Morgunblaðið - 27.03.1997, Page 10

Morgunblaðið - 27.03.1997, Page 10
10 D FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ EKKI skal það selt dýrara en keypt var, en það hef ég heyrt haft fyrir satt, að eft- ir því sem and- legt atgervi manna dragist saman, aukist þrá þeirra eftir við- urkenningu annarra. Samkvæmt þessari kenningu láta þeir sem skammt eru leiddir á braut heims- kunnar, sér nægja viðurkenningu nánasta umhverfis síns. Hinir, sem lengra eru á þessa óheilla- braut komnir, eru ekki sagðir una sér hvíldar, fyrr en þeir hafi talið sjálfum sér og öðrum trú um, að allur heimurinn falli þeim að fót- um og vegsami þá. Ég ætla mér ekki þá dul, að dæma þessa kenningu rétta eða ranga. Hitt tel ég víst, að gildi hún um einstaklinga, gildi hún einnig um þjóðir. Og þá erum við á hálum ís, Islendingar. Undanfar- in ár höfum við lagt mikla áherslu á að kynna öðrum þjóðum menn- ingu okkar, og þá aðallega listir, rétt eins og við telj- um, að þessi fyrir- bæri muni sækja sér næringu í það að vera þekkt meðal framandi þjóða. Hins vegar höfum við minna sóst eftir því, að kynnast list- um og öðrum hlutum menningar erlendra þjóða. Það er líkt og við munum ekki allt- af hin fomu sann- indi, að heimskt er heimaalið bam. Frá þessu ástandi em þó til ýmsar gleðilegar undan- tekningar. Ein þeirra er bók sem út kom fyrir síðustu jól. „Austurljóð" kallast hún. I henni gefur að líta þýðing- ar Steingríms Gauts Kristjánssonar hér- aðsdómara í Reykja- vík, á ljóðum frá Ind- landi, Japan og Kína. Kennir þar margra grasa enda eru í bókinni ljóð eftir mörg skáld frá ýmsum tímum. Elsta ljóðið eftir nafn- greindan höfund er eftir kínverska skáldið og vínsvelg- inn Ljú Líng sem lífsanda dró á áran- um 221 til 300 e.Kr. Nokkur eldri ljóð era í bókinni, en þau verða ekki rakin til ákveðinna skálda. Yngsta skáldið sem Ijóð á í bókinni er Indveijinn Sarkar. Hann fæddist árið 1921 oglést árið 1989. Eittþeirraskálda, sem lesa má á síðum „Austurljóða", er kínverski áttundu aldar maðurinn Lí Bæ. Raunar er einnig að finna þýð- ingar á ljóðum hans í bók Helga Hálfdanarsonar, „Kínversk ljóð frá liðnum öldum“, sem kom út árið 1973. Þar gengur hann undir nafn- inu Lí Pó, enda skráning kínverskra nafna oft breytingum undirorpin. Lí Bæ telst til höfuðskálda Kína. Líkt og Ljú Líng var hann vínelsk- ur mjög og gætir þess víða í Ijóðum hans. Til gamans skal eitt þeirra birt hér. Ljóðið nefnist „Að vakna fullur á vordegi". Li'f mitt er eins og mikill draumur. Hver veit hvort það er ómaksins vert. Ég sit að sumbli og þegar degi hallar síg ég saman á dyrahellunni. Ég vakna við fuglakvak í garðinum. Ég stari svefndrukknum augum Ekki öll sem sýnist Fynr síðustu jól kom út bókin „Austurljóð“ en í henni gefur að líta þýðingar Steingríms Gauts Kristjánssonar, héraðsdómara í Reykjavík, á ljóðum frá Indlandi, Japan og Kína. Pjetur Hafstein Lárusson ræddi við Steingrím Gaut um ljóðaþýðingar úr fram- andi menningarheimi og um austurlenska heimspeki og lífssýn. á flögrandi svartþröst og spyr hvað tímanum líði, en fuglinn svarar: Það er maí. Ég kemst við, og mér er þungt fyrir bijósti. Ég halla mér aftur, sýp á og syng fullum hálsi. Þegar lagið er á enda er harmur minn þorrinn. Að svo mæltu skal dómarinn kallaður til yfirheyrslu, áminntur um afstæða sannsögli, svo sem hæfir umræðuefninu. Því ekki tjóir að leita sannleikans í skáldskap, né heldur lyginnar. Hvoragt erþar að finna, aðeins skynjunina mitt á milli. Það er í sjálfu sér ekki fátítt, að menn leggist í skáldskap, hvort Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson heldur þeir yrkja frá eigin brjósti eða þýða annarra manna ljóð. Hitt er sjaldgæft, að þeir sem seinni kostinn velja, leiti viðfangsefna alla leið til Austurlanda. Spyril fýsir að vita, hví Steingrímur Gaut- ur valdi þá leið. að get ég nú ekki alveg sagt með vissu, annað en það, að fyrir svona tuttugu árum vaknaði hjá mér almenn- ur áhugi á Aust- urlandafræðum, aðallega þó á heimspeki. Kannske var ég að láta gamlan draum rætast með því að kynna mér það sem ég hafði fund- ið fyrir, að vantaði í menntun mína. Síðar, sennilega fimm árum seinna, eignaðist ég dálítið kver um tedrykkjusiði í Japan. í þessu kveri gat að líta allmörg ljóð. Áður en ég vissi af, var ég farinn að fikra mig áfram með þessa texta og þ.