Morgunblaðið - 26.02.1997, Page 21

Morgunblaðið - 26.02.1997, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 21 Fimm fræknir TÓNLIST Gaukur á Stöng LIFANDI RAFTÓNLEIKAR Braglaukur eftir Lárus Grímsson, Bít fyrir tölvu eftir Ríkharð H. Frið- riksson, Silkisöngur fyrir tónband eftir Helga Pétursson, Arur eftir Hilmar Þórðarson, IVíhljóð H fyrir slagverk, rafgítar, tölvuhyómborð og band eftir Kjartan Ólafsson. Laugardagur 22. febrúar kl. 17. Heimskór æskunn- ar í tónleikaferð HEIMSKÓR æskunnar (World Youth Choir) var stofnaður árið 1989. Kórinn hefur starfað einn mánuð á hveiju sumri og alltaf á ólíkum stöðum í heiminum. Kórfé- lagar eru 90 talsins á aldrinum 17-26 ára og eru valdir úr hópi þúsunda umsækjenda hvaðanæva að úr heiminum. Þeir þurfa að hafa staðgóða kunnáttu i nótna- lestri og raddbeitingu ásamt í reynslu í kórsöng og kórastarfi. Nokkrir íslenskir kórsöngvarar hafa sungið með Heimskór æsk- unnar og staðið sig með mikilli prýði. í sumar mun Heimskór æskunn- ar starfa í Hamamatsu í Japan og fara í tónleikaferð til Tókýó, Ky- oto, Kobe, Hiroshima og fleiri borga í Japan. Kórfélagar verða sjálfir að bera kostnað af ferðinni milli heimalands og Tókýó. íslensk- um kórsöngvurum á aldrinum 17-26 ára gefst kostur á að þreyta inntökupróf í kórinn í byijun mars. Kórstjórinn, Þorgerður Ingólfs- dóttir, veitir nánari upplýsingar. Morgunblaðið/Jón Svavarsson. PÉTUR Grétarsson, slagverk, gitarleikarinn Hilmar Jensson og Kjartan Ólafsson, hljómborð, einn af höfundunum. VIÐ íslendingar vorum lengi vel nokkuð seinir að taka við okkur í raf- og tölvutónlist. En nú er svo komið að heil breiðfylking prýði- lega menntaðra tónskálda í raf- og tölvutónlistarfræðum starfar hér, og hljóðver vel búin tækjum eru að rísa hér upp. Unga fólkið flykkist í hljóðverin til að notfæra sér þá möguleika, sem þar er að finna til að víkka út landamæri listarinnar. Við áttum merkilegan braut- ryðjanda á þessu sviði, sem á sinum tíma vakti athygli langt út fyrir landsteinana, en það var Magnús Blöndal Jóhannsson. Hann var frumlegt og næmt tónskáld, hinn nýi hjóðheimur lék í höndum hans. En þeir sem kvöddu sér hljóðs á Gauknum hafa nú tekið við merk- inu. Þessi nýjá tónlist á heima hvar sem er, á öldurhúsum eða í kirkjum og konsertsölum. Og hún höfðar til víðari hóps en þess sem vanalega fylgist með fagurtónlist, hún sprengir af sér hina hefð- bundnu flokkun tónlistar, í „æðri“ og „óæðri“, „þunga“ og „létta". Þessir tónleikar sönnuðu, að á þessu sviði er margt spennandi og lífvænlegt að gerast hérlendis: ung kynslóð tónskálda hefur haslað sér völl. Fyrsta verkið var Braglaukur eftir Lárus Grímsson (f. 1954). Hann vinnur með hljóðgervlum að því mér virðist, blandar saman djassi og framúrstefnu, með lifandi slagverk í bland. Pétur Grétarsson er fjölhæfur slagverkssnillingur, sem lék af innsæi og aga. Verk Lárusar er kröftugt og beinskeytt smíð. Þá tók við Bít fyrir tölvu eftir Ríkharð H. Friðriksson (f. 1960). Þetta var þrálátur minimalismi bandarískrar ættar, hávær og ögrandi, óheflaður og ágengur. Tónkáldið sat við tölvuna og bland- aði seiðinn á staðnum. Einhvers konar alvöruleysi í anda gamla Satie sveif yfir vötnum og mér finnst það alltaf jákvætt þegar