Morgunblaðið - 27.03.1997, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 27.03.1997, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997 D 13 ATRIÐI úr Sögu hefðarkonu. Henry James og kvikmyndirnar Háskalegar sögur Henry James hefur notið nokkurrar hylli kvikmyndagerðarmanna á liðnum árum. Þröstur Helgason segir raunar ekki hlaupið að því að kvikmynda sögur James, ekki síst vegna þess að þær gerast að mikl- um hluta í huga persónanna. I því er ef til vill ögrunin fólgin. HENRY James fæddist árið 1843 í New York en bjó mestan hluta ævi sinnar í Evrópu. Faðir hans, Henry James eldri, vildi ala börn sín upp sem heimsmenn og lagði mikla áherslu á að þau fengju góða grunnmenntun og kynntust vei tungu- málum og menningu gamla heimsins; fram að háskólaaldri sótti Henry yngri því nám sitt bæði í bandarísk- um, enskum, frönskum og svissneskum skól- um. Árið 1862 hóf hann nám í lögfræði við Harvardháskóla en eyddi mestum tíma sín- um í að lesa franska bókmenntafræðinginn, Sainte-Beauve, sem setti fram kenningar um ævisögulega rann- sóknaraðferð í bók- menntum. Tveimur árum síðar birti Henry fyrstu smásögur sínar og greinar í bandarískum tímarit- um. Árið 1875 dvaldi hann í París og kynntist Flaubert, Turgenev og fleiri rithöfundum í fremstu röð á þessum tímum. Hann gleypti í sig snilld þessara manna en stundum hefur verið sagt að Henry James hafi tekist að sam- eina kosti evrópsku og bandarísku skáldsögunnar. Henry James var þannig undir miklum áhrifum frá evrópsku raunsæismönnunum og síðar nat- úralistunum. Sögur hans einkenn- ast af sálfræðilegu raunsæi í anda Flaubert og má segja að The Portrait of a Lady sé eitt af meist- araverkum hans. Henry James var mikið sam- kvæmisljón og er haft fyrir satt að hann hafi sótt 140 veislur í London árin 1878 og 1879. Það fór líka það orðspor af honum að vera sérstaklega vel að sér um sálarlíf kvenna og þá einkum bandarískra kvenna. I fjölmörg- um smásögum sínum fjallaði hann um hina bíræfnu, framhleypnu en saklausu bandarísku konu í afturhaldssömu og stöðnuðu hefðarsamfélagi Evrópu. Mynd þessarar konu er fullgerð af hans hálfu í The Portrait of a Lady þar sem fjallað er um unga konu frá Albany í New York sem kemur til Evrópu full af sveita- legri þröngsýni og sýndarmennsku en jafnframt sannfærð um eigin yfirburði og sína frjálsu hugsun. Hún gerir uppreisn gegn stöðu konunnar í hinni viktoríönsku Evrópu, hún vill ekki einungis láta líta á sig sem gott kvonfang. Bókin er einstök útlist- un á sjálfsdýrkun en um leið afar glögg lýs- ing á karakter Banda- ríkjamanna. The Portrait of a Lady er ekki fyrsta bók Henry James sem er kvikmynduð. James Ivory gerði mynd eftir sögu hans The Europe- ans (1979), Peter Bogdanovich kvikmyndaði Daisy Miller (1974) og Michael Winner gerði mynd eftir bók hans The Tum ofthe Screwsem nefndist The Nig- htcomers (1971) en allar þessar myndir þóttu misheppnaðar. Kvik- mynd Jack Clayton, The Innocents (1961), sem einnig var byggð á The Turn ofthe Sereivþótti hins vegar meistaraverk en með aðal- hlutverkin fóru Deborah Kerr og Michael Redgrave. Það er raunar ekki hlaupið að því að kvikmynda sögur James, ekki síst vegna þess að að þau gerast að miklum hluta í huga persónanna; hinar sálfræðilegu flækjur birtast í innra eintali per- sónanna sem var einmitt eitt af meginstílbrögðum sálarlífsbók- mennta um síðustu aldamót. Ástæðan fyrir því að sögur hans hafa verið kvikmyndaðar er kannski sú að það felst i því ein- hver háski fyrir kvikmyndagerð- ina en hann hefur einmitt vantað í iðnaðinn vestanhafs, háski sem getur skilað sér í mikilli list ef vel tekst til. blaðamann Morgun- blaðsins eilítið að Malkovich leikur í myndinni karákter sem er afar keimlík- ur Valmont greifa sem Malkovich túlk- aði af snilld í Hættu- legum kynnum (Dangerous Liasi- ons). Hvernig svarar Campion slíkri gagniýni? „Þetta er kannski fyrst og fremst vandamál hans, því hann fær ef