Morgunblaðið - 26.02.1997, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 26.02.1997, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 47 FÓLK í FRÉTTUM Stórtónleikar í MH TÚN, stórtónleikar úr Norðurkjallara Menntaskólans við Hamrahlíð, voru haldnir í síðustu viku. Fram komu 17 hljómsveitir, þar á meðal Maus, Stjörnukisi, Dash og Plastich. Tónleikarnir voru hljóðritaðir og verða gefnir út á geisladiski. Ljósmyndari Morgunblaðsins var á tónleikunum. HÖRÐUR Kristgeirsson og Hreinn Hjartarson. Morgunblaðið/Jón Svavarsson HELGA Sigmundsdóttir, Guðbjörg Einarsdóttir og Eva Björk Guðmundsdóttir. 10.000 á Latabæ UM SÍÐUSTU helgi kom 10.000. gesturinn á sýninguna Áfram Latibær í Loftkastalanum, en hann var Gylfi Björn Hvannberg. Kona hans Ingibjörg Þóra Gestsdóttir var einnig þar ásamt börnum þeirra Dijjá, Gylfa og Gesti Hvannberg. Á meðfylgjandi mynd sést Magnús Olafsson, einn leikaranna í sýningunni, afhenda heppnu fjöl- skyldunni blóm, bók og boli að gjöf af þessu tilefni. TILBOÐ: Kjúklingabiti 99 kr. ^mnsnNDEir Álinnréttingar Hönnum og smíðum eftir þínum hugmyndum t.d. skápa, afgreiðsluborð, skilti, auglvsingastanda sýningarklefa o.mfl. • ■! aTI . <8E( • Faxafeni 12. Sími 553 8000 Hjónabandi fórnað fyrir orðspor HIN ítalskættaða fyrrum eigin- kona Rogers Moore, Luisa, kom fram með merkar upplýsingar um ástæðuna fyrir skilnaði þeirra Rog- ers, í blaðaviðtali nýverið. Roger, segir Luisa, var gagntekinn þörf á því að sýna karlmennsku sína utan hjónabands og því fór sem fór. Roger Moore þekkir hvert mannsbarn, fyrst gerði hann garð- inn frægan sem dýrlingurinn Sím- on Templar og siðar á ferlinum þótti hann óvenju vel heppnaður James Bond. Moore er á sjötugs- aldri, en fjallmyndarlegur sem fyrr og það sama má segja um Luisu, en hjónaband þeirra varði í 35 ár og þótti með þeim traust- ari í Hollywood. Sem segir að vísu ekki mikið. En Luisa fór út í meiri smáatriði. Hún kenndi kirtla- krabbameini sem Roger fékk um umskiptin. Hann hefði veikst og það varð opinbert hvað amaði að. Karlinn fékk bót meina sinna, i bili a.m.k., en þótti orðspor sitt sem kyntákn hafa dalað. Til þess að kippa því í liðinn hafi hann afráðið að fórna hjónabandinu og fara á fjörurnar við ungmeyjar. Sem hann hefur gert með ljóm- andi árangri. Ozzy er sprell- lifandi ►ÞAÐ er ekki nóg með að gamli þungarokkarinn Ozzy Osbourne sé enn á Iífi, sem er nokkurt afrek miðað við lífernið hér á árum áður, heldur er hann enn í fullu fjöri. Það er nokkuð síðan sem hann segist hafa snúið baki við áfengi og eiturlyfjum og sér líði betur en nokkru sinni fyrr. Að vísu hafi hann þyngst nokkuð í áranna rás. En nýja árið er þrautskipu- lagt hjá þessum fyrrverandi söngvara Black Sabbath, sem hefur um nokkurt árabil komið fram undir eigin nafni og flutt sama gamla klassíska þunga- rokkið (sem sumir telja reyndar staðnað og úrsérgengið). A næstu dögum kemur út nýr tvö- faldur geisladiskur með nýjum lögum Ozzy og hápunktur ársins OZZY hefur gildnað dálítið síðustu árin. er mikil rokkveisla sem hann stendur fyrir í San Bernadino í Kaliforníu í október. Þar koma fram m.a. Slayer, Selptura og Biohazard, en sjálfur er hann að sjálfsögðu aðalnúmerið. Eftir hljómleikana ætlar hann síðan að steypa sér í gerð „best of“ disks sem verður auk þess kryddaður með þremur nýjum lögum. HIN ítalskættaða Luisa. Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi fyrir vélvædd vörugeymsluhús sem minni lagera. Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar. Aðeins vönduð vara úr sænsku gaeðastáli. Mjög gott verð. Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki. Leitið ráða við skipulagningu og byggingu lagerrýma. Þjonusta ■ þekking ■ ráögjöt. Aratuga reynsla. UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN SMIÐJUVEGI 70, KÓP. • SlMI 564 4711 • FAX 564 4725 Glæsileg Heimsferðaveisla eldri borgara á Hótel Sögu með Sigurði Guðmundssyni 2. mars Heimsborgarar, félagsskapur Heimsferða fyrir eldri borgara, heldur nú glæsilega hátíð fyrir eldri borgara og alla þá, sem unna góðum félagsskap á Hótel Sögu sunnudagskvöldið 2. mars, kl. 19.00. Glæsilegur kvöldverður þar sem veislustjóri verður Sigurður Guðmundsson og fjöldi góðra gesta kemur í heimsókn með glæsilega dagskrá um leið og við rifjum upp minningar úr vetrarstarfi í máli og myndum. Bókaðu strax - takmarkaður sætafjöldi Dagskrá • Sigurður Guðmundsson, veislustjóri • Myndasýning • Gítartónleikar • Hetjutenórar • Ómar Ragnarsson • Haukur Heiðar með dinnertónlist • Glæsilegir ferðavinningar M atseðiCC Krentsúpa með spergilsprotum. Lambabryggsvöðvi með tjómasoðnum villisveppum, grœnmeti og kartöflum. Kafli. Verðfer. 1.900 Bókanir: Hótel Saga, sími 552 9900 Heimsferðir, sími 562 4600 HEIMSFERÐIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.