Morgunblaðið - 27.03.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997 D 23
PÁSKAMYNDIR
NÝ sena í gamalli mynd; Ford hittir Jabba the Hut.
UMBI gerist hugsjónamaður; Cruise í Jerry Maguire.
sem er einn af fremstu leikstjórum
afþreyingarmyndanna, þótt stund-
um eigi hann slæman dag („The
Road to Wellville“), var ánægður
með sönginn. „Hún er ótrúleg", lét
hann hafa eftir sér. Og eftir á að
hyggja er kannski erfitt að ímynda
sér Streep eða Pfeiffer í hlutverk-
inu.
Vinsælt
Stjörnustríð
Stjörnustríðstrílógía George Luc-
as hefur notið óhemju vinsælda nú
síðla veturs í Bandaríkjunum þar
sem hver stjörnustríðsmyndin hefur
verið endursýnd á fætur annarri.
Með endursýningunum varð
Stjörnustríð vinsælasta kvikmynd
sögunnar, var ekki lengi að slá út
„E.T.“ eftir Steven Spielberg, og
þær hafa einnig trónað á toppi
metsölulistans vestra framhalds-
myndirnar, „The Empire Strikes
Back“ og nú síðast Jedinn snýr aft-
ur. Vinsældir myndanna hafa farið
fram úr björtustu vonum framleið-
endanna og gefa nokkra vísbend-
ingu um hvernig næstu þremur
myndum í Stjörnustríðsbálknum
verður tekið en Lucas undirbýr nú
tökur á þeirri fyrstu.
Stjörnustríð er páskamynd Há-
skólabíós og Borgarbíós á Akur-
eyri. Næstum tuttugu ár eru liðin
frá því hún var sýnd síðast á breið-
tjaldi á Islandi, hún var frumsýnd
í Nýja Bíói, svo fjöldi fólks hefur
aðeins séð hana í samanþjappaða í
sjónvarpsformi þar til nú. Lucas
gerði smávægilegar breytingar á
myndunum fyrir endursýningarnar.
Hann bætti nokkrum mínútum við
hveija mynd en i Stjörnustríði er
helsta viðbótin atriði þar sem Harri-
son Ford í hlutverki Han Solo á
fund með g|æpaforingjanum Jabba
the Hut. „Ég vildi hafa það með
vegna þess að það hefur þýðingu
síðar meir í tengslum við það sem
kemur fyrir Han Solo í lok myndar-
innar og ég vildi geta myndað tengsl
á milli fyrstu myndarinnar og þeirr-
ar þriðju eins og þau áttu að vera
upprunalega," er haft eftir Lucas.
Ætlunin er að endursýna „Empire"
þann 4. apríl og Jedann 18. apríl.
Aðrar páskamyndir Háskólabíós
eru nýjasta mynd nýsjálenska leik-
stjórans Jane Campion (Pianó),
„The Portrait of a Lady“, sem gerð
er eftir þekktri sögu Henry James.
Cruise og umbinn
Páskamynd Stjörnubíós er nýj-
asta mynd Tom Cruise, „Jerry
Maguire", í leikstjórn Cameron
Crowe en hún hefur einnig verið
sýnd í Laugarásbíói og Sambíóun-
um. Hún fjallar um umboðsmanninn
Jerry Maguire, sem sérhæfir sig í
íþróttastjörnum. Dag einn gerist
hann hugsjónamaður og setur nýjar
tillögur á blað um hvernig best sé
að reka umboðsmannafyrirtækið
með fólk í fyrirrúmi en ekki gróða-
sjónarmið. Hann er rekinn á svip-
stundu. Honum fylgir þó útherji í
ameríska fótboltanum og verður
hann eini viðskiptavinur nýs fyrir-
tækis sem Jerry stofnar.
Jerry er samstarfsverkefni
þriggja manna. Cruise er auðvitað
stærsta og ábyggilegasta kvik-
myndastjarna draumaverksmiðj-
unnar, maður sem lagt hefur Holly-
wood að fótum sér. Hann getur
gert hvaða mynd sem er að metsölu-
efni og framleiðendur berjast um á
hæl og hnakka að fá hann í mynd-
irnar sínar. Crowe hefur aðeins
stýrt þremur myndum að þessari
meðtaíinni, hinar tvær eru „Say
Anything“ og „Singles", og er ört
vaxandi leikstjóri. Sá þriðji er leik-
stjórinn og framleiðandinn James
L. Brooks, maðurinn á bak við ósk-
arsstykkin „Terms of Endearment"
og „Broadcast News“ að ógleymd-
um sjónvarpsþáttunum um Hómer
Simpson og þá fjölskyldu alla.
Með önnur hlutverk í myndinni
fara Cuba Gooding, Kelly Preston
og Renee Zellweger.
/1STM borðstofuhúsaöon
Með Asti Knunni bjóðum við upp á breiða línu húsgagna úr gegnheilum
kirsjuberjaviði. Hægt er að velja úr miklum fjölda húsgagna í Asti
hnunni sem fullnægja nánast öllum þáttum heimihsins.
Opið laugardag
29. mars frá hl. 10-16
Síðumúla 20, sími 568 8799
Dalsbraut li, sími 461 1115.
Mði^l mertning
t XDIKGA
ÖGUR
I tilcfm 60 arn afnudis Máls ojj mcmiijijjar býðst pcr ai) kaupa
vandadnr útjjáfur af horjistcijium íslcnskrar bókmcnninjjar
Á ALI t AÍ> beLmiKlQl LæQRA veRðl cn týrr!
t)RlNiqC>U STRAJX l SICDA 588 7744
Grcióslukjör vid alli’n hæfi!
Tryjujdu þcr tilbodid mcöan birjjdir cndast!
■ :