Morgunblaðið - 26.02.1997, Side 52
52 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓIMVARP
MYNPBONP
Einn gegn óvin-
veittum gestum
MYNDBÖND
SÍÐUSTU VIKU
Innrásardagurinn
(Independence Day) •k'k'k
Hr. Hörmung
(Mv. Wrong) k k'h
Steinakast
(Sticks and Stones) k'h
Kazaam
Kazaam k
í blíðu og stríðu
(Faithful kk'h
Billy slær í gegn
(Billy’s Holiday) kk
Jane Eyre
(JaneEyre) kk
Ed
(Ed) 'h
Dauði og djöfull
(Diabolique) k
Barnsgrátur
(The Crying Child) k
Riddarinn á þakinu
(Horseman on the Roof)
kkk
Nær og nær
(Closerand Closer) k k'h
Til síðasta manns
(Last Man Standing) k k'h
Geimtrukkarnir
(Space Truckers) k k
Börnin á akrinum
(Children of the Corn) k
Powder
(Powder) kk'h
Innrásin
(The Arrival)_______________
Vísindaskáldsaga
★ ★
Leikstjórn og handrit: David
Twohy. Framleiðandi: Thomas
G. Smith. Kvikmyndatökustjóri:
HiroNarita. Tónlist: Arthur Kemp-
el. Aðalhlutverk: Charlie Sheen,
Lindsay Crouse, Teri Polo og Ron
Silver. 112 mín. Bandarisk. Live
Intemational/Háskólabíó 1996.
Bönnuð bömum yngri en 12 ára.
Útgáfudagur 25. febrúar.
CHARLIE Sheen fer með hlut-
verk stjörnufræðingsins Zane Zim-
inski, sem hefur að atvinnu að
fylgjast með
hljóðmerkjum
utan úr geimn-
um. Þegar Zane
og samstarfs-
maður hans
greina undarleg
og óútskýranleg
hljóð bera þeir
tíðindin undir
yfirmenn sína,
sem einhverra hluta vegna neita
að viðurkenna fundinn og skipa
þeim að halda sínu striki, líkt og
ekkert hefði í skorist. Zane á erf-
itt með að lúta þessum undarlegu
fyrirmælum og bregður á það ráð
að grennslast betur fyrir um hljóð-
merkin utan úr geimnum upp á
eigin spýtur, sannfærður um að
óþekktar verur séu að reyna að
ná sambandi. Honum tekst að
nema hljóðið á nýjan leik og kemst
að raun um að það geti hugsanlega
átt rætur sínar í Mexíkó. Þangað
leggur hann því næst leið sína og
fyrr en varir tekst honum að kom-
ast í návígi við óvinveitta gesti
utan úr geimnum, sem vinna að
því að gera jörðina óbyggilega plá-
netu.
Þrátt fyrir að skorta allt sem
kenna má við snilld er Innrásin
hin ágætasta vísindaskáldsaga.
Hún fer að vísu nokkuð seint af
stað en á sem betur fer nokkuð
góðan endasprett um það bil sem
Zane hefur upp á óvinunum.
Charlie Sheen er að verða B-
myndaleikari númer eitt í Holly-
wood. Hann leysir rullu sína eins
og að drekka vatn, enda ekki mjög
frábrugðin þeim sem hann hefur
tekið að sér upp á síðkastið, mis-
skilin hetja sem glíma þarf við
vandamál sín einn og yfirgefinn.
Svipar reyndar grunsamlega mikið
til hans eigin lífs, ef marka má
slúðurfréttirnar.
Skarphéðinn Guðmundsson
UÓSMYNDASÝNINC MORGUNBLAÐSINS
MÓSAMBÍK
Fátækt land með framtíð
Mósambík er eitt fátækasta land heims og illa leikið eftir langvinnar styrjaldir og alræðisstjórn.
En þetta stóra Afríkuríki er engu að síður land möguleikanna. Ýmsar líknar- og hjálparstofnanir
hafa verið að leggja landsmönnum lið við að bæta lífskjörin. Á meðal þeirra eru Hjálparstofnun
kirkjunnar og Þróunarsamvinnustofnun íslands.
Þorkell Þorkelsson, Ijósmyndari Morgunblaðsins, ferðaðist nýverið um Mósambík og fylgdisl
meðal annars með brunnagerð og jarðsprengjuhreinsun, auk þess sem hann beindi linsum sínum
að litskrúðugu mannlífinu. í anddyri Morgunblaðshússins, Kringlunni 1, hefur verið komið upp
yfirlitssýningu á völdum myndum sem teknar voru í ferðinni.
Sýningin stendur til föstudagsins 7. mars og er opin á afgreiðslutíma blaðsins kl. 8-18 alla virka daga
og laugardaga kl. 8-12.
Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu.
MYNDASAFN
ZANE Ziminski (Charlie Sheen) þarf einn síns liðs að glíma við
óvinveitta gesti utan úr geimnum.
BIOIN I BORGINNI
Amaldur Indriðason/Sæbjöm Valdimarsson
BIOBORGIN
Að lifa Picasso kkk
Höfundar nokkurra bestu mynda
síðari ár skortir eldmóð í kvik-
myndagerð um meistara Picasso,
en Hopkins kemur til bjargar með
enn einum stórleik (á köflum).
Lausnargjaldið kkk
Gibson leikur auðkýfing sem lendir
í því að syni hans er rænt. Snýr
dæminu við og leggur lausnarféð
til höfuðs skálkunum. Gibsonmynd
í góðum gír.
