Morgunblaðið - 26.02.1997, Page 24

Morgunblaðið - 26.02.1997, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 AÐSENDAR GREIIMAR MORGUNBLAÐIÐ Eru sérhagsmunir stóriðju rétthærri en hagsmunir annarra atvinnugreina? NÚ ER loksins komið að því að við sem stönd- um að ferðaþjónustu og fylgismenn þróunar sjálfbærra atvinnuvega á íslandi höfum vaknað af þymirósarsvefni okkar varðandi stór- iðjumál. Ástæða svefns- ins er sjálfsagt sú að við höfum ekki viljað trúa því að menn gætu verið svo þröngsýnir að sjá ekki hversu skað- vænleg stóriðja er okk- ar grundvallaratvinnu- greinum. Sjálfur get ég ekki lengur orða bund- ist þegar iðnaðarráð- herra leyfir sér að afs- aka álversframkvæmdir með þeim orðum að sérhagsmunir einstakra atvinnugreina megi ekki skyggja á möguleika annarra. Hagsmunaárekstrar atvinnugreina Það er ljóst að matvælaframleiðsla og ferðaþjónusta eru mun stærri þættir í íslensku atvinnulífi en stór- iðja er og verður nokkum tíma fái ég og mínir líkar einhveiju ráðið. Hinsvegar er það ljóst að þær at- vinnugreinar eru ekkert að þvælast fyrir þeim ráðamönnum okkar sem eru „stóriðjublindir", því að ferða- þjónusta og matvælaiðnaður geta ekkert skemmt fyrir álveri. Hags- munaárekstramir eru því aðeins í aðra áttina. Stóriðja, sama hversu „ásættanleg" sem mengunin frá henni er, skemmir náttúru okkar og ekki síður ímynd Islands sem síðasta útvarðar hreinna og óspjallaðra óbyggða í Evrópu. Það er einmitt sú ímynd sem gestir okkar og viðskipta- vinir eru uppteknir af, ekki því hversu mikið stóriðjan mengar, held- ur aðeins hvort hún sé til staðar. Staðsetningarval fyrir stóriðju Hvar stóriðja er sett niður er ekki aðalatriði, heldur hvort eðlilegt sé að halda áfram uppbyggingu henn- ar. Á hinn bóginn er það ljóst að stóriðja í Hvalfirði er verra slys en stóriðja sem sett er niður utan alfara- leiðar, þar sem aldrei til hennar sést og þar sem land er ógró- ið og húsdýr hafast ekki við. í því sambandi hef- ur verið rætt að setja niður álver á Keilisnesi. Það skal þó haft í huga að það er nú þegar nægilegt áfall fyrir ferðamenn að hálftíma eftir að þeir setjast upp í rútu á Keflavíkurflug- velli á leið sinni til Reykjavíkur aka þeir fram hjá álverinu í Straumsvík. Við sem höfum haft atvinnu okkar af því að ferðast með útlendinga um landið þekkjum að það er hjákátlegt að þurfa að skýra út fyrir ferðamönnum hvað fyrsta stórbyggingin sem þeir sjá hýsir, í þessu landi hreinnar og ósnortinnar náttúru. Samkeppni við „önnur þróunarlönd" Sú skoðun virðist rikjandi að við eigum í samkeppni við lönd í Suður- Að mínu mati, segir Guðmundur Birgir Heiðarsson, er óhugs- andi að eyðileggja þess- Ameriku og Asíu um að vera vænleg- asta landið til að setja niður stóriðju, aðeins vegna lágs orkuverðs. Við skulum ekki gleyma því að aðrir þættir geta skipt máli í því sam- hengi. Nágrannar okkar, Norðmenn, sækjast t.d. ekki eftir álveri, þrátt fyrir að þeir hafí nú þegar allnokk- um áliðnað og umframorku sem þeir selja úr landi. Gæti hugsast að þeir meti ferðamannaiðnað sinn og um- hverfisímynd meira en við og séu þess vegna ekki á höttunum eftir frekari stóriðju? Gæti ennfremur ver- ið að mengunarkröfur okkar séu slakari en nágrannaþjóðanna, og ef svo er, hvers vegna? Að lokum spyr maður einnig sjálfan sig hvers vegna við íslendingar, sem höfum litið á okkur sem eina