Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Vortónleikar Háskólakórsins á Seltjarnarnesi
Martröð frumflutt
HÁSKÓLAKÓRINN efnir til tónleika í
Seltjarnarnesskirkju í kvöld.
VORTÓNLEIKAR Háskólakórsins
verða í Seltjarnarnesskirkju í kvöld,
sunnudag, kl. 20. Á tónleikunum
verður frumflutt nýtt verk eftir
Egil Gunnarsson en af öðrum tón-
skáldum sem eiga verk á efnis-
skránni má nefna Hjálmar H. Ragn-
arsson, Leif Þórarinsson, Paul Hin-
demith og Árna Harðarson. Stjóm-
andi kórsins er Hákon Leifsson.
Verk sitt nefnir Egill Martröð en
það er samið við ljóð eftir Örn Arn-
arson. „Ég byijaði á þessu verki
fyrir um það bil ijórum árum og
hafði þá Háskólakórinn sérstaklega
i huga. Síðan óx verkið mér í aug-
um, þannig að ég lét það kyrrt
liggja þar til formleg beiðni um
tónverk kom frá kórnum síðastliðið
sumar. Þá byijaði ég aftur á því
og lauk endanlega við það í byijun
ársins.“
Egill segir að verkið sé sex radda,
um sjö mínútur í flutningi og milli-
kaflinn sé skrifaður með tólftóna
aðferð. „Ég bjó til tónaröð sem á
að lýsa rísandi bylgjum enda býður
textinn upp á slíka stemmningu -
það er sjórekið lík sem talar til
manns.“
Egill, sem er menntaður tónfræð-
ingur, ætti að vera öllum hnútum
kunnugur í Háskólakórnum en
hann söng í kórnum um nokkurt
skeið og síðastliðið starfsár stjórn-
aði hann honum í íjarveru Hákonar
Leifssonar. „Eftir þetta má eigin-
lega segja að ég sé búinn að koma
að kórnum á alla vegu.“
Meðal annarra verka sem Há-
skólakórinn flytur í kvöld er Maríu-
músik eftir Leif Þórarinsson, en
kórinn frumflutti verkið árið 1993.
Flokkurinn er saminn við texta
Stefáns frá Hvítadal, Vilborgar
Dagbjartsdóttur og Ave maríu texta
kaþólsku kirkjunnar.
Kórinn mun þá fytja nokkur kór-
lög Hjálmars H. Ragnarssonar sem
hann ýmist útsetti eða samdi fyrir
kórinn þegar hann var kórstjóri
hans. Einnig flytur kórinn þjóðlaga-
útsetningar eftir Árna Harðarson
og Atla Ingólfsson og tvo madrig-
ala eftir Atla Heimi Sveinsson, auk
lagaflokksins Six Chansons eftir
Paul Hindemith.
Háskólakórinn verður 25 ára á
þessu ári og ætlar, af því tilefni,
að gefa út geislaplötu sem hefur
að geyma nokkur þeirra kórverka
sem kórinn hefur frumflutt á und-
anförnum árum. Auk þess er á 1
stefnuskrá kórsins að gefa út aðra I
geislaplötu með lögum sem ýmist i
hafa verið útsett eða samin fyrir
kórinn.
GE þvottavél, 800 snúninga. Rétt verð kr. 61.900 stgr.
GE þvottavél, 1000 snúninga Rétt verð kr. 69.900 stgr.
HEKLA LAUGAVEGI 172 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 569 5775
ÚTSÖLUSTAÐIR: HEIMSKRINGLAN, KRINGLUNNI, REYKJAVÍK, S.G.BÚÐIN,
KJARNANUM, SELFOSSI, JÓKÓ, AKUREYRI. VERSLUNIN VÍK, NESKAUPSSTAB,
RAFMÆTTI, MIÐBÆ, HAFNARFIRBI, REYNISSTAÐUR, VESTMANNAEYJUM,
KAUPFÉLAG ÞINGEYINGA HÚSAVÍK, HLJÓMSÝN, AKRANESI.
Börn og
goð-
sagnir
BÖRN, goðsagnir og smáar ver-
ur sem tilheyra öðrum heimi eru
yrkisefni Jóns Thors Gíslasonar
myndlistarmanns á sýningu sem
hann hefur opnað í Sverrissal
Hafnarborgar. Á sýningunni eru
13 olíumálverk og 21 teikning.
Listamaðurinn kveðst alla tíð
hafa fengist við manneskjuna í
verkum sínum en barnið hafi
farið að skipa veglegri sess fyrir
um það bil fimm árum. „Barnið
getur verið tákn fyrir svo margt,
ekki bara sakleysið, og minnir
mann oft á goðsagnakenndar
verur — huldar verur.“
Jón Thor segir að barnið sé í
furðu litlum metum hjá sjónlista-
mönnum sem skjóti skökku við
þar sem það sé ákaflega áhuga-
vert myndefni. „Börn lifa í ævin-
týraheimi sem er raunverulegur
fyrir þeim og eiga því ekki i vand-
ræðum með að búa til sjóræn-
ingja og indíána líkt og bændur
og búalið í íslenskum sveitum
bjuggu til álfa og huldar verur á
síðustu öld. Tilvera þeirra var
vitaskuld ekkert annað en ósk
fólksins um betri heim — betra
lif. Nú á dögum standa börnin
mun nær þessum goðsagna-
kennda heimi en fullorðnir."
Verkin í Hafnarborg eru öll
unnin á undanförnum sex mán-
uðum á vinnustofu listamannsins
á íslandi og í gestavinnustofu
myndlistarmanna, Kunstlerhaus,
í Cuxhaven, vinabæ Hafnarfjarð-
ar í Þýskalandi, þar sem Jón
Thor var fyrsti gesturinn. Var
sýningin unnin sérstaklega með
Sverrissal í huga og sakir þess
eru verkin nokkru smærri en
hann er þekktur fyrir.
Jón Thor hélt sína fyrstu
I
>
I
I
einkasýningu fyrir fjórtán árum
og hefur víða komið við siðan,
innanlands sem utan. Síðasta
einkasýning hans hér á landi var
í Hafnarborg 1994. Undanfarin
átta ár hefur Iistamaðurinn að
mestu búið í Þýskalandi, þar sem
hann lagði meðal annars stund á
nám við Staatliche Akademie der
Bildende Kunste í Stuttgart og
sótti tíma i frjálsri málun hjá
prófessor Erich Mansen.
Morgunblaðið/Kristinn
„BARNIÐ getur verið tákn fyrir svo margt, ekki bara sakleys-
ið, og minnir mann oft á goðsagnakenndar verur - huldar
verur,“ segir Jón Thor Gíslason.
Aðalfundur BIFREIÐASKOÐUNAR hf.^
Aðalfundur Bifreiöaskoðunar hf. fyrir árið 1996 verður
haldinn 21. apríl 1997 kl.16 að Hesthálsi 6-8, Reykjavík.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 12. grein samþykkta
félagsins
2. Tillaga stjórnar um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Tillaga stjórnar um kaup á eigin bréfum félagsins.
4. Tillaga stjórnar um aukningu hlutafjár í félaginu. Tillagan gerir
ráð fyrir aö hluthafar víki frá áskriftarrétti sínum.
Endanlegar tillögur
hluthöfum til svnís á skri
r rundargögn liggja frammi
eiaqsins að Hestháisi 6-8, Reykjavík.
Stjórn Bifreiðaskoðunar hf.