Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1997 25 Skipholti 21 • 105 Reykjavik • Sími: 511 5111 Tölvupóstur: info@apple.is Slóó: http://www.apple.is Viðskiptaskrifstofa í undirbúningi Hornfirðing- ar gefa út afmælisdisk DÆ GU RLAGAKEPPNI í tilefni ald- arafmælis byggðar á Höfn fór fram 28. september sl. Til úrslita kepptu 11 lög sem leikin voru af hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar. Afraksturinn úr keppninni þótti með slíkum ágætum að ákveðið var að ráðast í útgáfu á þessum lögum og standa þannig fyrir fyrsta hljóm- diski sem gefinn er út með homfirsku efni eingöngu. Hinn kunni tónlistar- maður og Homfírðingur, Grétar Örv- arsson, hafði yfímmsjón með útgáf- unni og hófst hann handa snemma árs við undirbúning. Af 11 lögum sem send vora í keppnina var ákveðið að hafa 9 á disknum. Þótti mönnum síðan vel til fundið að gefa tónlistarfólki á Homa- firði tækifæri til að koma tónlist sinni á diskinn og því bættust við lög frá Karlakómum Jökii, kór aldraðra, Gleðigjöfum, Djassbandi Hornafjarð- ar og hjónunum Kalla og Berthu. Grétar Örvarsson samdi eitt lag sér- staklega fyrir þennan disk, Jens Ein- arsson bankaði á dyrnar með blúslag undir hendinni og þeir félagar Magn- ús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson léku ásamt Blúskompaníinu Horna- fjarðarblús. Margir landskunnir söngvarar ljá lögunum raddir sínar og má m.a. nefna Helgu Möller, Bjarna Arason, Sigrúnu Evu, Siggu Beinteins, Pálma Gunnarsson, Ólafíu Hrönn o.fl. Opinber útgáfudagur disksins er 12. apríl og þá verður haldin útgáfu- hátíð í íþróttahúsinu á Höfn. Á hátíð- inni koma fram fjölmargir listamenn sem tengjast útgáfunni og Stjómin mun leika fram á rauða nótt. Hátíðin hefst kl.22 en húsið opnar kl. 21. Er ekki sú þekking og reynsla sem hefur fengist á undanförnum tveimur árum verðmæt fyrir önnur fyrirtæki sem geta hugsað sér að koma hér á markaðinn? „Jú, og þess vegna hefur komið til tals að breyta skrifstofunni hér í Peking í almenna markaðsskrif- stofu og opna aðgengi fyrir önnur fyrirtæki. Það eru stórfyrirtæki heima sem hafa sýnt áhuga á að nýta það. Við erum, til dæmis, að vinna markaðskönnunarverkefni fyrir Borgarplast og erum byijuð að miðla tengslum á milli fiskfram- leiðenda heima og fiskkaupenda hér. Þessi skrifstofa mun þá fara yfir í það að geta sinnt markaðs- könnun, markaðssetningu og al- mennri aðstoð, auk beinnar sölu.“ Nú hefur þú verið meira og minna í Kína í þrjú ár. Að hvaða leyti eru Kínverjar ólíkir okkur í viðskiptaháttum? „Það er mjög sérstakt að vinna í Kína. Viðræðuaðilar okkar eru flestir opinberir starfsmenn og oft bera samningaviðræður þess merki. Þegar Vesturlandabúi kemur hing- að til að keyra eitthvað í gegn þarf hann oft að staldra við til að aðlaga sig þeim hraða og hugsunarhætti sem heimamenn hafa. Það er oft erfiðasti þröskuldurinn, sem útlend- ingar þurfa að stíga yfir. Síðan er mjög mikilvægt að átta sig á því að mannlegi þátturinn er miklu sterkari en annar staðar í samningagerð. Kínverjar leggja mjög mikið up úr persónulegum samskiptum við fólk. Ef þeim líkar persónulega vel við þig vilja þeir eiga viðskipti við þig. Það skiptir þá ekki öllu máli á hvaða sviði það er.