaði Arafat sem
mjög mikilvægum lið í því að
styrkja stoðir sjálfstjórnar Pal-
estinumanna. Auk þess að veita
afurðum þeirra greiðari aðgang
að Evrópumarkaðnum kveður
samningurinn á um aukið efna-
hagssamstarf og þróunaraðstoð.
ESB er langstærsti styrktaraðili
palestínsku sjálfstjórnarinnar.
Vilja stofnað-
ild Svíþjóðar
aðEMU
Dómsmál danskra ESB-andstæðinga
Réttarhöld
kunna að frestast
Kaupmannahöfn. Reuter.
RÉTTARHÖLD í dómsmáli, sem
hópur tíu danskra andstæðinga
ESB-aðildar lands síns reka fyrir
hæstarétti Dan-
merkur og áætlað
var að hefjast
myndu í maí
næstkomandi,
kunna að frestast
vegna formsatr-
iða sem lúta að
málarekstrinum.
Lögfræðingur
danskra stjórnvalda gaf þetta í skyn
í gær.
Lögfræðingurinn, Karsten Hag-
en-Sorensen, sagði frestinn, sem
stefnendum hefði verið gefinn til
að skila inn vitnisburði sínum f
málinu, hefði verið framlengdur frá
28. þ.m. til 6. marz. Tæknilegir
örðugleikar yllu töfinni. „Ég veit
ekki hvort þetta muni hafa áhrif á
það hvenær rétt-
arhöldin geta
hafízt,“ sagði
Hagen-Sorensen.
I nóvember
síðastliðnum olli
úrskurður dóms-
yfirvalda ákær-
endahópnum
vonbrigðum með
því að hafna beiðni þeirra þess efn-
is, að trúnaðarskjöl úr stjórnsýsl-
unni fengjust notuð sem sönnunar-
gögn. Önnur beiðni hópsins til að
fá aðgang að opinberum skjölum
er enn í athugun og úrskurðar mun
vera að vænta í næsta mánuði.
ÞRÍR forsvarsmanna bankaráðs
sænska seðlabankans, Riksbank,
vilja að Svíþjóð taki þátt í Efnahags-
og myntbandalagi Evrópu, EMU,
strax frá upphafi. Þremenningarnir,
Kjell-Olof Feldt, formaður bankar-
áðsins, varaformaðurinn Bengt
Westerberg og Johan Gernandt,
skrifuðu í gær grein í Svenska Dag-
bladet, þar sem þeir færa rök fyrir
þessari niðurstöðu sinni.
„Eftir að hafa grannskoðað rökin
í ÉMU-umræðunni er niðurstaða
okkar sú, að Svíþjóð eigi að segja já
við myntbandalaginu núna,“ segir í
niðurlagi greinarinnar.
Þeir segja einnig margt benda til
að EMU-aðild Svíþjóðar muni leiða
til lægra vaxtastigs en ella. Ennfrem-
ur segjast þeir sannfærðir um, að
með því að ákveða að gerast ekki
stofnaðili í EMU væri sænskum
hagsmunum illa þjónað.
þak- og vegg samlokueiningar
þykktir 30-100 mm
polyurethan einangrun
gott einangrunargildi
stál eða ál yfirborðsklæðning
ftjótuppsettar
samþykktar af Rannsóknarstofnun
Byggingariðnaðarins
Smiðjuvegur 4b ■ 200 Kópavogur
S 567 6620 ■ Fax 567 6627