Morgunblaðið - 27.03.1997, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 27.03.1997, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997 D 9 SAGNFRÆÐINGAHÓPURINN sem feröaðist um Eystri-Byggð og tók þátt í ráðstefnu. fyrir sláturfé á haustin. Þar liggja rústir norræns landnámsbæjar. Auk- inheldur eru þar rústir af eskimóabæ sem reis eftir að búsetu norrænna manna lauk. Þar fannst litarefni í pjötlum, indígóblár litur, sem talið er víst að hafi borist frá Miðjarðar- hafslöndum. Þykir litafundurinn ör- ugg sönnun þess að þarna hafi fólk haft samband við umheiminn og ut- anríkisverslun verið stunduð. Um- hverfí Narsaq við Narsaqsund geym- ir margar minjar norrænna manna. Um kvöldið áður hafði sagnfræð- ingahópurinn ekið inn að Dýmesi þar sem var fom kirkjustaður en virtist notaður sem útivistarsvæði heima- manna, einskonar Heiðmörk, og var þar fremur óyndislegt um að litast. Ekki bætti úr skák að skammt undan er ruslahaugur staðarins en vegna erfiðleika við urðun er sorpi brennt á Grænlandi. Er sagt að á tímum norrænna manna hafi í Dýrnesi verið stærsta kirkjusókn á Grænlandi. Ferðin að Grænlandsjökli yfír Breiðafjörð var ævintýraleg. Túr- hestar splæsa öllum sínum filmum á ísjakana í fjörðunum fyrstu dagana að sögn Ingva og víst eru þeir til- komumikil sjón. En það eru græn- lensku firðimir einnig. Þeir eru risa- vaxnir og mikilfenglegir. Fjöllin eru himinhá og bergstálið hverfur þver- hnípt ofan í fallega grænblátt dýpið. Lendingarstaðir fyrir báta eru ekki margir. Keyrt er utan í klöppina og fólk stekkur í land. Upp við jökul- brúnina fundum við ólafssúru og steinbijót, grávíði og eyrarrós og Grænlandsjökullinn bragðaðist ágætlega. Gísli Gunnarsson sagn- fræðingur átti kollgátuna sem oftar á sinn lúmskfyndna hátt: „Hann minnir á vatn“. Álitlegur klumpur var tekinn með í bátinn og þegar muiinn Grænland- sjökullinn var kominn í bland við Johnny Walker Black Label tók enn að hýma yfir ferðalangi. Grænlenski lággróðurinn barst í tal og einhver þekkti sérfræðing í lággróðri og sagði að það hlyti að vera leiðinlegt starf. „Það vex manni þó ekki yfir höfuð,“ sagði Kristján. Minnisvarði um skipsskaða í ferðinni gafst góður tími til að skrafa um heima og geima því fjarð- arbáturinn var þægilega hæggengur og tíminn eins og stóð í stað um borð. í hópnum, sem ferðaðist undir styrkri stjórn þeirra Ingva og Hrefnu Róbertsdóttur sagnfræðings, voru sagnfræðingar, doktorar og prófess- orar og framhaldsskólakennarar og áhugamenn um sagnfræði, menn og konur sem áttu það sameiginlegt að vilja kynnast Grænlandi. Einhver- staðar, líklega strax í Narssarsuaq, slæddust með smávaxin frönsk hjón og ferðuðust með okkur á sjó og landi. Enginn vissi hvaðan þau komu eða hvert þau á endanum fóru en þeim virtist líka kompaníið og nutu þeirra veitinga sem í boði voru. Hrefna sá um bókhaldið og var nóg að segja Hrefna borgar! og var þá allt látið eftir hópnum. Fljótlega þótt- ust menn heyra eitthvað svipað í þeim frönsku þegar þau stóðu upp frá borðum. Varð það tilefni vísu- korns eins ferðalangsins: Grænlands inni í fógrum firði friðsælt er og mikils virði. Etur hver og einn sem torgar. Æðislegt, og Hrefna borgar! Frá Grænlandsjökli var haldið til Qaqortoq. Þar er einasti gosbrunn- urinn á öllu Grænlandi. Hann er niðri við höfnina, ekki langt frá gömlu kirkjunni í bænum. Var hið arabíska kælitæki fögur