Morgunblaðið - 27.03.1997, Qupperneq 12
12 D FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
SAGA hefðarkonu
(The Portrait of a
Lady) er saga
ísabellu Archer,
ungrar amerí-
skrar hefðarkonu
sem rís upp gegn
þeim örlögum
sem íhaldssamt
samfélagið hefur
ætlað henni. Hún hafnar fjárhags-
lega girnilegu bónorði, vill skoða
heiminn og heldur til Evrópu. Þar
sannfærir ungur frændi hennar
og aðdáandi, deyjandi föður sinn
um að arfleiða ísabellu að all-
nokkru fé en það veitir henni ekki
það frelsi sem hún þráir. Hún er
sjálfstæð en saklaus og er varnar-
laus þegar vinkona hennar, frú
Merle, tælir hana í ófarsælt hjóna-
band með Gilbert Osmond sem er
fjarrænn og eigingjarn loddari.
Isabella þjáist mikið vegna hinnar
misheppnuðu ákvörðunar sinnar.
„Ég finn sterk tengsl við ísa-
bellu, eins og svo margar konur
gera,“ segir Campion. „Fyrir mér
er myndin einskonar ævintýri þar
sem að Osmond táknar undirheim-
ana sem frú Merle leiðir ísabellu
í en hún nær að flýja í lokin.“
Nicole Kidman ýtti
boltanum af stað
Jane Campion hlaut heims-
frægð fyrir kvik-
mynd sína Píanó
sem fékk mikla
aðsókn og fjölda
verðlauna. Áður
hafði hún gert
tvær myndir í
fullri lengd, Swe-
etie og An Angel
at my Table.
Saga hefðarkonu
er gerð eftir
skáldsögu amer-
íska rithöfundar-
ins Henry James.
En hvað var það
sem vakti áhuga
Campion á að
takast á við um
margt flókið me-
lódrama James?
„Eftir gerð
Píanós, þar sem
ekki var mikið
um samtöl, þráði
ég að fást við
mynd sem inni-
héldi mikið af
góðum drama-
tískum sam-
tölum. Mig hafði
lengi langað til
að setja Sögu
hefðarkonu upp í
leikhúsi en var
samt á báðum
áttum, þar sem
ég er ekki ensk
eða amerísk
fannst mér ég
ekki hafa þá ná-
lægð sem væri
nauðsynleg. En
eftir að ég gerði
Píanó, hugsaði
ég, ég get það!
Mér varð ljóst að
í raun er ég Evrópumaður, ég
rétt eins og Ada [aðalsöguhetja
Píanó, innsk. blm.] á rætur mínar
að rekja til Skotlands og ég hef
sama bókmenntabakgrunn og
Evrópubúar.
Það var hinsvegar Nieole Kid-
man sem ýtti boltanum af stað.
Ég, Monty Montgomery og Steve
Golin [fyrrum félagar Siguijóns
Sighvatssonar hjá Propaganda
Films sem framleiðir myndina,
innsk.blm.] grínuðumst stundum
með það að hún væri í raun fram-
leiðandi myndarinnar, hún stjórn-
aði öllu! Hún er rétt eins og sögu-
hetjan Isabella afar hugrökk
stúlka og hún vildi að við drifum
okkur af stað og gerðum mynd-
ina. Ég hafði heyrt að Merchant
og Ivory ætluðu að gera myndina
og vildi ekki fyrir nokkra muni
lenda í einhverri samkeppni. En
Nicole sagði: Gerum hana samt!
Og fyrst hún hafði hugrekkið þá
spurði ég sjálfa mig: Af hverju
hef ég það ekki? Svo við lögðum
af stað í þessa erfiðu för.“
Campion hafði afar fijálsar
hendur við gerð Sögu hefðarkonu,
fékk rausnarlegt fé frá PolyGram
sem dreifir myndinni og gat tekið
sinn tíma í að undirbúa myndina
og taka hana á þeim mikilfenglegu
stöðum sem lýst er í bókinni; Col-
iseum í Róm, höllunum og görðun-
um í Lucca og Flórens á Ítalíu og
í Sailsbury á Englandi. Campion
segir myndina vera það erfiðasta
sem hún hafi tekist á við. Hvað
var svona erfitt?
„Við tókum upp erfiðar senur
nánast daglega og ferðalögunum
fylgdi mikil streita. En erfiðast af
öllu var að kljást við listrænu hlið-
ina. Ef þú ætlar að svara því um
hvað Saga hefðarkonu sé, þá verð-
ur þú að fjalla um stærri spurn-
ingu, um hvað er Iífið? Það er ekki
svo lítil spurning ... en ég er mik-
il bjartsýnismanneskja og ákvað
að hella mér úti verkið án þess að
drukkna.
Henry James er mjög raunsær
höfundur og kröfuharður, hann
vill freista þess að þroska okkur.
Saga hefðarkonu gæti eins heitið
„Niðurlæging ísabellu Archer".
Hún lærir að þekkja sjálfa sig, hún
verður bara hún sjálf. Þetta er oft
sársaukafullt ferli. James segir
einhvers staðar að sársaukinn sé
djúpur en hverfi að lokum og ástin
standi eftir. Hann notar melódram-
að og rómantíkina til að fanga
okkur, síðan kippir hann þeim
grundvelli undan okkur og segir:
Heimurinn er ekki alltaf góður,
slæmu hliðarnar eru kannski fleiri
en þær góðu en við verðum að
halda áfram og þroska okkur.“
Malkovich ekki hræddur
við dökku hliðina
Mikið einvalalið stendur að Sögu
hefðarkonu. Pólska tónskáldið
Wojciech Kilar töfrar fram magn-
þrungna tónlist sem leikur stórt
hlutverk í myndinni og Stuart Dry-
burgh, sem vann með Campion að
gerð Píanós, sér um kvikmynda-
töku. Áður hefur Nicole Kidman
verið nefnd en hún fer með hlut-
verk ísabellu Archer. Með hin
burðarhlutverkin fara Barbara
Hershey (sem tilnefnd hefur verið
til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn)
og John Malkovich. Það truflaði
NÝSJÁLENSKI kvikmyndaleikstjórinn Jane Campion.
NICOLE Kidman í hlutverki ísabellu Archer, og John Malkovich sem Gilbert Osmond.
Sterkar
konur og
sannar
För konu til undirheima og til baka - og
jafnframt saga um leit konu að sjálfri sér.
Þannig lýsir ný-sjálenska leikstýran Jane
Campion nýjustu mynd sinni Sögu hefðar-
konu fyrir Einari Loga Vignissyni en Há-
skólabíó er nú að taka myndina til sýninga.
Morgunblaðið/Sigurður Páll Sigurðsson
HJÓNIN Nicole Kidman og
Tom Cruise á kvikmyndahá-
tíðinni í Feneyjum þar sem
myndin var upphaflega sýnd.