Morgunblaðið - 27.03.1997, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 27.03.1997, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ Síðasti einyrk- inn? ÞEIR eru kallaðir einyrkjar. Þeir aka eigin vöruflutninga- bUum. Þeim fækkar óðum og ef fram heldur sem horfir verða stóru flutningafyrir- tækin orðin einráð á markaðn- um innan fárra ára. Þó eru nokkrir sem synda móti straumnum. Guðmundur Björnsson, kenndur við Stakkanes, er einn þeirra. Guðmundur er 65 ára gamall og hefur unnið sem bílstjóri síðan hann var 18 ára gamall og man því tímana tvenna í starfinu. Hann hefur kynnst ýmsum hliðum bílstjórastarfs- ins, keyrt ýtu, vörubíl og síð- ast en ekki síst flutningabUa. Frá árinu 1972 hefur Guð- mundur keyrt reglulega á Hólmavík. Hann fer að jafnaði eina ferð á viku, til Reykjavík- ur og til baka en bætir við ferð ef þörf er á. Þegar Guð- mundur hóf ferðir milli Reykjavíkur og Hólmavíkur þótti gott að komast í kvöld- mat í Hólmavík ef lagt var að stað frá Reylyavík snemma morguns. Nú tekur ferðin fimm tíma undir veiyulegum kringumstæðum. Það hendir þó oft að ferðin dregst á lang- inn vegna veðurs. Varningurin sem Guðmund- ur flytur er af ýmsum toga, vörur fyrir báta og verslanir. Hann þekkir einnig til f isk- flutninga, var í þeim fyrir hygli að enginn kvenmaður er með- al bílstjóranna og svo virðist sem um algjört karlastarf sé að ræða. „Ætli konur mundu nokkuð láta bjóða sér þetta,“ segir einn bílstjór- inn þegar talið berst að þessu. Langar vökur, óreglulegur vinnu- tími og miklar ijarvistir frá fjöl- skyldu og vinum eru þreytandi. En kostirnir bæta upp gallana og ein- um bílstjóranna verður að orði að það „að vera eigin herra og engum háður á ferðum sínum gefur starf- inu gildi". í þessum töluðum orðum verður bílstjórum litið á klukkuna, allir virðast háðir tímanum. Mettir halda bílstjórarnir áfram veginn. Brátt er Borgarfjarðarbrúin að baki og Holtavörðuheiðin fram- undan. Áður en snjómokstur varð reglulegur kom iðulega fyrir að bíl- stjórar handmokuðu sig yfír heið- arnar. Nú leggja bílstjórar sig yfir- leitt ef vegir lokast og bíða þess að þeir verði ruddir. Handafl, harka og handmokstur virðast að mestu úr sögunni. Eitt hefur þó ekki breyst, björgunarstörf bílstjóra. Flutningabílar eru á ferðinni all- an ársins hring í hvaða veðri sem er og því kemur oft í hlut bílstjóra að hjálpa nauðstöddum. Þeir eru yfirleitt fyrstir á vettvang ef bílar fara út af eða eru fastir og veija oft löngum tíma í að aðstoða fólk. Þá dregst ferðin á langinn og oft hafa menn komið kaldir og hraktir í Staðarskála þó að sú sé ekki raun- in núna þegar við rennum í hlað til að fá okkur kaffi. Bílstjórarnir eru heimagangar í skálanum og starfsstúlkur þurfa ekki að þjóna þeim, þeir sækja sér vörur sjálfir. Þar hittast bílstjórar sem ýmist eru á leið norður eða suður. Því er margt um manninn og glatt á hjalla. Ókunnugum verð- ur fljótt ljóst að bílstjórastéttin hef- ur að geyma marga orðheppna og söguglaða menn. Þetta eru vinnu- þjarkar sem víla ekki fyrir sér að vaka heilu sólarhringana. Því er fleygt að einn bílstjóranna hafi vaknað úti í skurði eftir að hafa FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997 D 15 nokkrum árum. Því fer fjarri að Guðmundur sitji einn að flutningum til Hólmavíkur. Kaupfélagið rekur þrjá bíla og Guðmundur lætur sér nægja að flytja sem það „hrekkur af borðum þeirra“ eins og hann segir sjálfur. En á hveiju ári hefur hann einnig fengið keppinauta sem undir- bjóða hann, svonefnda skæru- liða. Það er heiti þeirra sem stimda svarta atvinnustarf- semi. Þessir keppinautar Guð- mundar hafa þó ekki enst lengi, eða sjaldnast lengur en eitt til tvö ár. En alltaf kemur maður í mann stað. Guðmundur hefur sloppið við slys í starfinu hingað til. Hann hefur aldrei velt bíl en einu sinni fór tengivagn sem hann var með á hliðina. Hann telur þó ekki að þessi ferill sé bílsljórahæfileikum hans að þakka heldur bendir hann af mikilli hógværð á góða böa. Hann hefur lengst af átt bOa af tegundinni Man og er hrif- inn af. Hann er örláturi á hól- ið til starfsbræðra sinna og fullyrðir að bestu bílstjóra landsins sé að finna þessu keyrt stanslaust í þijá sólarhringa. En þessar löngu vökur heyra brátt sögunni til. Árið 1995 gengu í gildi sam- ræmdar reglur EES um aksturs- og hvíldartíma bílstjóra flutninga- bifreiða. Fram að því voru engar opinberar reglur hér á landi um þetta efni. Til að hægt sé að fylgj- ast með því að reglunum sé fylgt er skylt að hafa ökurita í öllum flutningabílum sem notaðir eru í atvinnuskyni og vega meira en 3,5 tonn. Ritinn skráir