smíð og sérkennileg sjón á þessum stað. Qaqortoq er byggð upp í klettahlíðar. Húsgrunnar eru steyptir ofan á klöppina og timb- urhús reist á þeim, oft margar hæð- ir, og máluð blá eða græn eða jafn- vel bieik. Þar eru krár en Skipperkrá- in vinsælust af íslendingum sem röt- uðu þangað fyrsta kvöldið leiðbein- ingarlaust, hver einstakur hópurinn á fætur öðrum. Upphófst nú gleði mikil í hópi íslendinganna á hafn- arkrá þessari en nokkuð skyggði á hana að fáeinar grænlenskar konur eigruðu á milli borða, ofurölvi og sníktu bjór og sígarettur og gerðu sér dælt við karlpeninginn. Var þetta í eina skiptið í allri ferðinni sem slíkt ónæði hlaust af Grænlendingum. í gömlu kirkjunni í Qaqortoq sótt- um við nokkrir ferðalangar messu á sunnudagsmorgni og urðum vitni að fallegri skím. I kirkjunni hangir lát- laust minnismerki um gamlan skipsskaða. Danska grænlandsfarið Hans Hedtoft var í jómfrúarferð sinni er það sigldi frá Quaqortoq í janúar árið 1959 og sökk eftir að hafa rek- ist á ísjaka skammt undan Hvarfí. Fórust allir um borð, nærri hundrað manns. Um svipað leyti eða rúmri viku síðar fórst togarinn Júlí frá Hafnarfirði með 30 manns þar sem hann var á karfaveiðum við Ný- fundnaland. Á veggnum í kirkjunni hékk björgunarhringur af Hans Hedtoft. Hann fannst síðar við Grindavík, eftir því sem ferðalanga minnti, og var það eina er varðveist hafði og var til minningar um skelfi- legt sjóslys, sem fjölmiðlar kölluðu á sínum tíma annað„Titanic-slys“. Einn sögufrægasti og merkasti staður í Eystri-Byggð er Hvalseyj- arfjarðarkirkjan, Qaqortukulooq á máli heimamanna, í samnefndum firði skammt frá Qaqortoq. Kirkjan er best varðveitta rústin frá tímum norrænna manna á Grænlandi eða frá því að byggðin lagðist af á fimmt- ándu öld og er nánast helgur staður norrænum ferðalöngum. I kirkjunni giftu sig fyrir nokkrum árum Jonat- han Mozfeldt, fyrrum formaður grænlensku landsstjómarinnar, og Kristjana Guðmundsdóttir, en svo illilega vildi til þegar sagnfræðinga- hópurinn ætlaði að skoða kirkjuna að búið var að fjarlægja bryggjuna vegna viðgerða og þrátt fyrir margar og svakalegar tilraunir skippersins til að lenda bátnum var það ekki hægt. Um kvöldið fór svolítill hópur, sem ekki vildi fyrir nokkum mun missa af kirkjuskoðun, á spíttbát á kirkjustaðinn og skoðaði hann gaum- gæfílega, fullur heilagrar lotningar fyrir svo sögufrægum stað og merk- um minjum. Bámst þá hlátrasköll inn til altarisins og trufluðu helgistund- ina. Krakkar hlupu út og inn um kirkjuna og kom í ljós að íslensk fjöi- skylda hafði slegið upp tjaldi sínu skammt frá og naut þar útivistar. Sannaðist enn að Islendingar dúkka upp á ólíklegustu stöðum á ólíkleg- ustu tímum. Guðsþjónusta í Görðum í Hvalseyjarfirði er rekin gróðr- arstöð og er unnið þar merkilegt ræktunarstarf. Heitir staðurinn Upemaviarssuk og eru þar gerðar mjög athyglisverðar tiiraunir með plöntur en jarðvegur á Grænlandi er lítill og gróður smágerður. í Qaqortoq slóst Jonathan Moz- feldt, fyrrum formaður grænlensku landstjómarinnar á Grænlandi, í hóp- inn og fylgdi honum til leiðarloka. Hann hafði haldið innblásna ræðu á ráðstefnunni um nágrannana í vestri, Grænland og ísland, og var nú kom- inn í tveggja daga frí með Islending- unum frá pólitísku argaþrasi, m.a. til að halda messu fýrir íslendingana á hinu foma biskupssetri Görðum en Jonathan er prestlærður maður. Hafði hann