Ævintýraflakkarinn kVi
Sjá Kringlubíó.
Hringjarinn í Notre Damekk
k
Sjá Sambióin Álfabakka
SAMBÍÓIN,
ÁLFABAKKA
Þrumugnýr kkk'A
Flugvélatryllir með snarbrjáluðum
Ray Liotta sem gerir hvað hann
getur til að stúta farþegaflugvél.
Hringjarinn í Notre Dame
kkk
Vönduð, falleg fjölskyldumynd
byggð á hinni sígildu sögu um til-
vistarkreppu kroppinbaksins í Frú-
arkirkju. Litlaus tónlist og fram-
vinda en snjöll, íslensk talsetning.
Sonur forsetans k k
Lumma um forsetasoninn og vin
hans í lífverðinum sem losar um
hann í einangrun Hvíta hússins.
Sinbad á einn hrós skilið og fellur
vel í kramið hjá smáfólkinu.
Ærsladraugar kk'A
Þokkalegar brellur í kolsvartri
hrollvekju framleiddri af Zemeckis
sem skilur lítið eftir þrátt fyrir nýst-
árlegan efnisþráð.
Dagsljós kk'A
Þegar sprenging verður í neðan-
sjávargöngum með hroðalegum af-
leiðingum, mætir okkar maður,
Stallone, á staðinn. Og óþarft að
spyrja að leikslokum.
Kona klerksins. k
Sykursætt og vellulegt fjöl-
skyldudrama frá sápudeild drauma-
verksmiðjunnar.
Djöfiaeyjan kkk'A
Friðrik Þór, Einar Kárason, óað-
finnanlegur leikhópur og leiktjalda-
smiður og reyndar allir sem tengj-
ast Djöflaeyjunni leggjast á eitt að
gera hana að einni bestu mynd árs-
ins. Endursköpun braggalífsins er
í senn fyndin, sorgleg og dramatísk.
HÁSKÓLABÍÓ
Móri og Skuggi (The Ghost and
the Darkness) k k
Tveir ævintýramenn tengjast
tryggðaböndum á ljónaveiðum í
Afríku. William Goldman skrifar
handritið sem kemur kunnuglega
fyrir sjónir.
Undrið kkk'A
Átakanleg saga um píasnósnilling
sem brestur á hátindi frægðar
sinnar er frábærlega kvikmynduð í
alla staði og Rush hlýtur að teljast
sigurstranglegur við Óskarsverð-
launaafhenfmguna í mars.
Meðeigandinn kk
Svolítið lunkin gamanmynd um
stöðu konunnar í fjármálaheimi
New York.
Áttundi dagurinn kk'A
Heimar sakleysis og veraldar-
mennsku skarast í ljúfri og einkar
vel leikinni, belgískri mynd sem
minnir mjög á Regnmanninn.
Leyndarmál og lygar kkkk
Meistaraverk frá Mike Leigh um
mannleg samskipti, gleði og sorgir
og óvæntar uppákomur í lífi bresks
almúgafólks.
KRINGLUBÍÓ
Þrumugnýr kk'A
Flugvélatryllir með snarbijáluðum
Ray Liotta sem gerir hvað hann
getur til að stúta farþegaflugvél.
Ævintýraflakkarinn k'A
McCauley Culkin verður að teikni-
myndafígúru og kynnist klassískum
ævintýrum.
Kvennaklúbburinn k k'A
Þijár góðar gamanleikkonur,
Hawn, Keaton og Midler, fara á
kostum sem konur sem hefna sín
á fyrrum eiginmönnum.
Hringjarinn í Notre Dame
kkk
Sjá Sambíóin, Álfabakka.
LAUGARÁSBÍÓ
Koss dauðans kkk'A
Geena Davis og Samuel L. Jackson
fara á kostum í frábærri hasarmynd
frá Renny Harlin.
Samantekin ráð kk
Stelpurnar í hverfinu taka uppá að
ræna banka og haga sér nákvæm-
lega eins og strákarnir í hverfinu.
Jarðarförin kk
Litríkur leikhópur og leikstjóri kom-
ast lítið áleiðis í lýsingum á eijum
milli bófaflokka í New York kreppu-
áranna. Chris Penn skárstur af öll-
um mönnum!
REGNBOGINN
Múgsefjun kkk
Ágætlega heppnuð kvikmyndagerð
á leikriti Arthurs Miller, í deiglunni
Þar sem leikarar á borð við Daniel
Day Lewis og Joan Allen fara á
kostum.
Sú eina rétta kkk
Dálagleg, rómantísk gamanmynd
um bræður og kvennamál.
Banvæn bráðavakt k k'A
Haganlega samansett, lítil spennu-
mynd sem skilur fátt eftir en er
góð og fagmannleg.
Reykur kkk'A
Einfaldleiki og góð sögumennska
einkenna eina bestu mynd síðari
ára og gera hana að listaverki þar
sem Harvey Keitel hefur aldrei ver-
ið betri en tóbakssölumaður „á
horninu" í New York.
STJÖRNUBÍÓ
Þrumugnýr kk'A
Flugvélatryllir með snarbrjáluðum
Ray Liotta sem gerir hvað hann
getur til að stúta farþegaflugvél.
Tvö andlit spegils k k'A
Það stormar af Streisand í róman-
tískri gamanmynd sem tekur sig
full alvariega þegar líða tekur á.
Jeff á í engum vandræðum með
mjúka manninn.