Morgunblaðið - 26.02.1997, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 39
MINNINGAR
KRISTIN
SIG URBJÖRNSDÓTTIR
+ Kristín (Ninna)
Sigurbjörns-
dóttir Nielsen, lista-
kona í Kaupmanna-
höfn, fæddist 28.
september 1909.
Hún lést 20. febr-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Signrbjörn
Þorkelsson
Kiðafelli í
kaupmaður
Reykjavík,
kenndur við
unina Vísi, og kona
hans Gróa Bjarna-
dóttir Jakobssonar
Valdastöðum í Kjós. Systkini
Ninnu eru Sólveig, f. 1911, Þor-
kell Gunnar, f. 1912, Birna, f.
1913, Hanna, f. 1915, Hjalti, f.
1916, Helga, 1917, Friðrik, f.
1923, d. 1986, Ástríður, f. 1925,
d. 1935, Áslaug, f. 1930, og
Björn, f. 1931.
Ninna giftist árið 1930 Hol-
ger W. Nielsen, tannlækni, f.
bónda á
7.2. 1907 í Roskilde.
Þau eignuðust fjóra
syni. 1) Thor Niel-
sen, f. 28.2. 1932,
framkvæmdastjóri,
kona hans er Ulla
Aage Fredrikson,
balletdansari, og
börn Nanna Nielsen
og Ida Nielsen. 2)
Olaf Nielsen, f. 11.4.
1935, tannlæknir og
leikari, giftur
Hanne Stockmar,
dóttir þeirra er
Camilla Nielsen. 3)
Rolf Nielsen, f. 18.5.
1942, kennari, giftur Isabella
Darre, bókasafnsfræðingi, böm
þeirra Signe Björg og Johann
Darre. 4) Kaare Nielsen, f. 7.5.
1945, læknir, giftur Guðbjörgu
Indriðadóttur, sjúkraliða frá
Þórshöfn. Böm þeirra em
Thelma, Benjamin, Kristín Maj,
Anna Guðbjörg og Þorbjöm.
Utför Ninnu verður gerð í
Kaupmannahöfn i dag.
Ninna fæddist á Njálsgötu 30,
elst í stórum systkinahópi. Gróa
Bjarnadóttir móðir hennar dó í
spænsku veikinni frostaveturinn
mikla 1918. Að standa við líkbörur
ungrar móður sinnar hafði djúpstæð
áhrif á Ninnu og systkini hennar.
Dauði foreldris gat líka á þeim tím-
um almennrar fátæktar haft í för
með sér geigvænlegar breytingar
fyrir börn. Þá tíðkaðist að heimilum
væri sundrað og börnunum tvístrað
og komið fyrir hjá vandalausum þar
sem þeirra beið oft vinnuþrælkun
og misjafnt atlæti og oft á tíðum
hin ömurlegasta ævi eins og heim-
ildir greina. Sú varð ekki raunin
og tókst Sigurbirni, föður Ninnu,
að halda sinni fjölskyldu saman og
systkinum fjölgaði þegar faðirinn
gifti sig aftur Unni Haraldsdóttur.
Samskipti Ninnu og systkina henn-
ar hafa alla tíð verið einstaklega
hlý og náin og er leitun að systkin-
um sem svo vel hafa haldið hópinn
á langri ævi jafnvel þó Atlantsálar
skildu þau að lengst af í meira en
60 ár.
Ninna stundaði nám í Kvenna-
skólanum í Reykjavík og lauk þaðan
prófi. Hún vann um hríð á Ljós-
myndastofu Lofts Guðmundssonar.
Eftir að Ninna og Holger giftu
sig héldu þau til Danmerkur og
þaðan til Zúrich í Sviss, en hafa
lengst af átt heima á Kirkevej 9 í
Brönshöj i Kaupmannahöfn. Holger
hefur stundað tannlækningar.
Hann er góður fiðluleikari og lék
m.a. með hljómsveitinni á Alþingis-
hátíðinni 1930.
Ninna lagði stund á höggmynda-
list og málaralist. Hún hóf nám í
teikningu hjá Bidsi Höjer eftir að
hún kom til Danmerkur. Síðan lærði
hún myndmótun hjá Ib Schmedes
og myndhöggvaranum Paul Sönd-
ergaard.
Móðurmissirinn hafði djúpstæð
áhrif á Ninnu og, móðureðlið og
hlutverk konunnar í heiminum varð
miðdepillinn í listsköpun Ninnu.
Hún sagði sjálf frá því að minning-
in um móður sína hafi orðið sér
hvati í sköpun verka sinna. Með
þeim vildi hún tjá baráttu konunn-
ar og þá ekki síst í hlutverki móður-
innar. Öldum saman hefði verið
litið á þessa baráttu sem sjálfsagð-
an hlut og það væri ekki fyrr en
á tuttugustu öldinni að augu
manna hefðu opnast fyrir hlutverki
konunnar. Heimilið og fjórir synir
hefðu ávallt setið í fyrirúmi og um
leið auðgað listsköpun hennar.
Sýning á verkum Ninnu var m.a.
haldin í nóvember 1975 í húsi Jóns
Sigurðssonar í Kaupmannahöfn.
Sýningin var haldin_ samkvæmt
eindreginni áskorun íslendingafé-
lagsins og var veglegt tillag til
kvennaársins 1975.
