Morgunblaðið - 26.02.1997, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Alam Juppe gagnrýmr landa sína
Hvetur til bar-
áttugegn út-
lendingahatri
París. Morgfunbladið.
ALAIN Juppé, forsætisráðherra
Frakklands, gagnrýnir ianda sína í
forsíðugrein dagblaðsins Le Monde
í gærkvöldi fyrir að gera ekki mun
á löglegum og ólöglegum innflytj-
endum. Þetta gæti skarað eld að
köku öfgamanna til hægri, sem al-
mennt teldu útskúfun útlendinga
lausn helstu vandamála. Juppé
hvatti til baráttu gegn útlendinga-
hatri og bað fólk að skoða með yfir-
veguðum hætti frumvarp um útlend-
inga sem nú er til umræðu í þinginu.
Þingið tók frumvarpið, sem kennt
er við Jean Louis Debré innanríkis-
ráðherra, til annarrar umræðu síð-
degis í gær. Á sama tíma hópuðust
tugir þúsunda andstæðinga frum-
varpsins saman við þinghúsið og
afhentu undirskriftir sem safnað
hefur verið að undanförnu. Ekki var
þó gert ráð fyrir öðrum eins fjölda
og saman kom síðastliðinn laugar-
dag. Þá fóru hátt í 100.000 manns
með friði um París til að andæfa
tillögum Debrés og þúsundir hittust
í öðrum borgum. Um 80 mannúðar-
hreyfingar, stjórnmálaflokkar og
stéttarfélög efndu til mótmælanna
við þingið í gær og andófsfundir
voru í Marseille, Nice og víðar.
Frönsk blöð segja mótmælin við
frumvarpinu ekki síst andsvar við
Front National, flokki Le Pens, yst
á hægri væng stjórnmála í landinu.
Eftir umræddan fund í Vitrolles 9.
febrúar vekur næst athygli aðal-
fundur flokksins í Strassborg í mars-
lok. Sumir fréttaskýrendur telja
mótmælahreyfinguna nú vera horn-
stein „múrs“ fijálslyndra og vinstri-
manna gegn öfgafullum hugmynd-
um Front National, sem beinast
mjög gegn útlendingum.
Sósíalistaflokkurinn og sérstak-
lega aðalritarinn, Alain Jospin, hefur
verið gagnrýndur fyrir linku í um-
ræðu um útlendingafrumvarpið síð-
ustu daga. Þó sögðu talsmenn hans
í gær að skilyrðislausrar afturköllun-
ar frumvarpsins yrði áfram krafíst
í þinginu. Jospin var ekki svo skýr-
mæltur í sjónvarpsviðtali á sunnu-
daginn. Öðru gegnir um flokksbróð-
ur hans og fyrrum forsætisráðherra,
Laurent Fabius, sem tók þátt í mót-
mælum laugardagsins og hélt þrum-
andi ræðu í þinginu í gærkvöldi.
Le Monde spyr hvernig á því
standi að breyta þurfi lögum um
útlendinga í Frakklandi í 10. sinn á
15 árum. Einungis fjórum árum eft-
ir gildistöku laga kenndra við
Pasqua, fyrirrennara Debrés. Ráð-
herrann svarar: Til að ólöglegir inn-
flytjendur verði engir í Frakklandi.
Debré hefur þegar horft bak 1. grein
frumvarps síns. Hún fjallaði um til-
kynningaskyldu gestgjafa til bæjar-
yfirvalda við brottför útlendings.
Mazeaud þakkað
Juppé þakkar Pierre Mazeaud,
formanni laganefndar þingsins, fyrir
breytinguna í grein sinni í Le Monde,
enda reynist meirihluti Frakka fylgj-
andi frumvarpinu að henni gefinni.
Ríki og lögregla eiga samkvæmt
breytingunni að annast skriffinnsku
og framfylgja reglunum. Þetta verð-
ur tekið til umræðu þingsins í dag
og búist er við framhaldi fundanna
um frumvarpið til vikuloka.
