Morgunblaðið - 27.03.1997, Side 2

Morgunblaðið - 27.03.1997, Side 2
2 D FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ SÍÐSUMAR í Urriðavatnsdölum. Vífísstaðahlíð í baksýnog fyrsti snjór haustsins á Esjunni. Hér er horft af veröndinni við golfskálann yfir 1. teig og niður eftir 1. braut. Urriðavatn er fallegt stöðuvatn, steinsnar norðan við Setbergs- hverfið í Hafnarfirði. Það blasir við af Flóttamannavegin- um, sem svo hefur verið nefndur og Bretar lögðu á stríðsárunum. En framan frá sést vatnið í raun- inni illa, því hraunið sem Reykja- nesbrautin liggur yfir, hefur tekið á sig krók og runnið austur á bóginn og út í vatnið. í hlíðinni norðan við vatnið má sjá tóftir eftir bæ og dálítill túnkragi hefur verið í kring. Þetta var sá bær sem hét Urriðakot til 1944, en síðan Urriðavatn. Þama hefur verið búið með kindur og treyst á beit uppi í Urriðavatnsdölum og Heiðmörk. Guðmundur Jónsson átti jörðina til 1939, en seldi hana þá sonar- sonum sínum, Kára og Alfreð, sem síðar varð forstöðumaður Kjarv- alsstaða. Síðasti ábúandi á Urriða- vatni var hinsvegar Gunnlaugur Sigurðsson, sem bjó þar til 1957. Bærinn brann skömmu síðar. Nokkru áður, 1946, hafði 30 manna hópur úr Oddfellowregl- unni einast jörðina. Hún hafði ver- ið auglýst til sölu og Reykjavíkur- bær gerði tilboð, sem var hafnað. Þá var það að hópurinn úr Odd- fellowreglunni bauð betur, svo kaupin gengu: Kaupverðið var 160 þúsund krónur. Síðar bættist við hópinn svo í honum varð 61 maður. Núna, eftir að Urriðavatnsland er orðið þekkt útivistarsvæði, hafa menn dást að þessari framsýni Oddfellowa. En þeir voru ekki með draumsýnir um það sem nú er orðið að veruleika þama, heldur var annað sem stóð hug þeirra og hjarta nær á þeim tíma. Þeir höfðu fengið augastað á hlíðinni ofan við Urriðavatn fyrir sumarbústaði. Þórður er einn úr hópnum. Þórður Kristjánsson, bygginga- meistari, er einn af fimm eftirlif- andi félögum úr hinum upphaflega 30 manna hópi Oddfellowa sem keyptu landið. Hinir eru Björn G. Bjömsson, fyrrverandi forstjóri Sænska frystihússins, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, fyrrverandi stór- kaupmaður, Guðjón Sigurðsson múrarameistari og Jónas B. Jóns- son fyrrverandi fræðslustjóri Þórður er Dýrfirðingur að upp- runa, en lærði húsasmíði á ísafirði og fluttist síðan til Reykjavíkur 1943 og varð mikilvirkur í bygg- ingastastarfsemi um sína daga; EFST: Hér er listrænn metnaður og snyrtimennska í fyrirrúmi. Jón Otti Sigurðsson og Sigurður Einarsson eiga heiðurinn af hönnun á bekkjum sem hvíla á stula- bergi, og Jón Otti hefur ásamt Guðjóni Inga Eg- gertssyni hannað teigmerkingar sem einnig eru á stuðlabergi. A hallandi fleti efst á steininum er brautin sýnd og númerið eins og sést á myndinni. í miðju: Af umhverfinu í kringum flötina má sjá, að sá sem missir boltann sinn útaf, sendir í verulegum ógöngum. Neðst: Bráða- birgða skáli Golfklúbbs Odd- fellowreglunnar og Golf- klúbbsins Odds. Hér gera félagar sig klára fyrir sólset- ursmót. “VISBENDING", skúlptúr eftir Jón Otta Sigurðsson. Hugmynd hans er sú að verk- ið rísi í 7m hæð við heimreið- ina á völlinn. byggði mörg stórhýsi, þar á meðal hótelið og aðrar byggingar Loft- leiða á Reykjavíkurflugvelli, mörg hús Pósts og síma, flestar bygg- ingar KR; þar á meðal KR-heimil- ið og svo byggði hann að sjálf- sögðu blokkir. Þórður verður átt- ræður á þessu ári, og er í útliti og að líkamsburðum eins og alla dreymir um að geta orðið á þeim aldri, en fæstir ná. Hann kvaðst hafa dregið sig í hlé frá byggingar- starfsemi þegar hann var 75 ára; „þá nennti ég þessu ekki lengur og fór að leika mér“, segir hann. Og hvað meinar hann með því? Ójú, hann kynntist því aldrei í æsku að mega leika sér og á full- orðinsárunum hafði hann ekki tíma til þess. Núna leikur hann