listamenn eru ekki of hátíðlegir. Helgi Pétursson (f. 1962) kom næstur með Silkisöng fyrir tón- band. Helgi er tilraunaglaður lista- maður, sem kemur manni jafnan á óvart. Silkisöngurinn var kannski „fallegasta“ verkið á efnisskránni, einhveijar ójarðbundnar, ómblíðar kristalbjöllur kliðuðu á hásviði. En verkið var nákvæmlega úthugsað, óvanalega stutt. Það er mikil list að kunna að hætta á réttum tíma. Það kunni Helgi. Hilmar Þórðarson (f. 1960) er mikill kunnáttumaður í hljóðheimi tölvunnar og leitar víða fanga. Verk hans Árur var skrautleg tón- smíð og andi mikilúðlegrar barokk- listar fór um salinn. Einhvers stað- ar á bak við allt heyrðist í íslensk- um kvæðamanni en myndbandið sem sýna átti með féll niður. Guf- aði upp í tölvupóstinum norðan úr landi. Vonast ég til að fá að heyra verkið með myndbandinu sem allra fyrst, en sjón og heyrn fléttast oft listilega saman í hinni nýju tónlist. Lokaverkið var Tvíhljóð II fyrir slagverk, rafgítar, tölvuhljómborð og band eftir Kjartan Ólafsson (f. 1958). Flytjendur voru Hilmar Jensson og Pétur Grétarsson auk tónskáldsins. Kjartan er mestur fræðimaður og kenningasmiður í þessum hópi. Hann hefur árum saman unnið að gerð merkilegs tónsmíðaforrits, Calmus. Verk Kjartans, þau hin síðari, eru tján- ingarrík tónlist og sammannleg. Honum hefur tekist að gera forrit- ið og tölvuna að listrænum miðli. í Tvíhljóði II teflir hann saman nákvæmlega útreiknaðri tónlist og tímasettum hálfspuna hljóðfæra- leikaranna og áhrifamiklum sam- leik tölvu/bands og hljóðfæra. Og það kom mér einna mest á óvart hversu ólík þessi tónskáld eru. Þau nota möguleika hátækni- væddrar tónlistar, en dorga á ólík- um miðum. Þetta voru skemmtilegustu tón- leikar Myrkra músíkdaga, kannski sjálfur vaxtarbroddurinn. Atli Heimir Sveinsson vegna þess að þá var mjög í tísku það sem kalla mætti „hvata- dýrkun", boðskapur um að bijóta af sér þá fjötra siðmenningarinnar sem ýmsir álitu vera hræsni og undirokun. Freud hafði gífurleg áhrif á höfunda á þessum árum, og þessi viðhorf komu fram hvarvetna, hjá nasistum ekki síður en hjá vinstrisinnuðum uppreisnarmönnum. Einna frægastur hefur enski skáldsagnahöf- undurinn D.H. Lawr- ence orðið á þessu sviði, einkum bók hans Elsk- huginn lafði Chatterley, þótt ýmislegt teljist merkilegt eftir hann. Um þetta efni fjölluðu auðvitað einnig fjöl- margir karlkyns rithöf- undar á þessum árum, og ekki varð seinni heimsstyijöldin síður algengt yrkisefni þeirra en kvennanna. Stöku sinnum er í þessari bók vísað til þess, en hitt er algengast, að um- fy'öllun um hvern höfund standi alveg einangruð frá öllum öðrum skáld- um. Því vakna ansi margar og mikilvægar spurningar, sem ekki fæst svarað hér. Skálduðu konur á einhvem hátt öðruvísi en karlar? Það virðist mjög ólíklegt, en ekki fæst neitt svar við því hvort þær hafi almennt átt eitt- hvað sameiginlegt. Af þessari bók er að sjá að þær hafi sumar skrifað framúrstefnulega, en flestar hefð- bundnar skáldsögur, sumar boðuðu kven- frelsi, aðrar að konur ættu að sinna hefð- bundnum verkum sín- um. Það er helst að sjá eitthvað sérstætt í losta- skrifum, ekki síst sam- kynhneigðra kvenna. Alls kyns stjómmálavið- horf koma fram enda bæði um að ræða