af best menntuðu þjóðum heims, sækjumst eftir að byggja upp atvinnutækifæri í lág- launastörfum í iðnaði, sérstaklega þegar tekið er tillit til að við búum nú þegar í einu lægst launaða samfé- lagi í Norður-Evrópu. Ég held að nær væri að fjárfesta frekar í þeim at- vinnugreinum sem skila fleiri há- launastörfum. Onnur umhverfisslys samfara stóriðju Við skulum einnig hafa í huga að umhverfið er ekki einungis í hættu þar sem álver er byggt. Stóriðja kall- ar á virkjanaframkvæmdir og há- spennulínulagnir sem óhjákvæmilega eru sjónmengandi og náttúruspil- landi. Það er ekki langt síðan sú fram- tíðarsýn var sett fram að þurrka ætti upp Dettifoss til þess að skapa stóriðj- urafmagn í Fljótsdalsvirkjun, ásamt því að fyrir liggur að leggja eigi rafl- ínur yfír miðhálendið, þar með talið Ódáðahraun, sem er eitt víðfeðmasta óbyggðarsvæði í Evrópu. Að mínu mati er það gersamlega óhugsandi að eyðileggja þessar náttúruperlur til þess að skapa einhveija tugi láglauna- starfa við málmiðnað. Val um fjárfestingu Flestir hljóta að vera því sammála að fjárfesting í virkjunum og álvers- framkvæmdum skilar sér í þjóðar- búið, en hversu mikill er sá arður og er það þess virði? Það er verðugt umhugsunarefni að kanna hversu miklu sama fjárfesting myndi skila í þjóðarbúið ef henni yrði varið í markaðssetningu á íslandi sem áfangastað erlendra ferðamanna. Áhrifín yrðu margföld á við álver, sérstaklega ef haft er í huga hversu miklu við höfum áorkað síðustu ár, þrátt fyrir að Ferðamálaráð og einka- aðilar hafí mjög takmarkað fé til markaðssetningar. Ég er líka sann- færður um að þessi fjárfesting myndi skila sér mun betur ef hún væri sett í uppbyggingu fullvinnslu sjávaraf- urða, ímyndarvinnu og markaðssetn- ingu á neytendavöru erlendis. Þar að auki yrðum við öll sælli með slíka uppbyggingu, bæði sjálfra okkar vegna og vegna afkomenda okkar, sem landið munu erfa. Höfundur er markaðsfræðingur. Guðmundur Birgir Heiðarsson Um það, sem er logið og hitt, sem er satt MENN getur greint á um hvort og hvar á að reisa álver. En það er sitt hvort, barátta fyrir málstað, sem menn getur ærlega greint á um, hvort sé góður eða vondur og svo sjúklegt ofstæki. Járnblendifélags- menn hafa undanfarið verið vitni að slíkri bar- áttu, sem hefur smám saman snúist upp í það síðamefnda, bæði opin- berlega og í söguburði manna í milli. Skulu nú tilfærð nokkur dæmi þessu til sönnunar. Ör- lög foreldra héðan af svæðinu, sem eignast hafa fötluð böm, hafa verið misnotuð með því að koma þeirri sögu af stað, að þessa fötlun megi rekja til reksturs jámblendiverk- smiðjunnar, svo fráleitt, sem það er. Greinarskrifari úr Kjósinni bar það á jámblendifélagið að dreifa þung- málminum kadmíum út í umhverfíð. Þetta hefur ekki við nein rök að styðj- ast. Frammámaður Kjós- veija spurði um kvika- silfursmengun, sem fannst í lúðu, sem kunn- ingi hans veiddi í Hval- fírði. Kunninginn taldi sjálfsagt, að kvikasilfrið kæmi frá Grundar- tanga. Staðreynd er, að gosbelti íslands er all- ríkt af kvikasilfri, sem berst í sjó. Lúða er físk- ur, sem verður gamall og því safnast upp í henni nokkurt kvikasilf- ur. Á Grundartanga er þessi málmur hins veg- ar ekki til utan það, sem finna má í nokkmm hitamælum og gömlum blóðþrýst- ingsmæli læknisins, sem reglulega fylgist með heilbrigði starfsmanna. Mengun kvikasilfurs eða annarra