Morgunblaðið - 27.03.1997, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 27.03.1997, Qupperneq 22
22 D FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ PÁSKAMYNDIR KVIKMYNDAHÚSANNA ENGINN dýravinur; Glenn Close í 101 Dalmatíuhundi, Gamalt vín ánýjum belgjum ÞEIR, sem vilja rífja upp Stjömustríð, söng- leikinn Evítu, sögu írsku frelsishetjunnar Michael Collins, ævintýrið um Dalmatíu- hundana 101 eða söguna um Grænlending- inn Smillu, ættu að fara á páskamyndir kvikmyndahúsanna í Reykjavík segir Am- aldur Indríðason, sem kynnti sér hvað verð- ur á boðstólum í bíóunum yfír hátíðina. LOKSINS Evíta; Madonna í eftirsóttu hlutverki. FRELSISHETJA íra; úr Michael Collins. GAMLIR kunningjar setja mjög svip sinn á þær bíó- myndir sem sýndar verða í kvikmyndahúsunum um páskana í ár og flestir í nýjum bún- ingi. Söngleikurinn frægi, Evíta hef- ur verið færður í kvikmyndabúning með Madonnu í titilhlutverkinu en Alan Parker er leikstjóri; hin ann- álaða teiknimynd Disneyfélagsins, 101 Dalmatíuhundur, hefur fengið nýtt líf, meira að segja alvöru líf, í nýrri Disneymynd með 101 lifandi hundi og Glenn Close í aðalhlutverk- um; sakamálasagan um ævintýri Grænlendingsins Smillu, Lesið í snjóinn, er orðin að spennumynd í leikstjóm Danans Bille August og loks er Stjömustríð, tuttugu ára gömul geimópera George Lucas, endursýnd um páskana í endur- bættri og lítillega aukinni útgáfu. Allt er þetta á sinn hátt gamalt vín á nýjum belgjum. Murphy og hundamir Af fjórum páskamyndum Sambíó- anna er Lesið í snjóinn kannski sú sem vekur upp fiestar spurningamar (markmiðið er að frumsýna hana um páskana en ef það ekki tekst kemur hún helgina á eftir). Hún hefur fengið afar blendna dóma í bæði evrópsku pressunni og þeirri banda- rísku en hún var frumsýnd vestra fyrir nokkrum vikum. Saga Peter Hoegs, „Smillas fornemmelse for sne“, fór sigurför um heiminn. Hún segir af grænlensk/danskri konu sem flutt hefur af ísnum á Græn- landi til Kaupmannahafnar og % erfitt með að finna sig í gjörólíkum menningarheimi. Lítill vinur hennar fellur fram að þaki blokkarinnar þar sem hún býr og rannsókn hennar á afdrifum hans leiðir hana aftur til Grænlands með dularfullum vís- indaleiðangri. Breska leikkonan Julia Ormond fer með hlutverk Smillu en enska er tungumál myndarinnar, nokkuð sem farið hefur fyrir brjóstið á nor- rænum gagnrýnendum. Richard Harris fer með stórt hlutverk en sagan segir að Bille August hafi bent honum á að skoða Börn náttúr- unnar eftir Friðrik Þór Friðriksson á meðan á tökum stóð og Harris hafi orðið stórhrifinn og komið sér í framhaldi í samband við Friðrik Þór og lýst áhuga á að endurgera myndina á ensku með sér í hlut- verki gamla mannsins. Önnur páskamynd Sambíóanna er nýjasta gamanhasarmynd Eddie Murphy. Hún heitir „Metro“ og í henni leikur Murphy samninga- mann lögreglunnar í gíslamálum. Leikstjóri er Thomas Carter en Mic- hael Rappaport leikur nýliða í lögg- unni á móti Murphy. Eddie virðist kominn aftur á svipaðar lendur og hann var á í „Beverly Hills Cop“ myndunum þar sem mótorkjaftur- inn á honum stoppaði ekki á milli skotbardaga og sprenginga. Ein af frelsishetjum íra frá því fyrr á öldinni, Michael Collins, er viðfangsefni írska leikstjórans Neil Jordans („The Crying Game“) í samnefndri bíómynd með Liam Nee- son í titilhlutverkinu, sem einnig verður páskamynd Sambíó- anna.„Þetta e_r mynd sem mun hafa mikil áhrif á Íra vegna þess að hún fjallar um þætti úr sögu írlands, sem enn er rifist um,“ var haft eft- ir Jordan á sínum tíma og sem von- legt var, vakti myndin mikinn áhuga og umræður á írlandi. Hópur þekktra leikara fer með .hlutverk í myndinni eins og Julia Roberts, Alan Rickman, Aidan Quinn og Stephen Rea. Loks munu Sambíóin sýna leikna útgáfu af Disneyteikni- myndinni 101 Dalmatíuhundi. Teiknimyndin er ein af fjöðrunum í hatti Disneyfyrirtækisins og kannski ein sú erfiðasta að endur- gera með lifandi leikurum, þ.e. hundrað hvolpum. Sagan af grimm- lyndu tískufríki að nafni Cruella De Ville, sem Glenn Close leikur. Hún girnist feld hvolpanna því hann getur verið gott efni í tískuklæðnað og gerir hvað hún getur til að koma þeim fyrir kattarnef, ef svo má segja. Madonna í Evítu Laugarásbíó og Regnboginn sameinast um sýningu á söngleik Andrew Lloyd Webbers, Evítu, í leikstjórn Alan Parkers. Á tímabili leit út fyrir að gerð myndarinnar yrði ein af sögunum endalausu í Hollywood. Undirbúningurinn stóð í ein 20 ár og lengst af var óvíst hvort myndin yrði nokkurntímann að veruleika. Fjöldinn allur af merk- um leikstjórum var orðaður við hana á einum eða öðrum tíma, m.a. Oli- ver Stone, og fjöldinn allur af A- lista Hollwyoodleikkonum hafði gert sig kláran í titilhlutverkið, m.a. Meryl Streep og Michelle Pfeif- fer. En eftir að söngkonan Madonna hafði skrifað leikstjóranum Alan Parker bréf þar sem hún lýsti á ástríðufullan hátt hvers virði hlut- verkið væri henni og hvern skilning hún Iagði í það, sló Parker til og hún hreppti hnossið. Hún hreppti einnig það hnoss að leika á móti spænska hjartaknúsaranum An- tonio Banderas. Hafði það lengi verið hennar draumur. Myndin var tekin á söguslóðum í Argentínu og vakti óskipta at- hygli og jafnvel deilur meðal heima- manna. Madonna æfði með óperu- söngkonum til að ráða skammlaust við erfiðustu söngkaflana. Parker,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.