meðferðis gemsa og talaði í hann látlaust á milli þess sem hann ræddi og fræddi um Grænland. Var hann einkar Ijúfur ferðafélagi og hafði gaman af að halda ræður og gat í sömu andránni farið niður á botn Kyrrahafsins og komið upp aftur í Hvíta húsinu. Haldið var til hins foma biskupsseturs Garða eða Igaliko Ei- ríksfjarðarmegin og gengið yflr eiði það sem skilur íjörðinn við Einars- flörð. Um kvöldið var ljúffengt hrefnukjöt á borðum. Guðsþjónusta Jonathans í kirkjunni í Görðum á Þjóðhátíðardaginn 17. júní var falleg og eftirminnileg at- höfn. Amaldur hét fyrsti biskupinn yflr Grænlandi, vígður árið 1124. Jonathan talaði í stólræðu um sameig- inlega sögu íslendinga og Grænlend- inga og óskaði íslendingunum til hamingju með daginn. Nokkuð af heimamönnum sótti messuna og fyrir og eftir predikun voru sungnir sálmar á græniensku, Ó, þá náð að eiga Jes- úm og Hærra minn guð til þín og Fögur er foldin. Eftir messuna vom rústir biskupssetursins kannaðar. Þama fundust biskupsbein sem talið er að séu manns sem nefndist Jón smyrill og var biskup 1188 til 1209; stafur fylgdi úr rostungstönn og bisk- upshringur úr gulli. Ingvi fararstjóri, sem allt veit um Grænland, var áhugasamur um að sýna hópnum fomt áveitukerfi í fjallinu ofan við Garða en þama blása þurrir vindar, sagði hann, svo að áveitukerfið hefur komið sér vel. Úr fjallinu var haldið aftur í bátinn og siglt til flugvallarins í Narssarssuaq þar sem ferðin hófst vikuna áður. Haldin var þjóðhátíðar- gleði mikil á flugvallarhótelinu um kvöldið. Vom grænlenskir réttir þar á borðum, m.a. selbitar, svartir eins og lakkrís, en ekki sérlega bragðgóð- ir. Margt var þar annað og gómsætt á borðum. Góðir grannar Við höfðum farið hefðbundinn rúnt um Eystri-Byggð og fengið nokkra hugmynd um byggðaleifar norrænna manna í landinu, hrikalega nátt- úrafegurð Grænlands og viðmótsgóða og elskulega nágranna okkar, Græn- lendinga. I nýlegri og afar lofsam- legri grein í Berlingske Tidende er skrifað um vaxtarbrodda í græn- lensku efnahagslífi og bent á jákvæð- ar hiiðar til mótvægis við þá nei- kvæðu umfjöllun sem alvanaleg er í dönskum fjölmiðum um Grænland. Segir að um Grænland hafl í mörg ár verið fjallað sem vandræðabam. Ef fréttir bárast þaðan vora þær um drykkjusýki, háa sjálfsmorðstíðni og svikahrappa. En nú er greinilega öld- in önnur. Hin pólitíska og efnahags- lega þróun sem átt hefur sér stað í landinu undanfarin tuttugu ár lofar mjög góðu, segir þar. Menntunin er alltaf að aukast en vandamálið er að einungis um helmingur þeirra Græn- lendinga sem sækir langskólanám erlendis snýr heim aftur. Þá hættir ríflega helmingur Grænlendinga námi eftir grannskólann. En grænlenski efnahagurinn er í öram vexti, sam- starf við nágrannaþjóðir og alþjóðlegt samstarf er sífellt að aukast og litið er til ferðaþjónustu sem vaxandi at- vinnugreinar. Grænland er úr alfaraleið og ekki sá staður sem mönnum dettur fyrst í hug að ferðast um. En íslendingar tengjast iandinu sögulega og þar búa góðir grannar sem vert er að heim- sækja. Þeir eiga framtíðina fyrir sér og þeim virðist allt mögulegt, jafnvel að fljúga út um glugga á hótelher- bergjum í fuglslíki. • ••• »•••• • ••• • •••4 • •••• •••••• • •••• •••••• .VtWi >•• • ••• >•• • •< W- > •» Ra I » D^Wtli WÞM Í m k f^AoTo)* " J rysg ÍJL VERTU FRJALS xv eiius OG M, FUGLINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.