þungmálma frá Grundartanga er ekki til, eins og margsinnis hefur verið skýrt frá opinberlega, en stríðs- menn kjósa að hlusta ekki á. Annar greinarhöfundur í Kjós hringdi í starfsmann járnblendifé- lagsins á dögunum. Erindið var að Jafnvel lítil böm og ógæfusamir foreldrar eru ekki óhultir, segir Jón Sigurðsson, hvað þá illþýði eins og við j árnblendifélagsmenn, sem rekum stóriðju. spyijast fyrir um það, sem hann frétti frá trúverðugum manni, að arsenik hefði við uppskipun á Grundartanga dottið í höfnina og ekki náðst upp. Sagan er alger uppspuni. Arseniki hefur aldrei verið skipað upp í Grund- artangahöfn og er hvorki notað né til í verksmiðjunni. Þetta er því upp- login saga og ber vott um hugarfar, sem varla er heilbrigt. Valkyija úr Hvalfjarðarstrandarhreppi mun hafa farið með sömu söguna á fundi með iðnaðarráðherra á Akranesi á dög- unum. Grunnskólakennari á Akra- nesi segir 10 ára börnum, sem hún Jón Sigurðsson Um samræmd próf og einkunmr NÚ FYRIR skömmu birtist í Morgunblaðinu listi sem hafði að geyma nöfn grunnskólanna í land- inu sem útskrifa nemendur upp úr 10. bekk. Var skólunum raðað niður eftir ákveðnu kerfí sem „fræðingamir“ hjá Rannsókna- stofnun uppeldismála höfðu búið sér til eftir niðurstöðum og útkomu úr samræmdum grunnskólapróf- um. Tilgangurinn með því að smíða þetta nýja kerfi er mér óljós annar en sá að gagn- ast þeim sjálfum í ein- hveiju rannsókna- skyni og frekari fræði- mennsku. Ég vil upplýsa það hér að ég fagnaði því heilshugar að birta ætti niðurstöðu og árangur einstakra skóla og hefði átt að vera búið að koma því á fyrir löngu. Þegar ég hins vegar sá hvernig fræðingamir hjá RUM matreiddu þessar niðurstöður féll mér allur ketill í eld. Og er sú ástæðan fyrir þessum skrifum mínum að ég sætti mig ekki við þá túlkun sem þar kemur fram. Ég vil halda því fram að þessar upplýsingar eftir normal- kúrfunni þeirra séu mjög villandi og oft beinlínis rangar. Einhvernveginn komst það inn í höfuðið á mér að tilgangurinn með því að birta opinberlega tölur úr samræmdum gmnnskólapróf- um, væri sá að þannig gæfist al- menningi kostur á því að sjá árang- ur einstakra skóla og tækifæri til að bera skólana saman. Reyndar ekki bara gert fyrir almenning heldur fyrir kennara og skóla- stjóra, skólanefndir, sveitarstjómir o.fl., o.fl. Þetta tel ég af hinu góða. Ég segi fyrir mig persónulega, að það skiptir mig máli hvernig skólanum sem ég veiti forstöðu gengur að útskrifa nemendur með tilliti til árangurs hvers einstakl- ings miðað við það próf sem hann gengst undir. Það skiptir öllu máli fyrir nemandann hvort hann fær einkunnina 5,0 eða hærra, en það skiptir nemandann engu máli hvar hann er í röðinni miðað við alla hina nemendurna á landinu sem kennir, að verði álverið á Gmndar- tanga byggt, muni það menga um- hverfíð þannig, að þau muni fullorð- in eignast vansköpuð böm. Innrás kennara í hugarheim lítilla bama, með upplogna hryllingssögu af þessu tagi, er að mati skrifara þessarar greinar enn verra ofbeldi en ýmislegt það, sem nú er réttilega barist gegn í þjóðfélaginu. Allar þær sögur, sem hér hafa verið raktar, bera með sér, að fyrir hluta þess fólks, sem berst gegn ál- veri á Grundartanga, helgar tilgang- urinn meðalið án nokkurra siðgæðis- marka. Jafnvel lítil börn og ógæfu- samir foreldrar em ekki óhultir, hvað þá illþýði eins og við