Morgunblaðið - 26.02.1997, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 41
FRETTIR
Eftirlit með
eftirvögnum
LÖGREGLAN á Suðvesturlandi
ætlar næstu daga að huga að
ástandi eftirvagna og tengitækja.
Sérstaklega er ætlunin að kanna
ástandið á snjósleðakerrum og
hestakerrum, s.s. varðandi teng-
ingar, ljósa- og hemlabúnað svo
og skráningu og skoðun. Þá verður
hugað að því hvort dráttarökutæki
eru búin eins og reglur kveða á
um, t.d. hvað varðar speglabúnað.
Eftirvagnar, og þar með snjó-
sleðakerrur, yfir 750 kg að leyfðri
heildarþyngd, eru skráningar-
skyldir.
Aftan á snjósleðakerru á að vera
I sami ljósabúnaður og krafist er
aftan á bifreið. Ef breidd kerrunn-
ar er meiri en 1,6 m eiga að vera
tvö framvísandi stöðuljós á henni.
Aftan á kerrunni eiga að vera
a.m.k. tvö rauð þríhyrnd glitaugu,
á hvorri hlið a.m.k. eitt gult glit-
auga og að framan a.m.k. tvö hvít
glitaugu. Svo má bæta við framvís-
andi stefnuljósum og stefnuljósum
Innritun grunn-
skólanema í
borginni
INNRITUN grunnskólanemenda í
Reykjavík fer fram dagana 26. og
I 27. febrúar 1997. Innritað verður
í grunnskólum borgarinnar frá kl.
9-16 báða dagana.
I Um er að ræða innritun 6 ára
barna sem hefja skólagöngu í 1.
bekk grunnskóla á komandi hausti
en þetta eru börn sem fædd eru á
árinu 1991.
í þessum hópi eru um 1600 börn
samkvæmt íbúaskrá Reykjavíkur
og munu þau skiptast milli 29
grunnskóla.
Þessi aldursflokkur er skóla-
skyldur og hvetur Fræðslustöð
Reykjavíkur foreldra til að innrita
börnin í hverfisskóla sína á tilsett-
um tíma.
Þessa daga fer einnig fram inn-
ritun þeirra barna og unglinga sem
þurfa að flytjast milii skóla næsta
haust. Hér er átt við þá nemendur
sem munu flytjast til Reykjavíkur
úr öðrum sveitarfélögum, einnig
þá sem koma úr einkaskólum (svo
sem Skóla ísaks Jónssonar eða
Landakotsskóla) og þá sem þurfa
að skipta um skóla vegna breyt-
inga á búsetu innan borgarinnar.
Sömuleiðis þarf að tilkynna ef fyr-
irhugaður er flutningur úr borg-
inni. Ekki þarf að innrita þá nem-
endahópa sem flytjast í heild milli
skóla að loknum 7. bekk.
Lengd viðvera
„Afar mikilvægt er að öll fyrr-
greind börn og unglingar verði
skráð í hverfisskólum sínum á
ofangreindum tíma þar sem nú fer
í hönd árleg skipulagning og undir-
búningsvinna sem ákvarðar m.a.
fjölda bekkjardeilda og kennara-
ráðningar hvers skóla,“ segir í frétt
frá Fræðslustöð Reykjavíkur.
Sömu daga fer fram innritun
barna í lengda viðveru (heilsdags-
skóla) fyrir næsta vetur. Forráða-
menn þurfa að skrá börn sín á til-
settum tíma til að tryggja að þau
fái vist í lengdri viðveru.
Forseta
Slóveníu afhent
trúnaðarbréf
HÖRÐUR H. Bjarnason sendiherra
afhenti 19. febrúar sl. Milan Kuc-
an, forseta Slóveníu, trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra íslands í Sló-
veníu með aðsetur í Stokkhólmi.
ljósum, þokuafturljósum og auka
stöðuljósum.
Ef bifreið, sem dregur snjósleða-
kerru, er mjórri en 2,20 m má
kerran ná 30 sm út fyrir hvora
hlið ökutækisins, en sé hún 2,20 m
eða meira má kerran aðeins ná 10
sm út fyrir hvora hlið þess.
Snjósleðakerrur skal skoða al-
mennri skoðun á þriðja ári eftir
að hún var skráð fyrsta sinni og
síðan árlega frá og með fimmta
ári eftir að hún var skráð fyrsta
sinni.