til vill ekki þá viðurkenn- ingu sem hann verð- skuldar. Ég held að það sé nú varla hægt að segja að hann hafi gert þessa hluti áður, miklu frekar að hann sé að leika stórkostlega á ný. John Malkovich er afar sterkur, tilfínn- ingaríkur maður. Ég vildi hafa sterkan Osmond. Malkovich er ekki hræddur við dökku hliðina, en hann er afar mildur maður og það gerði mér lífið auðveldara. Ég hefði átt miklu erfiðara með að vinna með William Hurt [sem var upp- haflega hugsaður í hlutverk Osm- onds og Malkovich í hlutverk Ralph Touchett, frænda og aðdáanda ísa- bellu, innsk.blm.] því Hurt er leik- ari sem týnir sér í hlutverkum sín- um, ef hann er að leika dimman karakter verður hann dimmur og erfiður sjálfur!" Saga hefðarkonu er talsvert ólík fyrri myndum þínum, ef segja má minna súrrealísk? „Ég hef það fyrir sið að fylgja því sem mér líður vel að fást við, vonandi þroskast ég og mismun- andi myndir kalla á mismunandi umgjörð. En þetta er ekki meðvit- að.“ Skilaboð og ástarkveðja til ungra kvenna Sagt er að kvenhetjur Campion séu allar að einhveiju leyti tengdar leikstýrunni, reynsla þeirra eða karakter. Rétt eins og ísabella Archer missti Jane Campion barn, sonurinn Jasper dó aðeins 12 daga gamall rétt eftir að Campion hafði hlotið Gullpálmann í Cannes fyrir Píanó. „Þessi reynsla breytti lífi mínu og fékk mig til að endur- meta margj;. Það kaldhæðnislega við að Jasper skyldi deyja skömmu eftir einn stærsta viðburð í lífi mínu var að það kenndi mér að maður hefur ekki alltaf þá stjórn á hlutunum sem maður ætlar.“ Saga hefðarkonu er tileinkuð minningu Jaspers. Myndir þínar fjalla allar um sterkar, sjálfstæðar konur. Líturðu á þig sem feminista og hyggstu gera myndir um nútímakonur? „Sterkar konur já, ég myndi allteins segja sannar, opnar, þetta er spurning um sýn. Ég hef ekki bara áhuga á að gera myndir um konur, heldur um fólk almennt en vissulega er ég femínisti. Ég hef gert fjórar myndir, tvær þeirra voru um 19. aldar konur en tvær um 20. aldar konur þannig að ég hef ekki bara glímt við fortíðina. Saga hefðarkonu er skilaboð mín og ástarkveðja til allra þeirra ungu kvenna sem eru sterkar, sjálfstæð- ar, hafa ákveðið „farið í rass og rófu“- hugarfar og vilja vera fal- legar og elskaðar en hafa ekki farið í gegnum það allt saman enn.“ En núið, framtíðin, metnaður þinn og takmörk? „I hreinskilni sagt hef ég nú náð miklu lengra en ég hélt að ég kæmist,“ segir Campion og hlær. „Ég veit ekki hvað mun gerast næst, en er spennt yfir óvissunni. Ég hef sett hitt og þetta í grautinn og hann mallar. Núna ætla ég að fara í frí en ég á von á að næsta mynd verði nútíma- mynd sem ég og Anna systir mín erum að vinna að.“ Símí: 55*1 9800 Samhjólpar- blaðið er komið út Áskriftarsímar 561 1000 561 0477 UMHVERFISSJOÐUR VERSLUNARINNAR Umsóknir um styrki úr Umhverfissjóði verslunarinnar Umhverfissjóður verslunarinnar var stofnaður 1. október 1995 og þátttakendur í honum eru á annað hundrað verslanir um land allt. Tekjur sjóðsins eru af sölu plastpoka í verslunum. Umhverfissjóðurinn úthlutaði á síðasta ári samtals 23 milljónum til verkefna á sviði umhverfismála. í byrjun sumars 1997 mun sjóðurinn úthiuta öðru sinni til verkefna, er falla að markmiðum sjóðsins, sem eru að stuðla að bættu umhverfi landsins, fegrun þess og uppgræðslu. Megin áherslan er lögð á úthlutanir til stærri verkefna en hluta af ráðstöfunarfénu mun verða úthlutað til minni verkefna. Félagasamtökum og einstaklingum, sem hyggjast ráðast í verkefni á sviði umhverfismála gefst hér með kostur á að sækja um styrki til Umhverfissjóðs verslunarinnar og skal umsóknum skilað á eyðublöðum sem fást á skrifstofú sjóðsins í Húsi verslunar 6. hæð. Umsóknarfrestur er til 11. apríl 1997. Umhverfissjóður verslunarinnar, Húsi verslunar, Kringlan 7,103 Reykjavík. Sími 568 7811, myndsendir 568 5569. UNGLINGA-SKÍÐAPAKKAR frá kr. 17.892 stgr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.