á m. að þýða þá yfir á íslensku. Þessi tedrykkjufræði eru nátengd zen-búddisma. Ákveðin ljóðagerð tengist svo tedrykkju- siðunum á svipaðan hátt og önnur japönsk listgrein, sem felst í því að raða blómum í vasa með vissum hætti. Þarna var forvitnin vakin. Ég fór svo að líta í kringum mig í Háskólabókasafninu og á Lands- bókasafninu. Fyrr en varði var ég einnig farinn að skoða ljóð frá Kína og Indlandi og raunar víðar að, t.d. frá Egyptalandi og Persíu. Svo kynntist ég Kóreumönnum fyrir nokkrum árum. En það var ekki nokkur leið, að draga neitt upp úr þeim um þarlendan skáld- skap. En hver veit nema ég rambi einhvers staðar á eitthvað þaðan? - Höfum við Vesturlandamenn margt að sækja til Austurlanda í andlegum efnum? Já, enda höfum við sótt heilmik- ið þangað á ýmsum tímum. Ég held líka að allir hafi gott af því að kynnast menningu annarra þjóða, hversu langt sem þeir svo seilast í þeim efnum. Og kannske er menningin alls staðar svipuð, nema rétt á yfirborðinu. - Hefur ytra form austrænnar ljóðagerðar tekið svipuðum breyt- ingum og gerst hefur á Vestur- löndum, síðustu hálfa aðra öldina eða svo? Ég hef ekki forsendur til að svara þessu af viti. Þó hef ég séð, að kínverskir og víetnamskir rit- höfundar sem ég á rit eftir, eru mjög mótaðir af vestrænum bók- menntum. Það er eitt skáld, sem heitir Ai Qing og lifir kannske enn. Hann er ekta kínverst skáld en þó eru vestræn áhrif augljós í verkum hans. Sama finnst mér gilda um Tagore. Þótt hann sé sannur Aust- urlandamaður, þá er ljóðagerð hans á viss- an hátt hluti vest- rænnar ljóðahefðar. - Séu þýðingar ykkar Helga Hálfdan- arsonar á kínverskum ljóðum borin saman, kemur í Ijós, að hann heldur sig við þá margnefndu „stuðl- anna þrískiptu grein“ meðan rímleysið ríkir í þínum þýðingum. Er vitað hvort forn kín- verskur ljóðaskáld- skapur var rímaður eður ei? Já, það er ýmislegt vitað um það. Þess má geta, að Helgi hef- ur þessa reglu varð- andi kínversku ljóðin, en ekki þau japönsku. Ekki eru öll kínversk ljóð háttbundin. En mjög mörg þeirra eru ort til söngs. Þau ljóð hljóta upphaflega að hafa verið rímuð, kannske ekki í líkingu við okkar reglur í þeim efnum, en um ein- hverskonar endur- tekningu keimlíkra hljóða hlýtur að hafa verið að ræða. Þetta bundna form hefur glatast með þeim breytingum sem orðið hafa á kínverskri tungu í aldanna rás. Eins og menn vita, þá er kínverst letur tákn- mál, sem allir Kínveij- ar geta nýtt sér, séu þeir læsir. Hins vegar eru töluð ólík tungu- mál í landinu. Því geta menn lesið ljóð án þess að skilja talmál þeirrar tungu sem ort er á. Svo það er eðlilegt að rím og ann- að form týnist. Ekki má heldur gleyma því, að Kínveijar hafa s.k. fjórtónakerfi í máli sínu. í hverju eins atkvæðis orði er viss tónn. I skáldskap hafa þeir raðað orðum, sem eru í sama tónhætti. Slíkt er náttúrulega ógerlegt að flytja yfir í önnur tungumál. En það er ekki hægt að neita því, að þeir sem þýða kínversk ljóð í bundnu máli hafa mikið til síns máls. Best væri ef hægt væri að syngja ljóða- þýðingarnar með þeim lögum sem sungin voru við frumgerðina. En það er nú miklum vandkvæðum háð. Ég held mér sé óhætt að segja, að við þurfum yfirleitt helmingi fleiri orð, til að koma allri hugsun hvers ljóðs til skila, heldur en Kínveijarnir þurfa á að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.