Annars er frumvarp Debrés eins
konar framlenging laga Pasqua:
tæknilegir gallar eru slípaðir, þannig
til dæmis að fjölskyldur klofna síð-
ur. Áskilið er hert eftirlit lögreglu
með komu og dvöl útlendinga í
Frakklandi og atvinnu þeirra. Dval-
arleyfi verða ekki framlengd sjálf-
krafa eftir 10 ára dvöl.
ERLENT
Aköll um bann víð
einræktun manna
Roslin, London, Washington. Reuter.
FRÉTTIR af því að vísindamönn-
um í Skotlandi hefði tekizt að ein-
rækta kind hafa hrundið af stað
miklum vangaveltum um ailan
heim um til hvers líftæknin getur
leitt í framtíðinni, og gefið ímynd-
unarafli fólks lausan tauminn, sem
óttast að framkvæmanlegt verði
að einrækta menn.
Vísindamennirnir við líftækni-
rannsóknastofnunina í Roslin í
Skotlandi, sem ræktuðu ána Dolly
úr erfðaefni fullorðinnar kindar,
sögðu einræktun dýra geta komið
mannkyninu að miklu gagni, en
höfnuðu algerlega hugmyndum um
einræktun manna og ítrekuðu, að
þótt tekizt hefði að einrækta kind
væri langt í land með að fyrirsjáan-
legt væri að tæknin væri komin á
það stig að gera einræktun manna
mögulega.
I
Dauðarefs- í
inga krafíst
Morgunblaðið. París.
STÚLKURNAR fjórar, sem
voru myrtar í Boulogne í Frakk-
landi fyrr í mánuðinum, verða
jarðsettar á morgun. Þær voru •
kyrktar eftir að þeim hafði ver- |
ið nauðgað, samkvæmt fyrstu |
niðurstöðum krufningar sem
fram fór síðdegis á mánudag.
Tveir menn, sem grunaðir eru
um ódæðið, játa að hafa barið
tvær stúlknanna hrottalega en
saka hvor annan um morðin.
Efnt var til göngu í Boulogne
í gær til að minnast stúlknanna
og á myndinni undirritar einn i
þátttakendanna áskorun um að
dauðarefsingar verði teknar
upp að nýju í Frakklandi. I
Joseph Rotblat, friðarverðlauna-
hafi Nóbels, lagði í gær til að sett
yrði á stofn alþjóðleg siðferðis-
nefnd sem hefði það hlutverk að
fylgjast með vísindanýjungum.
Rotblat, sem er heimsþekktur fyrir
áratuga baráttu sína gegn kjarn-
orkuvánni, sagðist óttast að fram-
farir í líftækni kynnu að valda
mannkyninu annarri eins hættu
og kjarnorkusprengjan.
87% vilja banna
einræktun
Bandaríska sjónvarpsstöðin ABC
birti í gær skoðanakönnun, þar
sem fram kom að 82 af hundraði
Bandaríkjamanna telja einræktun
manna vera siðferðilega ranga, og
87% sögðust vera þeirrar skoðunar
að banna ætti einræktun manna.
93% sögðust ekki vilja láta rækta
annað eintak af sjálfum sér. Hvað
varðar árangur skozku vísinda-
mannanna reyndust skoðanir mun
skiptari, en 53% viðmælenda sögðu
að leyfa ætti einræktun dýra í
nafni lækningarannsókna.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
skipaði ráðgjafarnefnd bandaríska
ríkisins um líftækni að gera úttekt
á lagalegum og siðferðilegum höft-
um við einræktun innan 90 daga,
einkum með tilliti til afleiðinga
hennar fyrir mannkynið.
Daniel Tarschys, framkvæmda-
stjóri Evrópuráðsins, lýsti því yfir
í gær að nauðsynlegt væri að setja
strangari reglur um líftækni til
þess að koma í veg fyrir að reynt
yrði að einrækta menn.
