Morgunblaðið - 26.02.1997, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 26.02.1997, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. KJOR BÆNDA KJARAMÁL bænda eru í brennidepli á Búnaðarþingi, sem nú stendur yfir í Reykjavík. í skýrslu sinni við setn- ingu þess sagði Ari Teitsson, formaður Bændasamtaka ís- lands, m.a.: „Nú er svo komið, að endurnýjun landbúnaðarbygginga er nær engin og stór hluti stéttarinnar gerir ráð fyrir að vera síðasti ábúandi á jörð sinni. Þegar svo er komið er þessi erfiða staða ekki lengur eingöngu vandamál stéttarinn- ar, það er hluti af efnahags- og atvinnustefnu þjóðarinnar, auk þess að vera félagslegt úrlausnarefni.“ Hann sagði ennfremur: „Við þær aðstæður sem við blasa nú verður að gera kröfu um, að ekki verði dregið úr þeim stuðningi, sem bæði hefur falist í innflutningsvernd og beinum framlögum til lækkunar matvælaverði.“ Guðmundur Bjarnason, landbúnaðarráðherra, tók undir þessi orð og lýsti kjörum bænda sem óviðunandi. Hann sagði m.a.: „Ef menn vilja meiri niðurskurð kallar það á stórfellda fækkun bænda og breyttar áherzlur í byggðamál- um.“ Ráðherrann kvaðst hafa unnið að skipulagsbreyting- um, sem auka frelsi og minnka opinber afskipti, færa fram- leiðendur nær neytendum, svo markaðsvitund landbúnaðar- ins aukist, og hvatt til frekari hagræðingar í úrvinnslu og sölumálum. Hægfara þróun í átt til frelsis og markaðsvitund- ar taldi hann vera farsæla stefnu. Tækniframfarir og stórstígar breytingar í ræktunarmál- um víða um heim hafa leitt til mikillar aukningar á fram- leiðslu búvara, svo mikillar að markaður hefur ekki reynzt fyrir afurðirnar. í Bandaríkjunum t.d. hefur orðið mikil fækkun í bændastétt en framleiðsla samt stóraukizt. Þessi þróun hefur ekki verið jafn hröð í Evrópu m.a. vegna þess, að leitazt hefur verið við að halda óbreyttu ástandi með gífurlegum ríkisstyrkjum. Þróunin hefur orðið svipuð hér. Framleiðni hefur aukizt stórlega í búvöruframleiðslunni en þrátt fyrir að fækkað hafi í bændastéttinni hefur hagræðing í atvinnugreininni ekki orðið eins mikil og þörf er á. Búin eru of smá og fram- leiðslan ekki alltaf á hagkvæmustu landssvæðunum. Þetta er höfuðástæðan fyrir lélegum kjörum bænda. Þeir sem stunda búrekstur geta ekki ætlast til þess, að þeim sé séð fyrir markaði fremur en öðrum atvinnugreinum. Ef fijáls- ræði hefði ríkt í landbúnaði á öllum stigum framleiðslu, vinnslu og sölu væri atvinnugreinin fyrir löngu búin að laga sig að breyttum tímum og nýjum markaðsaðstæðum. Verstu óvinir bænda eru þeir stjórnmálamenn og forsvarsmenn hagsmunasamtaka þeirra, sem hafa talið þeim trú um annað. Veruleikinn er sá, að búum þarf að fækka og þau þurfa að stækka. Þá geta þeir bændur, sem stunda slíkan búskap lifað góðu lífi. Ef það væru matvörukaupmenn á hveiju horni í Reykjavík mundu þeir ekki komast af. Þeim hefur fækkað stórlega á undanförnum árum m.a. vegna þess, að það hafa orðið til s.tórar verzlunarkeðjur í matvöruverzlun hér eins og alls staðar í heiminum. Enginn þeirra gerði kröfu til þess að stjórnvöld sæju þeim fyrir markaði eða lágmarksafkomu. Það er svo allt annað mál, að margir og þá ekki sízt þeir, sem hafa kynnzt sveitum landsins, eiga erfitt með að horfast í augu við þessa breytingu. Það er óskemmtilegt að aka um héruð, sem áður voru búsældarleg og þar sem ræktun var aukin á hverju ári og önnur umsvif og fylgjast með hnignun þeirra, sem landbúnaðarhéraða. En ýmislegt annað hefur komið í staðinn. Það er tímabært, að fulltrúar á Búnaðarþingi viðurkenni þessar staðreyndir. Þeir geta hvorki krafið ríkisvaldið um aukin fjárframlög né neytendur um að borga hærra verð. Þeir geta auðvitað hækkað verð á framleiðsluvörum sínum og þá kemur í Ijós, hvort neytendur ákveða að kaupa meira af öðrum matvörum og draga úr kaupum á búvörum. Þann- ig virkar markaðurinn. Öðru máli gegnir hins vegar ef bændur leita til ríkisvalds- ins um aðstoð við þá aðlögun, sem enn þarf að fara fram í landbúnaði. Þótt hún hafi þegar verið veitt í ríkum mæli kunna enn að vera rök fyrir því að auka hana að einhveiju leyti, En slíkri aðstoð hljóta að fylgja skilmálar um stórauk- ið fijálsræði á öllum stigum landbúnaðarframleiðslunnar. Margir hafa trú á því, að íslenzkur landbúnaður geti eflzt í framtíðinni fái bændur