jámblendifé- lagsmenn, sem rekum stóriðju. Það er svo kaldhæðnin í sögunni, að sú stóriðja hefur séð ýmsu af baráttulið- inu fyrir framfæri um árabil. Til allrar hamingju hefur ríkissjón- varpið komið inn í þessa orrahríð með vandaðan Kastljósþátt um álver niðri í Evrópu, sem þar er rekið í fyllstu sátt við umhverfi sitt, - gróskumikil tré, nytháar kýr, heil- brigt sauðfé, hamingjuhænsn og villt dádýr. Sjónvarpið hefur þarna unnið þarft og gott verk, sem vonandi kennir almenningi að hlusta á stað- reyndir, en leyfa ofstækisfólki vel að lifa í einangmn með sínar lyga- sögur. Höfundur er framkvæmdastjóri. íslcnskaj&rnblcndifélagsins hf. gengust undir sama prófíð. Þetta er nú akkúrat heila málið. Nýbirtar niðurstöður segja ekkert um árangur einstakra skóla með tilliti til persónubundins árangurs nem- enda heldur einungis hvar þeir eru í röðinni. Ekki nóg með það. Nú þarf ekki að fara mörgum orðum um það að einkunnakvarðinn frá 0 til 10, eða 1 til 10, sem gefið hefur verið eftir í sam- ræmdum prófum, er sá mælikvarði sem all- ir landsmenn kannast við og þekkja af eigin raun og einstakar töl- ur á þessu bili eru flestum, ef ekki öllum, lýsandi. Þetta fannst fræð- ingunum hjá RUM of einfalt og þess vegna þurfti að búa til nýjan einkunnakvarða sem spannar bilið frá 1 til 9, sem segir í raun að allar tölur sem birtast eftir þessum skala eru ekki í takt við þær raunverulegu einkunnir sem nem- endurnir fengu fyrir frammistöðu sína í prófunum. Ég vil nefna eitt dæmi um þetta sem ég kalla rangar upplýsingar og villandi. Það er krafa frá minni hendi, segir Páll Dag- bjartsson, að birtar verði niðurstöður og meðaleinkunnir ein- stakra skóla. í Varmahlíðarskóla, þar sem ég starfa, gengu 20 nemendur undir samræmt próf vorið 1996. Meðal- einkunn úr fjórum samræmdum greinum var 6,13. Raðtalan hjá RUM er hinsvegar 4,59. í ensku var meðaleinkunn 6,1. Náðu 17 nemendur einkunninni 5,0 eða hærra og af þeim voru 8 nemend- ur með einkunnina 8,0. Talan sem skólinn fékkk hjá Þórólfi og félög- um hjá RUM var 3,91. Nú bið ég þig lesandi góður að dæma sjálfur um hvort þær upplýsingar sem birtar voru á dögunum séu til þess fallnar að veita almennt trúverðug- ar upplýsingar um árangur Varma- hlíðarskóla í ensku. Ég segi nei. Því er það krafa frá minni hendi að birtar verði niðurstöður og með- aleinkunnir einstakra skóla, því það er á forsendum einkunna sem nemendur halda út í lífið að loknum grunnskóla og það er á forsendum einkunna sem þeir eru metnir til framhaldsnáms í framhaldsskóla. Ekki raðnúmeri frá RUM, og ég segi sem betur fer. í raun var sama sagan sem gerð- ist í túlkun niðurstaðna úr sam- ræmdu prófí í stærðfræði og ís- lensku í 4. og 7. bekk í nóvember sl. Þar voru niðurstöður birtar með svipuðum hætti en þó að sínu leyti enn ruglingslegri. Foreldrar skilja hvorki upp né niður. Skólamenn varla heldur. Mér er spurn hver er tilgangurinn, ef ekki sá að vera leiðbeinandi fyrir foreldra og skóla? Af hveiju þarf að gera ein- falda hluti svo flókna sem raun ber vitni um? Ég vil að lokum hvetja skólafólk og foreldra til að láta heyra frá sér um þessi mál. Ég tók bara eitt tiltekið dæmi hér að ofan en ég gæti tekið þau ótalmörg sem öll ber að sama brunni. Höfundur er skólastjóri Varmahlíðarskóla í Skagafirði. Páll Dagbjartsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.