Lög sem banna einræktun
manna hafa fram að þessu aðeins
verið sett í Bretlandi.
Per Stíg Moller tekur við af Hans Engel sem leiðtogi íhaldsflokksins danska
Nýir vindar með
nýjum foringja
íhaldsflokkurinn danski
neyddist til að skipta um leið-
toga í einu vetfangi eftir ölv-
unarakstur Hans Engells. Sig-
rún Davíðsdóttir rekur hér
feril Per Stig Mollers, arftaka
Engells, og hugsanleg áhrif
mannaskiptanna.
Hvort sem Per Stig Moller, nýskipaður leið-
togi danska íhaldsflokksins, á eftir að hnika
stefnu flokksins til eða ekki þá fer ekki hjá
að hann hefur á sér annan brag en forverinn,
Hans Engell. Hann hefur á sér íhugult yfir-
bragð fræðimannsins, hefur stundað bók-
menntarannsóknir og nýjasta bókin hans er
gagnrýni á óheft fijálslyndi. Hann hafnar
ákveðið öllum spurningum um stefnubreyting-
ar og bendir á að hann hafi tekið þátt í stefnu-
mótun flokksins undanfarin ár ásamt Engell.
En ef marka má fyrstu spor hans sem leið-
toga á hann eftir að leiða flokkinn af festu.
Bókmenntafræðingur úr
stjórnmálamannafjölskyldu
Per Stig Moller er fæddur 1942 og því sex
árum eldri en Engell, sonur stjórnmálahjónanna
Poul (fæddur 1919) og Lis Molier (1918-
1983). Faðirinn var atkvæðamikill í flokknum
á sjöunda áratugnum og fjármálaráðherra
1968-1971. Hann var blaðamaður og ritstjóri
og þegar hann dró sig í hlé frá stjórnmálum
á áttunda áratugnum tók hann til við pólitísk
skrif, meðal annars fyrir Jyllands-Posten og
Berlingske Tidende. Islendingar muna hann
sem harðan andstæðing þeirra í handritamál-
inu, þegar hann skrifaði meðal annars bók um
handritin, sem sonurinn átti þátt í. Lis Moller
var einnig blaða- og stjómmálamaður og sat
á þingi um árabil. Föðurbróðir Per Stig Moll-
ers, Aksel Moller (1906-1958), var atkvæða-
mikill og skörulegur stjómmála-
maður og gjaman sagt að Poul
Moller hafi staðið í skugga bróður-
ins, sem var orðinn þingflokks-
formaður þegar hann lést um ald-
ur fram.
Þegar faðirinn og föðurbróðir-
inn störfuðu í flokknum var hann
klofinn af óvæginni valdabaráttu
Eriks Haunstrups Clemmensens
og Eriks Ninn-Hansens, sem síðan
átti upptökin að Tamílamálinu,
þegar hann lét undir höfuð leggj-
ast að afgreiða beiðni tamílskra
flóttamanna um að fá fjölskyldur
sínar til Danmerkur. Þessir tveir
sættust á að fela hinum atkvæða-
litla Poul Schlúter pólitíska for-
ystu 1974, en hann reyndist ekki
atkvæðaminni en svo að hann var forsætisráð-
herra 1982-1993 og fyrri úlfúð greri um heilt.
Það kom svo í hlut Engells að efla ásýnd
flokksins í kjölfar Tamílamálsins og afsagnar
Schlúters og það hefur honum tekist vel. Þótt
flokkurinn hafi aðeins lítillega aukið fylgi sitt,
sem er um 15 prósent, þá var hann vinsæll
stjórnmálamaður innan flokks og utan.