frelsi til að ráða sér sjálfir án opinberra afskipta. Þá leitar framleiðslan þangað sem hún er hagkvæmust og nýjungar sjá dagsins ljós. Gæði íslenzkr- ar búvöru eru mikil og engin ástæða til að ætla annað en íslenzkur landbúnaður geti skapað sér markaði erlendis án opinbers stuðnings. En þá er aukin framleiðni, hagkvæmni og hugvit lykilatriði. Formenn landssambanda j Skora á félög að boða aðgerðir Verkföll fari vaxandi fram eftir marsmánuði FORMENN landssambanda Alþýðu- sambandsins komu saman í gær- morgun til að fara yfir stöðu kjara- viðræðna og komust að þeirri niður- stöðu að skora sameiginlega á öll aðildarfélög sambandsins að hefja þegar í stað boðun aðgerða í sam- ræmi við áætlanir sem gerðar hafa verið. Aðgerðir verði vaxandi fram eftir marsmánuði og endi með alls- herjarverkfalli hafí samningar ekki tekist. Formenn landssambandanna boð- uðu til fréttamannafundar fyrir há- degi í gær og kynntu sameiginlega yfirlýsingu þar sem segir að kjara- stefna sú sem formennirnir kynntu 14. febrúar sl. hafi verið úrslitatil- raun til að ná kjarasamningum án þess að til átaka kæmi. „Eftir samn- ingaviðræður síðustu vikna er það sameiginlegt mat landssambanda ASÍ að samtök atvinnurekenda hafi ekki sýnt í verki vilja til að fara þessa leið. Þrátt fyrir þau skýru og afdrátt- arlausu markmið með skattkerfis: breytingum sem landssambönd ASÍ kynntu hafa engar hugmyndir kom- ið frá stjórnvöldum ennþá um breyt- ingar sem ná þessum markmiðum. Þegar landssambönd ASÍ kynntu kjarastefnu sína voru þau að vísa á friðsamlega leið til lausnar kjara- deilu sem staðið hefur mánuðum saman. Þá kynntu þau jafnframt þá ákvörðun sína að meta stöðu mála að nýju þann 25. febrúar. Á þeim 10 dögum sem liðnir eru hafa viðræður um endurnýjun kjara- samninga verið árangurslausar. Þrátt fyrir að viðræðum hafi ekki verið slitið formlega er það _mat formanna landssambanda ASI að aðeins eitt úrræði sé eftir til að þrýsta á um gerð kjarasamninga,“ segir í yfirlýsingunni. Staðbundnar aðgerðir með stuttu millibili Á fréttamannafundinum kom fram að það er aðildarfélaganna sjálfra að taka endanlegar ákvarð- anir um atkvæðagreiðslur um verk- föll en formenn landssambandanna hvetja félögin til að taka ákvarðanir á allra næstu dögum. Gera áætlanir sem gerðar hafa verið ráð fyrir að fyrst í stað verði boðaðar aðgerðir á einstökum vinnustöðum eða í starfsgreinum með tveggja eða þriggja daga millibili en þær fari svo stigvaxandi fram eftir marsmánuði og endi í allsheijarverkföllum, vænt- anlega í síðustu viku fyrir páska. Verkalýðsfélögin Dagsbrún og Framsókn hafa ekki veitt Verka- mannasambandinu samningsumboð vegna þorra félagsmanna sinna og hafa félögin þegar undirbúið at- kvæðagreiðslur um verkföll, fyrst í Mjólkursamsölunni, sem hefjist upp úr 9. mars. Náið samráð verður haft um undirbúning aðgerða innan VMSÍ, að sögn Björns Grétars Sveinssonar, formanns VMSÍ. Rafiðnaðarsambandið hefur geng- ið frá áætlun um verkfallsaðgerðir sem lögð var fyrir miðstjóm sam- bandsins í gær. Var gert ráð fyrir að að því búnu yrði strax hafist handa við atkvæðagreiðslur um boð- un verkfalla á einstökum vinnustöð- um sem hæfust á svipuðum tíma og aðgerðir Dagsbrúnar. Er gerð tillaga um að fyrst verði greidd atkvæði á kjörfundi meðal starfsmanna hjá Reykjavíkurborg. Nauðsynlegt verði hins vegar að viðhafa póstatkvæða- greiðslu um verkföll meðal rafiðnað- armanna hjá RARIK og fjármála- ráðuneyti sem starfa víða á landinu. Á annað þúsund félagsmenn era í Rafiðnaðarsambandinu. Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnað- arsambandsins, segir að atvinnurek- endur hafi ekkert komið til móts við kröfugerð sambandsins þrátt fyrir að margir mánuðir séu liðnir frá því viðræður fóru í gang. Samráð um aðgerðir og kjarastefnu Fram kom í máli formanna lands- sambandanna að áfram verður haft samráð á milli landssambandanna um kjarakröfurnar. Björn Grétar Sveinsson sagði að mjög góð sam- staða yrði með samböndunum en Guðmundur Gunnarsson sagði hins vegar að reikna mætti með að félög myndu einnig reyna fyrir sér sjálf- stætt á næstunni í tilraunum til að ná samningum. Viðræður nokkurra landssam- banda og félaga og vinnuveitenda héldu áfram hjá sáttasemjara í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.