Ökumaður skal gæta þess, að
ökutæki sé í góðu ástandi. Sérstak-
lega skal þess gætt, að stýrisbúnað-
ur, hemlar, merkjatæki og ljósabún-
aður séu í lögmætu ástandi og virki
örugglega. Sama á við um eftirvagn
og tengitæki, svo og tengingu
þeirra og tengibúnað.
í fréttatilkynningu kemur fram
að það er von lögreglunnar að eig-
endur og umráðamenn eftirvagna
gæti þess að tækin uppfylli skil-
yrði umferðarlaga og reglugerðar
um gerð og búnað ökutækja.
Námskeið í
fyrir sumarbú-
staðaeigendur
G ARÐYRKJU SKÓLI ríkisins í
samvinnu við Skógrækt- og land-
græðslu ríkisins standa fyrir nám-
skeiði um skóg- og tijárækt fyrir
sumarbústaðaeigendur laugardag-
inn 15. mars nk. frá kl. 10-16 í
Garðyrkjuskólanum, Reykjum í
Ölfusi.
Námskeiðið er ætlað áhugafólki
um tijárækt í sumarbústaðalóðum
og stærri ræktunarlöndum, öðrum
en skógrækt á bújörðum. Fjallað
verður m.a. um skipulag og hönn-
un lands, skjólmyndun, val teg-
unda m.t.t. ólíksjarðvega ogblönd-
un. Leiðbeinendur verða þeir Björn
B. Jónsson, skógræktarráðunautur
Skógræktar ríkisins hjá Skógar-
þjónustu Suðurlands og Kristinn
H. Þorsteinsson, garðyrkjufræð-
ingur.
Nánari upplýsingar og skráning
á námskeiðið er hjá Magnúsi Hlyn
Hreiðarssyni, endurmenntunar-
stjóra, eða á skrifstofu skólans
alla virka daga frá kl. 8-16.
Námskeið
um liðveislu
FFA, fræðsla fyrir fatlaða og að-
standendur, stendur fyrir nám-
skeiði um liðveislu í Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi laugardag-
inn 1. mars kl. 9-15.30. Nám-
skeiðið er ætlað aðstandendum,
fötluðum og öðrum sem áhuga
hafa á að kynna sér mismunandi
möguleika í liðveislu fyrir fatlaða.
A námskeiðinu verða flutt erindi
um liðveislu í tómstundum, búsetu
og atvinnu bæði frá sjónarhóli not-
enda, foreldra og fagfólks. Þór
Þórarinsson, framkvæmdastjóri
Svæðisskrifstofu Reykjaness, flyt-
ur erindi um fyrir hveija liðveislan
er og hvernig er hægt að nota lið-
veislu. Árni Stefánsson frá Félags-
málastofnun Reykjavíkur fjallar
um liðveislu í tómstundum. Tveir
fatlaðir einstaklingar segja frá
hvernig liðveisla í tómstundum
nýtist þeim og foreldri segir frá
reynslu sinni. Jóna Harðardóttir
frá Svæðisskrifstofu Reykjavíkur
fjallar um liðveislu í búsetu og
Margrét Magnúsdóttir frá Svæðis-
skrifstofu Reykjaness um liðveislu
í atvinnu.
Þátttökugjald er 1.000 kr. og
er hádegisverður og kaffi innifalið.
Skráning þátttöku er hjá Lands-
samtökunum Þroskahjálp.
Fordæma
aðför að sjúkra-
húsum á lands-
byggðinni
EFTIRFARANDI ályktun vegna
tillagna um niðurskurð í heil-
brigðismálum á landsbyggðinni var
samþykkt á fundi héraðsráðs Barð-
strendinga 20. febrúar:
„Héraðsráð Barðstrendinga for-
dæmir aðför heilbrigðisyfirvalda
að sjúkrahúsum á landsbyggðinni.
Kröfur um niðurskurð ' kostnaðar
við rekstur sjúkrahúsanna sýna
glöggt hve þeir er að þeim kröfum
standa, þekkja lítt til búsetu í dreif-
býli og þá landfræðilegu erfiðleika
er starfsfólk heilbrigðisþjón-
ustunnar starfar og býr við.
Markmið laga um heilbrigðis-
þjónustu er skýr. Þar stendur að
allir landsmenn eigi sama rétt til
heilbrigðisþjónustu. Góð heilbrigð-
isþjónusta er einn af hornsteinum
búsetu í dreifbýli. Með þessum nið-
urskurðarhugmyndum eru heil-
brigðisyfirvöld að leggja drög að
eftirfarandi: Auknum fólksflótta á
suðvesturhornið og vaxandi erfið-
leikum við að manna heilbrigðis-
stofnanir á landsbyggðinni með vel
menntuðu starfsfólki.