golf á hinum nýja golfvelli Odd- fellowa í Urriðavatnslandi og nýt- ur þess. Hann sagði að það hefði verið afar skrýtin tilfinning í fyrstu að geta bara farið út og leikið sér. En hann kvaðst hafa kunnað því merkilega vel. En hvað varð um drauminn um sumarbústaðina? Um þær mundir var þjóðin í hlekkjum allskonar hafta. Til þess að kaupa bíl þurfti gjaldeyrisleyfi og til þess að fá að byggja sumarbústað þurfti fjár- festingarleyfi, - og öllu var úthlut- að eftir pólitískum línum og geð- þótta. Skömmtunarstjórunum þótti ekki nauðsynlegt að byggja sumarbústaði og fjárfestingarleyfi til þeirra fengust einfaldlega ekki. Þá kom upp tvær hugmyndir, seg- ir Þórður. Önnur var sú að selja landið í bútum og græða á því; hin var sú að gefa það Oddfellow- reglunni. Það varð ofaná árið 1957 að gefa Urriðavatnsland og Odd- fellowreglan þáði gjöfina með þökkkum. Landamerki skilgreind 1986 Urriðavatnsland er í Garðabæ. Upphaflega náði það neðar í hraunið en Reykjanesbrautin ligg- ur nú. En þegar Oddfellowreglan var búin að eiga landið í 40 ár, komst skriður á nýja þróun. Sá hiuti landsins sem var norðan við Reykjanesbrautina, 5 ha., var seld- ur Garðabæ 1986. í framhaldi af því tók stjórn Styrktar- og líknar- sjóðs Oddfellowa undir stjórn Jóns Ótta Sigurðssonar að huga að nýtingu landsins. í því augnamiði var unnið að bók um Urrðavatns- land sem út kom 1988. Ljóst var að efri hluti landsins yrði ekki byggður fyrr en eftir 2050 og Urriðavatnsdalir þar^ að auki á vatnsverndarsvæði. I ljósi fjöl- breyttrar náttúru og hrífandi feg- urðar sem þarna er árið um kring, þótti augljóst að þarna gæti orðið útivistarparadís í næsta nágrenni við þéttbýlið á Reykjavíkursvæð- inu. Eftir að sú ákvörðun var tekin að líta á Urriðavatnsland sem útivistarsvæði, fékk fram- kvæmdanefndin til liðs við sig fag- menn eins og Reyni Vilhjálmsson og Þráin Hauksson, landslagsarki- tekta, og þá kom fljótlega upp hugmynd um golfvöll en jafnframt lögð áherzla á það að landið yrði almennt útivistarsvæði og girðing inn með Vífilsstaðahlíð var rifin niður. Líknarsjóðurinn hefur lagt til efni í göngustíga, en unglingar í Garðabæ hafa unnið verkið. Nú eru komnir göngustígar inn eftir Búrfellshrauni, sem tengjast stígnum undir hlíðinni og hægt að ganga þar talsvert langan og framúrskarandi fallegan hring. Inni í hrauninu hafði verið efnis- taka, sem hætt var við, en útivist- ar- og leiksvæði útbúið í gryfj- unni. Hún er nægilega stór til að rúma löglegan handboltavöll og þar verður púttvöllur að auki. í Urriðavatnsdölum var frá náttúrunnar hendi öll sú tilbreyt- ing í landslagi sem þarf til þess að golfvöllur geti orðið í senn krefjandi og skemmtilegur. Leitað var til Hannesar Þorsteinssonar, líffræðings og golfvallarhönnuðar á Akranesi og á hann heiðurinn af skipulagi vallarins og útfærsiu á teigum, brautum og flötum. Með honum unnu þeir Reynir Vil- hjálmsson og Þráinn Hauksson. Þriðji aðilinn sem þarna átti hlut að máli er Batteríið, arkitektastofa Sigurðar Einarssonar og Jóns Ól- afs Ólafssonar, en þeir hafa teikn- að framtíðar golfskála, sem um leið verður miðstöð útivistarfólks og liggja stígar frá skálanum út á stíginn í hrauninu. Þegar skipulagstillögurnar lágu fyrir og höfðu verið samþykktar af þar til bærum yfirvöldum, voru þær gefnar út í veglegu riti og kynntar innan Reglunnar. Var strax mikill áhugi á stofnun golf- klúbbs sem Oddfellowar ættu aðild að. Um leið og völlurinn var tilbú- inn, hófu margir félagar í nýstofn- uðum Golfklúbbi Oddfellowa að leika golf, sem aldrei höfðu snert á því áður, og uppgötvuðu nú, að Urriðavatnsdalir er unaðsreitur HUGMYND arkitektanna í Batteríinu að framtíðar golfskála, sem jafnframt nýtist öllum þeim sem stunda útiveru og gönguferðir á svæðinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.