al- þýðukonur, yfirstéttar- konur og millistéttar, ekki verður fundinn neinn sameiginlegur nefnari. Hins vegar eiga þó það margir höfundar svo margt sameiginlegt, að hér verða þreytandi endurtekningar á svip- uðum æviatriðum og lýsingu á afstöðu, kafla eftir kafla. Það hefði betur farið í samantekt. Verst er þó þetta; ef áhugasamur lesandi vill kynna sér hvaða nor- rænar skáldkonur hafi nú verið merkilegastar á þessari öld, hvar hann eða hún ætti helst að bera niður, þá veitir þessi bók enga leiðsögn um það! Hún kemur því aðeins að gagni að les- andi leiti að upplýsing- um um tiltekinn höfund, þá má sjá hvaða bækur teljast merkastar eftir hana, og stundum hvers vegna það er. Sjálfsagt hefur það sjónarmið ráð- ið ferðinni að virkja sem flestar fræðikonur í verkefnið. En bókin sannar að það gengur ekki. Það efni sem hér er um t.d. norskar skáldsög- ur frá fyrri hluta aldarinnar er ekki meira en svo, að vel hefði mátt fela einni konu að fjalla um það, annarri um Ijóðagerð, o.s.frv. Af slíkri verka- skiptingu hefði getað fengist yfirsýn. Islenski hlutinn Íslenski hlutinn nær einungis 24 bls., innan við 5% umfjöllunar, en sá færeyski er aðeins 7 bls. Vissu- lega létu íslenskar skáldkonur minna á sér kræla þá en verið hefur síðasta aldarþriðjunginn. Dagný Kristjáns- dóttir og Soffía Auður Birgisdóttir skipta með sér þessum verkum, í kaflanum um Huldu byggir Dagný þar að auki á drögum frá Guðrúnu heitinni Bjartmarsdóttur. Innan þessara þröngu marka fjalla þær stöllur auk þess um Ólöfu frá Hlöð- um, Kristínu Sigfúsdóttur, Elínborgu Lárusdóttur, Þórunni Magnúsdóttur, Ragnheiði Jónsdóttur, Guðrúnu frá Lundi, Oddnýju Guðmundsdóttur, Drífu Viðar, Unni Eiríksdóttur, Sig- riði Einars, Halldóru B. Björnsson, Arnfríði Jónatansdóttur, Astu Sig- urðardóttur. Umfjöllun þeirrar síð- asttöldu einkennist helsti mikið af endursögnum í stað greiningar á uppbyggingu sagnanna, sem hefði sýnt hve listrænar þær urðu þegar best lét. Annars er aðaláherslan hér lögð á meginviðfagnsefni höfund- anna, svo sem átök löngunar og skyldurækni. Mér sýnist þetta ág- ætt, enda þótt stundum megi sakna mikilvægari atriða. T.d. gæfi það fyllri mynd af Kristínu Sigfúsdóttur ef meginfyrirmynd hennar hefði ver- ið nefnd, skáldsögur Einars Kvarans sem nutu mikilla vinsælda þegar hún skrifaði. Einnig hefði skerpt mynd Huldu að draga fram í stuttu máli hvað hún átti sameiginlegt skálda- bræðrum sínum, hvað var sérstakt. En í heild eru þetta fróðlegir pistlar og fengur að þessu yfirliti. Dagný Kristjánsdóttir Soffía Auður Birgisdóttir a morgun 27. FEBRUAR TIL 9. MARS bokatitlar OPIÐ ALLA DAGA 10-19 UM HELGAR Hjá okkur finnur vOV þú m.a. ferSabækur bamabækur • handbækur Ijóð • hestabækur • kynlífsbækur spennusögur • ævisögur myndabækur • ættfræðirit fræðsluefni • spennuefni alþreyingu • skáldskap • heilafóður skemmtun • útivist • dulspeki • tækni landkynningarefni • ferSalög • íþróttir • matreiðslubækur og margt fleira. Bókamaikaouiinn stendur aðeins yfii i nokkia daga. Ekki láta þetta l einstaka tækifæii 1 fiamhjá þéi faia. I’ E R L A N Hinn áilegi bokamarkaður Féiags islenskra bokautgefenda stendur nú yfir i Perlunni. Simi 562 9700.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.