Er það von héraðsráðs að téður
niðurskurður komi ekki til fram-
kvæmda."
Námskeið í eld-
smíði á vegum
Fræðsludeildar
MHÍ
FRÆÐSLUDEILD MHÍ efnir til
námskeiðs í eldsmíði 5. mars til
2. apríl í eldsmiðjunni hjá J. Hin-
rikssyni. Kennari er Sigrún Guð-
mundsdóttir, myndhöggvari.
í fréttatilkyningu segir að eld-
smíði sé fom aðferð til að vinna
jám í hvaðeina og sem dæmi megi
nefna eldhúsáhöld, skeifur og skart.
Fræðsludeild MHÍ er ný stofnun
sem skipuleggur námskeið fyrir
almenning. Fræðsludeildin sérhæf-
ir sig í námskeiðum, endurmennt-
un og símenntun fyrir fólk sem
starfar að sjónlistum s.s. myndlist-
arfólk, mynd- og handmennta-
kennara og handverksfólk.
Sjómenn skora
á ráðherra
STJÓRN Sjómannasambands ís-
lands skorar á ráðherra samgöngu-
mála að sjá til þess að allra leiða
verði leitað til að unnt verði að
upplýsa orsakir þess hörmulega
sjóslyss þegar skelfiskveiðiskipið
Æsa fórst síðastliðið sumar.
Stjórn sambandsins leggur ríka
áherslu á að orsakastaðreyndir
liggi á borðinu til að unnt verði
að beita fyrirbyggjandi aðgerðum
komi í ljós að orsaka slyssins sé
að leita i tæknilegum þáttum.
Jafnframt skorar stjóm sam-
bandsins á ríkisstjóm og Alþingi
að veita auknu fjármagni til rann-
sókna á sjóslysum sem og annarra
slysavarnamála, segir í frétt frá
Sjómannasambandinu.
Erindi um
tengslamyndun
FÉLAGIÐ íslensk ættleiðing held-
ur fræðslufund miðvikudagskvöld-
ið 26. febrúar kl. 20.30 á Grettis-
götu 6.
Inga Stefánsdóttir sálfræðingur
mun fjalla um tengslamyndun.
Fræðslufundir verða síðan áfram
síðasta miðvikudag hvers mánaðar
til vors. Umræðuefni tengjast allt-
af uppeldi barna og samskiptum
innan fjölskyldu, með sérstöku til-
liti til ættleiðinga.
Fræðslufundur
hjá Geðhjálp
LEIÐIR til þátttöku geðsjúkra í
samfélaginu er heiti fyrirlestrar
sem haldinn verður í félagsmiðstöð
Geðhjálpar, Tryggvagötu 9, (Hafn-
arbúðum), fimmtudaginn 27. febr-
úar kl. 20.
Fyrirlesarar eru Anna Guðrún
Arnardóttir yfiriðjuþjálfi og Anna
Sigríður Valdemarsdóttir, iðju-
þjálfi á geðdeild Landspítalans við
Klepp. Sagt verður frá ferðalagi
um Danmörku og Svíþjóð þar sem
þær kynntu sér nýjungar og leiðir
til þess að auka þátttöku geðsjúkra
í samfélaginu. Sýndar verða m.a.
litskyggnur af „Reise Caffe“,
kaffihúsi, og ferðaskrifstofu í
Árósum „Fountain House“ og
„Váxthuset, Gunnareds Gárd“ í
Gautaborg ásamt öðrum nýjungum
og tilraunum sem gerðar eru til
þess að opna geðsjúkum leið til
virkrar þátttöku í samfélaginu.
Fræðslufundurinn er opinn öllum.
Námskeið um
pottamál o g
matjurtagarð-
inn í Garðyrkju-
skólanum
HALDIÐ verður námskeið, laugar-
daginn 1. mars kl. 10-16, fyrir
almenning í Garðyrkjuskóla ríkis-
ins, Reykjum í Ölfusi, um allt sem
viðkemur pottablómum og inni-
blómum og matjurtum í heimilis-
garðinum.
Fyrir hádegi mun Gunnþór Guð-
finnsson, kennari við skólann,
fjalla um matjurtir í heimilisgarð-
inum, notkun og umhirðu þeirra
og eftir hádegi mun Lorýa Björk
Jónsdóttir, kennari, fara í gegnum
helstu umhirðuþætti pottablóma
og inniblóma, s.s. birtu- og raka-
stig, vatnsþörf, áburðargjöf, snyrt-
ingu og fjölgun.