Heimili Ninnu og Holgers á
Kirkevej 9 hefur ávallt verið yfir-
fullt af gestrisni og fágaðri menn-
ingu. Þar hefur verið gestkvæmt
áratugum saman sem og í sumar-
húsi þeirra hjóna í Esju á norðvest-
ur Sjálandi. Þar hafa ófáir íslenskir
ættingjar og vinir átt griðland og
ótaldar unaðsstundir með þeim
hjónum. Þegar ég var lítill stafaði
hvað mestum ljóma af frásögum
föður míns þegar hann hafði gist
hjá Ninnu systur sinni og Holger
mági á Kirkevej 9 eða í sumarhús-
inu Esju. Segja má að heimili þeirra
hafi verið hinni geysifjölmennu fjöl-
skyldu gluggi út í menningu um-
heimsins. Gestrisninni og höfðings-
skapnum kynntist ég og fékk að
njóta ásamt eiginkonu minni marg-
sinnis á umliðnum árum. I samvist-
um við þau hjónin drakk maður í
sig mannvisku, kærleika og fagrar
listir, allt þetta umvafið í svo heill-
andi og fágætan húmor. Við fráfall
andans stórmenna er skarðið stórt
og missirinn mikill, en við sem eft-
ir lifum þökkum fyrir að hafa
kynnst þeim.
Þorvaldur Friðriksson.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
EINAR MALMQUIST,
lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
23. febrúar.
Guðbjörg Malmquist,
Ása Malmquist,
Einar Fr. Malmquist,
Kalla Malmquist,
Gunnar Malmquist,
Úlfar Malmquist,
Gunnar M. Gunnarsson
og fjölskyldur.
t
Okkar ástkæri,
GEIR FRIÐBERGSSON
hjúkrunarfræðingur,
verður jarðsunginn frá Digraneskirkju
föstudaginn 28. febrúar kl. 13.30.
Hólmfríður Geirdal Jónsdóttir,
Bergur Geirsson, Björk Guðjónsdóttir,
Össur Geirsson, Vilborg Jónsdóttir,
Saga Össurardóttir, Freyþór Össurarson.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa,
öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig
auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang
þess þess Mbl@centrum.is en nánari upp-
lýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það
eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari
ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu-
bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
t
Innilegar þakkir færum við þeim, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug vegna
fráfalls eiginmanns mfns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
HERMANNS GUÐLAUGSSONAR,
Njálsgötu 27,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Fjórðungssjúkrahússins á ísafirði fyrir
frábæra hjúkrun og umönnun.
Guðrún Valborg Finnbogadóttir,
Finnbogi Hermannsson, Hansina Garðarsdóttir,
Guðlaugur Hermannsson, Ásdfs Gunnarsdóttir,
Sesselja Guðrún Hermannsdóttir, Benedikt Skarphéðinsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Lokað
Lokað í dag frá kl. 12.00 vegna jarðarfarar
BÖÐVARS JÓNSSONAR.
A. Wendel ehf.,
Sóltúni 1.
t
Ástkær eiginkona mín, dóttir, tengda-
dóttir, móðir okkar, systir og amma,
VALGERÐUR INGÓLFSDÓTTIR,
Baðsvöllum 8,
Grindavik,
lést á Landspítalanum mánudaginn
24. febrúar sl.
Ólafur Sigurpálsson,
Vigdis Magnúsdóttir,
Sigurpáll Aðalgeirsson,
Ingólfur Guðjónsson, Guðbjörg Þórisdóttir,
Erla Hjördfs Ólafsdóttir,
Vigdís Guðrún Ólafsdóttir, Jón Þór Helgason,
Magnús Ingólfsson,
Guðrún Bára Ingólfsdóttir,
Ágúst Þór Ingólfsson
og barnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR,
Drápuhli'ð 23,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 28. febrúar kl. 10.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakk-
aðir, en þeim, sem vilja minnast henn-
ar, er bent á líknarfélög.
Guðmundur Gíslason,
Sigri'ður Guðmundsdóttir, Arnar Guðmundsson,
Eli'n Fanney Guðmundsdóttir, Ásgeir Halldórsson,
Ólöf Svava Guðmundsdóttir, Hlöðver S. Guðnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Systir okkar og ástkær fraénka,
SIGRÍÐUR J. JÓHANNESDÓTTIR
frá Skálholtsvík,
til heimilis á Austurbrún 2,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtu-
daginn 27. febrúar kl. 10.30 árdegis.
Rannveig Jóhannesdóttir,
Jón Jóhannesson,
Þórdís Jóhannesdóttir
og frændfólk hinnar látnu.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför eiginkonu
minnar, dóttur, móður okkar, tengda-
móður, systur og ömmu,
HELENU SIGURGEIRSDÓTTUR,
Brekkuseli 18,
Reykjavik.
Bæringur Guðvarðsson,
Ólöf Gestsdóttir,
Ólöf Bæringsdóttir, Jóhanna Sigurgeirsdóttir,
Áslaug Bæringsdóttir, Jóhann Halldórsson,
Ingi R. Bæringsson, Garðar Sigurgeirsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
HAUKS GUÐJÓNSSONAR,
Bláhömrum 2,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks blóð-
skilunardeildar og deildar 14G á Land-
spítalanum.
Sigríður Guðjónsdóttir,
Guðjón Ómar Hauksson, Guðný Jónsdóttir,
Ragnheiður Hauksdóttir, Brynjólfur Sigurbjörnsson,
Sveinn Hauksson, Sigríður V. Magnúsdóttir,
Guðríður Svandís Hauksdóttir, Ómar Einarsson,
Hrafnhildur Hauksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.