“ menn lögðu um 300 milljónir í fyrir- tækið. Stór og margþættur markaður Silfurtún hefur þegar selt eina vél sem á að framleiða matarbakka til Kína. „Það var stofnað sérstakt fyritæki, „Joint Venture," til þess að sú sala næði fram að ganga. Þar erum við þátttakendur og höf- um stjómarsetu. Þetta er samning- ur upp á hundrað milljónir króna og þessi vél er fyrsta innflutta vélin í Kína sem beinlínis er ætlað að framleiða þessa bakka úr pappa- massa. Heimamenn hafa þróað tækni til að framleiða þessa bakka, en ná ekki þeim gæðum eða afköst- um sem tryggja arðsemi. Nú bíða stjórnvöld þess að vélin fari í gang, vegna þess að þörfín fyrir bakkana er mjög brýn. Það er mjög brýnt að losna við plast- bakkana og komast í umhverfis- vænar pakkningar. Þetta er verk- efni með stimpli um svokallað „min- isterial project", sem þýðir að ábyrgð fyrir því að leysa verkefnið liggur hjá ráðherra járnbrauta. Járnbrautarfélagið eitt notar um 600 milljónir bakka á ári. Það er litið á þessa bakka sem væntanlega lausn á því vandamáli sem skapast þegar menn fleygja matarbökkun- um út um gluggana á járnbrautun- um. Heildarnotkun á matarbökkum í Kína er sjö billjónir á ári, sem þýð- ir að til að anna því magni þurfi 140 svona vélar. Við náum að sjálf- sögðu ekki öllum markaðinum, en þetta eru möguleikarnir. Þess utan eigum við aðgang að markaði fyrir landbúnaðarpakkn- ingar; til að pakka eggjum, ávöxt- um og þess háttar. Ennfremur eig- um við aðgang að markaði með stuðningspakkningar, sem koma í staðinn fyrir plastið þegar pakkað er myndbandstækjum, sjónvörpum og hveiju sem er. Þetta eru þeir möguleikar sem við eigum í Kína — og það er litið á okkar fyrirtæki sem leiðandi, vegna þess að við erum eina er- lenda fyrirtækið á þessu sviði með skrifstofu í Kína. Á mánudaginn eigum við fund með forsvarsmönnum járnbraut- anna. Við höfum verið valdir af þeim til þess að vinna með þeim við að leysa þetta matarbakka- vandamál. Bara járnbrautirnar þurfa tíu vélar." Ljósmynda- sýning Grunn- skóla og Fé- lagsmiðstöðva í Reykjavík SÝNING á ljósmyndun sem nem- endur í grunnskólum og félagsmið- stöðvum í Reykjavík hafa tekið var opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur 11. apríl. Formaður íþrótta- og tóm- stundaráðs, Steinnunn V. Óskars- dóttir, opnaði sýninguna og af- hendir verðlaun. Sýningin er í tvennu lagi annars vegar Svart á hvítu. Svart/hvítar myndir sem nemendur hafa unnið að öllu leyti sjálfir á námskeiðum innan skólanna eða í félagsmið- stöðvum Reykjavíkurborgar á veg- um Iþrótta- og tómstundaráðs. Verkefning voru: Portrett, And- stæður og Frjálst myndefni. Ljós- myndasprettur ÍTR. Verkefnin þar voru: Hópmynd af keppendum, Spilling, Órka, Fjölskylda, Endur- vinnsla, Friður, List, Gleði, Á ferð og Nútíminn. Dómnefnd skipuðu eftirtaldir ljósmyndarar: Sigurgeir Birgisson frá Ljósmyndavörum, Kristján Maack frá BECO og Hilmar Þór Guðmundsson frá ÍTR. Samtals bárust um 350 myndir í keppnina. U/i/UUkrstgr, í tilefni 20 ára afmælis Apple tölvunnar bjóðum við Power Macintosh 5260 á sérstöku hátíðarveroi. Þessi öfluea maremiðlunartölva kostar aðeins 129.900 kr! Kíktu inn í verslun okkar að Skipholti 21 og kynnstu kostum Power Macintosh vélanna - þú sérð ekki eftir því. Apple-umboðið POWER MACINTOSH, PERFORMA 5260:1,2 GB harður diskur, 12 MB RAM, PowerPC 603e RISC - örgjörvi með 120 megariða vinnslutíðni, 14 tommu (þumlunga) litaskjár með skuggasíu og 640x480 punkta skjáupplausn. 16 bita hljóðkerfi með innbyggðum víðóma hátölurum, inn- og úttök fyrir hljóð. Tengist netkerfum auðveldlega. Afar létt er að auka möguleika hannar og gæða enn frekara afli. Vinnslu- og leikjaforrit fylgja: Aladin, BOES, Descent, Full Thro., GME1996, The Lion King, The Ultim., Toy Story, Claris Works.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.