Nánari upplýsingar og skráning
eru hjá endurmenntunarstjóra
skólans alla virka daga frá kl.
8-16 eða á skrifstofu skólans.
■ Á AÐALFUNDI Samtaka ’78,
félags lesbía og homma á ís-
landi þann 22. febrúar var kosin
ný stjórn félagsins. Formaður var
kosinn Percy B. Stefánsson. Á
fyrsta fundi stjórnar skipti stjórnin
með sér verkum. Klara Bjartmarz
var valin varaformaður, Valgerð-
ur Guðjónsdóttir, ritari og Ág-
ústa Jónsdóttir, gjaldkeri. Aðrir
stjórnarmenn eru Baldur Þór-
hallsson, Páll Price og Sif Jóns-
dóttir.
Stofn- og tengi-
stígar gengnir
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur í dag fyrir gönguferð eftir
fyrirhuguðum vef stofn- og tengi-
stíga fyrir gangandi og hjólandi í
Vesturbænum í Reykjavík. Þessir
fyrirhuguðu stígar eru á drögum
að skipulagi 1996-2016 sem liggja
fyrir hjá Borgarskipulagi.
Farið verður frá Hafnarhúsinu
kl. 20. Um tvær gönguleiðir verður
að velja. Tengistíga vestan
Tjarnarinnar suður í Háskólahverf-
ið og með Brynjólfsgötu, Nesvegi
og Hofsvallagötu yfir á stofnstíg-
inn við Frostaskjól. Þar verður
sameinast hinum hópnum. Þeir
sem vilja ganga hratt fara stofn-
stíga frá Hafnarhúsinu, upp Gróf-
ina og austan Tjarnarinnar og
áfram með Njarðargötu og Þorra-
götu yfir á strandstíginn í Skeija-
firði, af honum með Frostaskjólinu
og Keilugranda og í lokin stuttan
spöl með strönd Kollaijarðar og
gömlu höfninni að Hafnarhúsinu.
Allir velkomnir.
■ UMSÓKNARFRESTUR um
ökukennaranám við Kennarahá-
skóla íslands rennur út föstudag-
inn 28. febrúar nk. Námið er 15
einingar og er skipulagt sem eins
árs hlutanám og hefst í júní í vor
en lýkur í maí á næsta ári. Inntöku-
skilyrði eru lokapróf á framhalds-
skóla eða náms- eða starfsreynsla,
m.a. á sviði umferðaröryggismála
sem meta má sem hliðstæðan
undirbúning. Sérstakt fomám
verður fyrir þá sem ekki hafa lok-
ið námi í kennslu- og uppeldis-
fræði. Umsóknareyðublöð liggja
frammi á skrifstofu Kennarahá-
skólans. Umsókn skal fylgja stað-
fest afrit af prófskírteinum og
nöfn tveggja umsagnaraðila.
LEIÐRÉTT
Grunnskólinn
í Borgarnesi
í UMFJÖLLUN um Heilsuleikskól-
ann Skólatröð í Morgunblaðinu í
gær féll niður orð í lok greinarinn-
ar og kom því ekki fram hvaða
grunnskóli hyggst verða heilsu-
skóli, en það er Grunnskólinn í
Borgarnesi, auk Iðnskólans í
Reykjavík.
Umhverfissjóður
en ekki Pokasjóður
í PISTLI um þáttinn í sátt við
náttúruna á Stöð 2 sem birtist í
Morgunblaðinu 22. febrúar sl. var
missagt að þátturinn væri gerður
með styrk úr Pokasjóði. Hið rétta
er að gerð þáttanna er styrkt með
framlagi úr Umhverfissjóði versl-
unarinnar. Það leiðréttist hér með.
t
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför bróður okkar, mágs og frænda,
MAGNÚSAR GUÐMUNDSSONAR,
Álfaskeiði 64,
Hafnarfirði.
Emil Guðmundsson,
Sigríður Guðmundsdóttir,
Karl Guðmundsson,
Svavar Guðmundsson,
og aðrir vandamenn.
Lokað
Skrifstofan er lokuð frá kl. 13 í dag, 26. febrúar,
vegna jarðarfarar BÖÐVARS JÓNSSONAR.
Fasteignasalan Fold,
Laugaveg 170.
á hliðum kerrunnar. Einnig aftur-
vísandi bakkljósum, auka hemla-