Sviptingarnar nú gengu svo snarlega fyrir
sig að flokkadrættir náðu ekki að grípa um
sig, þegar áhrifastöðurnar var skipt upp á
nýtt. Vísast vonaði Engell að leiðtogaefni hans,
Anne Birgitte Lundholt, tæki við. Hún hefur
nú minni áhrif en áður, þar sem
Moller er bæði pólitískur talsmað-
ur flokksins, sem hún var áður,
0g leiðtogi. Þótt Engell sé áfram
formaður þingflokksins á pólitískt
vægi hans ekki að vera neitt. John
Winther borgarstjóri á Friðriks-
bergi er settur flokksformaður í
stað Engells fram á landsþingið
í haust, en það er ekki pólitískt
embætti. Moller er þvi einn og
óskoraður leiðtogi.
Hugmyndafræðingur en
óreyndur í pólitísku
eldlínunni
Hlutverk Per Stig Mollers
verður að halda áfram að efla
flokkinn og nú með nýtt vand-
ræðamál í farteskinu. Rétt eins og ástar-
lífsglöp eru vandræðaleg fyrir breska íhalds-
menn, af því þeir hamra svo á gildi fjölskyld-
unnar, þá er ölvunarakstur Engells vandræða-
legur í danska íhaldsflokknum, sem leggur
áherslu á lög og reglur og þá líka hvað varð-
ar ölvunarakstur.
Per Stig Moller hefur verið ötull þátttak-
andi í umræðum og skrifum um danska íhalds-
stefnu nútímans. I nýjustu bókinni, „Den nat-
urlige orden“, gagnrýnir hann óhefta fijáls-
lyndisstefnu, sem oft má heyra í málflutningi þ
Venstre og Uffe Ellemann-Jensens og minnir |
höfundur á að formælendur fyrir viðskipta-
frelsi eins og Bretinn Adam Smith hafi gert I
ráð fyrir skynsamlegum afskiptum ríkisvalds-
ins. Hann bendir á að helsta ástæðan fyrir
valdatöku kommúnista víða í Austur-Evrópu
sé óheft fijálslyndi og sá skortur á siðferði,
sem því fylgi.
Þrátt fyrir menningarbakgrunn skipaði
Schlúter Meller umhverfisráðherra 1990 og
síðan hefur hann borið þau mál fyrir hjarta,
skrifað bók um umhverfismál og átt dijúgan j
þátt i að gera ásjónu flokksins vistvænni.
Undanfarin ár hefur hann verið formælandi ^
flokksins í utanríkismálum og látið mikið að I
sér kveða í fræðilegri umræðu þar. Hann hef-
ur orð á sér fyrir að tilheyra vinstri- eða félags-
legum væng íhaldsflokksins, en hefur ekki
verið í neinni opinberri andstöðu við stefnu
hans. Því tekur hann því fjarri að sig dreymi
um stjórn Jafnaðarmanna- og íhaldsflokksins.
Með nýjum manni með annan bakgrunn en
Engell og Schlúter mun flokkurinn fá nýjan
svip og gæti orðið hugmyndafræðilegri en j
áður. Það gæti líka orðið vopn Mollers til að
styrkja svip flokksins og laða að kjósendur ~
bæði frá Jafnaðarmannaflokknum og Venstre. I
Það liggur í loftinu að andstaða gegn ESB,
ekki síst Efnahags- og myntbandalaginu, fari
vaxandi innan borgaraflokkanna, einkum
meðal ungu kynslóðarinnar og það mun koma
í hlut nýja leiðtogans að glíma við þau mál.
Margir benda á að hann sé óreyndur, en
það væri undarlegt ef hann byggi ekki enn
að móðurmjólkinni og eigin starfi í rúman
áratug. Ef marka má ákveðna og hiklausa
framkomu hans í sviptingunum undanfarna
daga hefur íhaldsflokknum áskotnast hugs- '
andi og röggsamur leiðtogi, sem hefur óskipt- I
an áhuga á nýrri hægri stjórn.
Per Stig Maller