aksturstíma, hraða og vegalengd á sérstaka skífu sem sett er í hann í upphafi ferðar. Þessar upplýsingar auðvelda eftirlit með innheimtu þungaskatts. starfi. Hann telur slys fátíð miðað við að þeir eru á ferð- inni allan ársins hring og í hvaða veðri sem er. Vinnulöggjöfina telur hann góða að mörgu leyti, en leggur áherslu á að aðstæður hér á landi bjóði ekki upp á að henni sé fylgt að öllu leyti. Það vanti t.a.m. útskot á vegi fyrir bíl- ana til að bílsljórar geti hvílt sig ef þörf krefur. f Stranda- sýslu eru allir vegir með ein- breiðu slitlagi og uppfylla því engan veginn kröfur EES um vegi. Guðmundur segir sam- keppnina harðna með hveiju ári sem líður. Hann spáir því að áframhald verði á því að fyrirtækjum fækki og þau stækki og býst við því að hlut- ur skipafélaganna í landflutn- ingum eigi eftir að aukast enn frekar. Hann kallar þetta ein- væðingu sem eigi ekkert skylt við einkavæðingu. Fyrirtæki í landflutningum hafa jú alltaf verið einkarekinn. Ekki segist Guðmundur þó vera á leiðinni að selja sína bíla, hann sé of gamall til „að vera skiptinvynt hjá stóru fyrirtæki“. Með ökuritunum er stórt skref stigið í öryggismálum, segja tals- menn hans, enda er meginmarkmið- ið með notkun þeirra að auka ör- yggi á vegum landsins. Bætt eftir- lit og hertar reglur um vinnutíma bílstjóra eiga að koma í veg fyrir að þeir aki dauðþreyttir á vegum úti og skapi þar með mikla slysa- hættu. Það eru hins vegar ekki all- ir sammála um kosti ökuritans. Landvari, félag vöruflytjenda, snerist gegn ökuritanum og eru ástæður þess fjölmargar. Fulltrúum þess finnst breytingarnar vera of umfangsmiklar á skömmum tíma. Kostnaður við ísetningu ritans í ís- lenska landflutningaflotann var á bilinu 400 til 500 milljónir. Land- varamenn vildu leysa málin á mun ódýrari og einfaldari hátt. Þeir benda á að lög um ökurita byggist á aðstæðum á meginlandi Evrópu. Þær eru gerólíkar íslenskum að- stæðum hvort sem um er að ræða vegalengdir, ökuhraða eða umferð- arþunga. Þar er of mikið álag á vegakerfinu en hér á landi er vega- kerfið vannýtt mestan hlutan ársins og vanþróað á evrópskan mæli- kvarða. Að mati Landvara er þarf- ara að byggja upp íslenskt vega- kerfi en að auka „eftirlitsiðnað" hins opinbera. Eftirlit með ökurita er í höndum Vegagerðarinnar og lögreglu og eru fjórir bílar á vettvangi sem sinna því. Auk þess hefur Vegagerðin heimild til að kalla inn skífur öku- rita hvenær sem er og þannig er hægt að fylgjast með akstri langt aftur í tímann. Enn er ekki farið að taka á brotum á reglugerðinni og einungis er um leiðbeiningar og aðvaranir að ræða. Það á því að koma í ljós hvaða áhrif ökuritar og eftirlit með þeim muni hafa á störf bílstjóranna. Yfír kaffibollanum í Staðarskála láta bílstjórar skoðanir sínar í ljós á þessum málum. „Ökuritar eru af hinu góða“, segir einn. Hins vegar er gætu launin lækkað með styttri vinnutíma. „Ef það á að fara að stoppa mig eftir 48 tíma á viku er ég hættur,“ lýsir einn yfir. Eftir hálftíma hvíld, sem samræmdist evrópskum staðli, er kominn tími til að halda áfram. Áður en haldið er af stað er lok- ið úr kaffibollunum. Það eru u.þ.b. 230 kílómetrar eftir til Akureyrar og því nauðsynlegt að vera vel vak- andi. Bílstjórinn minnist á að fyrstu vikurnar í starfínu hafi svefnplássið í bílnum verið í mikilli notkun því miklar vökur og þreytandi akstur kröfðust reglulegra hvílda. „Ég var vart kominn af stað þegar ég þurfti að leggja mig.“ Aðstæður fyrir flutningabílstjóra til að leggja bílum á leiðinni eru þó heldur bágbornar og bílstjórinn segir að það bráð- vanti útskot fyrir flutningabíla. Langar vökur og langur vinnudagur venjast þó furðu fljótt en erfiðara er að halda sér vakandi á veturna. Nú styttist brátt í að bílstjórinn komist í sitt eigið rúm því eftir margar brekkur og einbreiðar brýr erum við komin á leiðarenda. Snjón- um kyngir niður og klukkan er tæplega þijú að nóttu til. „Við erum á fínum tíma,“ segir bílstjórinn um leið og hann leggur bílnum sem bíður losunar til morguns. Það er tímanna tákn að síðasta verk bílstjórans að loknum löngum akstri skuli vera að kvitta á skífuna sem var í ökuritanum. „Það er fylgst með manni,“ segir hann og glottir. Höfundar eru newar í hagnýtri fjölmiðlun. Leitt hún skyidí vera skækjð eftir John Ford / á Smíðaverkstæðinu: 5. -12. - 20. og 25. apríl Sýningin fer á norræna listahátíð í Stokkhólmi í maí ADEINS 4 SÝNINGAR EFTIR ^StS ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ 551 1200 Komdu við á næstu 0LÍS stöð og víkkaðu sjóndeildarhringinn. léttir þér IffíS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.